Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Qupperneq 7
JLlV LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996
fréttir
7
BMW Roadster - Bondbíllinn úr
Gullauga - sómir sér vel í íslensku
umhverfi sem annars staðar.
Bílasýning B&L:
Bondbíllinn í
Perlunni
Nú um helgina er BMW Roadster,
þekktur úr kvikmyndinni og bók-
inni Gullauga (Goldeneye) sem
„Bondbíllinn", frumsýndur á Is-
landi á mikilli bílasýningu sem Bif-
reiðar og landbúnaðarvélar efna til
í Perlunni.
„Bondbíllinn" hefur vakið mikla
athygli og langir biðlistar kaupenda
myndast því framleiðslan svarar
hvergi nærri eftirspurn. Hann er
vel búinn, með 1800 rúmsentímetra
vél, læsivörðum bremsum og al-
vöruspólvörn, loftkælingu og ýms-
um öðrum lúxusbúnaði. Auk BMW
Roadsters verða aðrir bílar sem
B&L hafa á boðstólum sýndir í
Perlunni - BMW, Hyundai, Lada og
Renault. Meðal annars verða sýndir
þar Renault Premium vörubUarnir
nýju, aðeins rúmum mánuði eftir
heimsfrumkynninguna í Barcelona
í lok aprU.
Sýningin verður opin í dag, laug-
ardag, kl. 10—17, og á morgun,
sunnudag, kl. 12-17.
Landsmenn
tíni rusl
- frambjóðendur heQa átakið
í dag hefst umhverfisátak Ung-
mennafélags íslands og Umhverfissjóðs
verslunarinnar. Ætiunin er að fá lands-
menn tti að hreinsa landið og stendur
átakið tU 17. júní.
Ungmennafélögin verða með skipu-
lagðar hreinsanir á tímabUinu og verða
þau víða í samstarfi við sveitastjómir.
Átakið hefst klukkan 10 i Bessastaða-
hreppi og verður Vigdís Finnbogadóttir,
forseti íslands, viðstödd. Klukkan 13
mun ungmennafélagið Fjölnir hefja
hreinsun sina í Grafarvogi og hefur for-
setaframbjóðendum verið boðið að lið-
sinna fólki þar.
í tengslum við hreinsunina verður
taupoki undir nafninu Græni hirðirinn
settur á markaðinn. Taupokinn inni-
heldur ruslapoka, bækling með fróðleik
um umhveríismál og fjölda þátttöku-
vinninga.
Sérstök umhverfisverðlaun verða
veitt fyrir bestan árangur í hreinsun á
landinu. Tilnefningar eiga að berast til
Ungmennafélags íslands.
90 manns sagt upp hjá kaupfélaginu og frystihúsi á Þingeyri:
Tap á frystingunni
er félaginu ofviöa
- segir Sigurður Kristjánsson kaupfélagsstjóri
„Það er tap á bolfiskfrystingunni
og við höfum ekki náð að snúa
rekstri frystihússins í gróða þrátt
fyrir aukna framleiðslu. Þess vegna
var ekki annað til ráða en að segja
öllum upp og skapa þannig svigrúm
til endurskipulagningar," sagði Sig-
urður Kristjánsson, kaupfélagssljóri
hjá Kaupfélagi Dýrfirðinga á Þing-
eyri, í samtali við DV í gær.
í gær var öllum 90 starfsmönnum
kaupfélagins og Fáfnis, dótturfyrir-
tækis þess, sagt upp störfum. Sig-
urður sagði að hallareksturin á
frystihúsinu á Þingeyri hefði verið
langvarandi og félaginu ofviða. Eru
nú m.a. orðnir erfiðleikar við að
greiða út orlof. Sigurður sagði að
hagnaður væri á öðrum þáttum í
rekstri kaupfélagsins.
Sigurður staðfesti að hugmyndir
væru uppi um sameiningu við fyrir-
tæki norðar á Vestfiörðum. Hann
vildi þó ekki greina frá hvaða fyrir-
tæki kæmu þar til greina, sagði að-
eins að verið væri að kanna mögu-
leikana.
„Uppsagnimar nú eru fyrst og
fremst hugsaðar til að auka sveigjan-
leika okkar í samningum við aðra,“
sagði Sigurður. Hann átti ekki von á
að neinn missti vinnuna og sagðist
aðspurður „rétt ætla að vona að allir
héldu störfum sínum“. -GK
*7
ss;
,\vý'VýP
• * ' \í)
& . >zr
Á J . í£
■
n
n
T1
lV
0
Klipptu ut myndir af Hress og Kát sem eru á 1/2 lítra og 2 lítra
flöskum og sendu til Ölgerðarinnar. Þú mátt líka senda dósir.
Þad eru tvær myndir af þeim á hverri flösku og dós, þess vegna
er leikur einn að safna 20 myndum. Þátttökuseðill er á öllum
SÖluStÖðum. Leikurinn stendurtil 30. iúní.
SEMENTSBUNDIN
FLOTEFNI
Uppfylla ströngustu gæöakröfur
PR0NT0
PRESTO
REN0V0
• Rakaheld án próteina • Níðsterk
• Hraðþornandi • Dælanleg
• Hentug undir dúka og til ílagna
Gólflagnirhf.
IÐNAÐARGÓLF Onút&iwviitfTA
Sxwðn*/egur70,200 Kópætogur
Sénar 664174ð, 882 4170, fSK §64176S
Gísli B.