Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1995, Blaðsíða 6
6
útlönd
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 JjV
stuttar fréttir
HlV-smitið horfið
Sænskt barn, sem var smitað
af HlV-veirunni sem veldur al-
næmi, við fæðingu sýnir ekki
smit lengur og vita læknar ekki
hvers vegna svo er.
Arafat í baráttu
Yasser
Arafat, leið-
togi Frelsis-
fylkingar
Palestínu
(PLO), sem
sækist eftir
að vera
kjörinn for-
seti Palestínumanna, hóf kosn-
ingabaráttu slna I Nablus í gær
þar sem hann ávarpaði þúsund-
ir manna.
Missa valdatökin
Allt bendir til að stjómar-
flokkurinn á Grænhöfðaeyjum
missi ofurtök sín á valda-
taumunum eftir kosningarnar
sem verða í landinu á morgun
vegna óánægju almennings.
Miklar fjárfestingar
Erlendar fjárfestingar eru
helsti hvati efnahagslífs heims-
ins og er búist við að þær verði
235 milljarðar dollar á þessu
ári.
Kommúnisminn óholiur
Naína Jeltsín, forsetafrú í
Rússlandi, minnti landa sína á
það á fimmtudag hversu óhollt
líf þeirra hefði verið á valda-
tíma kommúnista.
Þorskastríð skollið á
Stríð er skollið á milli sjó-
manna á Borgundarhólmi og
eigenda fiskvinnslufyrirtækja,
sem, að sögn sjómanna, viíja
ekki greiða nógu hátt verð fyrir
þorskinn.
Ekki kvóti á lax
ESB fellst ekki á kröfu íra
um kvóta á norskan lax en
íhugar að ákveða lágmarks-
verð.
Deilur meðal Serba
Klofningur er kominn upp í
röðum Bosníu-Serba eftir und-
irritun friðarsamkomulagsins.
Lýsti yfir sigri
Louis
Viannet,
leiðtogi
franska
verkalýðsfé-
lagsins
CGT, lýsti
því yfir í
gær að
járbrautarstarfsmenn í verk-
falli hefðu sigrað.í baráttunni
gegn niðurskurði á velferðar-
kerfi Frakklands.
Sódóma fundin
Jarðfræðingar skýrðu frá því
í gær að þeir hefðu fundið út
hvar Biblíuborgimar Sódóma
og Gómorra voru við Dauðahaf-
ið. Reuter, NTB, Ritzau
Erlendir markaðir:
Olíuverð
hefur hækk-
að lítillega
Olíuverð á erlendum mörkuðum
hefur breyst lítillega undanfarna
viku og má sem dæmi nefna að
tunna af hráolíu hækkaði úr 17,47
dollurum í 18,03. Bensínverö hækk-
aði einnig lítillega en ekki var þar
um neinar sveiflur að ræða.
Hlutabréfaviðskipti hafa verið
með ágætum blómp í erlendum
kauphöllum og hefur vísitalan
hækkað í Fraijkfurt, Tokyo og Hong
Kong en staðið nokkuð i stað í
Lundúnum og Frankfurt.
Upplýsingar um verð á kafíi og
sykri bárust ekki og helst það því
óbreytt. Reuter
Jeltsín Rússlandsforseti varar landa sína við því að kjósa kommúnista:
Leyfið öflum fortíðar
ekki að ná völdunum
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
veittist að kommúnistum, sem
stjórnuðu landinu í sjötíu ár, án
þess að nefna þá á nafn og hvatti
þjóðina til að veita ekki öflum for-
tíðarinnar brautargengi í kosning-
unum á morgun.
„Það hættulegasta er að fulltrúar
sumra flokka vilja hverfa með land-
ið aftur til fortíðarinnar,“ sagði
Jeltsín í sjónvarpsávarpi tO rúss-
nesku þjóðarinnar í gær. „Það eru
sorgleg mistök."
Jeltsín var skýrmæltur í tólf min-
útna löngu ávarpinu sem var tekið
upp á flmmtudag á heilsuhælinu
þar sem hann hefur dvalist um all-
langt skeið vegna vægs hjartaáfalls
sem hann varð fyrir haust. Hann
var miklu grennri en áður og að
sögn aðstoðarmanna hans er hann
Díana prinsessa er komin með
nýjan kærasta, fertugan fasteigna-
spekúlant að nafni Christopher
Whalley. Að sögn bresku slúður-
blaðanna í gær hófust kynni þeirra
á því að Díana fékk hann til að
splæsa á sig kaffibolla í heilsurækt-
arklúbbnum þeirra í Chelsea.
„Hvað þarf stelpa að gera til að fá
strák til að bjóða henni kaffibolla,“
ku Díana hafa sagt við Christopher,
að sögn blaðsins Sun.
Blaðið DaOy Mirror hélt því fram
Borís Jeltsín Rússlandsforseti.
Símamynd Reuter
að samband Díönu og Christophers
væri búið að standa í fjórtán mán-
uði. Fasteignaspekúlantinn þykir
myndarlegur maður, 183 sentímetr-
ar á hæð, dökkhærður, brúneygður
og hann er einhleypur.
„Konur eru mjög hrifnar af hon-
um. Hann er gáfaður, vel máli far-
inn og dásamleg öxl til að gráta við.
Þegar hann er ástfanginn er hann
mjög tryggur. Hann er sannkallaður
kostagripur," hafði Daily Mirror eft-
ir vini Christophers.
búinn að missa tíu kíló frá því hann
veiktist í októberlok. Tæknimenn
sjónvarpsins, sem tóku ávarpið upp,
voru með andlitsgrímur tO að koma
í veg fyrir að flensubakteríur bær-
ust í forsetann.
„Þið ættuð ekki að leyfa öftum
fortíðarinnar að komast aftur tO
valda," sagði hann og var greinOegt
að þar átti hann við kommúnista,
helstu andstæðinga sína. Sam-
kvæmt skoðanakönnunum munu
kommúnistar fara með sigur af
hólmi í kosningunum til Dúmunn-
ar, neðri deOdar þingsins, en í kosn-
ingabaráttunni hafa þeir alið á óá-
nægju almennings vegna þrenging-
anna sem efnahagsumbætur stjórn-
valda hafa valdið.
Það var morgunljóst að Jeltín
vildi með ávarpi sínu hvetja kjós-
Díana kom ekki í heilsuræktar-
stöðina í gærmorgun, eins og hún á
vanda tO, enda best að forðast blaða-
mennina og Ijósmyndarana sem
biðu fyrir utan. Christopher kom
rétt fyrir klukkan átta, í fylgd kunn-
ingja sem varði hann fyrir ágangi
fréttamanna.
Sun hafði það eftir Christopher
að hann væri ekki náinn vinur
prinsessunnar. „Hún hefur hringt
nokkrum sinnum í mig og hvað er
svona merkilegt við það?“ Reuter
endur til að styðja kosningabanda-
lag Viktors Tsjernomýrdins forsæt-
isráðherra. Heimili okkar er Rúss-
land. Hann mælti sterklega með
þeim sem geta „tryggt öryggi og
samlyndi á sameiginlegu heimili
okkar, Rússlandi". Enn á ný nefndi
Jeltsín engan ílokk með nafni en
það fór ekki fram hjá neinum að
þetta voru sömu slagorðin og kosn-
ingabandalag Tsjernomýrdins held-
ur á lofti.
„Það vOl svo til að forsetinn er
ábyrgur fyrir öllu. Og þið, háttvirtir
landar mínir, dæmið mig harka-
lega, stundum miskunnarlaust. En
það er ykkar að taka ákvörðun 17.
desember. Örlög Rússlands eru í
höndum ykkar,“ sagði Jeltsín í sjón-
varpsávarpi sínu. Reuter
Christopher
ágengt í
viöræðum
viö Assad
Warren
Christoph-
er, utanrík-
isráðherra
Bandaríkj-
anna, sagði
í gær að sér
hefði orðið
nokkuð
ágengt í viðræðum við Hafez al-
Assad Sýrlandsforseta um leið-
ir tO að koma friðarviðræðum
ísraela og Sýrlendinga aftur af
stað.
Þeir Christopher og Assad
ræddust við i fjóra klukkutíma
og að því loknu hélt sá fyrr-
nefndi til Jerúsalem til þess að
kynna Símoni Peres, forsætis-
ráðherra ísraels, hugmyndirn-
ar. Christopher útilokaði ekki
aðra ferð til Damaskus.
Playboy aftur í
búöir á írlandi
Karlaritið Playboy er nú aft-
ur komið í verslanir á írlandi
eftir 36 ára bann. Blaðasalar
sögðu í gær að salan hefði farið
hægt af stað en hún væri þó far-
in að taka við sér.
„Það var lítO sala fyrst í stað
en eftir því sem leið á morgun-
inn færðist meira fjör í leik-
inn,“ sagði Martin Black, fram-
kvæmdastjóri blaða- og bóka-
sölunnar Easons, sem dreifir
tímaritinu á írlandi.
Black sagðist eiga von á að
tímaritið mundi seljast vel til
að byrja með, á meðan nýja-
brumið væri enn á. „Það var
bannað árið 1959 og það er því
tímanna tákn að banninu skuli
hafa verið aflétt,“ sagði Black.
Samvinna viö
losun úrgangs
Norðmenn og Rússar komust
að samkomulagi í gær um að
vinna saman að losun hernað-
arúrgangs, þar á meðal kjarn-
orkueldsneytis sem Rússar hafa
komið fyrir ekki langt frá
landamærunum að Noregi.
Það voru varnarmálaráð-
herrar landanna, þeir Jörgen
Kosnio og Pavel Gratsjev, sem
undirrituðu samninginn sem
þykir heldur rýr í roðinu. Það
varpaði þó skugga á athöfnina
að Rússar hafa sakað norsku
umhverfísverndarsamtökin
Bellona um njósnir en þau hafa
vakið hvað mesta athygli á
kjarnorkuúrganginum. Reuter
Hér er föngulegt lið á ferðinni, allir helstu leikararnir í kvikmyndinni Fúll á móti, framhaldi Fúls á móti, sem naut mik-
illa vinsælda fyrir ekki svo löngu. Fólkið er Jack Lemmon, Daryl Hannah, Ann-Margret, John Davis framleiðandi og
Sophia Loren. Myndin var frumsýnd í fyrrakvöld. Símamynd Reuter
Díana skotin í fasteignasala