Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1995, Blaðsíða 27
30 "V LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995
27
Bubbi Morthens -1 skugga Morthens
★★★
Þáttaskil
Platan í skugga Morthens mark-
ar á vissan hátt þáttaskil á ferli
Bubba Morthens. Allt frá árinu
1980, þegar hann hóf fyrst upp raust
sína á plötu, og til þessa árs hafa
feður, mæður, afar og ömmur keypt
plötur Bubba handa unglingum ætt-
arinnar og ungu fólki á þrítugsaldr-
inum í þeirri góðu trú að hann væri
aðalmaðurinn í íslensku dægurtón-
listarlífi og ætti greiðasta leið allra
að hjörtum tónelskra ungmenna.
Nú bregður svo við að unga fólkið
festir kaup í Bubba tU að gefa for-
eldrum sínum, öfum, ömmum og
jafnvel langöfum og langömmum.
Það hafa orðið kynslóðaskipti í
hlustendahópi uppreisnarmannsins
sem stökk með látum fram á sjónar-
sviðið fyrir fimmtán árum og hefur
ekki látið deigan síga síðan.
Hljómplötur
Ásgeir Tómasson
Platan í skugga Morthens er af-
skaplega snyrtileg, þökk sé útsetjur-
unum Þóri Baldurssyni og Jóni
Kjell Seljeseth, hljóðfæraleikurun-
um sem við sögu koma og ekki síst
Bubba Morthens sjálfum. Hann fer
vel með lögin sem Haukur frændi
hans söng á löngum og gifturíkum
ferli sínum og yljaði þjóðinni um
hjartaræturnar með. Eftirminnileg-
astur er að sjálfsögðu dúett frænd-
anna, Ó borg, mín borg, lagið sem
Haukur samdi sjálfur og hljóðritaði
fyrst 1954. Sérlega vel hefur heppn-
ast að blanda saman söng þeirra
sem tekinn var upp með ellefu ára
millibili. Annað lag sem ástæða er
til að nefna vegna vel heppnaðrar
útsetningar er Hvar ertu? Söngur
Bubba í því er kannski ekkert fram-
úrskarandi en smekkleg notkun
orgels og gítars gerir það eftir-
minnilegt.
Fleiri lög væri vel hægt að nefna
sem vel heppnuð, svo sem Þrek og
tár og Frostrósir en heildin er góð
og það er það sem skiptir höfuð-
máli. Afarnir og ömmurnar geta vel
við unað og fila Bubba væntanlega í
tætlur hér eftir!
Tvöfaldur
1. vinningur!
-vertu viðbúinm vinningi
Fáðu þéi niiða íyrir kl, 20.-0 a laugardaginn.
Éq oq Króni bróðirviljum
kenna krökkum hvað það
er mikilvæqt að spara oq
saFna Fyrir einhverju sem
mann lanqar virkileqa til
að eiqa, t.d. skíðum.
Þínir vinir
Króni og Króna
Þeir sem eru með i
Króna og Krónu krakkaklúbbnum
Fá flottan bol,
sparíbauk,
reglustríku,
endurskinsmerki
... oq marqt Fleira. /
150 kr. aFsláttur
Króni og Króna
sem vit er i í