Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Qupperneq 4
fréttir LAUGARDAGUR 1. JUNÍ 1996 Hörö gagnrýni á frumvarpið um fjármagnstekjuskatt: Þekkist hvergi að skattleggja líknarfélög - sagöi Steingrímur J. - Ákveðið að hafa engar undanþágur, segir Pétur H. Blöndal Mjög hörð gagnrýni kom fram hjá stjórnarandstöðunni á frumvarpið um fjármagnstekjuskatt við 2. um- ræðu þess á Alþingi í gær. „Það þekkist hvergi á byggðu bóli að skattleggja líknarfélög eins og lagt er til að gert verði í þessu frum- varpi,“ sagði Steingrímur J. Sigfús- son á Alþingi í gær. Hann gagn- rýndi einnig undanþágurnar frá skattgreiðslum af hagnaði af arði og hvemig menn geta uppfært hluta- bréf í fyrirtækjunum og greitt hlut- höfum út stórfé sem þeir þurfi síðan aðeins að greiða 10 prósent skatt af í stað 40 til 47 prósent eins og verið hefur. „Nefndin, sem samdi þetta fram- varp, vildi að þetta væri án undan- tekninga þannig að hægt væri að komast hjá öllu undanskoti því það á að halda bankaleyndinni eftir sem áður. Ég hef einnig bent á að ég vor- kenni ekki líknarfélögum og stéttar- félögum sem eru með fjármagnstekj- ur að greiða af þeim 10 prósent skatt. Ég vorkenni hins vegar gamla fólkinu sem hefur lagt eitthvað fyr- ir og hefur hugsað sér að lifa á vöxt- unum í ellinni að greiða skattinn," sagði Pétur H. Blöndal, einn aðal- talsmaður stjórnarflokkanna í þessu máli. Sighvatur Björgvinsson kallaði frumvarpið mestu eignartilfærslu til hinna ríku í landinu sem sögur fari af. Hann segir frumvarpið hneyksli eins og það er en gert er ráð fyrir flötum 10 prósent fjár- magnstekjuskatti á vaxtatekjur og hluta af arðgreiðslum. 2. umræðu um frumvarpið lauk í gær þannig að það verður að lögum strax eftir helgina. -S.dór J Móttaka J smáauglýsinga |i. Frá og með deginum í dag fá smáauglýsingasíöur DV nýtt og bætt útlit. Myndin sýnir móttöku smáauglýsinganna. DV-mynd BG Smáauglýsingar DV fá breytt og bætt útlit: Gerum þær enn aðgengilegri fyrir lesendur - segir Ingibjörg L. Halldórsdóttir, deildarstjóri smáauglýsingadeildar „Með þessum breytingum á upp- setningu erum við að gera síðurnar enn aðgengilegri fyrir neytendur. Mun auðveldara verður fyrir fólk að leita að ákveðnum dálkum og finna það sem það þarf á að halda,“ segir Ingibjörg L. Halldórsdóttir, deildar- stjóri smáauglýsingadeildar DV, en eins og lesendur geta séð í blaðinu í dag hafa smáauglýsingasíðurnar fengið breytt og bætt útlit. Tíu yfirflokkar Ingibjörg segir að uppsetning- unni hafi verið breytt þannig að smáauglýsingadálkunum verði skipt upp í níu yfirflokka og undir hverjum komi íjölmargir undir- flokkar í stafrófsröð. Tíundi flokk- urinn verði síðan myndasmáauglýs- ingar. Sem dæmi um uppsetninguna má nefna að heimilið er yfirflokkur númer tvö í röðinni og undir hon- um má finna undirflokkana antik, bamagæsla, barnavörur, dýrahald, fatnaður, gefins, heimilistæki, hús- gögn, málverk, parket, sjónvörp, teppi og video. Yfirflokkamir eru annars eftirfarandi: Markaðstorgið; heimilið; bflar, farartæki, vinnuvél- ar o.fl.; tómstundir og útivist; þjón- usta; húsnæði; atvinnuauglýsingar; vettvangur; einkamál og mynda- smáauglýsingar. Hver yfirflokkur er sérstaklega afmarkaður með við- eigandi mynd. Mynda meiri heild „Við ætlum með þessu að halda smáauglýsingunum meira út af fyr- ir sig. Hver flokkur fær greinileg einkenni en saman mynda þeir eina heild,“ segir Ingibjörg. Upphaf smáauglýsinganna í blað- inu markast af nýju merki deildar- innar, allt miUi himins og jarðar, og þær enda síðan á þjónustuauglýs- ingunum. Myndasögurnar verða færðar aftur fyrir smáauglýsinga- pakkann. „Hálsskurðarmálið“: Játa að hafa barið manninn og skorið Tveir ungir karlar og ein kona hafa játað fyrir Rannsóknarlög- reglunni að hafa barið hálfsextug- an sjómann og veitt honum áverka með hnífi um hvítasunnu- helgina. Fólkið var handtekið skömmu eftir árásina, sem þótti óvenju fólskuleg, og úrskurðað í gæslu- varðhald til 5. júní. Það situr enn í haldi en óvíst er hvort farið verður fram á framlengingu varð- haldsins eftir helgina. Fjármunir úr eigu mannsins fundust hjá fólkinu. Hann hlaut ýmsa áverka og skarst m.a. á kinn, kjálka og niður á háls. Mað- urinn þekkti ekki umrætt fólk og hafði fyrst séð konuna sama kvöld og ráðist var á hann. -GK Sjómannadagurinn á Akureyri: Hátíðahöldin —hefjast í dag DV, Akureyri: Hátíðahöld Sjómannadagsráðs Akureyrar vegna sjómannadagsins, sem er á morgun, hefjast strax í dag en þá veröur keppt bæði í róðri og knattspyrnu. Kl. 13.10 hefst kappróðurinn og verður best fyrir áhorfendur að koma sér fyrir við hús Slysavarna- félagsins við Strandgötu. Þar er góð aðstaða til að fylgjast meö, en auk þess geta hugrakkir stokkið „teygju- stökk“ og notið veitinga sem verða til sölu í húsi Slysavarnafélagsins. Kl. 16 hefst síðan knattspyrnu- keppni sjómanna í KA-húsinu og þar verður tekið á því ef að líkum lætur. Á morgun hefst dagskráin með sjómannamessu í Glerárkirkju kl. 11 og þar verða einnig heiðranir og athöfn við minnisvarða sjómanna. Fjölskylduhátíð hefst við sundlaug- ina kl. 13.30 þar sem m.a. verður sundkeppni, bæjarfulltrúar og út- gerðarmenn reyna með sér í flot- gallasundi, pitsuáti og fleiru, auk þess sem ýmislegt annað verður á boðstólum. Boðið verður í ókeypis siglingu um Pollinn kl. 16 á vegum Pizza 67 og Sæfara. Annað kvöld verður svo sjómannadagshátíð í íþróttahöllinni með borðhaldi og veglegri skemmtidagskrá sem stendur yfir fram eftir nóttu. -gk Heimsfrægur flygill sem sjálfur snillingurinn Vladimir Horovitz lék á til fjölda ára er kominn til iandsins og verður til sýnis og spilunar í Hljóðfæraverslun Leifs Magnússonar næstu daga. Leifur er hér á myndinni við flygillinn. Að sögn Leifs tók það hann tvö ár að fá flygillinn til íslands. Hann hefur verið til sýnis undanfarin þrjú ár á vegum fyrirtækisins Steinwaý & sons og farið um nær ailar heimsálfur. Ekkja Horowitz, Wanda, erfði fyrirtækið að flyglinum en Horowitz lést árið 1989. Steinway gaf Vladimir og Wöndu flygil þegar þau gengu í hjónaband árið 1934. Árið 1941 skipti fyrirtækið um flygil við Vla- dimir og fékk honum þann flygil sem kominn er nú til landsins. Nemendur og atvinnupíanóleikarar munu spila daglega á þennan fræga flygil í verslun Leifs. -bjb/DV-mynd ÞÖK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.