Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Qupperneq 34
42 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996 iomm Jóhann Heiðar Jóhannsson: mmaldan mun tæp- ast hníga í brað - þó að dregið hafi ór ofurtrú fyrri ára og raunsæið orðið ofan á Sú mikla alda almenn- ingsíþrótta og skilningur á gildi og þörf mannslíkam- ans fyrir hreyfingu, sem hófst í Bandaríkjunum á áttunda áratugnum og barst síðan um heiminn og hing- að til lands nokkru síðar, mun ekki hníga í bráð, að mati Jóhanns Heiðars Jó- Johann Heiðar Jóhannsson læknir við störf á Rannsóknarstofn un Háskólans hannssonar læknis og eins af frumkvöðlum almenn- ingsíþrótta hér á landi. Hann kynntist skokkinu í Bandaríkjunum og hóf að stunda þá íþrótt árið 1978 þegar hann var þar við sér- nám í meinafræði við há- skólann í Cincinnati í Ohio. „Við sjáum eftir á að trú Esian klifin Þau stóðu efst á Þverfellstindi á Esju á þriðjudagskvöldið, greinilega og eðlilega ánægð með að vera kom- in á toppinn. Hvern þriðjudag klífa þeir Esju, nokkrir vinnufélagar á Sendibílastöðinni í Borgartúni. Óvenjufáir voru á ferð í Esjunni þetta síðdegi og kvöld, enda veður rysjótt fyrr um daginn og ekki horf- ur á miklu útsýni. Hörðustu Esjuað- dáendur láta veður hins vegar ekki trufla sínar ferðir og þó að sendibíl- stjórar stundi líkamlega erfitt starf og fái töluverða kraftþjálfun sögðu þeir Grétar og Ólafur okkur að út- haldið fengju þeir í fjallgöngum og skokki og ekíá væri minna um vert að slaka á í góðum hópi úti við. Þó að fátt væri í Esjunni þriðjudaginn var voru þó þar hópar frá Trimmklúbbi Seltjarnarness, Iþróttafélagi Reykjavíkur og hópur starfsfólks á slysadeild Borgarspít- alans. Á myndinni eru f.v. Ólafur Bjarni Finnbogason og Grétar Guðni Guðmundsson sendibílstjór- ar og Steinarr Steinarsson bifvéla- virki og síðan skutust þær fyrir linsuna íris Sigurðardóttir flug- freyja og Edda Axelsdóttir sölumað- ur. Þær stöllur voru að klífa Esju í fyrsta skipti þetta vorið. margra á heilsugildi skokks var of mikil í byrjun,“ segir Jó- hann Heiðar. „Þegar hinn frægi maraþon- hlaupari Clarence DeMar lést aldinn að árum við lok sjö- unda áratugarins óx vegur maraþon- hlaupa mikið. Ástæðan var sú að við krufningu kom í ljós að krans- æðar hans voru óvenju víðar og eng- in teljandi æðakölk- un finnanleg. Ýmsir drógu þá ályktun af þessum tíðind- um að á einhvern hátt gæti langhlaup eins og maraþon- hlaup haldið líkama manns- ins heilbrigðum og jafnvel læknað ýmis mein. Claren- ce DeMar var vissulega mikill hlaupari. Hann tók alls 34 sinnum þátt í Boston-maraþoninu og þar af sigraði hann sjö sinnum. Boston-maraþonið er vafalítið eitt hið þekktasta í ____________ heimi.“ Jóhann Heiðar seg- ir að þó svo dregið hafi úr ofurtrú á skokki og langhlaup- um og menn séu orðnir raunsærri á gildi þess en áður þá sé ekki lengur deilt um að hæfileg líkamsáreynsla sé manninum góð og nauðsyn- leg. Jóhann er, eins og áður sagði, einn frumkvöðla al- menningsíþrótta og bylgju skokks og heilsuræktar hér á landi. Þess vegna spurð- um við hann hvenær við ís- lendingar hefðum tekið á okkur rögg á þessu sviði. „Mér er það minn- isstætt að þegar ég sneri aftur til ís- lands árið 1979 ákvað ég að taka þátt í hlaupi sem nefnt var Öskjuhlíðarhlaup. Til að fá leyfi til þess varð ég að ganga formlega í eitthvert íþróttafélag. Ekki var talið heimilt að neinn tæki þátt í víðavangshlaupi nema vera fullgildur meðlimur í félagi innan ÍSÍ. Lengra en þetta vorum við nú ekki komin í trimmhugsuninni árið 1979.“ Á undanfórnum árum hefur Jóhann Heiðar læknir tekið virkan þátt í uppbygg- ingu almenningsíþrótta. Hann var í trimmnefnd ÍSÍ um árabil og hefur flutt ótal erindi víðs vegar um land. Auk þess tók hann þátt i langhlaupum af mikl- um krafti um árabil. „Hlaupin gengu fyrir öllum öðrum áhugamálum mín- um,“ segir Jóhann. „Með aldrinum finnur maður hins veg- ar auðvitað að snerpan minnkar en ég hleyp reglulega þrisvar í hverri viku, 10 til 15 kíló- metra í hvert skipti. Áður fyrr hljóp ég oft heim að loknum vinnudegi. Það var bæði gott og hressandi, auk þess sem það tryggði að skjalataskan og vinnustressið var ekki tekið með heim.“ Jóhann Heiðar Jó- hannsson segist nú einnig stunda golf sér til ánægju. Enda þótt hann láti lítið yfir snerpunni í hlaupunum og hafi dregið af sér á því sviði, að eigin sögn, þá sáum við á lista yfir sigur- vegara í hálfmaraþoni í Húsasmiðjuhlaupinu um síðustu helgi að þar var nafn hans efst í hans aldurs- flokki, 50 til 59 ára. Hver sem er gæti líka verið full- sæmdur af tímanum, 1.23,58, sem reyndar var líka þriðji besti tíminn í öll- um aldursflokkum. Víka 1.1/6 -7/6 J-JhjdJjJ máæíi JdJjJ 10 km 21 km 42 km Sunnudogur 5 km ról 12 km ról. lókmróL Múnudugur Hvild Hvild Hvild Þriðjudugur 6 km (Hroioleikur). 10 km (Hroðoleikor). 10 km (Hroðoleikur). Fyrst 1 km ról. og siðon Fyrst 2 km ról.og siðon Fyrst 2 km ról.og siðon 1 km hrott lil skiptis. 2km hrotltilskiptis 2 km hrolt til skiplis somlols somtols 4x1 km. Siðon somtols 4x 2 km. Siðon 4x 2 km. Siðon 2 km. ról. 2 km. ról. i lokin 2km ról. ilokin. í lokin. Miðvikudagur 4 km ról. 7 km ról. 12 km ról. Fimmtudngur Hvild 6 km jofnt 8 km jolnt Föstudngur 3 km jafnt 10 km jofnt 10 km jolnl Luugurdugur Hvild Hvild 8 km frísklega Somtols: 18 km. 45 km 64 km Grétar G. Guömundsson, sagöi okkur aö líkt væri með sendibílstjórum og sjómönnum. Kraftinn fengju þeir í starfinu en úthaldið mætti ekki gleymast og þaö næöist í fjallgöngu og ööru trimmi. DVmyndÓG VOLVO S40 Golfhandbókin 1996 komin út Golfhandbók 1996 er komin út. I ávarpi Hannesar Guð- mundssonar, forseta Golfsam- bands íslands, segir að bókin auðveldi kylflngum, jafnt inn- lendum sem erlendum, að rata um golfvelli landsins og auð- veldi þeim yfirsýn. Birtar eru teikningar og upplýsingar um þá rúmlega fimmtíu golfvelli sem eru hér á landi. Golfvellin- um í Vestmannaeyjum eru gerð sérstök skil í Golf- handbók þessa árs. Hann verður „lands- mótsvöllur 1996“ og því eru teikningar og aðrar upplýs- ingar stærri og greinarbetri en af » rw/ Ji. öðrum völlum. 0J Golfhandbók - 1996 er önnur í röðinni með sama nafni og er 252 bls. rit í hand- hægu broti. Golfarar fá hana í golfklúbbum sínum. Útgefandi er Golfútgáfan hf. Nýjustu megrunarfréttir: I guðanna bænum, borðið ef þið eruð svöng „Þið getið oröið grönn en þið verðið að hefja leiðina að því marki með því að borða. Ég segi satt, þið verðið ekki feit af I mat heldur verðið þið feit af fitu. Ef þiö eruð svöng, í guð- anna bænum, borðið.“ Þetta er aðeins eitt af gullkornum met- sölubókar sem við rákumst á hjá Eymundsson í Austurstræti á dögunum. Hún heitir The Pocket Powter, 260 bls. bók sem skiptist í fjölmarga mjög stutta kafla, spurningar og svör. Bókin er ætl- uð þeim sem vilja breyta afstöðu sinni til lífsins og aðlaga lífs- hætti sína því marki og ná varanlegum árangri. Hún skiptist í íjóra meginkafla sem heita Borð- ið, Andið, Hreyfið ykkur og Lif- ið lífinu. Höfundurinn, Susan Powter, er tæplega fertugur Breti sem að sögn losaði sig við 60 kíló en leggur áherslu á að við það hafi ekki aðeins feitlagin kona orðið grennri heldur hafi líkamlega veikburða manneskja orðið hraustari og betur þjálfuð. „Ég er orðin grönn," segir Susan Powter, „en það er ekki aðalat- riðið. Nú er ég í góðri líkam- legri þjálfun og það er miklu skemmtilegra og auðveldara að ná því marki heldur en losa sig við öll þessi kíló.“ Undirtitill fyrsta kafla bókarinnar, Borðið, er: „Þið þurfið ekki að óttast matinn lengur." Vissulega góð- ar fréttir og vonandi sannar fyrir þá sem hingað til hafa sí- fellt haft áhyggjur af vigtiimi. Umsjón Ólafur Geirsson er styrktaraðili Reykjavíkurmaraþonsins FLUGLEIDIR imntR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.