Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1996, Blaðsíða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1996
ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1996
23
Iþróttir
Blak:
Þróttarar enn
á sigurbraut
Þróttur úr Reykjavík hélt
áfram sigurgöngu sinni í 1. deild
karla um helgina og vann ÍS, 3-1.
Þróttarar eru þar meö
komnir meö níu stiga for-
skot á Stjörnuna, sem
reyndar á tvo leiki til góða.
Meistarar HK unnu botn-
lið KA naumlega, 3-2, eftir
að norðanmenn höfðu unn-
ið tvær fyrstu hrinurnar.
Staðan í deildinni er þannig:
Þróttur R. 17 15 2- 48-26 48
Stjarnan 15 10 5 39-26 39
HK 17 10 7 36-30 36
ÍS 16 7 9 30-30 30
Þróttur N, 18 7 11 30-43 30
KA 15 1 14 15-43 15
Þróttur R„ Stjarnan og HK eru
komin í úrslitakeppnina og ÍS
stendur betur að vígi í baráttu
við Þrótt N. um fjórða sætið.
Flest bendir til þess að Þróttur
R. mæti ÍS eða Þrótti N. og
Stjarnan mæti HK í undanúrslit-
unum.
-VS
Íshokkí:
Stórsigur hjá
Akureyringum
Skautafélag Akureyrar vann
auðveldan sigur á Birninum,
14-1, þegar félögin mættust á ís-
landsmótinu í íshokkí á skauta-
svellinu í Laugardal á laugar-
dagskvöldið.
Ágúst Ásgrímsson (A) 2, Har-
aldur Vilhjálmsson 2, Elvar Jón-
steinsson 2, Sigurður Sigurðsson
2, Garðar Jónasson, Ágúst Ás-
grímsson, Rúnar Rúnarsson, Sig-
urgeir Haraldsson, Sveinn
Björnsson og Birgir Sveinsson
skoruðu fyrir SA en mark Bjarn-
arins skoraði Snorri G. Sigurð-
arson, minnkaði þá muninn í
7-1.
Badminton:
Haraldur og Sigríður
unnu bæði tvöfalt
Haraldur Kornelíusson og Sig-
ríður M. Jónsdóttir úr TBR urðu
bæði þrefaldir íslandsmeistarar
í öðlingaflokki en íslandsmótið
þar og í æðsta flokki og heiðurs-
flokki fóru fram í TBR-húsinu
um helgina.
Auk þeirra náðu Steinar Pet-
ersen, TBR, og Stella Matthías-
dóttir, BH, í meistaratitla 1
öðlingaflokki. í æðsta flokki
vann Eysteinn Björnsson, TBR,
tvöfaldan sigur og Þorsteinn
Þórðarson, TBR, með honum í
tvíliðaleik. í heiðursflokki vann
Friðleifur Stefánsson, KR, tvö-
faldan sigur, og Óskar Guö-
mundsson, KR, með honum í tví-
liðaleik.
Skíði:
Theodóra fékk
punkta í Svíþjóð
Theodóra Mathiesen hafnaði í
14. sæti I alþjóðlegu svigmóti
sem fram fór í Bjursaas í Svíþjóð
á sunnudaginn. Hún fékk 51,04
FlS-punkta fyrir mótið. Sigur-
vegari var Ingrid Helander frá
Svíþjóð og önnur varð Noriyo
Hiroi frá Japan.
Haukur og Svava
unnu á ísafirði
Haukur Eiríksson frá Akur-
eyri og Svava Jónsdóttir frá
Ólafsfirði sigruðu í flokkum
karla og kvenna á fyrsta bikar-
móti vetrarins í skíðagöngu sem
haldið var á ísafirði um helgina.
Lísbet Hauksdóttir, Ólafsfirði,
sigraði í stúlknaflokki, Ólafur
Th. Árnason, ísafiröi, í drengja-
flokki 13-14 ára, Ingólfur Magn-
ússon, Siglufirði, í drengjaflokki
15-16 ára og Þóroddur Ingvars-
son, Akureyri, í piltaflokki.
H|
íþróttir
Bow sækir
um ríkis-
borgararétt
- þrjú ár að verða löglegur með landsliðinu
Jonathan Bow, bandaríski körfuknattleiksmaðurinn sem leikur með KR, er búinn að sækja
um íslenskan ríkisborgararétt. Umsókn hans verður væntanlega tekin fyrir á Alþingi I vor,
og þar sem hann hefur leikið hér á landi í sjö ár, og dvalið hér meira og minna þann tíma,
hlýtur að teljast mjög líklegt að svarið verið jákvætt.
Bow er að leika sitt sjöunda tímabil hér á landi en hann kom til Hauka árið 1989. Síðan fór
hann í KR, þá til Keflavíkur í þrjú ár, og í fyrra lék hann með Val. Bow hefur jafnan verið í
hópi stigahæstu leikmanna úrvalsdeildarinnar og var til dæmis með besta meðalskorið á
síðasta tímabili en þá gerði hann 28,8 stig að meðaltali í leik fyrir Val.
íslenska landsliðinu yrði mikill styrkur í Bow, enda er hann um 2 metrar á hæð og skortur
á slíkur mönnum hefur alltaf háð landsliðinu. En gallinn er sá að fái Bow ríkisborgararéttinn
í vor þarf hann að bíða til vorsins 1999 tU að verða löglegur með landsliðinu.
Samkvæmt reglum FIBA, Alþjoða körfuknattleikssambandsins, tekur þrjú ár að verða
löglegur með viðkomandi landsliði eftir að ríkisborgararéttur er fenginn. Sú regla var sett
eftir að sum riki tóku upp á því að veitá bandarískum körfuboltamönnum ríkisborgararétt
sainstundis og fyfla landslið sín með þeim. Hún bitnar hins vegar á þjóðum eins og
íslendingum sem eru með tUtölulega strangar reglur um ríkisborgararétt.
-VS
Islensk stúlka
valin í sænska
unglingalandsliðið
- Ingibjörg Andrésdóttir eftirsótt hjá sænskum toppliðum
Ingibjörg Andrésdóttir t leik með liði sínu, Silving Troja,
sænsku 2. deildinni.
íslensk stúlka, Ingibjörg Andrésdóttir,
hefur verið valin í sænska unglingalands-
liðið í handknattleik, en þaö er að hefja
undirbúning fyrir forkeppni heimsmeist-
aramótsins í Úkraínu í sumar og síðan
Norðurlandamótið á íslandi á næsta ári.
Ingibjörg er 19 ára gömul og hefur ver-
ið búsett í Svíþjóð undanfarin 14 ár. Þar
spUar hún með 2. deUdar liðinu SUving
Troja frá Stokkhólmi, sem er nánast búið
að tryggja sér sæti í 1. deUd, og hún leik-
ur jafnframt með unglingaliði félagsins
sem er í fremstu röð í Svíþjóð.
Sænskur meistari í knattspyrnu
Ingibjörg var einnig í knattspyrnunni
til skamms tíma, lék þar sem markvörður,
en hætti eftir að hún varð sænskur meist-
ari með liði sínu í flokki 16 ára og yngri.
Ingibjörg sagði í spjalli við DV að lík-
lega þyrfti hún að fá sænskan ríkisborg-
ararétt tU að leika fyrir hönd Svíþjóðar,
en það kæmi hins vegar ekki til greina að
fórna möguleikanum á því að spUa fyrir
Islands hönd.
Er og verð íslendingur
„Ég er og verð Islendingur og vU ekki
verða sænskur ríkisborgari nema ég geti
fengið tvöfalt ríkisfang eða tryggt að ég
geti síðar spilað fyrir ísland. Mig langar
að sjálfsögðu að spUa fyrir íslands hönd,
en ég veit nánast ekkert um íslenskan
kvennahandbolta," sagði Ingibjörg, en
hún leikur sem skytta vinstra megin með
liði sínu.
Úrvalsdeildarlið fylgjast með
Ingibjörgu
Frammistaða Ingibjargar hefur vakið
athygli meöal bestu liða Svíþjóðar og
mörg úrvalsdeildarlið hafa haft samband
við hana. Þar á meðal Skuru og
Sparvagen, og Ingibjörg segir að það sé
freistandi að spUa í efstu deUdinni næsta
vetur, en þá gengur hún upp úr unglinga-
flokknum. Hún hefði heldur ekkert á móti
því að prófa að spUa á íslandi, alla vega í
eitt ár eða svo.
„Þetta er mjög stíft hjá mér núna en við
spilum tvo leiki í viku. Meistaraflokkslið-
ið okkar er mjög ungt, við erum aUar 19
ára og yngri, og erum þvi líka að spUa í
unglingaflokknum," sagði Ingibjörg Andr-
ésdóttir. -VS
Stjörnuleikurinn í körfuknattleik:
Austrið sigraði
- Jordan valinn maður leiksins
Lið austurstrandarinnar sigraði
vesturströndina í hinum árlega
stjörnuleik NBA-deildarinnar í
körfuknattleik sem fram fór í San
Antonio- í Texas í fyrrinótt. Lokatöl-
ur leiksins urðu 129-118, en þetta
var í 46. skiptið sem leikur af þessu
tagi fer fram.
Leikurinn var framan af í járnum
en í þriðja leikhlutá seig austrið
fram úr og náði um tíma 20 stiga
forskoti sem var of mikið fyrir
vestrið að brúa. Michael Jordan var
kjörinn maður leiksins en hann
skoraði 20 stig fyrir austurströnd-
ina en það var Shaquille O'Neal
sem varð stigahæstur með 25 stig og
Anfemee Hardaway skoraði 18 stig.
Gary Payton var stigahæstur hjá
vesturströndinni með 19 stig, David
Robinson skoraði 18 stig og Shawn
Kemp 12 stig. -
Ekkert var leikið í NBA-deildinni
síðustu nótt en 12 leikir eru á dag-
skrá í nótt.
Samið við Stern
Stjórn NBA-deildarinnar til-
kynnti í gær að hún hefði gert nýj-
an samning við David Stern, fram-
kvæmdastjóra deildarinnar. Samn-
ingurinn er til sjö ára og tryggir
Stern tæplega 2,3 milljarða króna í
laun á því tímabili. Stern hefur
gegnt starfinu frá árinu 1984 og á
þeim tíma hefur hann gert NBA-
deildina að fjárhagslegu stórveldi og
stuðlað að gífurlegum vinsældum
hennar um heim allan.
Þegar Stern tók við voru árslaun
leikmanna í deildinni að meðaltali
17 milljónir króna en nú eru þau
tæplega 200 milljónir.
Michael Jordan með verðlaunin sem hann
hlaut sem maður leiksins. Símamynd Reuter.
Hreinn er
hættur með
Skagaliðið
DV, Akranesi:
Hreinn Þorkelsson hætti í gær störfum sem þjálfari úrvals-
deildarliðs ÍA í körfuknattleik en samkomulag varð milli hans
og stjórnar Körfuknattleiksfélags ÍA þar að lútandi.
Gengi Skagamanna í úrvalsdeildinni hefur verið afleitt að
undanfórnu og steininn tók úr þegar liðið tapaði á sunnudaginn
með 18 stiga mun gegn botnliði Vals á heimavelli.
Milton Bell, bandaríski leikmaðurinn hjá ÍA, tekur við þjálf-
uninni af Hreini og freistar þess að halda liðinu í deildinni. Fjór-
um stigum munar á ÍA og Val þegar 4 leikir eru eftir. -DÓ
Isolde Kostner fagnar sigri sínum í risasviginu
í Sierra Nevada í gær. Símamynd Reuter.
Golfmót atvinnumanna í Bandaríkjunum:
Sigurjón 8. í Flórída
Um helgina tók Sigurjón Arnarsson, kylfingur úr Golfklúbbi Reykja-
víkur, þátt í golfmóti í Flórída sem kennt er við Tommy Armour móta-
röð atvinnumanna. Sigurjón stóð sig með ágætum og lenti í áttunda sæti.
Mótið fór fram á Stonecrest golfvellinum sem er par 72 og 6852 jarda
langur. Skor Sigurjóns var 69 högg eða þrjú högg undir pari vallarins.
Fékk hann 15 pör og þrjá fugla. Golfið sem Sigurjón er að leika er mjög
gott en hann á enn töluvert inni í púttum.
Keppendur á mótinu voru 92 talsins og lék sigurvegarinn á 66 höggum.
-JKS
Heimsmeistaramótið í alpagreinum hófst á Spáni í gær:
Fýrsta gullið til Ítalíu
Heimsmeistaramótið í alpagreinum
hófst í Sierra Nevada íjöllunum á
Spáni í gær. Fyrstu gullverðlaun
keppninnar fóru til Ítalíu þegar hin 19
ára gamla Isolde Kostner sigraði í
risasvigi kvenna. Kostner fór brautina
á 1 mínútu og 22 sekúndum. Heidi
Zurbriggen frá Sviss varð í öðru sæti
á 1:21,66 mínútum og banqdaríska
stúlkan Picabo Street lenti í þriðja
sæti á 1:21,71 mínútu.
Þetta voru fyrstu verðlaun ítalskrar
stúlku í alpagrein á heimsmeistara-
móti. 1932 vann ítalska stúlkan Paola
Wiesinger brunkeppni í Cortina en
þaö mót flokkaðist undir að vera al-
þjóðlegt. Fyrsta opinbera heimsmeist-
aramótið var hins vegar haldið í Eng-
elberg í Sviss 1938.
Þýska stúlkan Katja Seizinger, sem
unnið hefur risasvigið á síðustu þrem-
ur heimsmeistaramótum, datt úr
keppni og voru það að sjálfsögðu
nokkur vonbrigði fyrir Þjóðverja sem
bjuggust við miklu af sinni dömu.
Kostner var í sviðsljósinu á ólymp-
íuleikunum í Lillehammer þegar hún
hreppti þar bronsverðlaun í risastór-
svigi. Hún hefur aðeins borið tvsivar
sinnum sigur úr býtum á heimsbikar-
mótum, síðast í Cortina á Ítalíu í síð-
asta mánuði.
„Ég vissi að ég átti möguleika til að
sýna hvað í mér býr á þessu móti.
Þetta er fyrsti heimsmeistaratitillinn
minn og ég er stolt,“ sagði Kostner eft-
ir verðlaunaafhendinguna í gær.
Ingeborg Marken frá Noregi kom
fyrst Norðurlandabúa í mark en hún
hafnaði í sjötta sæti á 1:22,22 mínút-
um. Svíar voru bjartsýnir fyrir hönd
Pernillu Wiberg, en hún varð að gera
sér níunda sætið að góðu.
-JKS
Enska knattspyrnan:
Góður sigur West Ham
á White Hart Lane
West Ham vann mikilvægan sigur á Tottenham, 0-1, þegar liðin mættust
í ensku úrvalsdeildinni í knattspýrnu á White Hart Lane í gærkvöldi.
Portúgalski táningurinn Dani skoraði sigurmarkið með skalla strax á 5.
mínútu. Hann veir þarna í fyrsta skipti í byrjunarliði West Ham en félagið
fékk hann á leigu frá Sporting Lissabon fyrir skömmu. West Ham var mun
betri aðilinn í leiknum og Dani var útnefndur besti maður vallarins.
West Ham komst í 13. sætið með sigrinum og í þægilegri stöðu í deildinni
en Tottenham varð af dýrmætum stigum í baráttunni um Evrópusæti.
Swindon, topplið 2. deildar, sigraði Þorvald Örlygsson og félaga í 1. deild-
ar liði Oldham, 1-0, í 4. umferð bikarkeppninnar í gærkvöldi og Swindon
mætir Southampton eða Crewe í 5. umferð. -VS
Kristinn missir af HIV
- meiddist á lokaæfingunni á Spáni í gær
Kristinn Björnsson, fremsti skíða-
maður landsins, meiddist á æfingu í Si-
erra Nevada á Spáni í gær og keppir
ekki á heimsmeistaramótinu þar eins
og til stóð. Hann átti að keppa þar i
risasvigi í morgun og síðan í tvíképpni,
stórsvigi og svigi.
Kristinn var að búa sig undir stór-
svigskeppnina í dag þegar hann keyröi
út úr brautinni, lenti í óþjöppuðum
snjó og fór nokkrar veltur. Hann fór í
skoðun á sjúkrahúsi í Granada og sam-
kvæmt henni er önnur hásinin að hálfu
slitin við vöðvafestingarnar.
Ljóst er að Kristinn veröur frá
keppni í einhvern tíma en allt bendir
til þess að hann þurfi að gangast undir
aðgerð.
Þetta er mikiö áfall fyrir Kristin og
um leið von^rigði fyrir íslenska skíða-
áhugamem, 'iristinn er kominn nokk-
uð framarlega á heimslistanum og
nokkrar vonir voru bundnar við
frammistöðu hans á Spáni.
Þar með munu aðeins tveir íslend-
ingar keppa á mótinu í Sierra Nevada,
þeir Arnór Gunnarsson og Haukur
Arnórsson. Þeir keppa í stórsvigi og
svigi en þær greinar eru ekki á dagskrá
fyrr en undir lok mótsins, 23. og 25.
febrúar.
-VS
Kristinn Björnsson
Bjarni sjöundi
í Frakklandi
Bjarni Friðriksson hafnaði í 7.
sæti af 36 keppendum í -95 kg
flokki á sterku júdómóti, Paris
Judo International, um helgina.
Með þessu stendur Bjarni vel að
vígi með að komast á
ólympíuleikana í Atlanta. Hann
er kominn upp fyrir Vernharð
Þorleifsson, sem keppti á sama
móti, en féll snemma úr keppni,
Milljarðasamningur
Manchester United er þessa
dagana að ljúka gerð samnings
við sportvöruframleiðandann
Umbro. Samningurinn er.til sex
ára og er talið að félagiö fái um
sex milljarða króna fyrir hann.
Stoke að byggja
Enska 1. deildar liðið Stoke
City, sem Lárus Orri Sigurðsson
leikur með, er þessa dagana að
semja við banka í London og í
Evrópu um lán fyrir nýjum leik-
vangi. Bankarnir hafa boðist til
að lána Stoke 600 milljónir króna
til að geta hafið undirbúning að
leikvangi sem eingöngu verður
með sætum. Áætlað er að bygg-
ingin kosti um 1,7 milljarða og
er hún fjármögnuð af félaginu og
borgaryfirvöldum.
Rioch vill McAllister
Bruce Rioch, framkvæmdastjóri
Arsenal, hefur haft samband við
Leeds og sýnt áhuga á að kaupa
fyrirliöa liðsins, skoska lands-
liðsmanninn Gary McAllister.
McGrath vestur?
Paul McGrath, varnarmaður-
inn sterki hjá Aston Villa, íhug-
ar að hætta í ensku knattspyrn-
unni í vor og ganga til liðs við
bandaríska liðið Boston. Þjálfari
þar er fyrrum félagi hans í írska
landsliðinu, Frank Stapleton.
Dahlin til Chelsea?
Bresk blöð sögðu frá því í gær
að Chelsea hefði mikinn áhuga á
að fá til sín sænska landsliðs-
manninn Martin Dahlin frá Bor-
ussia Mönchengladbach í Þýska-
landi.
Guðni með tvo
brákuð rifbein
- eftir árekstur viö Dwight Yorke
Guðni Bergsson, lands-
liðsfyrirliði íslands i
knattspymu, brákaði tvö
rifbein í leik með Bolton
gegn Aston Villa í ensku
úrvalsdeildinni á laugar-
daginn. Hann missir af
næstu leikjum liðsins
fyrir vikið.
„Ég fékk svona heift-
arlegt olnbogaskot í síð-
una frá Dwight Yorke,
sóknarmanni Villa. Þetta
var algjört óviljaverk, enda er sá
piltur hinn ljúfasti og þekktur fyrir
allt annað en svona. Þetta hitti bara
á slæman stað. Ég veit ekki hve
lengi ég verð frá, líklega 2-3 vikur,
en vonandi verð ég klár gegn
Manchester United eftir hálfan
mánuð en sá leikur er á heimavelli
og sýndur beint á Sky,“ sagði Guðni
Guðni Bergsson.
við DV í gærkvöldi.
Bolton mætir Leeds í 4.
umferð bikarkeppninn-
ar annað kvöld og þar
verður Guðni fjarri góðu
gamni.
Bolton situr sem fyrr
eitt og yfirgefið á botni
úrvalsdeildarinnar og
staða liðsins er orðin
mjög slæm.
„Þetta lítur ekki vel út
og það verður erfitt að
halda liðinu i deildinni úr þessu, en
þó alls ekki ómögulegt. Við erum
betri en staðan gefur til kynna en
okkur skortir meiri aga, hörku og
reynslu. Það er líka farið að saxast
á sjálfstraustið, en við verðum að
fara að vinna leiki til að ná því aft-
ur,“ sagði Guðni.
-DÓ/VS
Arnar byrjaður að æfa
Arnar Gunnlaugsson byrjar væntanlega að leika á ný með Sochaux í
frönsku 2. deildinni í knattspyrnu um næstu helgi. Arnar hefur misst af síð-
ustu leikjum liðsins vegna meiðsla í hásin.
Arnar byrjaði að æfa á ný í gær eftir meðferð hjá lækni í Laval, en þar
var hann í nálastungum og nuddi. Læknirinn vildi hafa hann lengur en mik-
il pressa er frá Sochaux um að hann byrji að spila.
Öllum leikjum í frönsku 2. deildinni sem fram áttu að fara um helgina var
frestað vegna veðurs. -DÓ/VS
Hópa- og fyrirtækja-
keppni Fram 1996
Hópa- og fyrirtækjakeppni Fram 1996
í innanhúsknattspyrnu verður haldin
í íþróttahúsi Fram fimmtudaginn 23. til
sunnudagsins 25. febrúar.
Úrslitakeppni efstu liða fer fram á sama
stað vikur síðar.
Þátttaka tilkynnist í síma 568-0342 og
568-0343 alla virka daga milli kl. 13 og
14 fyrir þriðjudaginn 20. febrúar 1996.