Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1996, Page 12
i2 j mennmg
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996 JLí"V
„Ég hef haft áhuga á fornbók-
menntum frá því ég var í mennta-
skóla og tók t.d. Njálu og Eglu með
mér utan til Þýskalands í nám. Eft-
ir að heim kom þurfti ég að ferðast
mikið um landið starfs míns vegna
og þá saknaði ég þess oft hvað ég
kunni lítið í sögunum. Ég frétti þá
af námskeiði sem Jón Böðvarsson
var að fara af stað með um Njálu, en
ég held mest upp á hana, og skráði
mig til að fá aðstoð við að komast af
stað við að lesa. Maður ætlar svo oft
að gera eitthvað en svo verður ekk-
ert af því fyrr en maður fær stuðn-
ing,“ sagði Tryggvi Sigurbjarnarson
ráðgjafarverkfræðingur.
Tryggvi er sá eini sem hefur sótt
öll 14 námskeiðin um fornbók-
menntir sem Jón Böðvarsson hefur
haldið á vegum Tómstundaskólans
og Endurmenntunarstofnunar HÍ.
Farið hefur verið yfir rúmlega 20
fornsögur á þessum námskeiðum og
Átta manna hópur með ótakmarkaðan áhuga á fornsögunum:
Hittist reglulega og
les fornbókmenntir
- var í þrjú ár að lesa og ræða Sturlungasögu
alltaf endað á því að fara á söguslóð-
ir og rifja atburðina upp.
„Á þessum námskeiðum myndað-
ist átta manna hópur sem hefur hist
hálfsmánaðarlega sl. 5 ár til að lesa
og spjalla um fornbókmenntir. Við
vorum t.d. þrjú ár að lesa Sturlungu
og erum núna með Heimskringlu.
Við höfum það fyrirkomulag að
einn á að undirbúa sig eitthvað og
leiða hópinn, alltaf til skiptis, með
því að viða að sér viðbótarupplýs-
ingum eða kynna sér málið betur.
Svo sitjum við og lesum upp úr sög-
unni og spjöllum um hana,“ sagði
Tryggvi.
Hann sagðist nú ferðast um land-
ið með aUt öðru hugarfari. „Maður
horfir á aðra hluti og spekúlerar í
öðru en áður. Maður rifjar upp sög-
urnar og hvernig landið leit út á
þeim tíma, hvemig samgöngurnar
vora og annað. Eftir því sem menn
fá meiri innsýn í þetta verður þetta
skemmtilegra því þá fer maður að
skilja tengslin betur,“ sagði
Tryggvi. -ingo
Tryggvi Sigurbjarnarson verkfræöingur.
Leshópurinn hittist hálfsmánaöarlega til aö lesa upp úr fornsögunum. Núna
er hann aö lesa Heimskringlu en var áöur þrjú ár meö Sturlungu. Frá vinstri:
Sigurjón Páll ísaksson, Karl Örn Karlsson, Tryggvi Sigurbjarnarson, Árni
Björn Jónasson, Guðmundur Ágústsson og Óiafur Sveinsson.
'lend bóksjá
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Nlck Hornby:
Hlgh Fldollty.
2. laln Banks:
Whlt.
3 Bernard Cornwell:
The Wlnter Klng.
4. Nlcholas Evans:
The Horse Whlsperer.
5. Ellzabeth Jane Howard:
Castlng Off.
6. Anonymous:
Prlmary Colors.
7. Catherlne Cookson:
The Obsesslon.
8. Josteln Gaarder:
Sophle's World.
9. Patricla D. Cornwell:
From Potter's Fleld.
10. Irvlne Welsh:
Trainspotting.
Rit almenns eölis:
1. Bill Bryson:
Notes from a Small Island.
2. Andy McNab:
Immedlate Actlon.
3. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
4. Danlel Goleman:
Emotional Intelligence.
5. John Gray:
Men Are from Mars, Women Are
from Venus.
6. Blll Watterson:
There’s Treasure Everywhere.
7. Paul Bruce:
The Nemesis Flle.
8. Jung Chang:
Wlld Swans.
9. Bill Bryson:
The Lost Contlnent.
10. Susan Jeffers:
Feel the Fear and Do It Anyway.
innbundnar skáldsögur:
1. Colln Dexter:
Death is Now My Nelghbour.
2. Meave Binchy:
Evenlng Class.
3. Dlck Francis:
To the Hilt.
4. Patrlcla D. Cornwell:
Cause of Death.
5. Margaret Atwood:
Allas Grace.
Innbundin rit almenns eðlis:
1. Dave Sobel:
Longltude.
2. K. Dalglish & H. Winter:
Dalglsh: My Autoblography.
3. Norma Major:
Chequers.
4. Monty Roberts:
The Man Who Llstens to Horses.
5. Alec Gulnness:
My Name Escapes Me.
(Byggt á The Sunday Tlmea)
Fjölmiðlafár vegna
ævisögu Harolds Pinters
Kunnur breskur blaðamað-
ur, Michael Billington, hefur
samið nýja ævisögu áhrifa-
mesta leikskálds Breta á
seinni hluta þessarar aldar.
Bókin heitir The Life and
Work of Harold Pinter og hef-
ur vakið mikil skrif i bresk-
um blöðum nú að undan-
förnu.
Það sem fyrst og fremst
hefur valdið þessu fjölmiðla-
fári eru frásagnir bókarinnar
af ástarmálum Pinters og
hvemig þau hafa endurspegl-
ast, oft með mjög beinum
hætti, í sumum leikrita hans.
Framhjáhald
og Betrayal
Enskir fjöhniðlamenn hafa
einkum fjallað um þær upp-
lýsingar sem fram koma í
ævisögunni um fjölskyldulif
Pinters. Hann kvæhtist ung-
ur leikkonunni Vivien
Merchant sem varð drykkju-
sjúklingur og lést árið 1982.
Þau áttu einn son, David,
sem fékk taugaáfall á meðan
hann var við nám í Oxford og
hefur lokað sig að mestu frá
umheiminum - þar á meðal
frá fóður sínum, en þeir urðu vist
ásáttir um það árið 1993 að hittast
ekki oftar.
Pinter átti siðar í frægu ástar-
sambandi við sagnfræðinginn Ant-
oníu Fraser sem þá var gift öörum.
Þau gengu í hjónaband fyrir
nokkrum árum og búa nú saman.
Þær upplýsingar í nýju ævisög-
unni sem hafa orðið breskum fjöl-
miðlum mest umfjöllunarefni varða
ástarsamband Pinters á sjöunda
frekari athygli gölmiðla.
í ævisögunni staðfestir hún
að þetta ástarsamband hafi
staðið í sjö ár og að því sé
lýst mjög nákvæmlega í leik-
ritinu Betrayal sem Pinter
sendi frá sér árið 1978 - og
það jafnvel svo að hún hafi
bæði þekkt atburðarásina og
heilu samtölin.
Nýtir eigin reynslu
Það er reyndar ein meginnið-
urstaða ævisögunnar, að
sögn höfundarins, að Harold
Pinter hefur nýtt mjög per-
sónulega reynslu sina í leik-
ritum sínum og þá gjarnan
byggt á samskiptum sínum
við ættinga, ástvini og kunn-
ingja.
Gagnrýnendur bókarinnar
virðast samdóma um að Bill-
ington hafi tekist mjög vel að
draga þessi tengsl fram í
dagsljósið og sýna fram á úr
hvaða jarðvegi helstu leikrit
Pinters séu runnin. Þetta á
meðal annai's við um tvö
frægustu verk hans, þ.e. The
Birthday Party og The Car-
etaker.
Billington hefur lýst furðu
sinni á viðbrögðum fjölmiðla,
ekki síst fullyrðingum um að Pinter
sé afar ósáttur við afhjúpanirnar í
ævisögunni, og ítrekað í blaðagrein
að bókin hafi verið samin í fullu
samkomulagi við leikskáldið sem
hafi vitað fyrir fram af öllum þeim
persónulegu upplýsingum sem þar
kæmu fram.
The Life and Work of Harold Pint-
er er gefið út af Faber & Faber for-
laginu og kostar 20 sterlingspund.
Harold Pinter: ný ævisaga vekur umtal í Bretlandi.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
áratugnum við Joan Bakewell sem
þá var gift nánum vini Pintershjón-
anna. Joan var á þeim tíma kunn
sjónvarpsstjama í Bretlandi og hef-
ur málið af þeim sökum vakið enn
Metsölukiljur
Bandaríkin
I
1
Skáldsögur:
1. Stephen King:
The Green Mlle: Coffey on the
Mlle.
2. Michael Crlctonl:
The Lost World.
3. Ollvia Goldsmith:
The Flrst Wives Club.
4. Steve Martlni:
The Judge.
5. David Guterson:
Snow Falling on Cedars.
6. Sue Grafton:
„L“ Is for Lawless.
7. Sidney Sheldon:
Morning, Noon & Night.
8. Stephen Klng:
The Green Mlle: Night Journey.
9. Dick Francis:
Come to Grief.
10. Catherlne Coulter:
The Heir.
11. V.C. Andrew:
Melody.
12. Stephen King:
The Green Mile: The Bad Death of
Eduard Delacrolz.
13. Pat Conroy:
Beach Muslc.
14. Stephen King:
The Green Mile: Two Dead Glrls.
15. Mlchael A. Stackpole:
X-Wing: The Krytos Trap.
Rlt almenns eðlis:
1. Ann Rule:
A Fever in the Heart.
2. Mary Pipher:
Revivlng Ophella.
3. Jonathan Harr:
A Civil Action.
4. Mary Karr:
The Liar’s Club.
5. Ellen DeGeneres:
My Point... And I Do Have One.
6. Thomas Cahlll:
How the Irish Saved Clvillzatlon.
7. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
8. J. Douglas & M. Olshaker:
Mlndhunter.
9. Gail Sheehy:
New Passages.
10. Andrew'Weil:
Spontaneous Healing.
11. M. Scott Peck:
The Road Less Traveled.
12. John Felnstein:
A Good Walk Spolled.
13. Isabel Allende:
Paula.
; 14. Thomas Moore:
Care of the Soul.
15. EBetty J. Eadle & Curtis Taylor:
Embraced By the Llght.
: (Byggt á New York Times Book Revlew)