Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1996, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1996, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRUAR 1996 25 Hringiðan „Tilhleypingar" er yfirskrift sýningar á verkum ungra arkitekta sem opnuð var í Hafnarhúsinu á iaugardaginn. Gunnur og Guð- mundur kíktu á framúrstefnulegar hugmyndir arkitektanna við opnunina. DV-mynd Teitur Það var blíðskaparveður á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Vinkon- urnar Hjördís Lilja Örnólfsdóttir og Emilía B. Gísladóttir nýttu tækifærið og sýndu listir sínar á skautasvellinu í Laugardal. DV-mynd Teitur Skíðasamband íslands bauð almenningi upp á gönguskíðakennslu á Valbjarnarvelli í Laugardal á laugardaginn. Þorsteinn Árni, Jónína Sif, Birkir, Drífa og Aðalsteinn voru þreytt eftir skíðakennsluna og hvíldu sig stundum örlítið. DV-mynd Teitur Hjónin Anna Bryndís Tryggvadóttir og Hallgrímur Þórhallsson á Brekku í Fljótsdal létu sig ekki muna um að skjót- ast á opinn dag hjá Stóðhestastöðinni í Gunnarsholti á Rangárvöllum um helg- ina. DV-mynd E.J. Undankeppni í frístæl-danskeppni Tónabæjar og ÍTR fyrir höfuðborgarsvæðið fór fram á föstudagskvöldið. Keppt var bæði t hóp- og einstaklingskeppni í troðnum Tónabæ. Á myndinni er hópurinn Dust sem Þórdís Schram, inga Mar- en, Ásdís Ingvadóttir, María Blöndal og Sigyn Blöndal skipa. Bar hann sigur úr býtum en Jóhanna Jakobsdóttir sigraði í einstaklingskeppninni. DV-mynd Teitur Ný sýning, Bítlaárin, var frumsýnd á Hót- el íslandi á laug- ardaginn. Nálægt sextíu bítlalög og önnur lög frá þeim tíma eru flutt í þess- ari tveggja tíma dag- skrá. Sér til halds og trausts hafa söngvar- arnir glæsilegar gó gó píur sem tvista á sviðinu. DV-mynd Teitur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.