Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Page 18
18
LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996 DV
Dagurinn byrjaði með úrhellis-
rigningu og austanstrekkingi uppi
í Lækjarbotnum, hér rétt austan
Reykjavíkur, þar sem við hjónin
búum nú í litlum sumarbústað.
Fyrsta verkið var að laga morgun-
kafíið og elda hafragraut en hann
finnst mér ómissandi hluti morg-
unverðarins. Þrátt fyrir rigning-
una brá ég mér út til að líta yfir af-
reksverk helgarinnar. Hvítasunnu-
helginni hafði sem sagt verið varið
með fjölskyldunni við að planta
öspum, runnum og reyndar þrem-
ur góðum grenitrjám (gjöf frá ná-
grannanum). Auk þess skutumst
við austur í Gunnarsholt í yndis-
legu veðri til að sækja þangað fræ-
poka sem við kaupum frá Land-
græðslu ríkisins um þetta leyti á
hverju vori. Fræinu er svo dreift
ásamt áburði um bera mela sem
eru viðs vegar í Lækjarbotnum.
Enda þótt föstudagurinn sæti í
mér á leiðinni i vinnuna í morgun
var það óneitanlega mikill léttir og
breyting frá því sem verið hefur að
þurfa ekki að einbeita allri starfs-
orkunni að þvi að koma ástands-
skýrslunni út á réttum tíma. Nú
yrði breyting á því, í dag ætlaði ég
eitt ár. Auðvelt var að hafa uppi á
Guðmundi sem nú dvelur i Genf og
fá jáyrði hans fyrir því að taka
þátt í þessari ráðstefnu um stjórn
fiskveiða og halda þar erindi.
Enn setið við símann
Eftir hádegi hringdi maður til
min sem taldi sig geta útvegað
okkur nýlegt rannsóknarskip á
góðu verði og er slíkum hringing-
um auðvitað tekið með þökkum.
Enn var hringt og nú frá Aften-
posten í Ósló. Þá þurfti að undir-
búa fund í sjávarútvegsráðuneyt-
inu um karfa og grálúðu. Fundur-
inn var haldinn með fulltrúum sjó-
manna, útvegsmanna og far-
manna, vegna viðræðna við Græn-
lendinga og Færeyinga síðar í
þessari viku um nýtingu og skipt-
ingu sameiginlegra fískistofna,
einkum grálúðu og karfa. Sérfræð-
ingar Hafrannsóknastofnunar
höfðu undirbúið fundinn mjög vel
og gekk hann því að óskum og
honum lauk kl. 16.30. Þá lágu fyrir
skilaboð frá Alþingi um að mæta í
sjávarútvegsnefnd kl. 8.15 á mið-
vikudagsmorgun og tíminn fram
Dagur í lífi Jakobs Jakobssonar, forstjóra Hafrannsóknastofnunar:
Síldarritgerðin sem sat á hakanum
að byrja á nýrri síldarritgerð. Það
fór þó á annan veg. Því segja má að
morgunninn hafi verið morgunn
símhringinga. Fyrstur hringdi
Hjálmar Vilhjálmsson utan af sjó
en hann hefur eins og menn vita
verið við síldarrannsóknir á haf-
svæðinu austur af landinu að und-
anförnu, hefur sent mörg skemmti-
leg skeyti um dreifingu síldarinn-
ar sem ýmist byrja: „Nú erum við
síldarkóngar" eða „Nú er gaman
að lifa“, því hann hefur fundið slík
firn af síld að hann tæpir varla tá
á dekkiö á Árna Friðrikssyni.
Næsta málefni sem kom inn á
skrifstofuna var hugsanlegur
rannsóknarleiðangur í samvinnu
við Breiðfirðinga um ástand
rækjustofnsins í Kolluál og virtust
einhverjar vöflur á fólki um sam-
vinnu Hafrannsóknastofnunarinn-
ar og Breiðfirðinga en þegar leið á
daginn greiddist úr þeim flóka og
það var gengið frá því að leiðang-
urinn hefjist strax eftir sjómanna-
dag með góðu samþykki allra sem
þar eiga hlut að máli. Þá hringdi
blaðamaður DV og fyrir honum
beið ég herfilegan ósigur þar sem
hann þvingaði fram loforð um að
ég skyldi segja frá einum degi í
starfinu. Næst hringdi vinur minn
í Grindavík. Eftir gott spjall um
síldargöngurnar fyrr og nú kom
hann með þarflega gagnrýni og
ábendingar í tengslum við rækju-
veiðar við Eldey. Það mál var far-
sællega til lykta leitt. Þá kom
hringing frá Fiskistofu vegna
sýnatöku á eitruðum þörungum.
Útibússtjórinn á ísafirði bjargaði
því vandamáli. Og svona hélt þetta
áfram ein afgreiðsla eftir aðra,
engu frestað.
Eitt síðasta símtalið fyrir hádegi
kom þegar starfsbróðir minn í
Noregi, 0vind Ulltang, hringdi en
hann studdi okkur mjög dyggilega
á tímum þorskastríðsins fyrir 20
árum og mér hefur alltaf fúndist ég
standa í þakkarskuld við hann.
0vind var að reyna að ná í Guð-
mund Eiríksson til að fá hann til
að halda erindi á stórri ráðstefnu
sem haldin verður í Bergen eftir
til kl. 17.30 var nýttur til undirbún-
ings. Sem sagt engin sUdarritgerð.
Ég rétt slapp í leikfimitíma hjá
endurhæfingarstöð hjarta- og
lungnasjúklinga kl. 17.30. Kom
endurnærður heim kl. 19 eftir æsi-
spennandi blakæfingu. Enn
hringdi Hjálmar og nú vegna upp-
hafs loðnuvertiðar.
Stax að máltíð lokinni fórum við
hjónin á sögulegan aðalsafnaðar-
fund Langholtskirkju sem lauk
ekki fyrr en eftir miðnætti.
PP
Nafn:
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð fimmtugustu og
níundu getraun reyndust vera:
1. Davíð Þórisson
Þorfinnsgötu 4
101 Reykjavík
2. Nína Sveinsdóttir
Bólstaðarhlíð 42
105 Reykjavík
Myndirnar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni tU hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni tU hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimUisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó með útvarpi að
verðmæti kr. 7.100, frá Hljómbæ Skeif-
unni 7, Reykjavik.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur, að verðmæti kr.
1.790. Annars vegar James Bönd-bókin
Gullauga eða Goldeneye eftir John
Gardner og hins vegar bók Luzanne
North, Fín og rUi og liðin lík.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fiimm breytingar? 361
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík