Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1996, Blaðsíða 19
18
ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1996
ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1996
23
I
íþróttir
Iþróttir
Ulfar leikur
með HK-ingum
Úlfar
Óttars-
son, sem
hefur
leikið
meö
Breiða-
bliki í
knatt-
spyrn-
unni
undanfarin fjögur ár, gekk til
liðs við 3. deildarlið HK um
helgina.
Úlfar er 28 ára gamall varn-
armaður og hann lék með ÍK
áður en hann gekk til liðs við
Breiðablik fyrir fjórum árum.
Úlfar átti fast sæti í Breiða-
bliksliðinu síðasta sumar og
lék 16 af 18 leikjum liðsins í 1.
deildinni.
-VS
Overmars
er úr leik
Marc Overmars, útherjinn
snjalli hjá Ajax og hollenska
landsliðinu í knattspyrnu
gengst undir aðgerð á hné síð-
ar í þessum mánuði en hann
meiddist illa í leik með Ajax í
deildarkeppninni á dögunum.
Þetta þýðir að Overmars verð-
ur frá í 6-8 mánuði og leikur
því ekki með Hollendingum í
úrslitum Evrópukeppninnar á
Englandi í sumar.
Donadoni til
Bandaríkjanna
Roberto Donadoni, fyrrum
landsliðsmaður ítala í knatt-
spyrnu og leikmaður með AC
Milan, hefur ákveðið að leika í
hinni nýju atvinnumannadeild
sem stofnuð verður í Banda-
rikjunum á þessu ári. Dona-
doni hefur gert samning við
New York New Jersey Master-
stars. —
Mark O’Meara
fagnaði sigri
Mark O’Meara frá Banda-
ríkjunum sigraði á Mecedes
meistaramótinu í golfi sem
lauk í Kaliforníu á sunnudags-
kvöldið. Hann lék á 17 höggum
undir pari og kom inn á 271
höggi samtals. Jafnir í öðru
sæti urðu Bandaríkjamaður-
inn Scott Hoch og Bretinn
Nick Faldo en þeir léku báðir á
274 höggum. Fyrir sigurinn
fékk Mark O’Meara rúmar 12
milljónir króna í sinn hlut.
Skíði:
Theodóra varð
þriðja í Noregi
Theodóra Mathiesen, KR,
lenti í 3ja sæti á FlS-móti í
stórsvigi sem haldið var í
Þrándheimi í Noregi um helg-
ina. Theodóra fékk 52,28 FIS-
punkta fyrir þetta mót og er að
bæta stöðu sína á heimslistan-
um.
Egill Birgisson, KR, gerði 73
punkta og Jóhann Haukur Haf-
stein, Ármanni, 61 punkt á
FlS-móti um helgina. Þeir eru
báðir að bæta stöðu sína á
heimslistanum. -SK
Góður útisigur
hjá Aberdeen
Aberdeen vann mikilvægan
útisigur á Hibernian, 1-2, í
skosku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í gærkvöldi. Liðin berj-
ast um þriðja sætið og Hibern-
ian er tveimur stigum yfir en
Aberdeen á tvo leiki til góða.
íslensk lið
með eintóma
útlendinga?
- heimilt samkvæmt Bosman-úrskurðinum
Allt bendir til þess að íslensk
knattspyrnulið geti frá og með
næsta sumri veriö eingöngu skipuð
útlendingum, svo framarlega sem
þeir koma frá löndum innan Evr-
ópusambandsins eða Evrópska efna-
hagssvæðisins.
Það er dómurinn í Bosman-mál-
inu umtalaða sem hefur þessi áhrif
en samkvæmt honum er löndum
innan ES og ESS óheimilt að setja
kvóta á fjölda erlendra leikmanna
sem koma frá aðildarlöndunum.
Þar með gætu til dæmis Vals-
menn stillt upp liði sem væri ein-
göngu skipað Bretum, Þjóðverjum,
Svíum, Dönum, Finnum, Frökkum,
og frá fleiri ríkjum innan ES og
ESS.
Sé ekki að við
getum annað gert
„Það hefur ekki verið fundað sér-
staklega um þetta hjá okkur en mál-
ið verður tekið fyrir á stjórnarfundi
fljótlega. Ég get ekki séð að við get-
um annað gert en að fara eftir því
sem fyrir okkur er lagt í þessu
máli,“ sagði Snorri Finnlaugsson,
framkvæmdastjóri Knattspyrnu-
sambands íslands, við DV í gær.
Hingað til hefur straumur er-
lendra knattspyrnumanna til ís-
lands að mestu einskorðast við
Austur-Evrópu og þá fyrst og fremst
við fyrrverandi og núverandi
Júgóslavíu. Þau ríki standa öll utan
ES, og þar með er kvóti á fjölda leik-
manna þaðan eins og áöur.
Á síðasta ári léku 15 erlendir leik-
menn í 1. deildinni hér á landi, en 14
þeirra komu frá löndum utan ES og
ESS. Aðeins einn, Stuart Beards hjá
Val, myndi ekki teljast til útlend-
inga samkvæmt nýju reglunum.
Það eru því ekki horfur á að þess-
ar breytingar muni hafa mikil áhrif
í íslenskri knattspyrnu, nema
straumurinn fari skyndilega að
liggja frá öðrum löndum en hingað
Glæsileg þrenna í höfn:
Weah bestur
í heiminum
- knattspyrnumaður ársins hjá FIFA
Líberíski leikmaðurinn hjá AC
Milan, George Weah, var í gær kjör-
inn knattspyrnumaður árins 1995 í
sérstöku hófi sem haldið var í
Mílanó. Það er alþjóða knattspyrnu-
sambandið (FIFA) sem stendur að
þessu árlega kjöri. Árið 1995 rennur
George Weah örugglega seint úr
minni en auk þessarar eftirsóttu
viðurkenningar í gær var áður búið
að útnefna hann í þriðja sinn knatt-
spyrnumann ársins í Afríku og
núna skömmu fyrir jól knattspyrnu-
mann ársins í Evrópu.
Weah er fyrsti Afríkubúinn sem
áskotnast þessi mikli heiður og er
Georges Weah fékk enn eina skraut-
fjöður í hattinn í gær.
því kominn í hóp ekki óþekktari
leikmanna en Lothars Matthaus,
Marcos Van Basten, Robertos
Baggio og Brasilímannsins Rom-
ario. George Weah kom til AC Mil-
an fyrir yfirstandandi tímabil frá
franska liðinu Paris Saint Germain
og hefur sannað sig heldur betur í
Mílanó. Weah hlaut yfirburðakosn-
ingu í kjörinu í gær, hlaut alls 170
atkvæði en næstur í kjörinu var
samherji hans í Milan, Paolo Mald-
ini, með 80 atkvæði. í þriðja sæti
varð Þjóðverjinn Júrgen Klinsmann
hjá Bayern Múnchen, áður Totten-
ham, með 58 atkvæði. I fjórða sæti
með 50 atkvæði varð Romario, sem
nú leikur með Flamengo, í fimmta
sætinu kom Roberto Baggio hjá AC
Milan með 49 atkvæði.
Atkvæðisrétt í kjörinu höfðu 100
landsliðsþjálfarar víðs vegar um
heiminn. Brasilía var við sama tæk-
ifæri kjörið lið ársins og kemur það
víst fáum á óvart. Jamaíka hlaut
sérstök verðlaun fyrir mestu fram-
farirnar.
ítalska blaðið Gazetta dello Sport
heiðraði sérstaklega Franco Baresi
sem leikið hefur í samfleytt 19 ár
með AC Milan. Blaðið taldi Al-
essandro Del Piero hjá Juventus
mesta efnið.
Óvíst hvenær Grissom
getur farið að leika
- hefur átt við þrálát meiðsli að stríða í hné
DV, Suðurnesjum:
Davíð Grissom, körfuknattleiks-
maðurinn snjalli sem leikur með
Keflvíkingum, hefur ekkert getað
leikið með liði sínu frá því 23. nóv-
ember en hann hefur átt við þrálát
meiðsli að stríða í hné. í samtali við
DVI gær sagðist hann vera óviss
hvenær hann gæti byrjað að spila
að nýju. Ekki hefur verið hægt að
greina meiðslin nægilega vel og
læknar hafa ekki gefið honum nein
svör. Grissom sagðist ekki finna til
í hnénu þegar hann gengi en um
leið og hann þyrfti að hlaupa kæmu
verkir. Keflvíkingar hafa sárt sakn-
að Grissoms enda er hann liðinu ák-
aflega mikilvægur í sókn sem vörn.
- ÆMK
• Karl Malone aðstoöar félaga sinn í Utah, John Stockton, við að brjótast í gegnum vörn mótherjanna. Þeir mættu Miami í nótt
og unnu nauman sigur þar sem Malone og Stockton voru í aðalhlutverkum hjá Utah.
NBA í nótt:
John Stockton
bjargaði Utah
Tveir leikir fóru fram í NBA í nótt en
fresta varð leik Orlando og Phila-
delphia vegna veðurs. Cleveland lagði
Washington, 109-91, og Utah vann sigur
á Miami, 94-92.
John Stockton var hetja Utah. Hann
skoraði sigurkörfuna um leið og leik-
tíminn rann út en hann hafði áður jafn-
að metin með þriggja stiga körfu þegar
16 sekúndur voru eftir. Karl Malone
skoraði 32 stig fyrir Utah og John
Stockton 27. Alonzo Mourning var með
22 stig fyrir Miami og Bimbo Coles 18.
Bobby Phills skoraði 25 stig fyrir
Cleveland og Chris Mills 23 í góðum
sigri á Washington en Juwan Howard
23 fyrir Washington.
Langþráður
sigur hjá Dallas
Liði Dallas tókst loks að leggja Bos-
ton að velli á útivelli í fyrrinótt en lið-
in höfðu mæst 15 sinnum í Boston Gar-
den og hafði Boston farið með sigur af
hólmi í öllum leikjunum. Hinu forn-
fræga liði Boston hefur gengið illa og
tapleikurinn gegn Dallas var sá áttundi
í síðustu 10 leikjum.
Denver gerði út um leikinn gegn Los
Angeles Lakers í blálokin. LaPhonso
Ellis jafnaði metin þegar mínúta var
eftir og Dale Ellis og Bryan Stith
tryggðu Denver góðan útisigur með því
að skora úr vítaskotum. Mahmoud
Abdul-Rauf átti stórleik, skoraði 33 stig
og þar af sjö 3ja stiga körfur.
Clifford Robinson setti persónulegt
stigamet; þegar hann skoraði 41 stig
fyrir Portland í sigrinum gegn Min-
nesota var sigurinn sá 24. í síðustu 26
viðureignum liðanna. Úrslitin í fyrr-
inótt;
Vancouver - LA Clippers 93-101
Anthony 25 - Sealy 25, Murray 20.
Boston - Dallas 96-117
Radja 28 - Jackson 30, Kidd 29.
LA Lakers - Denver 93-96
Abdul-Rauf 33.
Portland - Minnesotall3-97
Robinson 41 - Laettner 19.
• Leikjum New Jersey og Atlanta og
New York gegn Seattle varð að fresta
vegna veðurs.
-GH
Boeingþota Orlando teppt vegna snjóa
Lið Orlando Magic var í gær veður-
teppt í Pennsylvaníu en Boeing 737
þota, sem er í eigu félagsins, gat ekki
lent um síðustu helgi á flugvellinum í
Fíladelfiu og því varð ekkert af leik Or-
lando og 76ers í NBA-deildinni í gær.
Gífurleg snjókoma í sumum fylkjum
Bandaríkjanna hefur orðið til þess að
fresta hefur orðið leikjum í deildinni.
Snjórinn á flugvellinum í Fíladelfíu
var í gær orðinn 76 cm á dýpt og enn
snjóaði.
„Við eigum fyrir höndum heimaleik
í deildinni og ég veit ekki hvort af hon-
um verður. Ég veit ekki hvenær liðiö
kemst heim eða hvernig," sagði Tom
Howard, talsmaður Orlando Magic, í
gær.
Urskurðar UEFA
um mál Birkis?
- mikið ber á milli hjá Fram og Brann
Fram og norska félagið Brann
hafa enn ekki komist að sam-
komulagi um félagaskipti Birkis
Kristinssonar, landsliðsmarkvarð-
ar í knattspymu. Birkir er kom-
inn til Noregs og byrjaður að æfa
meö Brann en mikið ber í milli
hjá félögunum hvað varðar kaup-
verðið. Svo kann að fara að Knatt-
spyrnusamband Evrópu, UEFA,
þurfi að skera úr um hve mikið
Brann eigi að greiða Fram.
Framarar hafa fengið staðfest
frá KSÍ að þeir eigi fullan rétt á
greiðslu fyrir Birki, enda þótt
samningur hans við Fram hafi
runnið út um áramót. Málið fór af
stað fyrir 15. desember, daginn
sem dómur féll í Bosman-málinu
fræga, en samkvæmt honum er
ekki heimilt að krefjast greiðslu
fyrir leikmann sem er með út-
runninn samning.
Einu sinni heyrt frá Brann
„Við höfum aðeins einu sinni
heyrt frá Brann, þeir sendu okkur
tilboð rétt fyrir jól, við svöruðum
því 27. desember og höfum síðan
ekkert heyrt eða séð frá Norð-
mönnunum," sagði Jóhann G.
Kristinsson, framkvæmdastjóri
knattspyrnudeildar Fram, við DV
í gærkvöldi.
Jóhann vildi ekki nefna neinar
tölur varðandi kaupverðið. Sam-
kvæmt heimildum DV var tilboð
Brann mjög lágt, nánast hlægilegt
að mati Framara.
Brann vill ekki greiða
meira en 2,5 milljónir
DV ræddi í gær við Norðmann,
tengdan Brann, sem sagði að
Brann vildi ekki greiða meira en
2,5 milljónir íslenkra króna fyrir
Birki. Sennilega hefur tilboð fé-
lagsins því hljóðað uppá 1 til 1,5
milljónir króna. Sigurður Jónsson
yar á dögunum seldur frá ÍAtil
Örebro fyrir 10 milljónir og eflaust
vilja Framarar fá upphæð í þá átt-
ina, enda er Birkir með svipaðan
landsleikjáfjölda á bakinu og Sig-
urður og þó Sigurður sé tveimur
árum yngri er „liftími" mark-
varða í knattspyrnunni yfirleitt
lengri en hjá útispilurum.
Ekki enn verið beðið
um félagaskiptin
Brann hefur enn ekki óskað eft-
ir félagaskiptum fyrir Birki og
beðið er eftir viöbrögðum frá fé-
laginu við gagntilboði Fram. Óski
Brann eftir skiptum, án þess að fé-
lögin hafi komist að samkomulagi
um kaupverðið, fá þau 28 daga til
að koma málinu á hreint. Takist
það ekki, fer málið fyrir dómstól
UEFA, sem sker úr um kaupverð-
ið. Búast má við því að slíkur
dómur yrði Fram í hag, og því er
ekki ólíklegt að Brann gefi eitt-
hvað eftir og greiði meira fyrir
Birki en upphaflega stóð til.
-VS
Páll er hættur við
að fara til Noregs
- Örgryte sýnir Leiftursmanninum áhuga
Páll Guðmundsson, einn besti
leikmaður Leifturs í 1. deildinni í
knattspyrnu síðasta sumar, er hætt-
ur við að fara til Noregs og leika þar
með 2. deildarliðinu Raufoss. Flest
bendir til þess að hann spili áfram
með Ólafsfirðingum, en þó er það
ekki öruggt, því sænska úrvals-
deildarliðið Örgryte hefur sýnt
áhuga á að fá Pál til sín.
„Ég hugsaði mín mál vel yfir jól-
in og komst að þeirri niðurstöðu að
það væri meira spennandi að spila
með Leiftri en að fara til Noregs.
Liðið er komið með mjög sterkan
mannskap og á möguleika á að ná
góðum árangri í sumar. Ég hef líka
mikinn metnað fyrir því að vinna
mér landsliðssæti og ég ætti enga
möguleika á þvi með þvi að spila í
Noregi,“ sagði Páll við DV í gær-
kvöldi.
Leiftur eða Örgryte
Talsmaður Örgryte ræddu við Pál
í gær, en hann hefur vitað af áhuga
þeirra í nokkurn tíma. „Báðir þjálf-
arar liðsins og framkvæmdastjór-
inn vilja fá mig til reynslu, en þó
byggist það á því hvað verður um
leikmann sem þeir eru að reyna að
kaupa frá Frölunda. Það mál er í
hnút því Frölunda vill ekki selja
leikmanninn. Það liggur þvi ekki
ljóst fyrir ennþá hvað úr verður, ég
er vissulega spenntur fyrir því að
fara í sænsku úrvalsdeildina, en
verði ekkert af því er ljóst að ég
spila með Leiftri næsta sumar,“
sagði Páll.
Hann hefur leikið með Leiftri
undanfarin fjögur ár í 2. og 1. deild
og verið lykilmaður á miðjunni hjá
Ólafsfjarðarliðinu. Páll varð marka-
hæsti leikmaður liðsins í 1. deild-
inni í sumar með 6 mörk og það er
ljóst að Ólafsfirðingar munu hrósa
happi yfir því að halda honum í sín-
um röðum.
-VS
Akveðinn að standa mig
- segir Sigurður
„Þegar öllu er á botninn hvolft er
ég mjög ánægður með að þessi fé-
lagaskipti eru komin í höfn. Ég æfi
núna uppi á Skaga tvisvar á dag til
að koma mér í gott form áður en ég
held utan til Svíþjóðar. Ég veit ekki
hvenær verður af því en á næstu
dögum verður fjölgun í fjölskyld-
unni og ef allt gengur að óskum
stefni ég að því að verða kominn til
Örebro fyrir næstu mánaðamót,"
sagði Sigurður Jónsson, landsliðs-
maður í knattspymu, sem gekk á
dögunum frá tveggja ára samningi
við Örebro. Þessi félagaskipti höfðu
nokkurn aðdraganda eins og flest-
um er kunnugt en um síðir sættust
aðilar.
Jónsson sem er á
Liðið ætlar sér stóra hluti
Sigurður sagði að fljótlega eftir
að hann kæmi út myndi liðið fara í
æfingabúðir til Miðjarðarhafsins til
undirbúnings fyrir tímabilið sem
hæfist í apríl. „Ég er ákveðinn í að
standa mig þama úti með Örebro.
Liðið ætlar sér hluti á næsta tíma-
bili og hafa auk mín verið keyptir
tveir leikmenn til viðbótar. Þeir eru
víst ekki alveg hættir og líklega
munu fleiri nýir bætast í hópinn.
Liðið er metnaðarfuUt og stefnan
verður sett á Evrópusæti sem liðið
var hársbreidd frá að tryggja sér á
síðustu sparktíð. Ég hlakka til að
leika með Arnóri Guðjohnsen og
Hlyn Birgissyni," sagði Sigurður
förum til Örebro
Jónsson í spjallínu við DV.
Það er því ljóst að að minnsta
kosti fjórir íslendingar leika með
liðum í sænsku úrvalsdeildinni en
auk þremenninga hjá Örebro leikur
Rúnar Kristinsson með Örgryte eins
og hann gerði á síðasta sumri. Svo
er aldrei að vita nema fleiri bætist í
þennan hóp því sænskum liðum hef-
ur þótt það álitlegur kostur að líta
til íslands í leit sinni að leikmönn-
um og eins og fram kemur hér að
ofan hefur Örgryte einmitt sýnt Páli
Guðmundssyni áhuga.
-JKS
Breiðablik sigraði á Gróttumótinu
Lið Breiðabliks sigraði á Nýárs-
móti Gróttu í innanhússknatt-
spyrnu sem fram fór um síðustu
helgi.
í undanúrslitum sigraði Breiða-'
blik lið Stjörnunnar, 6-1, og ÍBV
sigraði Leiftur með fjórum mörkum
gegn tveimur eftir framlengdan leik.
í leiknum um þriðja sætið á mót-
inu sigraði Stjarnan lið Leifturs
með þremur mörkum gegn tveimur.
I úrslitaleik mótsins unnu Blikar
síðan stórsigur á Eyjamönnum, 7-1.
Sextán lið tóku þátt í mótinu og
leikið var samkvæmt reglum KSÍ
um innanhússknattspyrnu. Leik-
tími var 2x10 mínútur.
-SK
Borðtennis:
Enn einn
sigurinn
hjá Guðmundi
Guðmundur E. Stephensen úr
Víkingi krækti sér í enn einn
sigurinn í borðtennis þegar
hann sigraði á Lýsismótinu sem
fram fór um helgina.
Guðmundur sigraði Kristján
Viðar Haraldsson, KR, í úrslitum
í meistaraflokki karla, 21-10 og
21-15. Kristján Jónasson, Vík-
ingi, varð í þriðja sæti.
Knattspyrna:
Útlendinga-
hatarar ógna
Herthu Berlín
Ákvörðun þýska liðsins Hert-
hu Berlín um að fá til sín Ghana-
búann Sebastian Barnes hefur
mælst misjafnlega fyrir í Þýska-
landi. 30 bréf hafa borist stjórn
félagsins frá útlendingahöturum
í landinu þar sem hótað er öllu
iUu ef hún gerir samning við
Barnes.
Stjórnin tekur þessar hótanir
ekki alvarlega og ætlar að ganga
til samninga við Ghanabúann.
Ajax býður
stórfé í
Bergkamp
HoUenska stórliðið hefur boð-
ið 900 mUljónir króna í Dennis
Bergkamp en frétt um þetta var í
hoUenskum fjölmiðlum um helg-
ina. Talið er fullvíst að Arsenal
hafni tUboðinu.
Bergkamp kann hugsanlega að
vera hrifinn af því að fara tU
HoUands en samt sem áður líkar
honum ágætlega vistin á Hig-
hbury.
Atkinson
verður að
borga Dublin
meira kaup
Ron Atkinson, framkvæmda-
stjóri Coventry, verður að
hækka launin hjá Dion Dublin
vegna ágangs annarra enskra fé-
laga að fá hann keyptan.
Leeds og Middlesbrough hafa
meðal annars verið á höttunum
eftir Dublin. Atkinson gerir sér
alveg ljóst að ætli hann sér að
halda Dublin verði hann að
hækka launin verulega hjá hon-
um.
Leeds virðist
eiga nóg
af seðlum
Svo virðist sem Leeds eigi nóg
af peningum af marka má eld-
móð liðsins i að krækja sér I
sterka leikmenn. Liðið hefur ný-
lega keypt Thomas Brolin og
núna fyrir helgina kom fyrir-
spurn frá liðinu um John Barnes
hjá Liverpool.
. Spurningin er bara hvort
Liverpool vill láta Barnes fara en
það er samt ekki taUð ólíklegt.
Francis
setti
nýtt met hjá
Tottenham
Gerry Francis framkvæmda-
stjóri setti nýtt met innan félags-
ins en í 50 leikjum sem hann hef-
ur stýrt liðinu hefur það aðeins
tapað tiu leikjum. Fyrra metið
átti Arthur Rowe sem stjórnaði
Tottenham tímabilið 1948-49.
Á meðal forráðamanna ríkir
almenn ánægja með störf Franc-
is, ekki nema eðlilegt því liðið
hefur leikið glimrandi vel á
þessu tímabili.