Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1996, Side 37
LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ1996
Wéttir,
Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi í DV-yfirheyrslu
Ég er klukkan sem vekur þjóðina
Af hverju fórstu i framboð?
Eg hef verið óánægður með það
skoðanaleysi sem flestir frambjóð-
endur hafa sýnt og þá umræðu sem
myndast hefur um embætti forseta
íslands. Þar er rætt um „hver sómi
sér best á Bessastöðum“, eins og
verið sé að ræða um eitthvert
stofustáss. Að því er látið liggja að
menn „séu sestir í helgan stein“, við
það að komast á Bessastaði. í litlu
þjóðfélagi eins og okkar höfum við
ógjarnan efni á þvi að hafa ein-
hverja skrautforseta sem litlu eða
engu hlutverki hafa að gegna í sam-
eiginlegri lífsbaráttu okkar. Við
drögum ekki fisk að landi nema róa
á miðin. Ég tel að með því að virkja
Bessastaði og gera ísland að mið-
stöð friðar og umhverfismála muni
byggjast hér upp blómlegt atvinnu-
líf sem verði mjög heillavænlegt fyr-
ir íslensku þjóðina um leið og við
munum hjálpa hundruð milljónum
manns um allan heim sem nú búa
við örbirgð. Oft veltir lítil þúfa
þungu hlassi og ísland, sem sú þjóð
ein sem aldrei hefur rekið eigin
hernað, gæti valdið straumhvörfum
i heiminum öllum með því að
kynna nýjar leiðir í friðarmálum.
- Hverjar verða þínar áherslur
á Bessastöðum, náir þú kjöri?
Eg mun beita mér fyrir því að Is-
land nái forystuhlutverki á alþjóð-
legum vettvangi sem land friðar,
mannréttinda og hreinnar náttúru.
Ég vil byggja upp hér á landi ýmsa
starfsemi tengda alþjóðlegum stofn-
unum, svo sem Sameinuðu þjóðun-
um og öðrum aðilum sem vinna að
friðar- og umhverfismálum. Emb-
ætti forseta íslands hefur um árabil
verið sameiningartákn íslensku
þjóðarinnar og reynst vel sem slíkt
á örlagastundum. Á síðustu árum
eru að koma upp slík vandamál í
heiminum að við getum ekki lengur
horft fram á örugga framtíð mann-
kyns, nema taka í taumana. Við
þurfum að byrja á því að taka „eld-
spýturnar“ af börnunum og þar á ég
við að koma þarf kjarnorkuvopnum
heimsins undir ábvrga alþjóðlega
stjórn án tafar.
Einkennileg
skoðanaskipti
Það er samdóma álit sérfræðinga
að aldrei fyrr hefur verið jafn mikil
hætta á útbreiðslu kjarnorkuvopna
og framtíð alls mannkyns veltur á
þessu máli. Því miður eru þeir for-
setaframbjóðendur sem komið hafa
nálægt stjórnmálum hér á landi
engin undantekning, því að í báðum
tilfellum virðast viðkomandi hafa
skipt algjörlega um skoðun í þessu
máli og segjast nú allt í einu ætla að
fylgja stefnu ríkisstjórnarinnar sem
fylgir kjarnorkuvopnum af -ein-
hverjum annarlegum ástæðum. Ég
býst við að metnaðargirni þeirra að
ná í forsetastólinn hafi náð undir-
tökunum._______________________
- Hver er kostnaður þinn
vegna framboðsins hingað til,
hve mikill verður hann að lokum
og ætlarðu að birta reikningana
þegar kosningum lýkur?_________
Eg er rétt að byrja að auglýsa
framboðið. Hins vegar hefur kostn-
aður við auglýsingar mínar fram til
þessa dags verið eitthvað um 20
milljónir króna. Ég reikna ekki með
að eyða meiru en 10 milljónum til
viðbótar. Allir reikningar verða
birtir i félagsblaði Friðar 2000.
- Hverjir eru helstu fjárhags-
legir stuðningsmenn þínir og
stuðningsaðilar?_______________
Hingað til hef ég fjármagnað þetta
sjálfur. Hins vegar hefur verið
stofnað félagið Friðarland hf. sem er
opið öllum almenningi. Þar geta all-
ir sem vilja keypt hlutabréf og tekið
þátt í því að koma á stað þjóðar-
átaki í því að gera ísland að alþjóð-
legu friðarlandi.
- Er unnið gegn þér 1 kosninga-
baráttunni og ef svo er, hverjir
eru þar helstir?________________
Eg held að það hafi komið nokk-
uð glögglega í ljós að ýmis undirróð-
ursstarfsemi fór af stað þegar ég
gerðist svo djarfur að koma þeirri
hugmynd á framfæri að embætti
forseta íslands væri vel til þess fall-
ið að vinna að friðarmálum og gera
ísland leiðandi í baráttunni gegn
kjarnorkuvopnum, friði og mann-
réttindum. Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra hefur enn ekki svarað
bréfi okkar þar sem við leituðum
eftir skýringum á stuðningi ís-
lensku ríkisstjórnarinnar við kjarn-
orkuvopn. Það var jafnvel gengið
svo langt að brjóta lög, en það gerð-
ist þegar starfsmaður utanrikis-
ráðuneytisins bar út róg um mig í
fréttatíma Stöðvar 2.___________
- Var tilgangurinn með verk-
efninu Virkjum Bessastaði frá
upphafi sá að koma þér í forseta-
framboð?________________________
Nei. Upphaflegi tilgangurinn var
að fá forsetaframbjóðendur til að
taka friðarmál með í sínar stefnu-
skrár. Þegar það kom í ljós að eng-
inn þeirra hafði kjark til að standa
upp úr, ákvað ég að gera það sjálfur.
Gjaldþrotið styrkti mig
- Gæti fortíð þín skaðað þig
sem forseta?____________________
Það eru margir sem halda því
fram að gjaldþrot mitt fyrir þrettán
árum síðan skaði mig í því máli.
Þetta er að mínu mati ekki rétt. Ég
tel að það sé minn styrkur að hafa
fengið þá reynslu að byrja frá
Yfirheyrsla
Stefán Ásgrímsson
grunni og vinna mig í álnir á nýjan
leik á eigin spýtur. Það hefur gert
mig að þeim sterka einstaklingi sem
ég er í dag og þeim aðila sem gæti
tekið á þeim fjölmörgu vandamál-
um sem blasa við forseta í þeirri
óöld sem við búum við í heiminum.
Ég tel að ég hafi kraftinn til að
brjótast í gegn. Ég þori að taka á
málum hispurslaust og án þess tví-
skinnungsháttar sem hefur ein-
kennt slík embætti hingað til. Það
er þetta sem þarf til að leiða heim-
inn í friðarbaráttunni. Á sama tíma
hef ég þá reynslu að geta tekið á
málum af yfirvegun og leitt saman
ólíkar fylkingar eins og oft þarf að
gera í viðskiptum._______________
- Ertu í alvöru í forsetafram-
boði eða bara í þessu til að vekja
athygli á áhugamáli þínuv heims-
friði?___________________________
Eg er tvímælalaust í alvörufram-
boði og flestir mínir stuðningsmenn
telja að ég yrði góður forseti.__
- En þú hefur áður sagt að meg-
intilgangurinn með forsetafram-
boði sé að koma friðarmálaum-
ræðu af stað. ___________________
Eg vil fara í embætti forseta Is-
lands til þess að vinna að friðarmál-
um og sinna jafnframt öðrum skyld-
um forsetans og ekki bregðast þeim.
Á sama hátt og Vigdís Finnboga-
dóttir i lagði áherslu á trjárækt
myndi ég beita áhrifum mínum til
að friðarmálin færu af stað sem
þjóðarátak._____________________
- Þú segist hafa ákveðið for-
setaframboð mjög skyndilega,
eða fljótlega eftir að flettiskilta-
uppákoman varð._________________
Eiginlega ekki. Við vorum alltaf
að reyna að fá frambjóðendurna til
þess að starfa með okkur að fram-
gangi friðarmála og ræða þau hisp-
urslaust og ég hef verið mjög óá-
nægður með það að t.d. Ólafur
Ragnar Grímsson er allt í einu núna
farinn að styðja kjarnorkuvopn á
sama hátt og ríkisstjórnin, bara af
því að hann ætlar sér í forsetastól.
Mér finnst að menn geti ekki breytt
um skoðanir á þennan hátt heldur
verði að vera sjálfum sér samkvæm-
ir.
Forsetaframboð á
elleftu stundu__________________
- Þegar auglýsingaherferðin
Virkjum Bessastaði hófst töldu
margir sig sjá að verið væri að
undirbúa jarðveginn fyrir for-
setaframboð, þitt eða einhvers
annars, enda kom á daginn þegar
flettiskiltauppákoman varð að þú
tilkynntir forsetaframboð og
varst tilbúinn með framboðsaug-
lýsingar nánast samdægurs,
Þetta voru fljótunnar auglýsing-
ar, mjög einfaldar og ekkert annað
en uppstilling við skrifborð, og það
er ennþá verið að framleiða mínar
sjónvarpsauglýsingar. Auðvitað
erum við að berjast fyrir því að frið-
armál verði eðlilegur hluti af emb-
ættisverkum forseta íslands. Það er
það sem baráttan snýst um og ég hef
marglýst því yfir að ef enginn ann-
ar er tilbúinn að vinna að því þá
væri ég tilbúinn að fara í það sjálf-
ur. Það fannst síðan enginn hljóm-
grunnur fyrir þessu hjá hinum-\
frambjóðendunum, ekki bara Ólafi
Ragnari, heldur líka Guðrúnu Agn-
arsdóttur, sýnist mér. Þau hafa
breytt um skoðun og vikið frá aðal-
baráttumáli friðarsinna sem er að
banna kjarnorkuvopn með alþjóð-
legum lögum og þau styðja kjarn-
orkuvopn af því að ríkisstjórnin
gerir það. Þetta gengur ekki upp.
- Var flettiskiltauppákoman
þaulhugsað bragð í fyrirfram
ákveðinni kosningabaráttu?
Nei. Og það var aldrei hugsað að
ég færi í kosningabaráttu þótt ýmis
skref til árangurs væru metin í sam-
bandi við átakið Virkjum Bessa-
staði. Forsetaframboð var ekki
hugsað sem lokamarkmið alveg frá -
upphafi og ég ákvað framboð ekki
fyrr en á allra síðustu stundu. Þess
vegna eru auglýsingarnar svona
einfaldar að allri gerð, þaö var ekki
tími til að gera þær öðruvísi.
Éger sá
sem kallar þjóðina
- Sjáandinn Nostradamus talar
um litla þjóð í norðri með stórt
hlutverk. Eru það íslendingar?
Eg er viss um það að við erum
þjóð sem hefur miklu hlutverki að *
gegna og er alltaf að segja það.
- Hann talar líka um mikinn
friðflytjanda. Ert þú hann?_____
Eg held að hann sé öll þjóðin og
þurfi að vera öll þjóðin. Ég held að
ég sé eins og vekjaraklukka sem
kannski er byrjuð að hringja til að
vekja þjóðina upp. Ég held að sá
friðflytjandi sem héðan gæti komið
sé öll þjóðin í einhuga samstöðu og
gífurlegur árangur næðist ef þjóðin
stæði öll að baki þessu átaki. Það er
það sem ég er að gera og Friður 2000
snýst algjörlega um að koma af stað
þjóðarátaki. ___________________
- Þú hefur gengið eftir svörum
hjá Davíð Oddssyni um stefnu
ríkisstjórnarinnar í kjarnorku- c
málum. Þú hefur líka sent Jó-
hannesi Páli páfa fax og boðið
honum að selja veraldlegar eign-
ir kaþólsku kirkjunnar og stofna
sjóð til hjálpar fátækum. Hefur
páfi svarað þér?________________
Eg er ekki búinn að fá neitt svar.
- Reiknarðu með svari?______
Eg veit það ekki, en mér hefði
þótt eðlilegt að hann svaraði og ég
fengi einhverjar útskýringar á því
af hverju ekki ætti að gera þetta, en
hann hefur ekki svarað neinu.
- Hvernig meturðu sigurlíkur
þinar?__________________________
Eg held að ég sé þegar farinn að
sigra í baráttunni fyrir því að boða
friðarboðskapinn. Ég held að það sé
mikilvægast og hann er þegar farið ~~
að síast inn í umræðuna eins og í
útvarpsumræðunni með frambjóð-
endum sem snerist að miklu leyti
um friðarmálin. Ég tel að ég sé bú-
inn að sigra í fyrsta áfanga því að
fólk er farið að tala um þessi mál.
- Hvað ætlarðu að gera eftir
kosningar ef þú verður ekki for-
seti íslands?___________________
Þá held ég áfram að vinna að frið-
armálum í gegn um stofnunina. En
þetta verður miklu léttara verk ef
forsetaembættið sem sameiningar-
tákn þjóðarinnar væri í fararbroddi
átaksins. Friður 2000 getur stutt for-
setaembættið á ýmsan hátt og að-
stoðað við þetta og þar með væri
komin mikil hreyfing um allan
heim sem styddi við bakið á forseta
íslands við að vinna að friðarmál-
um. Það vil ég reyna að gera.