Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Blaðsíða 48
56 unglingaspjall
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1995 1
Félagslífið
í MR eru um 950 nemendur. Það
er því augljóst að áhugamál nem-
enda skólans eru eins mismunandi
og hugsast getur. Reynt er að höfða
til sem allra ílestra með starfsemi
Skólafélagsins og Framtiðarinnar.
Ýmsar hefðir hafa skapast í 150 ára
sögu skólans og eins og MR er von
og vísa er reynt af fremsta megni að
halda þessar hefðir í heiðri. Þó er
ekki hægt að segja að félagslífið sé
staðnað eða dautt heldur þvert á
móti.
í MR hefur vel tekist að halda í
gamlar hefðir samfara því
að sinna kröfum nú-
tímans. Hér verður
stutt útlistun á fé-
lagslífinu eins og
það er:
Skólafélagið.
Allir nemend-
ur eru í
Skólafé-
lagi
Mennta-
skólans í
Reykja-
vík. í
stjórn eru
þrír ein-
staklingar
sem bera
torkennileg latnesk heiti.
Inspector scholae er forseti Skóla-
félagsins, Scriba scholaris er ritari
þess og Quastor scholaris er gjald-
keri. Skólafélagið sér um flesta at-
burði félagslífsins, þ. á m. árshátíð.
Hún var í ár haldin á Hótel íslandi.
Framtíðin: Málfundafélag MR er
sjálfstætt og óháð Skólafélaginu.
Það stendur fyrir málfundum og
sendir lið til þátttöku í Morfís.
Framtíðin sér einnig um árshátíð
sem allajafna er haldin á öskudag.
Er sú árshátíð síst umfangsminni
en árshátíð Skólafélagsins.
Flestir nemendur eru einnig í
Framtíðinni en undir báðum þess-
um félögum starfar fjöldi undirfé-
laga og ráða sem hafa umsjón með
flestu því sem gerist. Þannig geta
stjórnir Skólafélagsins og Framtíð-
arinnar komist upp með að gera
sama og ekkert allan veturinn.
Góð stemning
Félagsaðstaðan í MR er ekki
íburðarmikil en þar getur þó mynd-
ast hin ágætasta stemning. Húsið
sem hýsir stærstan hluta félagslífs-
ins heitir einnig torkennilegu
latnesku nafni. Það heitir Casa
Nova sem þýðir nýja húsið
þrátt fyrir aö húsið sé ekkert sér-
staklega nýtt. Þangað eru oft fengn-
ar hljómsveitir til að spila á kvöldin
eða í frímínútum. Þangað hafa safn-
ast allt að 500 manns sem dansa þar
í steikjandi hita og brjáluðum fil-
ingi. Casa Nova er einnig notað
undir aðra atburði, s.s. kvikmynda-
kvöld, sem hafa gert mikla lukku í
vetur, listakvöld og margt fleira.
Stærstu atburðir félagslífsins, eins
og böll, fara fram á skemmtistöðum
borgarinnar. MR-böll eru almennt
viðurkennd sem langskemmtileg-
ustu böllin á höfuðborgarsvæðinu
og þótt víðar væri leitað. Einnig
eiga ýmsir klúbbar það til að nota
kaffihús borgarinnar sem vettvang
fyrir atburði sína.
ÍMR
í MR er blaðaútgáfan gróskumik-
il. Menntaskólatíðindi koma út.
Skólablaðið á að koma út tvisvar á
vetri. Það blað hefur öllu alvarlegri
undirtón enda mun vandaðra og
eigulegra blað. Framtíðin og Skóla-
félagið gefa Menntaskólatíðindi út í
sameiningu en Skólafélagið gefur út
Skólablaðið. Framtíðin gefur Skin-
faxa út og kemur það út
árlega.
Merkileg
herranótt
íþróttahreyfingin í
MR er í miklum
vexti um þessar
mundir. íþróttafé-
lagið hefur verið
starfrækt frá 1929
en hefur verið í
mikilli lægð á und-
anförnum árum,
þar til nú.
Herranótt er lík-
lega merkilegasta
fyrirbærið í félags-
lífinu í MR. Herra-
nótt er elsta leikfé-
lag landsins og má
rekja sögu þess allt
aftur á 18. öld. Margir bestu leikar-
ar landsins hafa stigið sín fyrstu
skref á fjölunum í leikritum
Herranætur. Listafélagið ér félags-
skapur í MR sem sér um listalíf
skólans. Þar er vettvangur fyrir nýj-
ungar í félagslífinu og oft stendur
Listafélagið fyrir stórskemmtilegum
og framúrstefnulegum viðburðum
sem jafnan vekja mikla athygli. Það
sem gerir MR og félagslíf hans sér-
stakt er fyrst og fremst nemendur
skólans. Þeir bindast sérstökum
böndum strax á fyrstu vikum
menntaskólagöngu sinnar. Það er
alltaf mikil gleði þegar MR- ingar
koma saman.
Stjórn Skólafélags
Menntaskólans í Reykjavík.
n hliðin
Mamma fallegust fyrir utan eiginkonuna
- segir Júlíus Freyr Guðmundsson tónlistarmaður
Júlíus Guðmundsson, sem er í
hljómsveitinni Deep Jimi, sýnir á
sér hina hliðina í þetta skiptið.
Júlíus er sonur stórpopparans suð-
ur með sjó (Guðmundar) Rúnars
Júlíussonar og var að senda frá sér
geisladisk á dögunum ásamt þrem-
ur félögum sínum í Deep Jimi. Fé-
lagarnir fóru ótroðnar slóðir þegar
kom að því að finna umbúðir utan
um diskana. Fundu þeir gömul
plötuhulstur, klipptu þau niður,
sprautuðu þau og handmáluðu þau
síðan. Um var að ræöa
þúsund umslög
og tók
Fullt nafn: Júlíus
Freyr Guðmunds-
son.
Fæðingardagur og
ár: 22. september
1971.
Maki: Guðný Kristjáns-
dóttir.
Börn: Kristín Rán, 3 ára.
Bifreið: Subaru station ár-
gerð 1988.
Starf: Tónlistarmaður.
Laun: Upp og ofan.
Áhugamál: Tónlist og kvikmynd-
ir.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottói? Nokkrum sinnum fengið
þrjá rétta í lottóinu.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Fara í sturtu.
Hvað finnst þér léiðinlegast að
gera? Vera í aukavinnunni minni
sem felst í því að mála.
Uppáhaldsmatur: Lambalæri.
Uppáhaldsdrykkur: Trópí.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag að þínu mati?
Michael Jordan.
Uppáhaldstímarit: Sjónvarpsvís-
ir Stöðvar 2.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan eiginkon-
una? Mamma.
Ertu hlynntur eða andvígur rík-
isstjóminni? Ég er svona mitt á
milli þess að vera hlynntur og and-
vígur henni.
Hvaða persónu langar þig mest
að hitta? Woody Allen.
Uppáhaldsleikari: Woody Allen.
Uppáhaldsleikkona: Jodie Fost-
er.
Uppáhaldssöngvari: John
Lennon.
Uppáhaldsstjórnmálamaður:
Jóhann Geirdal.
verkið tvær vikur
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Ren og Stimpy.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Simp-
son- fjölskyldan á SKY.
Uppáhaldsmatsölustaður:
Madonna í Reykjavík.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Mig langar að lesa 1984 eftir
Orwell aftur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás 2.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Gestur
Einar Jónasson.
Hver sjónvarpsrásanna finnst
þér best? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Eng-
inn sérstakur í uppáhaldi.
Uppáhaldsskemmtistaður: Strik-
ið í Keflavík.
Uppáhaldsfélag í íþróttum:
Keflavik.
Stefnir þú að einhverju sérstöku
í framtíðinni? Aö gefa út aðra
plötu með Deep Jimi.
Hvað gerðir þú í
sumarfríinu? Ég -<
vann í allt sumar svo V
það gafst enginn tími
til sumarleyfis.
-ELA Æ
Æk
Júlíus Freyr
Guðmundsson
tónlistarmaður.
DV-mynd Ægir Már
Jamie Walters, leikari í Beverly Hills 90210 og The Heights.
Unglingaþættirn-
ir eru bara plat
- segir Jamie Walters
Hann er 26 ára og segir að sér sé
alveg sama um þeennan stelpufans í
kringum sig. „Ég hef engan áhuga á
þessum stelpum," segir Jamie Walt-
ers, leikari í Beverly Hills 90210 og
The Heights. Hann hefur nýlega gef-
ið út eigin plötu og langar mest til að
verða frægur í poppinu. Auk þess á
hann Mustang og hefur gaman af að
dúlla við hann í bílskúrnum.
Stelpurnar, sem eru einlægir
aðdáendur Jamies, verða varla
hrifnar af þessum yfirlýsingum
hans. Hann á þó kærustu strákur-
inn og hefur verið í tveimur sam-
böndum, með leikkonunni Drew
Barrymore og fyrirsætunni Christ-
inu Tyrell. Jamie lætur ekkert sér-
staklega vel af þessum samböndum
og segir Drew hafa bara viljað vera
út á lífinu og láta ljósmyndarana
mynda sig. Þegar hann komst að því
að hún var honum ótrú sagði hann
henni upp.
Jamie Walters er frekar neikvæð-
ur ungur maður. Hann hefur
íBeverly Hills 90210
ákveðnar skoðanir á sjónvarpsþátt-
um fyrir unglinga og segist hata
Strandverði og Melrose Place. „Ég
horfi ekki á þessa þætti. Þeir eru
bara plat. Sama má segja um
Beverly Hills 90210.“
Hann segist vera leiður á hlut-
verki sínu sem Ray Pruitt í Beverly
Hills og ætlar aðeins að vera með í
einni þáttaröð til viðbótar. „Þessir
þættir eru ekki um raunverulegt líf
unglinga. Langflestir unglingar lifa
ósköp venjulegu lífi langt frá þessu
glamúrlífi sem er í þáttunum..1*
Jamie átti sjálfur ósköp venjulega
æsku. í seinni tíð hefur hann reynt
að breyta sér í rokkara og hefur lát-
ið tattóvera sig. Hann gengur venju-
lega bara í gallabuxum og bolum.
Hann passar vel inn í Levis-auglýs-
ingu.
En nú leggur hann allt kapp á að
verða tónlistarmaður og þótt platan
hans hafi ekkert selst sérstaklega
vel þá er hann bjartsýnn á fram-
haldið.
Vampíra með
gullaugu
Villtasta hlutverkið sem Eddie
Murphy hefur fengið til þessa er í
kvikmyndinni Vampíra í Brooklyn.
Þar fer kappinn með hlutverk
vampíru með skínandi gullaugu en
ekki vígtennur eins og flestar vam-
pírur eru þekktar fyrir. Gullaugun
munu vera helsta vopn þessarar.
skrýtnu vampíru. Myndin hefur
þegar verið frumsýnd í Bandaríkj-
unum.