Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1995, Qupperneq 50
54 wiglingaspjall
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995
Galleri
í haust opnaði Hitt húsið, upplýs-
inga og menningarmiðstöð fyrir
ungt fólk, í gamla Geysishúsinu.
Áður hafði Hitt húsið verið starf-
rækt í Þórscafé en núna hefur öll
starfsemin verið tekin til endur-
skoðunar og efld til muna. Raunar
mun hún verða enn fjölskrúðugari á
næsta ári. Hitt húsið er ekki félags-
miðstöð eins og margir vilja halda
heldur eru þar haldin námskeið af
margvislegum toga. Ef fólk á aldrin-
um 16 til 25 ára hefur hugmyndir
sem það vill koma i framkvæmd get-
ur það fengið aðstoð og aðstöðu í
Hinu húsinu.
Einnig eru ýmsir fastir liðir í
gangi eins og siðdegistónleikar á
föstudögum. Kynlífsráðgjafi er að
taka til starfa í Hinu húsinu og get-
ur ungt fólk fengið margvíslega
fræðslu hjá honum. Reyndar eitt af
megin markmiðum Hins hússins að
standa að upplýsinga- og fræðslu-
starfi. Þá er þar tekið á ýmsum
vandamálum og sálfræðiþáttum og
ungt fólk sem hefur eignast barn
getur leitað sér upplýsinga þar.
Þá er mikið gert fyrir atvinnu-
laust ungt fólk í Hinu húsinu og í
tengslum við það boðið upp á nám-
skeið fyrir ungt fólk í atvinnuleit.
Einnig er rekin skrifstofa fyrir ÖFE,
ungt fólk í Evrópu.
Nýlega var opnað Gallerí Geysir í
Hinu húsinu og kem ég þar nokkuð
við sögu enda hef ég unnið að upp-
setningu þess. Ungt fólk getur sótt
um að komast að með sýningu og
þarf ekkert að borga fyrir. Reynslan
sýnir að listasalir í borginni eru lok-
aðir fyrir fólk á þessum aldri - enda
er ekki talað um unga listamenn
heldur ófædda listamenn.
Ég hef haft mikinn áhuga á mynd-
list, er á listabraut í Fjölbraut í
Breiðholti og hef hug á að halda
áfram námi í Myndlista- og handíða-
skóla íslands.
Sjálfur hef ég haldið sýningu
ásamt félögum mínum i Listhúsinu
í Laugardal fyrir tveimur og hálfu
ári en þá vorum við sautján ára. Við
leigðum sal og reyndum að setja upp
sýningu eins og tíðkast og feng-
um góða aðsókn. Að mínum
dómi heppnaðist hún vel en
gagnrýnendur voru ekki á sama
máli. Auk þess hélt ég einka-
sýningu í Nýlístasafninu í haust
og var mjög ánægður með hana.
Ég hef verið viðloðandi Hitt
húsið undanfarin tvö ár og þá
aðallega í sambandi við Unglist.
Það er gaman að geta komið
myndlist unga fólksins á fram-
færi og svo lítur út fyrir að þetta
gallerí er komið til að vera ef mið
er tekið. af aðsókn á áhuga al-
mennings á starfseminni.
Þeir eru ekki margir sem vita
mikið um starfsemina í Hinu Hús-
inu en allir eru velkomnir að koma
þangað og fá upplýsingar um hvað
sem er sem við kemur ungu fólki.
Baldur Helgason, nemandi í
Fjölbraut í Breiðholti
Geysir
'n hliðin
Er algjör bíófíkill
- segir Guðmundur Jónsson, gítarleikari Sálarinnar
Guðmundur Jónsson, gítarleikari
Sálarinnar, er einn þeirra sem sent
hafa frá sér plötu á jólamarkaðinn.
Það er platan Zebra sem Guðmund-
ur vami með Jens Hanssyni. „Þetta
er æðislega skemmtileg plata og
talsvert öðruvísi," segir Guðmund-
ur. Hann segist hafa unnið mikið
með alls kyns hljóðgervla og
hljóðsarpa. „Okkur langaði að gera
eitthvað öðruvísi og ég er ánægður
með útkomuna." Guðmundur er
enn þá með Sálinni og segir að sú
hljómsveit muni fara á fullt eftir
áramótin. Það er gítarleikarinn
sem sýnir hina hliöina að
þessu sinni:
Fullt nafn: Guðmund-
ur Jónsson.
Fæðingardagur og ár:
11. október 1962.
Maki: Dóra Takefusa.
Börn: Ég á engin börn
en Dóra á einn son,
Daníei Takefusa.
Bifreið: Ja, ef bifreið
skyldi kalla. Það er
Mitsubishi Lancer, ár-
gerð 1987.
Starf: Gitareigandi.
Laun: Misjöfn.
Áhugamál: Númer
eitt, tvö og þrjú tónlist.
Auk þess hef ég gaman af
kvikmyndum, er algjör
biófikiíl.
Hefur þú unnið í happdrætti
eða lottói? Nei, aldrei.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Mér finnst skemmtilegt í
vinnunni og er svo heppinn að að-
aláhugamálið og vinnan fara sam-
an.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Bíða.
Uppáhaldsmatur: Chili a la Dóra.
Uppáhaldsdrykkur: Kaffi.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag?
Þetta er góð
spuming. Ég er
lítið fyrir
íþróttir en
held ég nefni
Michael Jord-
an.
Uppáhalds-
tímarit:
Rolling
Guðmundur Jónsson gítarleikari.
DV-mynd GVA
Stone.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan eiginkon-
una? Það er engin til betri en kon-
an mín.
Ertu hlynntur eða andvígur rík-
isstjóminni? Andvígur.
Hvaða persónu langar þig mest
að hitta? Mig langar að hitta
þann sem fann upp eldinn.
Uppáhaldsleikari: Þeir eru marg-
ir en ætli ég nefni ekki James
Woods.
Uppáhaldsleikkona: Dóra
Takefusa.
Uppáhaldssöngvari: Það er Stef-
án Hilmarsson.
Uppáhaldsstjórnmálamaður:
Kristján Guðmundsson, bróðir
hennar mömmu.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Hómer Simpson.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir
og enskir sakamálaþættir.
Uppáhaldsveitingahús: Ítalía.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Mig langar að blaða i bók
Björns Th. Björnssonar, Hraun-
fólkinu.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? X-ið.
Uppáhaldsútvarpsmaður:
Snorri Sturluson sem var á rás
tvö.
Á hvaða sjónvarpsstöð horfir
þú mest? Sjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Það
er engin spurning, Dóra Takefusa.
Uppáhaldsskemmtistaður: Ég er
alltaf úti á landi um helgar en
myndi helst fara á Astró.
Uppáhaldsfélag í íþróttum? Ung-
mennafélagið Fram á Skagaströnd.
Stefnir þú að einhverju sér-
stöku í framtíðinni? Já, að koma
mér i jóiaskap sem fyrst eftir
stressið við að koma plötunni út.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu?Ég
er í þannig vinnu að ég get aldrei
tekið sumarfrí. Það verður að biða
til elliheimUisáranna. - ELA
Roseanne:
Var fátæk
og bjó í
Hún er ekki þessi týpíska fallega
dama sem við sjáum í bíómyndun-
um en hún sló samt í gegn. Það er
náttúrlega Roseanne sem við er átt.
Hún er frökk og lætur sér ekki allt
fyrir brjósti brenna. Lætur raunar
allt flakka og hikar hvergi. Ros-
eanne segist hafa verið feit, einstæð
móðir sem bjó í hjólhýsi. „I fyrsta
skipti sem ég steig á svið trúði fólk
ekki sínum eigin eyrum eða augum,
ég var bara amatör. En fólkið hló og
það var auðvitað nóg til þess að ég
héldi áfram,“ segir Roseanne Barr,
konan sem fær karlmenn til að
skjálfa.
Nú hefur Roseanne verið með
sjónvarpsþátt sinn í mörg ár og
hann er alltaf jafn vinsæll. Þáttur-
inn er nú sýndur í Sjónvarpinu á
fimmtudögum.
Það eru þó ekki bara sjónvarps-
þættirnir sem hafa slegið í gegn.
hjólhýsi
Roseanne hefur verið ófeimin að
segja heiminum frá einkamálum
sínum sem eru skrautleg, svo ekki
sé meira sagt. Hún hefur sagt frá
því að foreldrar hennar hafi misnot-
að hana og fengið systkini sín upp á
móti sér vegna þess. Einnig hefur
hún verið ófeimin að segja frá
vandamálum í hjónaböndum sínum.
Verst var það þegar hún var gift
Tom Arnold. Hún komst að fram-
hjáhaldi hans og sparkaði honum út
úr villu þeirra í Beverly Hills.
Skilnaðurinn var varla genginn
um garð þegar Roseanne var farin
að vera með lífverði sínum, Ben Jo-
hnsen, sem er nokkrum árum yngri.
I dag eru þau gift og eiga soninn
Buck, sem er nokkurra mánaða.
Roseanne á fyrir fjögur börn,
dótturina Brandy sem er 23ja ára en
hún lét hana frá sér, Jessicu, 19 ára,
Jennifer, 17 ára og Jake, 15 ára.
Roseanne hefur sína
skoðun á því hvers
vegna þættir hennar
hafa slegið í gegn. „Ég
segi sannleikann um
mitt líf og annarra
kvenna. Konur viija sjá
raunveruleikann í sjón-
varpinu ekki bara ein-
hverja glansveröld,"
segir hún. „Það sýndi
sig að mín veröld var
sú sama og hjá flestum
öðrum.“
í dag er Roseanne vell-
auðug og getur veitt sér
flest það sem hana lang-
ar til. Hún hefði sjálf-
sagt ekki getað trúað
því fyrir nokkrum
árum - einstæða móðir-
in í hjólhýsinu.
——---.v-: ■ BB
Roseanne lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna.