Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1995, Page 16
YDDA F43.9/SÍA
16
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 JLlV
Krakkar! í kvöld kemur
Skyrgámurtil byggöa
Jé
Leikjatölva
framtíöarinnar
Bruce Willis
bjargar gamla
bænum sínum
Bruce Willis hefur marga hildina háð en sennilega reynist honum erfiðast að
blása nýju lífi í æskubæinn.
Bruce Willis getur allt, vanur
maður. Hann hefur bjargað ófáum
sakleysingjunum, konum, börnum
og jafnvel fílhraustum körlum, úr
klóm auvirðilegra glæpamanna í
mörgum bíómyndum. Nú er komið
ÓSKAf LÍFEYRIR
OSKALIFEYRIR - ALVEG EFTIR ÞINUM ÞORFUM
Óskalífeyrir sameinar fjárhagsiegt öryggi fjölskyldunnar og skipu-
legan sparnaö. Sameinaöa líftryggingarfélagiö starfar á íslandi
sem gerir þaö auövelt aö ná til félagsins án milliliöa og öll þjón-
usta er innan seilingar.
í Óskalífeyri getur þú m.a. tekið líftryggingu ásamt útborgun við
tiltekinn aldur. í þvt felst m.a. að:
®Umsækjandi ræður heildarinnborgun fyrir líftryggingu og
sparnað. Lágmarksupphæð er 3.000 kr. á mánuði.
®Sparnaður ásamt verðtryggingu og vöxtum er greiddur út í
einu lagi á umsömdum tíma.
®Útborguð fjárhæð er skattfrjáls.
®Félagið ábyrgist lágmarksávöxtun. Árið 1994 var raunávöxtun
Óskalífeyris 7,1%.
®Látist sá tryggði fyrir umsaminn útborgunardag er líftryggingar-
fjárhæðin greidd út auk sparnaðarins.
•Innifalinn getur verið réttur til bóta viö skerta starfsorku,
svokölluð Afkomutrygging. Bætur eru greiddar mánaðarlega
til 60 eða 65 ára aldurs.
Dœmi umfólk sem tekur tryggingu 27 ára:
Mánabarlegt iðgjald 10.000 kr.
til 65 ára aldurs......................Samtals 4.560.000 kr.
Líftrygging frá 27 til 65 ára..........Fjárhæb á fyrsta ári er
6.000.000 kr.
Eingreibsla til 65 ara tryggingar-
taka, mibab vib 4% ávöxtun á Karl: 8.959.402 kr.
samningstíma...........................Kona: 9.332.260 kr.
■■MHnana
Sameinaba líftryggingarfélagið hf. Kringlunni 5, 103 Reykjavík Sími 569 2500
í eigu Sjóvá-Almennra trygginga hf. og Tryggingamiðstöövarinnar hf.
að því aö taka ærlega til hendinni
og bjarga heilum bæ, eða næstum
því.
Já, römm er sú taug er rekka
dregur fóðurtúna til, segir einhvers
staðar á gamalli bók. Engu líkara en
þau orð hafi verið skrifuð með sjálft
hörkutólið í huga. Bruce og fyrir-
tæki hans, Screwball Inc., reiddu
nefnilega nýlega fram sem svarar
rúmum 40 milljónum íslenskra
króna til að bjarga heimabæ dengsa,
Penns Grove í New Jersey.
Penns Grove er gamall ferða-
mannabær á bökkum Delaware- ár-
innar, bær sem má muna sinn fifll
fegri. í því skyni að reyna að endur-
heimta fornan frægðarljóma bæjar-
ins keypti Bruce íbúðarhús, stórt
ónýtt landsvæði, bryggjusporð sem
er að fúna í sundur og bankabygg-
inguna þar sem mamma hans vann
eitt sinn á sínum yngri árum.
Bruce íhugar að breyta bankan-
um í veitingahús, vanur slíkum
rekstri, enda einn eigenda Planet
Hollywood veitingahúsakeðjunnar
sívinsælu.
„Hann getur ekki bjargað bænum
upp á eigin spýtur en hann getur
orðið sá hvati sem við þurfurn," seg-
ir Paul Morris, bæjarstjóri i Penns
Grove.
En gamli heimabærinn er ekki sá
eini, sem Bruce hefur eignast. Hann
á líka góðan skika á aðalgötunni í
Hailey í Idaho þar sem þau Demi
Moore eiga búgarð svo börnin geti
alist upp í sæmilega heilbrigðu um-
hverfí.
Jeff Bridges sem villti Bill Hickock
og Ellen Barkin sem útlagakonan
Calamity Jane.
Mynd um
villta Bill
Leikarinn Jeff Bridges hefur
komið víða við á ferlinum og marg-
ir telja hann vera besta leikara
heims í dag. Hann hefur hingað til
ekki verið duglegur við að leika í
vestramyndum, en söðlaði um á
dögunum og tók að sér að túlka ævi-
feril Villta Bill Hickocks (James
Butler Hickock) sem uppi var á ár-
unum 1837-76).
Fjöldi annarra frægra leikara
kemur fram í myndinni um Villta
Bill, Ellen Barkin sér um að túlka
aðra fræga sögupersónu, Calamity
Jane og einnig má nefna Bruce
Dern og Patriciu Arquette. Leik-
stjóri myndarinnar er Walter Hill
sem einnig skrifaði handritið.
Þrátt fyrir að þarna sé fyrir að
fara mörgum úrvalsleikurum, eru
gagnrýnendur ekki allir sammála
um gæði myndarinnar því hún hef-
ur fengið misjafna dóma.
/-Tn