Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Side 26
26
LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996 JjV
tónlist
Topplag
Lag Fugees, Ready Or Not,
stóð stutt við á toppnum, sat þar
aðeins eina viku og er nú kom-
ið í annað sætið. Arftaki þess á
toppnum er lagiö Lemon Tree
með hljómsveitinni Fool’s Gar-
den, en það lag er búið að vera
9 vikur á listanum.
Hástökkið
Hástökk vikunnar á hin bráð-
fjöruga hljómsveit Los Del Rio
með sitt stórskemmtilega suð-
ræna lag, Macarena. Það er búið
að vera aðeins tvær vikur á
lista, var í 30. sæti í síðustu viku
en er nú komið í það níunda.
Hæsta nýja lagið
Hæsta nýja lag vikunnar,
Charity með Skunk Anansi,
kemst alla leið í 10. sætið á sinni
fyrstu viku og á næsta örugglega
eftir að komast ofar á íslenska
listanum með sama áframhaldi.
Enginn er annars
bróðir í leik
John Fogerty, sem eitt sinn
veitti hljómsveitinni Creedence
Clearwater Revival forstöðu, er
langt kominn með vinnu aö nýrri
plötu og bíða margir spenntir eft-
ir útkomunni því plötur frá
Fogerty eru afar sjaldséðir grip-
ir. En lífið er ekki bara leikur hjá
Fogerty þessa dagana því hann á
líka í deilum við fyrrum félaga
sína í CCR, þá Stu Cook og Doug
Clifford sem eru um þessar
mundir að troða upp á tónleikum
undir nafninu Creedence Cle-
arwater Revisited með einhverj-
um söngvara sem hamast við að
herma eftir John Fogerty. Skilj-
anlega finnst Fogerty þetta held-
ur klént af gömlum vinum en
óvíst er hvort hann getur gripið
til neinna aðgerða.
Crowded House
hætt?
Finn-bræðurnir Neil og Tim
sem gert hafa garðinn frægan í
hljómsveitunum Split Enz og
Crowded House eru nú að vinna
að plötu undir nafninu Finn
Brothers. Ekki er vitað hvort
þetta samstarf þeirra bræðra er
til langframa og þýðir þá enda-
lok Crowded House, en þó er
ákveðið að þeir haldi í tónleika-
ferð um Bandarikin i kjölfar plöt-
unnar sem kemur út nú um miðj-
an júní.
í boði (jWí'($$///, á Bylgjunni á laugardag kl. 16.00
ÍSLENSKI LISTINN NR. 172
vikuna 1.6. - 1.6. "96
ÞESSI VIKA SÍÐASTA VIKA § u. r\ VIKUR Á LISTANUM T 01 n P 4®
o 2 2 9 LEMON TREE *• . 1. VIKA NR. 1... FOOL'S GARDEN
2 1 5 4 READY OR NOT FUGEES
3 3 3 6 BREAKFAST AT TIFFANY'S DEEP BLUE SOMETHING
04) 5 10 5 SALVATION CRANBERRIES
CD 6 7 6 CAN'T GET YOU OFF MY MIND LENNY KRAVITZ
6 4 1 9 KILLING ME SOFTLY FUGEES
G> 13 - 2 THEME FROM MISSION IMPOSSIBLE ADAM CLAYTON & LARRY MULLEN
GD 12 26 3 5 O'CLOCK NONCHALANT
CD 30 2 MACARENA ... HÁSTÖKK VIKUNNAR ... LOS DEL RIO
(íq) 1 CHARITY ... NÝTTÁUSTA - SKUNK ANANSI
NÝTT
11 8 9 4 OLD MAN & ME (WHEN I GETTO HEAVEN) HOOTIE & THE BLOWFISH
12 7 14 5 THREE IS A MAGIC NUMBER BLIND MELON
13 10 8 8 1,2,3,4 (SUMPIN' NEW) COOLIO
14 19 _ 2 TONIGHT TONIGHT SMASHING PUMKINS
15 9 12 8 FASTLOVE GEORGE MICHAEL
16 16 18 4 DOIN'IT LL COOL J
GD 18 17 5 L'OMBELICO DEL MONDO JOVANOTTI
18 17 16 4 IT'S RAINING MAN WEST END GIRLS
19 11 6 7 BECAUSE YOU LOVED ME CELINE DION
(20) 21 - 2 STRANGE WORLD KE
21 14 15 6 RETURN OFTHE MACK MARK MORRISON
22 20 27 3 THE ONLY THING THAT LOOKS GOOD ON ME IS YOU BRYAN ADAMS
GD 26 - 2 PRETTY NOOSE SOUNDGARDEN
24 23 23 7 PIU BELLA COSA EROS RAMAZZOTTI
(25) NÝTT 1 OOH AAH JUST A LITTLE BIT GINAG
26 15 4 7 I REALLY LOVED HAROLD EMILIANA TORRINI
27 27 29 3 SILENT WINGS TINA TURNER
28 22 25 4 DIZZY SPOON
(29) 32 33 4 ALWAYS BE MY BABY MARIA CAREY
30 29 40 3 YOU STILL TOUCH ME STING
(31) NÝTT NÝTT 1 JUSTAGIRL NO DOUBT
(3D GI) 1 THROW YOUR HANDS UP L.V.
ra 37 3 CECILIA SUGGS
(§D NÝTT 1 OOHBOY REAL MCCOY
GD 40 - 2 NOBODYKNOWS TONY RICH PROJECT
(36) 24 11 9 FIRESTARTER PRODIGY
37 33 22 7 SWEET DREAMS LA BOUCHE
(38) N Ý TT 1 IN THE MEANTIME SPACEHOG
39 39 _ 2 SLANG DEF LEPPARD
40 25 13 8 STUPID GIRL GARBAGE
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar, DVog Coca-Cola á Islandi. Listinn er niðurstaða skoðanakönnunar sem er framkvæmd af markaðsdeild DV í hverri viku.
Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið afspilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 a sunnudögum i sumar. Listinn er birtur, að hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski
listinn tekur þátt i vali "World Chart" sem framleiddur er af Radio Express i Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaöinu Music
& Medij sem er rekið af bandaríska tónlistarblaðinu Billboard.
Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla:,Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og Ivar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman
og Jóhann Garðar ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Lag með Cobain
& Love
Nýlega fannst vestur í Seattle
áður óþekkt upptaka með þeim
hjónakornum Kurt Cobain og
Courtney Love. Um er að ræða
ílutning þeirra á laginu Asking
For It, sem hljómsveit Love, Hole
gerði vinsælt 1994. Þessi upptaka
rennir stoðum undir þann út-
breidda grun að Kurt Cobain
hafi aðstoðað konu sína við laga-
smíðar og upptökur þó svo hún
hafi ætíð þrætt fyrir það. Maður
sem þekkir vel til þessara mála
heldur því fram að til séu frek-
ari upptökur sem sanni að
Cobain hafi samið nær öll lög á
plötu Hole, Live Through This.
Fleiri Jackson
málaferli
Ekkert lát er á fréttum af
Jackson slektinu og málaferlum
þess en nú er það Tito Jackson
sem höfðað hefur mál gegn
kærasta fyrrum konu sinnar.
Donald J. Bohana heitir kappinn
og er ákærður af Tito Jackson
fyrir að hafa átt sök á dauða
Delores Jackson sem fannst
drukknuð í sundlauginni heima
hjá sér 1994. Tito höfðar málið
ekki einn heldur eru synir hans
og Delores, þeir Tariano, Taryll,
og Tito Joe einnig aðilar að
ákærunni. Ekki er talið að þeir
feðgar ríði feitum hesti frá mál-
inu því samkvæmt niðurstöðu
lögreglurannsóknar á dauða
Delores á sínum tíma átti Don-
ald J. Bohana hvergi sök að máli.
Prinsinn
og skatturinn
Faðirinn verðandi og Prins-
inn fyrrverandi er kominn í flók-
in málaferli við skattayfirvöld í
Minnesota. Málið snýst um
eignaskatt af húsakynnum
Paisley Park útgáfunnar, en eig-
andinn sem eitt sinn kallaði sig
Prince telur að eignin sé allt of
hátt metin. Mönnum til fróðleiks
og frekari skilnings á því hvað
um er að tefla, skal upplýst að
undanfarin ár hafa verið borgað-
ar rúmar 20 milljónir króna ár-
lega í eignaskatt af húsnæðinu.
-SþS-