Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1995, Side 71
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995
afmæli
75
Þórður Þórðarson yfirvélstjóri,
Fagrahjalla 28, Kópavogi, er fer-
tugur í dag.
Starfsferill
Þórður fæddist á Siglufirði og
ólst þar upp. Hann lauk prófum
frá Vélskóla íslands 1980 og lauk
sveinsprófi í vélvirkjun hjá Vél-
smiðjunni Gjörva í Reykjavík
1983.
Þórður var vélstjóri á togaran-
um Arinbirni frá Reykjavík um
skeið en hefur verið yfirvélstjóri
á frystitogaranum Mánabergi frá
Ólafsfirði frá 1986.
lil hamingju með afmælið 17. desember
90 ára
Guðmundur Jóhannesson, Öldugötu 5, Flateyri. Steinar Bjarnason, Skólabraut 5, Seltjarnarnesi.
85 ára
Ingólfur Magnússon, Hornbrekku, Ólafsfirði. Gunnhildur Jónsdóttir, Hjallaseli 55, Reykjavík.
80 ára
Hagbart Edwald, Skjólbraut la, Kópavogi. Ólafur T. Vilhjálmsson, Bólstað, Garðabæ.
75 ára
Björg M. Jónasdóttir, Kleppsvegi 132, Reykjavík. Sigríður Jónsdóttir, Lindasíðu 4, Akureyri. Jóhann Petersen, Staðarhvammi 1, Hafnarfirði.
70 ára
Ásta Ástmannsdóttir, Grýtubakka 18, Reykjavík. verður sjötug á mánudaginn. Ásta tekur á móti gestum að heim- ili sínu laugardaginn 16.12. eftir kl. 16.00. Dagmar Arngrímsdóttir, Hafnarstræti 88, Akureyri. Þuríður Jóhannsdóttir, Grænukinn 10, Hafiiarfirði. Halldór Jóhannesson, Brekkum III, Vík í Mýrdal.
60 ára
Sigurrós Sigurðardóttir, Borðeyrarbæ, Bæjarhreppi. Ásta Sigríður Gísladóttir frá Skáleyjum, húsmóðir og ljósmóð- ir. Brunnum 25, Vesturbyggð. Eiginmaður hennar er Sverrir Breiðfjörð Guðmundsson vél- gæslumaður. Þau verða að heiman á afmælis- daginn.
50 ára
Svavar Páll Th. Laxdal, Seljahlíð 1 E, Akureyri. Jósavin Hlífar Helgason, Bogasíðu 5, Akureyri. Sólveig Erlendsdóttir, Hamragerði 3, Akureyri. Erla Sigurbergsdóttir, Leirubakka 32, Reykjavík.
40 ára
Sigurður R. Sigurjónsson, Sunnuflöt 42, Garðabæ. Ragnheiður Guðfinnsdóttir, Eyjabakka 9, Reykjavik. Anton Sigurðsson, Unnarbraut 32, Selfjarnarnesi. Kristján Sigurjónsson, Vanabyggð 6 B, Akureyri. Hrefna Guðmundsdóttir, Hvammabraut 12, Hafnarfirði.
Þórður Þórðarson
Fjölskylda
Þórður kvæntist 6.6. 1981 Heiö-
brá Sæmundsdóttur, f. 3.9.1954,
hjúkrunarfræðingi. Hún er dóttir
Sæmundar Sigurtryggvasonar,
starfsmanns Pósts og síma á
Blönduósi, og Þuríðar Guðmunds-
dóttur ljósmóður sem lést 1975.
Börn Þórðar og Heiðbráar eru
Þórunn Þórðardóttir, f. 12.7.1991,
og Þórður Þórðarson, f. 4.7. 1995.
Systkini Þórðar eru Sigríður
Anna Þórðardóttir, f. 14.5.1946, al-
þingismaður í Reykjavík; Árdís
Þórðardóttir, f. 6.3.1948, rekstrar-
hagfræðingur í Reykjavik; Þórunn
Þórðardóttir, f. 14.12. 1950, fram-
leiðandi á Dalvík; Árni Valdimar
Þórðarson, f. 28.1. 1954, skipstjóri
á Akureyri; Margrét Steinunn
Þórðardóttir, f. 25.7. 1959, nemi á
Siglufirði; Jónas Þórðarson, f.
16.8.1967, nemi í Reykjavík.
Foreldrar Þórðar: Þórður Þórð-
arson, f. 14.12. 1921, d. 22.11. 1992,
vélstjóri á Siglufirði, og k.h., Mar-
grét Arnheiður Árnadóttir, f. 10.2.
1923, húsmóðir.
Ætt
Meðal systkina Þórðar má
nefna Sigríði, móður Valgeirs
Tómasar Sigurðssonar, veitinga-
manns í Lúxemborg, og Jón vita-
vörð, fóður Björns Búa mennta-
skólakennara. Þórður var sonur
Þórðar, vitavarðar á Siglunesi,
Þórðarsonar, b. á Kálfsstöðum í
Vestur-Landeyjum, Brandssonar,
bróður Jóns, b. í Vestra-Fíflholti,
afa Einars Gíslasonar í Filadelfiu-
söfnuðinum. Móðir Þórðar vél-
stjóra var Margrét, dóttir Jóns, b.
á Siglunesi Þorlákssonar, og
Önnu Kristjánsdóttur frá Málmey.
Margrét Arnheiður er systir
Valrósar, móður Árna Jóhanns-
sonar, garðyrkjustjóra Akureyrar-
bæjar. Margrét er dóttir Árna, b.
á Hnjúki, bróður Tryggva, afa
Bjarna Valdimars Svavarssonar,
verkfræðings og geimfara í
Kanada. Systir Árna var Þorlák-
sína, móðir Kjartans Jóhannsson-
ar í Asiaco, föður Kjartans með
McDonalds-umboðið. Árni var
sonur Valdimars, b. á Syðri-Más-
stöðum, Jónssonar, b. á Jarðbrú,
Jónssonar. Móðir Árna var Rósa,
systir Þorláksínu, móður Snorra
Hallgrímssonar yfirlæknis og pró-
fessors, föður Hallgríms hagstofu-
stjóra. Rósa var dóttir Sigurðar,
b. á Ölduhrygg í Svarfaðardal,
bróður Jóns á Jarðbrú.
Móðir Margrétar var Steinunn
Jóhannesdóttir, smiðs á Hærings-
stöðum Sigurðssonar, í Göngu-
staðakoti Sigurðssonar, ættföður
Hreiðarsstaðakotsættarinnar
Jónssonar. Móðir Steinunnar var
Jónína, systir Sigurðar á Göngu-
skörðum, afa Kristins Jóhanns-
sonar, skólastjóra og myndlistar-
manns á Akureyri, og langafa
fréttamannanna Óskars Þórs,
Þórður Þóröarson.
Jóns Baldvins og Atla Rúnars
Halldórssona. Jónína var dóttir
Jóns, b. á Göngustöðum, bróður
Sigurðar í Göngustaðakoti. Móðir
Jónínu var Þuríður Hallgrims-
dóttir, b. á Skeið í Svarfaðardal,
Jónssonar, bróður Sigurðar, ætt-
föður Hreiðarsstaðakotsættarinn-
ar.
Þórður er á sjónum.
Helgi Jónsson
Helgi Jónsson, bóndi að Felli í
Kjós, verður sextugur á morgun.
Starfsferill
Helgi fæddist í Hvítanesi í
Hvalfirði og ólst þar upp og í
Blönduholti. Hann lauk almennu
grunnskólaprófi í Kjós.
Helgi tók við búi af föður sín-
um í Blönduholti 1962 og hóf jafn-
framt búskap að Felli, nýbýli úr
Blönduholtslandi, 1963.
Helgi og kona hans hafa búið
að Felli síðan og hafa þau einkum
lagt stund á eggjaframleiðslu
ásamt öðrum búgreinum.
Helgi hóf afskipti sín af félags-
málum í Ungmennafélaginu
Dreng, sat þar í stjóm og varð
síðar formaður og einnig formað-
ur húsráðs Félagsgarðs. Hann var
stofnfélagi Lionsklúbbsins Búa,
sat í sveitarstjórn í sextán ár, var
formaður skólanefndar Varmár-
skóla í Mosfellsbæ og situr nú í
stjórn Mjólkurfélags Reykjavíkur.
Auk þess hefur hann setið undan-
farin ár í stjórn Félags eggjafram-
leiðenda. Hann hefur setið í
stjórn sjálfstæöisfélagsins Þor-
steins Ingólfssonar í rúm þrjátíu
og fimm ár og hefur sinnt ýmsum
trúnaðarstörfum innan Sjálfstæð-
isflokksins.
Fjölskylda
Helgi kvæntist 9.6. 1962 Hrefnu
Guðlaugu Gunnarsdóttur, f. 17.9.
1943, bónda. Hún er dóttir Gunn-
ars Leós Þorsteinssonar, málara-
meistara í Reykjavík og síðar að
Ytri- Tindsstöðum á Kjalarnesi,
og k.h., Guðmundu Sveinsdóttur
húsmóður.
Börn Helga og Hrefnu Guðlaug-
ar eru Gunnar Leó Helgason, f.
3.1. 1963, bóndi í Kjósinni, kvænt-
ur Sigríði Ingu Hlöðversdóttur,
húsfreyju og bónda, og eru börn
þeirra Hlöðver Ingi og Lára Guð-
rún; Guðlaug Helgadóttir, f. 23.6.
1964, húsmóðir í Garðabæ, gift
Lárusi Óskarssyni innkaupastjóra
og eru börn þeirra Hrefna Lind
og Jóhanna; Lára Berglind Helga-
dóttir, f. 29.7. 1969, skrifstofumað-
ur í Reykjavík, en sambýlismaður
hennar er Andrés Guðmundsson
aflraunamaður; Guðmunda Valdís
Helgadóttir, f. 6.7. 1973, verslunar-
maður í Reykjavík, en sambýlis-
maður hennar er Hreinn Smári
Sveinsson hafnarverkamaður;
Helga Helgadóttir, f. 23.1. 1978,
nemi í Reykjavík; Guðrún f. 30.12.
1979, nemi í Reykjavík.
Alsystkini Helga eru Herdís
Jónsdóttir, f. 29.5. 1937, húsmóðir
á Bíldudal, gift Sigurði Brynjólfs-
syni skipstjóra; Björg Jónsdóttir,
f. 18.9.1938, húsmóðir í Banda-
ríkjunum, gift Dawe Wells; Þóra
Jónsdóttir, f. 18.9. 1938, húsmóðir
í Keflavík, gift Hauki Bergmann
skipstjóra.
Hálfbróðir Helga, sammæðra,
var Axel Jónsson f. 8.6. 1922,
alþm., nú látinn, var kvæntur
Guðrúnu Gísladóttur.
Helgi Jónsson.
Hálfsystkini Helga, samfeðra:
Helga, f. 14.5.1921, nú látin, var
gift Skarphéðni Pálssyni bifreið-
arstjóra; .Sigurjón, f. 4.12. 1922, nú
látinn, bifreiðarstjóri, var kvænt-
ur Kristínu Borgþórsdóttur.
Foreldrar Helga voru Jón
Helgason, f. 29.11. 1896, d. 31.10.
1974, bóndi í Blönduholti í Kjós,
og Lára Sigmunda Þórhannesdótt-
ir, f. 30.10. 1897, d. 11.4. 1978,
bóndi og húsfreyja.
Helgi er að heiman á afmælis-
daginn.
Ævar Ákason
Ævar Akason bókari, Stórhóli
79, Húsavík, verður fertugur á
morgun.
Starfsferill
Ævar fæddist á Húsavík og ólst
þar upp. Hann lauk gagnfræða-
prófi frá Gagnfræðaskóla Húsa-
víkur 1972 og lauk prófum frá
Samvinnuskólanum að Bifröst
1975.
Ævar starfaði við sölustörf á
Umferðarmiðstöð Kaupfélags
Þingeyinga 1975-77, á söluskrif-
stofu Flugleiða á Húsavík 1977-87,
var framkvæmdastjóri Ferðaskrif-
stofu Húsavíkur 1987-88, fram-
kvæmdastjóri Héraössambands
Suður-Þingeyinga og íþróttafélags-
ins Völsungs 1989, starfsmaður N.
Mancher, Endurskoðunarmið-
stöðvarinnar hf. 1990 og er aðal-
bókari Sjúkrahúss og heilsu-
gæslustöðvar Húsavík frá 1990.
Samhliða þeim störfum hefur
hann rekið eigin bókhaldsskrif-
stofu á Húsavík auk þess sem
hann hefur verið uppboðshaldari
hjá Fiskmarkaði Húsavíkur frá
1995.
Ævar starfaði fyrir knatt-
spyrnudeild íþróttafélagsins Völs-
ungs 1982-92, var þá lengst af
stjórnarmaður og formaður deild-
arinnar í fimm ár. Hann er félagi
í Taflfélagi Húsavíkur frá 1980,
var félagi í JC á Húsavík 1979-82,
hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörf-
um fyrir Framsóknarfélag Húsa-
vikur og á nú sæti í æskulýðs- og
íþróttanefnd Húsavíkurkaupstað-
ar.
Fjölskylda
Æyar kvæntist 10.4. 1982
Þórönnu Jónsdóttur, f. 10.2. 1955,
hárgreiðslumeistara. Hún er dótt-
ir Jóns Ólafs Hermannssonar og
Svanborgar Guðbrandsdóttur sem
bæði eru látin.
Dóttir Þórönnu og uppeldisdótt-
ir Ævars er Elísa Rún Jónsdóttir,
f. 17.1. 1977.
Börn Ævars og Þórönnu eru
Ævar Þór Ævarsson, f. 14.2. 1982;
Guðrún María Ævarsdóttir, f.
18.8. 1984.
Tvíburabróðir Ævars lést í fæð-
ingu.
Foreldrar Ævars eru Áki Karls-
Ævar Akason.
son, f. 1928, verslunarmaður á
Húsavlk, og María Jóhannsdóttir,
f. 1928, starfsmaður við heimilis-
hjálp hjá Húsavíkurbæ.
Ævar er að heiman á afmælis-
daginn.
Haukur Lyngdal Brynjólfsson
Haukur Lyngdal Brynjólfsson
framkvæmdastjóri, Lækjarbergi
15, Hafnarfirði, verður sextugur á
morgun.
Starfsferill
Haukur fæddist í Hafnarfirði
og ólst þar upp. Hann lauk prófi
frá Stýrimannaskóla íslands í
Reykjavík 1962.
Haukur stundaði sjómennsku
um þrjátíu ára skeið. Hann var
þá við skipstjórn á Helgu II RE
1968-74, Sæbjörgu VE 1975-82 og á
Faxa GK 1982-85. Hann kom í
land 1986 og stundaði þá ýmis
störf.
Haukur stofnaði, ásamt konu
sinni, Nýju fatahreinsunina 1988,
en þau starfrækja það fyrirtæki
enn í dag.
Fjölskylda
Haukur kvæntist 20.10. 1962 Ás-
gerði Sveindísi Hjörleifsdóttur, f.
13.6. 1942, húsmóður. Hún er dótt-
ir Hjörleifs Elíassonar sem nú er
látinn, og Guðmundu Guðbjarts-
dóttur húsmóður.
Dætur Hauks og Ásgerðar eru
Helena, f. 7.12.1964, nemi við
Fósturskóla íslands, búsett í
Hafnarfirði en dóttir hennar er
Ásgerður Alma; Hildur, f. 3.4.
1967, hárskeri og förðunarmeist-
ari, búsett í Hafnarfirði; Helga
Björk, f. 16.8. 1974, nemi.
Systkini Hauks eru Karl, f. 28.3.
1926, fyrrv. starfsmaður við álver-
ið í Straumsvík; Sóley, f. 21.7.
1927, fyrrv. verslunarmaður, bú-
sett í Garðabæ; Bragi, f. 6.7. 1946,
húsasmiður í Hafnarfirði.
Foreldrar Hauks voru Brynjólf-
ur Sveinsson, f. á Klausturhólum
I Grímsnesi, d. 28.1.1952, og Rósa
Árnadóttir, f. 10.10.1902, d. 16.1.
Haukur Lyngdal Brynjólfsson.
1994, frá Borgum í Norðfirði.
Haukur og Ásgerður taka á
móti ættingjum og vinum á veit-
ingahúsinu A. Hansen á morgun,
sunnudaginn 17.12., kl.17.00-20.00.