Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Side 36
« unglingaspjall Laugardagur 1. Júní 1996 Dv Unglingar á Króknum sitja ekki auðum höndum: Dansa freestyle og gera stuttmyndir „Myndirnar okkar eru byggöar upp á húmor og þær heita allar „Hvað er að...?; til dæmis „Hvað er að samræmdu?" Sú mynd er um fylliríið eftir samræmdu prófin,“ segir Hugi Halldórsson, 15 ára gam- all nemandi í grunnskólanum á Sauðárkróki, en hann hefur gert garðinn frægan með því að gera þrjár stuttmyndir ásamt tveimur fé- lögum sínum. Þeir hafa sýnt mynd- irnar á nokkrum stöðum, meðal annars í félagsheimilinu á Krókn- um. Félagar Huga voru á skólaferða- lagi þegar DV kom við á Króknum í , . síðustu viku svo að það kom í hlut Huga að segja frá mynd- unum. Stuttmynd- irnar hafa félag- arnir gert á einum degi hverja en í allt hefur vinn- an við þær kannski tekið 3-4 daga. Síð- asta hluti á Króknum. Vinkonurnar Erna María Þrastardóttir og íris Ösp Sveinbjörnsdóttir, 15 ára, náðu góðum árangri í dansi í freestyle- danskeppninni í Tónabæ í vetur. Þær tóku þátt í keppninni ásamt þremur öðrum stelpum. Hópurinn keppti undir nafninu E-rotic og náði þriðja sæti með frumsaminn dans, Rotation. „Við æfðum á hverjum degi í tvo mánuði. Þetta var mikil vinna og við höfum sýnt rosamikið. Við erum að semja nýjan dans en hann er ekki kominn með neitt heiti enn- þá,“ segja vinkonurnar. Þær segjast aldrei hafa lært neitt að ráði í dansi en hafa hins vegar brennandi áhuga og eru stað- ráðnar í að halda áfram að æfa og keppa aftur í Tóna- bæ á næsta ári. -GHS stuttmyndin um samræmdu prófin var tekin upp á Hótel Mælifelli og var starfsmaður hótelsins fyrirvara- laust fenginn til að leika í mynd- inni. Aðdragandinn var lítill sem enginn og ekkert handrit var skrif- að. „Hann stóð sig með prýði,“ segir Hugi um starfsmanninn. Klippibúnað og aðrar græjur hafa félagarnir fengið lánuð hjá ýmsum á Sauðárkróki. Náðu þriðja sæti Hugi og félagar hans eru ekki þeir einu sem eru að gera sniðuga Sauökrækingarnir Erna María Þrastardóttir, Hugi Halldórsson og íris Ösp Sveinbjörnsdóttir hafa öll sín brennandi ahugamal. Stelpurnar æfa og keppa í freestyle-dansi ásamt þremur öörum og Hugi hefur gert þrjár stuttmyndir ásamt félögum sínum. DV-mynd GHS kf hliðin. Fer í nám í fatahönnun í sumar / —segir Guðrún Árdís Össurardóttir sem vann í fatasaumskeppni Burda og Eymundssonar I ■ ; Guðrún Árdís Össurardóttir bar sigur úr býtum í fatasaumskeppni Burda og Eymundssonar sem fram fór um síðustu helgi. Hún lenti bæði í fyrsta sæti og því þriðja í flokki þeirra sem voru lengra komnir. Guörún Árdís er í námi og starfar við ræst- ingar og á kaffihúsi en hefur fullan hug á að hasla sér völl í fatahönn- ■un og saumaskap í fram- tíðinni. Hún sýnir hér á sér hina hliðina. Fullt nafn: Guðrún Ár dís Össurardóttir. Fæðingardagur og ár: 10. október 1975. Unnusti: Örvar Þór Ólafsson. Börn: Engin. Bifreið: Fiat Punto '95. Starf: Nemi, þjónn og ræstitæknir. Laun: Ágæt. Áhugamál: Fata- hönnun, saumaskap- ur, ferðalög og að skemmta mér í góðra vina hópi. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Fékk einu sinni þrjá rétta í Lottói. Hvað flnnst þér skemmtileg- ast að gera? Eiga góða stund með fjölskyldu og vin- ur: Hamborgarhryggur. Uppáhaldsdrykkur: íslenskt vatn. Hvaða íþróttamenn standa fremstir í dag að þínu mati? Atli Einarsson og Arnar Sigurðs- son, körfubolta KR. Uppáhaldstfmarit: Burda. Hver er fallegasti karl sem þú hef- ur séð, fyrir utan kærastann? Brad Pitt. Ertu U11h v r th' Guörún Árdís Örvarsdóttir bar sigur úr býtum í vi tmfSt a fatahönnunarkeppni Burda og Eymundssonar. el „ eg.ast aö Áhugamálin eru tatahönnun og saumaskapur. gera? Ryksuga. M a DV-myndGS Uppáhaldsmat- hlynnt eða andvíg ríkisstjórn- inni? Hlynnt. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Bestu vinkonu mína, hana Ragnheiði Gunnars- dóttur. Uppáhaldsleikari: Robert de Niro. Uppáhaldsleikkona: Emma Thompson. Uppáhaldssöngvari: Cat Stevens. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ólafur Örn Haraldsson. Uppáhaldsteiknimyndaper- sóna: Andrés. Uppáhaldssjónvarpsefni: Dallas. Uppáhaldsmatsölustaður: Humarhúsið. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Að elska er að lifa. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Bylgjan. Á hvaða sjónvarpsstöð horfir þú mest? Hef sjaldnast tíma til að horfa á sjónvarp. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sigmundur Ernir. Uppáhaldsfélag í íþróttum: KR. Uppáhaldsskemmtistaður: Þjóðleikhúskjallarinn. Stefnir þú að einhverju sér- stöku í framtíðinni? Standa mig vel í því sem ég tek mér fyrir hendur og eignast stóra og góða fjölskyldu. Hvað ætlar þú að gera í sum- arfríinu? Fara til Ford Lauder- dale þar sem ég mun stunda nám í fatahönnun. -GHS Grínistinn Bob Hope orðinn 93 ára: Vinsælli meðal kvenna en Mel Gibson Glansliðið í Hollywood hélt partí á fimmtudag. Ekki til að fagna hvaða smámunum sem er, heldur hinu að 50 ár eru liðin frá því grín- istinn ástsæli Bob Hope kom fyrst fram í sjónvarpi. Og hann hefur ekki enn sungið sitt síðasta vers á þeim vettvangi. En Bob hafði í nógu öðru að snú- ast í vikunni. Hann hélt nefnilega upp á 93 ára afmælið sitt á miðviku- dag, alltaf jafn unglegur og hress. Ward Grant, blaðafulltrúi gamla mannsins, segir að Bob Hope sé við góða heilsu, þótt fréttir hafi heyrst um annað. „Hann hefur átt í vand- ræðum með sjónina í nokkur ár en hann er við góða heilsu og spilar golf á hverjum ein- asta degi,“ seg- ir Grant. „Þeg- ar fólk spyr hann hvernig dæmigerður dag- ur hjá honum sé segist hann alltaf hafa eitthvað að gera. Hann fer á fætur, gerir það sem hann þarf að gera og fer síðan aftur í bælið.“ Grant segir að Hope sé að undirbúa skemmtiþátt sem verði sýndur á NBC-sjónvarps- stöðinni í haust og hann sé jafn- framt að leggja síðustu hönd á brandarabók um Bandaríkjaforset- ana ellefu sem hann hefur þekkt. Bob Hope var mjög skemmt á dög- unum þegar tímaritið People birti niðurstöður skoðanakönnunar þar sem fram kom að meirihluti kvenna sagðist heldur vilja eyða síðdegi með Bob gamla en hjartaknúsaran- um Mel Gibson. Og hver skyldu nú vera markmið manns sem orðinn er 93 ára? „Meira af þessu sama: golf, hlátrasköll og áköf löngun til að verða 94 ára,“ segh- Grant. Bob Hope fæddist á Englandi og gegndi nafninu Leslie Townes Hope framan af, fimmti í röðinni af sjö sonum múrara í Eltham í Kent. Bob litli ílutti svo með foreldrum sínum til Cleveland í Ohio þegar hann var þriggja ára en þangað fór faðir hans til að vinna við kirkju- byggingu. Díana prinsessa huggar súpermann Díana prinsessa er kona með stórt hjarta og viðkvæmt sem ekk- ert aumt má sjá. Hún hefur verið iðin við að rétta bágstöddum hjálp- arhönd og hugga þá sem þarfnast huggunar. Bandaríski kvikmynda- leikarinn Christopher Reeve, sem varð þekktur fyrir að leika í kvik- myndunum um súpermann, hefur fengið að njóta þessarar gæsku prinsessunnar að undanförnu. Christopher lamaðist sem kunnugt er þegar hann datt af hestbaki í fyrra og mænan í honum skaddað- ist. Díana hefur verið í bréfasam- bandi við leikarann til að stappa í hann stálinu. í síðustu viku ræsti prinsessan þrjá fatlaða íþróttamenn sem lögðu upp í tæplega tvö þúsund khómetra kappakstur á hjólastólum sinum. Ferðalagið stendur í tvo mánuði og tilgangurinn er að safna fé til rann- sókna á mænuskaða. Christopher Reeve féllst á að vera verndari at- burðarins. í sameiginlegri yfirlýs- ingu hans og Díönu er lögð áhersla á þá trú þeirra að róttæk meðferð við mænuskaða sé alveg á næsta leiti. En helgina áður en Díana ræsti fötluðu íþróttamennina dvaldi hún í góðu yfirlæti á Mallorka, enda svo sannarlega hægt að ætlast til þess að fá öll hugsanleg þægindi á hóteli þar sem nóttin kostar um 45 þúsund krónur. Eigandi hótels þessa er Virgin-kóngurinn Ric- hard Branson. Díana var þar með vinkonu sinni, lafði Cosimu Somerset, sem stundar sálgæslu- meðferð og sérhæfir sig í þung- lyndi. Vinkonurnar tvær brugðu sér í sundlaug hótelsins, eins og margra er siður, en þar mátti Díana þola svivirðingar af hálfu spænskra ljósmyndara sem létu stúlkurnar ekki í friði. „Sýndu okkur appel- sinuhúðina," hrópuðu Ijósmyndar- arnir. Ekki herma fréttir hver viðbrögð Díönu voru en eins og lesendur DV muna eflaust þóttust æsiljósmynd- arar í Bretlandi hafa náð mynd af slíkri húð á læri prinsessunnar. Hún þrætti hins vegar fyrir og sagði meinta appelsínuhúð aðeins vera far eftir bílsætið. Díana er prúð og frjálsleg í fasi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.