Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Qupperneq 35
LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996 43 f Ingibjörg Jónsdóttir lífeðlisfræðingur vekur athygli fyrir rannsóknir sínar: Iþróttaþjálfun vinnur gegn krabbameini og liðagigt rJ9 ■J Regluleg þjálfun hefur fyrirbyggj- andi áhrif gegn krabbameini, liða- gigt, alnæmi og fleiri sjúkdómum sem hrjá manninn og hjálpar lík- amanum að vinna bug á sjúk- dómum. Rannsóknir hafa sýnt að regluleg hreyfing hefur gíf- urlega jákvæð áhrif á vissan hluta af ónæmiskerfmu eða tyrstu viðbrögð þess þegar sýking berst í líkamann. Víða um lönd eru menn farnir að reka áróður fyrir aukinni hreyfingu og læknar eru jafnvel farnir að skrifa upp á tvenns konar lyfseðla, fyrir lyfj um og hæfilegri leik- fimi. Ingibjörg Jóns- dóttir heitir þrítug- ur lífeðlisfræðing- ur í Gautaborg í Svíþjóð sem hefur rann- sakað áhrif reglulegrar líkamsþjálf- unar á ónæmiskerf- ið og fengið doktorspróf fyrir rann- sóknir sín- ar. Hún hefur gert tilraunir á nokkur hundruð rott- ‘jV . um, sprautað í þær krabba- meinsfrumum og leyft þeim að hlaupa að vild í fimm vikur til að kanna hvaða áhrif hreyfingin hefur á rotturnar. Ingibjörg hefur komist að þeirri niður- stöðu að regluleg hreyfing sé gríðarlega jákvæð og hafi mikil og langvarandi fyrirbyggjandi áhrif. við hreyfingu og er sama efni og morfín, á ■ . mannslík- 'amann | %». enda er \ talið að x . endor- ■ fin brotna reyndar niður mjög fljótt?“ segir Ingibjörg og kveðst líklega halda rannsóknum sínum áfram við Rigshospitalet í Kaupmannahöfn í haust. Þá muni hún vinna með al- næmi. „Um leið og við höfum víðtækari og betri skilning á því hvað það er sem er svona jákvætt við þjálfun þá er hægt að vinna úr því í sambandi við sjúklinga," segir hún. Ofþjálfun er slæm „Atu upp" krabbameinið verða fyrir sýkingu," segir Ingi- björg. Hún segir ekkert vitað um það hvar mörkin milli hæfilegrar þjálfunar og ofþjálfunar liggi. „Þetta er svo flókið og getur farið eftir svo mörgu, íþróttagreinum, mataræði, nætursvefni, hvíld og við komum aftur inn á þetta með fólk en það er alveg á hreinu að maður getur lent í því að þjálfa of mikið þannig að það hafi neikvæð áhrif á ónæmiskerfiö," segir hún enda er „stór hluti af góðri íþróttaþjálfun góð hvíld. Það er alveg á hreinu,“ segir hún. Þó að mikil þjálfun hafi jákvæð áhrif á heilsu manna virðist of mikil þjálfun þó geta haft slæm áhrif. Ingi- björg segir að hópur vísinda- manna í Kaup- mannahöfn hafi komist að því að of mikil þjálf- un geti haft nei- kvæð áhrif á s ' ónæmis- kerfið og hún viti til þess að hlauparar í Svíþjóð séu í vandræðum því að þeir séu sífellt með kvef. „Það hefur oft verið tengt við það Dýratilraunir eru umdeildar „Ég hef verið að vinna við spurninguna um það af hverju virkni ónæmiskerfisins eykst við hreyfingu. Hvað er það sem gerist þegar við hreyfum okkur? Dýrin fengu að þjálfa sig eins mikið og þau vildu og við könnuðum hvernig ónæmiskerfið brást við krabba- meinsfrumum eftir fimm vikna hreyfingu. Þegar við sprautuðum frumunum í rotturnar brugðust þær sem hlupu miklu fljótar við og „átu nánast upp“ allar frumurnar en þær sem ekki höfðu þjálfað svör- uðu ekki eins vel,“ útskýrir hún. Rannsóknir Ingibjargar sýna fram á langvarandi áhrif hreyfingar á rottur og segir hún að niðurstöð- urnar gildi líka um menn, rann- sóknir sem gerðar hafi verið á blóð- frumum úr mönnum styðji niður- stöðurnar. Sínar niðurstöður gildi fyrst og fremst um fyrirbyggjandi áhrif en þó segist hún telja að vís- indamenn hafi þegar komist að því að þjálfun hafi jákvæð áhrif á menn með ýmsa sjúkdóma. Það sé bara erfiðara að sanna slíkar niðurstöð- ur því að taka verði með í reikning- inn óteljandi aðra þætti, umhverfi, stress, mataræði og svo framvegis þegar menn eigi í hlut. Hafa hærri sársaukaþröskuld Ingibjörg hefur sérstaklega mik- inn áhuga á áhrifum endorfíns, hormónsins sem losnar úr læðingi hækki eða hafi mikil áhrif á sársauka- þröskuld, blóð þrýsting og fleira í mannslík- aman- um. Ingi- björg segir að ___________ sýnt hafi verið fram á að íþróttamenn hafi til dæmis hærri sársaukaþröskuld. Hreyfing, og þar með endorfín, geti haft góð áhrif á krónískan sársauka, til dæmis vegna liðagigtar. „Ég er að rannsaka af hverju þjálfaður einstaklingur í hvíld er al- mennt með betra ónæmi gegn veiru- sýkingum en aðrir. Er það af því að taugarnar skilja eftir sig boðefni sem gera ónæmiskerfið virkara? Eru það hormón, sem eru hærri í þjálfuðum einstaklingum, sem gera þetta að verkum eða eru það endor- finin sem verða eftir í heilanum og onæmis- kerfisins. í stað- inn fyrir að hafa aukna virkni ónæmis- kerfisins í hvíldarstöðu þá er einstaklingurinn kominn í það ástand að vera búinn að minnka ónæmissvörunina ef hann skyldi Ingibjörg Jónsdóttir lifeölisfræöing- ur hefur unnið aö rannsóknum á áhrifum hreyfingar á rottur í fjögur ár. Hún hefur komist að þeirri niður- stööu aö regluleg hreyfing hafi langvarandi og fyrirbyggjandi áhrif á einstaklinga. DV-mynd ÞÖK FISKVINNSLUHUS TIL SÖLU FISKVEIÐASJÓÐUR ÍSLANDS auglýsir til sölu fiskvinnsluhús viö Hafnargötu 4, Hauganesi, áöur eign Auðbjargar sf. Tilboö í eignina óskast send á skrifstofu sjóösins fyrir kl. 15.00 föstudaginn 14. júní 1996. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðjónsson á skrifstofu sjóösins, Suðurlandsbraut 4, Reykjavík, sími 588 9100. Áskilinn er réttur til að taka hvaöa tilboði sem er eöa hafna öllum. FISKVEIÐASJOÐUR ISLANDS sOlac Gufustraujárn með úðara, 4 lita Verö kr. 2.950 star. Snúrulaust straujárn með gufu/damp úðara og lekavörn 1800 w Verð kr. 5.950 stgr. .. -'p y Jm Ingibjörg hefur unnið að tilraun- um sínum á rottum í fjögur ár og það er greinilegt að hún er við- kvæm fyrir því að hafa notað dýr enda hafa dýratilraunir verið mjög umdeildar. Hún segist íhuga það reglulega hvort þær rannsóknir sem hún er að vinna að hverju sinni geti réttlætt tilraunir með dýr. Hún telji rannsóknir sínar réttlæta dýratil- raunir núna en þann dag sem hún komist að annarri niðurstöðu muni hún hætta. „Til þess að komast að því hvaða áhrif hreyfmgin hefur verður að vinna með dýr sem nærast eins og lifa eins,“ útskýrir hún og bendir á að erfitt sé að finna menn sem upp- fylli þessi skilyrði. Hins vegar séu hvítar rottur aldar upp sem til- raunadýr, þær séu allar eins og því sé hægt að nota þær. Þær lifi sínu lífi og séu svo látnar fara. Lifir eins og hún lærir „í mörgum tilraunum vegna rannsókna á hlaupum og krabba- meini þá eru dýrin þvinguð til að hlaupa. Rotturnar eru settar í baðk- ar og látnar synda þó að það sé ekki eðli þeirra að synda en það er þeirra eðli að hreyfa sig og þeim finnst ofsalega gaman að hlaupa í hjólinu í búrinu. Við höfum verið mjög á móti tilraunum þar sem dýr- in eru þvinguð til að hreyfa sig því að streita hefur mjög stór áhrif á ónæmiskerfið. Maður reynir að ein- angra þessa hluti til að fá að vita hvað þjálfunin gerir,“ segir Ingi- björg. Ingibjörg hefur unnið að rann- sóknum sínum við rannsóknarstofu í lífeðlisfræði í Gautaborg í fjögur ár. Hún segist vera sannfærð um að þjálfun hafi fyrirbyggjandi og góð áhrif á mannslíkamann og lifir sjálf eins og hún lærir. Hún hleypur reglulega, er í eróbikk, spilar bad- minton og kennir í íþróttakennara- skóla í Svíþjóð. -GHS Kaffikanna, 12 bolla (1,41) með lekavörn og síu, 825 W. Verð kr. 2.190 stgr. Samlokugrill fyrir 2 eða 4 samlokur í einu. Verð frá kr. 1.690 stgr. Djúpsteikingarpottur, 2,3 I, 2000w Verð kr. 3.950 stgr. Brauðristir Verðfrákr. 1.090 - 2.850 stgr. Borðgrillofn, undir- og yfirhiti, klukka. Verð kr. 3.540 stgr. m,. Hraðsuðukanna, 2ja litra, með mæli, hita- einangruð 2.200 W. Verð kr. 2.150 stgr. Mini matvinnsluvél, 5 hraða, 7 fylgihlutir. Verð kr. 4.260 stgr. Hraðsuðu- og hitakanna fyrir skyndikaffi- drykki 3ja lítra. Verð kr. 7.450 stgr. Einníg oliufylltir rafmagnsofnar og handhæair blásfursomar á mjög hagstæðu verðí. Síðumúla 34 (Fellsmúlamegin), s. 588 7332 <... I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.