Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Side 4
fréttir
LAUGARDAGUR 1. JUNÍ 1996
Hörö gagnrýni á frumvarpið um fjármagnstekjuskatt:
Þekkist hvergi að
skattleggja líknarfélög
- sagöi Steingrímur J. - Ákveðið að hafa engar undanþágur, segir Pétur H. Blöndal
Mjög hörð gagnrýni kom fram hjá
stjórnarandstöðunni á frumvarpið
um fjármagnstekjuskatt við 2. um-
ræðu þess á Alþingi í gær.
„Það þekkist hvergi á byggðu bóli
að skattleggja líknarfélög eins og
lagt er til að gert verði í þessu frum-
varpi,“ sagði Steingrímur J. Sigfús-
son á Alþingi í gær. Hann gagn-
rýndi einnig undanþágurnar frá
skattgreiðslum af hagnaði af arði og
hvemig menn geta uppfært hluta-
bréf í fyrirtækjunum og greitt hlut-
höfum út stórfé sem þeir þurfi síðan
aðeins að greiða 10 prósent skatt af
í stað 40 til 47 prósent eins og verið
hefur.
„Nefndin, sem samdi þetta fram-
varp, vildi að þetta væri án undan-
tekninga þannig að hægt væri að
komast hjá öllu undanskoti því það
á að halda bankaleyndinni eftir sem
áður. Ég hef einnig bent á að ég vor-
kenni ekki líknarfélögum og stéttar-
félögum sem eru með fjármagnstekj-
ur að greiða af þeim 10 prósent
skatt. Ég vorkenni hins vegar gamla
fólkinu sem hefur lagt eitthvað fyr-
ir og hefur hugsað sér að lifa á vöxt-
unum í ellinni að greiða skattinn,"
sagði Pétur H. Blöndal, einn aðal-
talsmaður stjórnarflokkanna í
þessu máli.
Sighvatur Björgvinsson kallaði
frumvarpið mestu eignartilfærslu
til hinna ríku í landinu sem sögur
fari af. Hann segir frumvarpið
hneyksli eins og það er en gert er
ráð fyrir flötum 10 prósent fjár-
magnstekjuskatti á vaxtatekjur og
hluta af arðgreiðslum.
2. umræðu um frumvarpið lauk í
gær þannig að það verður að lögum
strax eftir helgina.
-S.dór
J Móttaka
J smáauglýsinga
|i.
Frá og með deginum í dag fá smáauglýsingasíöur DV nýtt og bætt útlit. Myndin sýnir móttöku smáauglýsinganna.
DV-mynd BG
Smáauglýsingar DV fá breytt og bætt útlit:
Gerum þær enn
aðgengilegri
fyrir lesendur
- segir Ingibjörg L. Halldórsdóttir, deildarstjóri smáauglýsingadeildar
„Með þessum breytingum á upp-
setningu erum við að gera síðurnar
enn aðgengilegri fyrir neytendur.
Mun auðveldara verður fyrir fólk að
leita að ákveðnum dálkum og finna
það sem það þarf á að halda,“ segir
Ingibjörg L. Halldórsdóttir, deildar-
stjóri smáauglýsingadeildar DV, en
eins og lesendur geta séð í blaðinu í
dag hafa smáauglýsingasíðurnar
fengið breytt og bætt útlit.
Tíu yfirflokkar
Ingibjörg segir að uppsetning-
unni hafi verið breytt þannig að
smáauglýsingadálkunum verði
skipt upp í níu yfirflokka og undir
hverjum komi íjölmargir undir-
flokkar í stafrófsröð. Tíundi flokk-
urinn verði síðan myndasmáauglýs-
ingar.
Sem dæmi um uppsetninguna má
nefna að heimilið er yfirflokkur
númer tvö í röðinni og undir hon-
um má finna undirflokkana antik,
bamagæsla, barnavörur, dýrahald,
fatnaður, gefins, heimilistæki, hús-
gögn, málverk, parket, sjónvörp,
teppi og video. Yfirflokkamir eru
annars eftirfarandi: Markaðstorgið;
heimilið; bflar, farartæki, vinnuvél-
ar o.fl.; tómstundir og útivist; þjón-
usta; húsnæði; atvinnuauglýsingar;
vettvangur; einkamál og mynda-
smáauglýsingar. Hver yfirflokkur
er sérstaklega afmarkaður með við-
eigandi mynd.
Mynda meiri heild
„Við ætlum með þessu að halda
smáauglýsingunum meira út af fyr-
ir sig. Hver flokkur fær greinileg
einkenni en saman mynda þeir eina
heild,“ segir Ingibjörg.
Upphaf smáauglýsinganna í blað-
inu markast af nýju merki deildar-
innar, allt miUi himins og jarðar, og
þær enda síðan á þjónustuauglýs-
ingunum. Myndasögurnar verða
færðar aftur fyrir smáauglýsinga-
pakkann.
„Hálsskurðarmálið“:
Játa að hafa barið manninn og skorið
Tveir ungir karlar og ein kona
hafa játað fyrir Rannsóknarlög-
reglunni að hafa barið hálfsextug-
an sjómann og veitt honum
áverka með hnífi um hvítasunnu-
helgina.
Fólkið var handtekið skömmu
eftir árásina, sem þótti óvenju
fólskuleg, og úrskurðað í gæslu-
varðhald til 5. júní. Það situr enn
í haldi en óvíst er hvort farið
verður fram á framlengingu varð-
haldsins eftir helgina.
Fjármunir úr eigu mannsins
fundust hjá fólkinu. Hann hlaut
ýmsa áverka og skarst m.a. á
kinn, kjálka og niður á háls. Mað-
urinn þekkti ekki umrætt fólk og
hafði fyrst séð konuna sama kvöld
og ráðist var á hann.
-GK
Sjómannadagurinn á Akureyri:
Hátíðahöldin
—hefjast í dag
DV, Akureyri:
Hátíðahöld Sjómannadagsráðs
Akureyrar vegna sjómannadagsins,
sem er á morgun, hefjast strax í dag
en þá veröur keppt bæði í róðri og
knattspyrnu.
Kl. 13.10 hefst kappróðurinn og
verður best fyrir áhorfendur að
koma sér fyrir við hús Slysavarna-
félagsins við Strandgötu. Þar er góð
aðstaða til að fylgjast meö, en auk
þess geta hugrakkir stokkið „teygju-
stökk“ og notið veitinga sem verða
til sölu í húsi Slysavarnafélagsins.
Kl. 16 hefst síðan knattspyrnu-
keppni sjómanna í KA-húsinu og
þar verður tekið á því ef að líkum
lætur.
Á morgun hefst dagskráin með
sjómannamessu í Glerárkirkju kl.
11 og þar verða einnig heiðranir og
athöfn við minnisvarða sjómanna.
Fjölskylduhátíð hefst við sundlaug-
ina kl. 13.30 þar sem m.a. verður
sundkeppni, bæjarfulltrúar og út-
gerðarmenn reyna með sér í flot-
gallasundi, pitsuáti og fleiru, auk
þess sem ýmislegt annað verður á
boðstólum. Boðið verður í ókeypis
siglingu um Pollinn kl. 16 á vegum
Pizza 67 og Sæfara. Annað kvöld
verður svo sjómannadagshátíð í
íþróttahöllinni með borðhaldi og
veglegri skemmtidagskrá sem
stendur yfir fram eftir nóttu. -gk
Heimsfrægur flygill sem sjálfur snillingurinn Vladimir Horovitz lék á til fjölda
ára er kominn til iandsins og verður til sýnis og spilunar í Hljóðfæraverslun
Leifs Magnússonar næstu daga. Leifur er hér á myndinni við flygillinn. Að
sögn Leifs tók það hann tvö ár að fá flygillinn til íslands. Hann hefur verið til
sýnis undanfarin þrjú ár á vegum fyrirtækisins Steinwaý & sons og farið um
nær ailar heimsálfur. Ekkja Horowitz, Wanda, erfði fyrirtækið að flyglinum en
Horowitz lést árið 1989. Steinway gaf Vladimir og Wöndu flygil þegar þau
gengu í hjónaband árið 1934. Árið 1941 skipti fyrirtækið um flygil við Vla-
dimir og fékk honum þann flygil sem kominn er nú til landsins. Nemendur
og atvinnupíanóleikarar munu spila daglega á þennan fræga flygil í verslun
Leifs. -bjb/DV-mynd ÞÖK