Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Page 36
« unglingaspjall
Laugardagur 1. Júní 1996 Dv
Unglingar á Króknum sitja ekki auðum höndum:
Dansa freestyle og gera stuttmyndir
„Myndirnar okkar eru byggöar
upp á húmor og þær heita allar
„Hvað er að...?; til dæmis „Hvað er
að samræmdu?" Sú mynd er um
fylliríið eftir samræmdu prófin,“
segir Hugi Halldórsson, 15 ára gam-
all nemandi í grunnskólanum á
Sauðárkróki, en hann hefur gert
garðinn frægan með því að gera
þrjár stuttmyndir ásamt tveimur fé-
lögum sínum. Þeir hafa sýnt mynd-
irnar á nokkrum stöðum, meðal
annars í félagsheimilinu á Krókn-
um.
Félagar Huga voru á skólaferða-
lagi þegar DV kom við á Króknum í
, . síðustu viku svo að
það kom í hlut Huga
að segja frá mynd-
unum. Stuttmynd-
irnar hafa félag-
arnir gert á einum
degi hverja en í
allt hefur vinn-
an við þær
kannski
tekið 3-4
daga.
Síð-
asta
hluti á Króknum. Vinkonurnar
Erna María Þrastardóttir og íris
Ösp Sveinbjörnsdóttir, 15 ára, náðu
góðum árangri í dansi í freestyle-
danskeppninni í Tónabæ í vetur.
Þær tóku þátt í keppninni ásamt
þremur öðrum stelpum. Hópurinn
keppti undir nafninu E-rotic og náði
þriðja sæti með frumsaminn dans,
Rotation.
„Við æfðum á hverjum degi í tvo
mánuði. Þetta var mikil vinna og
við höfum sýnt rosamikið. Við
erum að semja nýjan dans en hann
er ekki kominn með neitt heiti enn-
þá,“ segja vinkonurnar.
Þær segjast aldrei hafa lært neitt
að ráði í dansi en hafa hins vegar
brennandi áhuga og eru stað-
ráðnar í að halda áfram að
æfa og keppa aftur í Tóna-
bæ á næsta ári.
-GHS
stuttmyndin um samræmdu prófin
var tekin upp á Hótel Mælifelli og
var starfsmaður hótelsins fyrirvara-
laust fenginn til að leika í mynd-
inni. Aðdragandinn var lítill sem
enginn og ekkert handrit var skrif-
að.
„Hann stóð sig með prýði,“ segir
Hugi um starfsmanninn.
Klippibúnað og aðrar græjur hafa
félagarnir fengið lánuð hjá ýmsum
á Sauðárkróki.
Náðu þriðja sæti
Hugi og félagar hans eru ekki
þeir einu sem eru að gera sniðuga
Sauökrækingarnir Erna María Þrastardóttir, Hugi Halldórsson og íris Ösp Sveinbjörnsdóttir hafa öll sín brennandi
ahugamal. Stelpurnar æfa og keppa í freestyle-dansi ásamt þremur öörum og Hugi hefur gert þrjár stuttmyndir
ásamt félögum sínum. DV-mynd GHS
kf hliðin.
Fer í nám í fatahönnun í sumar
/
—segir Guðrún Árdís Össurardóttir sem vann í fatasaumskeppni Burda og Eymundssonar
I
■
;
Guðrún Árdís Össurardóttir bar
sigur úr býtum í fatasaumskeppni
Burda og Eymundssonar sem fram
fór um síðustu helgi. Hún lenti
bæði í fyrsta sæti og því þriðja í
flokki þeirra sem voru lengra
komnir. Guörún Árdís er í
námi og starfar við ræst-
ingar og á kaffihúsi en
hefur fullan hug á að
hasla sér völl í fatahönn-
■un og saumaskap í fram-
tíðinni. Hún sýnir hér á
sér hina hliðina.
Fullt nafn: Guðrún Ár
dís Össurardóttir.
Fæðingardagur og ár:
10. október 1975.
Unnusti: Örvar Þór
Ólafsson.
Börn: Engin.
Bifreið: Fiat Punto
'95.
Starf: Nemi, þjónn
og ræstitæknir.
Laun: Ágæt.
Áhugamál: Fata-
hönnun, saumaskap-
ur, ferðalög og að
skemmta mér í góðra
vina hópi.
Hefur þú unnið í
happdrætti eða
lottói? Fékk einu
sinni þrjá rétta í
Lottói.
Hvað flnnst
þér skemmtileg-
ast að gera? Eiga
góða stund með
fjölskyldu og vin-
ur: Hamborgarhryggur.
Uppáhaldsdrykkur: íslenskt
vatn.
Hvaða íþróttamenn standa
fremstir í dag að þínu mati? Atli
Einarsson og Arnar Sigurðs-
son, körfubolta KR.
Uppáhaldstfmarit:
Burda.
Hver er fallegasti
karl sem þú hef-
ur séð, fyrir utan
kærastann? Brad
Pitt.
Ertu
U11h v r th' Guörún Árdís Örvarsdóttir bar sigur úr býtum í
vi tmfSt a fatahönnunarkeppni Burda og Eymundssonar.
el „ eg.ast aö Áhugamálin eru tatahönnun og saumaskapur.
gera? Ryksuga. M a DV-myndGS
Uppáhaldsmat-
hlynnt eða andvíg ríkisstjórn-
inni? Hlynnt.
Hvaða persónu langar þig
mest að hitta? Bestu vinkonu
mína, hana Ragnheiði Gunnars-
dóttur.
Uppáhaldsleikari: Robert de
Niro.
Uppáhaldsleikkona: Emma
Thompson.
Uppáhaldssöngvari: Cat
Stevens.
Uppáhaldsstjórnmálamaður:
Ólafur Örn Haraldsson.
Uppáhaldsteiknimyndaper-
sóna: Andrés.
Uppáhaldssjónvarpsefni:
Dallas.
Uppáhaldsmatsölustaður:
Humarhúsið.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Að elska er að lifa.
Hver útvarpsrásanna finnst
þér best? Bylgjan.
Á hvaða sjónvarpsstöð horfir
þú mest? Hef sjaldnast tíma til að
horfa á sjónvarp.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Sigmundur Ernir.
Uppáhaldsfélag í íþróttum:
KR.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Þjóðleikhúskjallarinn.
Stefnir þú að einhverju sér-
stöku í framtíðinni? Standa mig
vel í því sem ég tek mér fyrir
hendur og eignast stóra og góða
fjölskyldu.
Hvað ætlar þú að gera í sum-
arfríinu? Fara til Ford Lauder-
dale þar sem ég mun stunda nám í
fatahönnun.
-GHS
Grínistinn Bob Hope orðinn 93 ára:
Vinsælli meðal
kvenna en Mel Gibson
Glansliðið í Hollywood hélt partí
á fimmtudag. Ekki til að fagna
hvaða smámunum sem er, heldur
hinu að 50 ár eru liðin frá því grín-
istinn ástsæli Bob Hope kom fyrst
fram í sjónvarpi. Og hann hefur
ekki enn sungið sitt síðasta vers á
þeim vettvangi.
En Bob hafði í nógu öðru að snú-
ast í vikunni. Hann hélt nefnilega
upp á 93 ára afmælið sitt á miðviku-
dag, alltaf jafn unglegur og hress.
Ward Grant, blaðafulltrúi gamla
mannsins, segir að Bob Hope
sé við góða heilsu, þótt fréttir
hafi heyrst um annað.
„Hann hefur átt í vand-
ræðum með sjónina í
nokkur ár en hann er
við góða heilsu
og spilar golf á
hverjum ein-
asta degi,“ seg-
ir Grant. „Þeg-
ar fólk spyr
hann hvernig
dæmigerður dag-
ur hjá honum sé
segist hann alltaf hafa
eitthvað að gera. Hann
fer á fætur, gerir
það sem hann þarf
að gera og fer
síðan aftur í
bælið.“
Grant segir
að Hope sé að
undirbúa
skemmtiþátt
sem verði sýndur á NBC-sjónvarps-
stöðinni í haust og hann sé jafn-
framt að leggja síðustu hönd á
brandarabók um Bandaríkjaforset-
ana ellefu sem hann hefur þekkt.
Bob Hope var mjög skemmt á dög-
unum þegar tímaritið People birti
niðurstöður skoðanakönnunar þar
sem fram kom að meirihluti kvenna
sagðist heldur vilja eyða síðdegi
með Bob gamla en hjartaknúsaran-
um Mel Gibson.
Og hver skyldu nú vera markmið
manns sem orðinn er 93 ára?
„Meira af þessu sama: golf,
hlátrasköll og áköf
löngun til að verða
94 ára,“ segh- Grant.
Bob Hope fæddist á
Englandi og
gegndi nafninu
Leslie Townes
Hope framan
af, fimmti í
röðinni af
sjö sonum múrara í
Eltham í Kent. Bob
litli ílutti svo með
foreldrum sínum
til Cleveland í
Ohio þegar hann
var þriggja
ára en
þangað fór
faðir hans
til að vinna
við kirkju-
byggingu.
Díana prinsessa huggar súpermann
Díana prinsessa er kona með
stórt hjarta og viðkvæmt sem ekk-
ert aumt má sjá. Hún hefur verið
iðin við að rétta bágstöddum hjálp-
arhönd og hugga þá sem þarfnast
huggunar. Bandaríski kvikmynda-
leikarinn Christopher Reeve, sem
varð þekktur fyrir að leika í kvik-
myndunum um súpermann, hefur
fengið að njóta þessarar gæsku
prinsessunnar að undanförnu.
Christopher lamaðist sem kunnugt
er þegar hann datt af hestbaki í
fyrra og mænan í honum skaddað-
ist. Díana hefur verið í bréfasam-
bandi við leikarann til að stappa í
hann stálinu.
í síðustu viku ræsti prinsessan
þrjá fatlaða íþróttamenn sem lögðu
upp í tæplega tvö þúsund khómetra
kappakstur á hjólastólum sinum.
Ferðalagið stendur í tvo mánuði og
tilgangurinn er að safna fé til rann-
sókna á mænuskaða. Christopher
Reeve féllst á að vera verndari at-
burðarins. í sameiginlegri yfirlýs-
ingu hans og Díönu er lögð áhersla á
þá trú þeirra að róttæk meðferð við
mænuskaða sé alveg á næsta leiti.
En helgina áður en Díana ræsti
fötluðu íþróttamennina dvaldi hún
í góðu yfirlæti á Mallorka, enda
svo sannarlega hægt að ætlast til
þess að fá öll hugsanleg þægindi á
hóteli þar sem nóttin kostar um 45
þúsund krónur. Eigandi hótels
þessa er Virgin-kóngurinn Ric-
hard Branson. Díana var þar með
vinkonu sinni, lafði Cosimu
Somerset, sem stundar sálgæslu-
meðferð og sérhæfir sig í þung-
lyndi.
Vinkonurnar tvær brugðu sér í
sundlaug hótelsins, eins og margra
er siður, en þar mátti Díana þola
svivirðingar af hálfu spænskra
ljósmyndara sem létu stúlkurnar
ekki í friði. „Sýndu okkur appel-
sinuhúðina," hrópuðu Ijósmyndar-
arnir.
Ekki herma fréttir hver viðbrögð
Díönu voru en eins og lesendur DV
muna eflaust þóttust æsiljósmynd-
arar í Bretlandi hafa náð mynd af
slíkri húð á læri prinsessunnar.
Hún þrætti hins vegar fyrir og
sagði meinta appelsínuhúð aðeins
vera far eftir bílsætið.
Díana er prúð og frjálsleg í fasi.