Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1995, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1995, Qupperneq 3
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA 3 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 SUSANNA TAMARO PÉTÍPON fíjtirn i. LJÓÐ DAGSíNS Sujurbprn Hinarsxn (fntð SfcTBERG > V ' Ljóð dagsins Sigurbjörn Einarsson valdi efnið í þessari veglegu bók eru mörg hundruð Ijóð eftir 93 íslensk skáld - eitt Ijóð fyrir hvern dag ársins - og auk þess á hverri síðu „Orð til íhugunar". Allir sem unna Ijóðum munu hitta marga vildarvini á blöðum þessarar bókar. Og víst er að þeir sem staldra við hjá henni stundarkorn á hverjum degi munu hafa af því öfurlitla upplyftingu sem gerir þeim lífið léttara. Hugljúf lesning hvern dag ársins. Sannarlega eiguleg bók - og vegleg tækifærisgjöf. ALLT m MYNDBANDS TÖKU Fimm læknar segja frá Önundur Björnsson skráði Þrautreyndir læknar fara á kostum og segja frá sjálfum sér, fjölþættum skoðunum sínum og læknisferli. En þeir eru: Árni Björnsson, fyrrverandi yfirlæknir lýtalækningardeildar Landspítalans, Björn Önundarson fyrrverandi héraðslæknir og heimilislæknir í Reykjavík, Hrafnkell Helgason yfirlæknir á Vífilsstöðum, Pétur Pétursson frá Höllustöðum, heimilislæknir á Akureyri og Þorgeir Gestsson fyrrverandi héraðslæknir og heimilislæknir í Reykjavík. í bókinni eru 65 myndir. Lát hjartað ráða för Susanna Tamaro Þýðing: Thor Vilhjálmsson Þessi bók kom fyrst út í heimalandi höfundar, Ítalíu, fyrir 18 mánuðum og hefur selst þari 2 milljónum eintaka. Hún hefur nú komið út á 20 tungumálum og hvarvetna hlotið frábærar viðtökur. „Lát hjartað ráða för“ er saga konu sem lifað hefur langan dag og óskar barnabarni sínu þeirra heilla, að hjartað megi ráða för - áður en það er um seinan. Úr ritdómi um „Lát hjartað ráða för“: „Verkið er sneisafullt af vitsmunalegri hlýju ... skáldsaga, sem er sérlega vel rituð ... Hin mikilvægu skilaboð um vægi sjálfstæðrar skynjunar óma í yndislegri sögu, sem er rík af hlýju, vel hugsuð og vitræn ... Unun er að lesa þýðingu Thors svo hljómfögur og stílhrein er hún.“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Alþýðublaðinu. Pétur siómaður Ásgeir Jakobsson Pétur sjómaður er ævisaga Péturs Sigurðssonar alþingismanns, sem um þriggja áratuga skeið setti mikinn svip á stjórnmála- og verkalýðssögu landsins og var alþjóð kunnur sem „Pétur sjómaður". Hér segir af sjómannsferli Péturs, 28 ára þingsetu hans, - baráttu fyrir hagsmunamálum sjómannastéttarinnar og forystu hans við uppbyggingu Hrafnistuheimilanna. Pétur sjómaður er því allt í senn: sjómannssaga, framkvæmdasaga og verkalýðs- og stjórnmálasaga. Bókina prýða 120 myndir. Vængir ástarinnar Danielle Steel Þýðing: Skúli Jensson Spennandi ástar- og fjölskyldusaga eftir metsöluhöfundinn Danielle Steel. Svona erum við Þýðing: Örnólfur Thorlacius Þessi bók er einkum sniðin að ungum lesendum frá 6 til 12 ára. - Myndskreytt fróðleiks- og uppsláttarrit. Dagbók barnsins Ný falleg, litprentuð bók sem varðveitir minningar um barnið frá fæðingu og fyrstu árin. Bók sem verður örugglega skoðuð aftur og aftur. Allt um myndbandstöku Þýðing: Örnólfur Thorlacius Ómissandi handbók fyrir alla sem eiga og nota myndbandsvél (vídeó) eftir hinn heimsfræga Ijósmyndara og kennara John Hedgecoe. Efninu til skýringar eru 800 litmyndir. FREYJUGÖTU 14. REYKJAVÍK SÍMAR551 7667 - 552 9150
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.