Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1995, Page 18
18
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 T>"\7~
Mánudagurinn var ekki dæmi-
gerður, en dæmigerður dagur hjá
mér er svo viðburðarsnauður að
það þyrfti meira skáld en mig til að
gera eitthvað úr honum á prenti. -
Síminn vakti mig um hálftíuleytið.
Mér finnst afar slæmt að tala í
síma áður en ég næ kaffibollanum
svo ég var fljót að bæta mér upp
koffeinskortinn. Þá var að demba
sér í bað og hárþvott því klukkan
hálftólf átti ég að koma á Sólon ís-
landus til skrafs við Stöðvar tvö
menn um Hjartastað. Baðið gekk
snurðulaust fyrir sig því ég rauk
upp úr því tvisvar til að svara í
símann, og lét hringja út í þriðja
skipti.
Asa Richardsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Kaffileikhússins,
átti við mig erindi út af frumsýn-
ingu á leikgerð Ingunnar Ásdísar-
dóttur úr Hjartastað. í þessu sam-
starfi hef ég kynnst því innanfrá
hvað Ása heldur vel utanum leik-
húsið sitt, enda er árangurinn eftir
því.
Nú milli þess sem ég þurrkaði
hár og sparslaði andlit, sópaði ég
gólf, en ástandið á bænum lagaðist
. -Íjwí
Íiðsiís
V,
'art'vn«ií
Í’ví í;,ví) vvAtvi
MÖfndur ya
*»uni «
Á'm snja.
|Öcnnan hinn
■yia morgun
i ■
>nov'mí rvMír
'«‘<li Ar,r
v«lhv(ldir, ,
sí(14 (
fttrdai
'rwunij
Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur og kærastinn, Þorsteinn Hauksson, tónskáld, í kaffi á Mokka. DV-mynd GS
Dagur í lífi Steinunnar Sigurðardóttur rithöfundar:
koma á Mokka, þar hefur ekkert
breyst síðan á menntaskólaárun-
um og súkkulaðið enn það besta í
heiminum. Nú er í gangi sýning
eftir Magnús Pálsson sem fangar
athyglina og hæfir staðnum vel.
Um kvöldið var ég við æfingu á
Hjartastað í Kaffileikhúsinu og
leikkonurnar þrjár fóru á kostum,
Kolbrún Erna Pétursdóttir, Anna
Elísabet Borg og Margrét Vil-
hjálmsdóttir. Undir stjórn Ingunn-
ar finnst mér að þeim hafi tekist
ótrúlega vel upp á stuttum tíma.
Kvöldinu lauk á írsku kránni í
Hafnarstræti með Þorsteini, Magn-
úsi Magnússyni og Þór Eysteins-
syni, en kráarseta er því miður
ekki dæmigerður endir á kvöldi
hjá mér, en ég ætla að bæta úr því
á næstunni. Félagsskapurinn var
ekki af lakara tagi, til dæmis er
Magnús einn af þeim mönnum sem
hvetja mann til aö hugsa, með sín-
um snörpu gáfum og breiðu mennt-
un, og nú er ég að koma mér að því
að lesa bókina um Fuzzy Thinking
sem hann lánaði mér.
I kaffi með kærastanum
lítið við það, og tók ég þó við hon-
um í toppstandi fyrir hálfum mán-
uði þegar ég kom frá útlöndum. Þá
hafði englaparið Tinna, dóttir mín,
og Björgvin hennar, tekið til hendi.
Eftir samtalið á Sólon átti ég er-
indi á Mál og menningu og Halldór
Guðmundsson sá til þess að ég
fékk hádegismat þann daginn.
I klippingu hjá Bigga
Síðan hraðaði ég mér á fund
Bigga í Borgarkringlunni til hár-
skurðar þótt forleggjarinn teldi þá
framkvæmd óþarfa. Hættan er auð-
vitað sú að maður fari oftar en þörf
krefur til Bigga því það er sálubót
að spjalla við hann.
Ég fór nýklppt á útvarpið að tala
við Halldóru Friðjónsdóttur um
Hjartastað og um ástandið í um-
fjöllun um bækur. Ég er viss um að
áhugi fólks á bókum er meiri og
dýpri en fjölmiðlarnir svara og þaö
yrði lyftistöng fyrir bókmenntir og
lesendur að sú umfjöllun batnaði í
bráð og lengd. Við sem köllum okk-
ur bókmenntaþjóð eigum að læra
af Frökkum þar sem bókum er
haldið á loft í öllum íjölmiðlum, og
þar sem bókmenntir eiga í raun-
inni það heiðurssæti sem við vilj-
um vera láta að þær eigi á þessu
landi.
Ég fór heim til mín og hugaði að
einu og öðru sem ég átti ógert en
sú deild er að vera svo umfangs-
mikil að mér féllust hendur og ég
vélaði Þorstein í miðbæjarkaffi.
Þegar við gengum spölinn frá hon-
um á Grettisgötunni niður á
Mokka keyrði forsetabíllinn fram-
hjá og ég greindi þjóðhöfðingjann í
aftursæti þrátt fyrir myrkrið,
spyrnti við fæti og veifaði með
mikilli sveiflu. Ég hef verið svo
heppin að kynnast starfi Vigdísar
forseta og mér er það enn ráðgáta
og aðdáunarefni hvernig hún fer
að þessu. En hversu vel sem menn
kunna að meta það sem hún gerir
er ég viss um að það á eftir að
koma enn betur í ljós þegar frá líð-
ur hvers konar liðsmann við höf-
um átt í henni.
Notalegt á Mokka
Mér finnst alltaf notalegt að
Hliðið pípti
Þegar ég kom heim á öðrum tím-
anum fór ég að blaða í Sæmundi á
selnum, sem er gefinn út í háskól-
anum og þar var grein um Þór og
rannsóknir hans á Langanesveik-
inni. Hins vegar áttaði ég mig á því
að ég hafði hnuplað blaðinu í
taugaveiklun þegar ég var að árita
hjá Eymundsson í Borgarkringl-
unni og skildi ekkert í að það pípti
þegar ég gekk út um hliðið. Nú
verð ég víst að drífa mig þangað og
horga brúsann.
Finnur þú fimm breytingar? 337
- Þetta er kannski ekki fljótlegasta leiðin drengir mínir en hún er
áreiðarilega sú fallegasta.
Nafn:.
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð þrítugustu og
fimmtu getraun reyndust vera:
1. William Jensen
Brændgárdvej 5, 3 tv
7400 Herning
Danmark
2. Sigurður Hannesson
Bárugrandi 5
107 Reykjavík
Myndirnar tvær viröast viö
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós aö á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum liðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
TENSAI ferðaútvarp meö kassettu, að
verðmæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmið-
stöðinni, Síðumúla 2, Reykjavík.
2. verðlaun:
Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru í
verölaun heita Líkþrái maöurinn og
Athvarf öreigans, úr bókaflokknum
Bróðir Cadfael, að verðmæti kr. 1.790.
Bækurnar eru gefnar út af Frjálsri
fjölmiðlun.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú flmm breytingar? 337
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík