Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1996, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1996 Jj"V
„Morgunninn er venjulegur
haustdagur í Gautaborg. Veðrið er
milt og gott, 12 stiga hiti. Haustlit-
imir í algleymingi. Við hjónin
borðum saman morgunmat en för-
um svo til vinnu. Hún fer í háskól-
ann þar sem hún nemur sér-
kennslufræði en ég fer á skrifstof-
una mína í miðborg Gautaborgar.
Morgunverkin á skrifstofunni
era margvísleg en í dag byrja ég á
því að lesa fréttafaxið frá íslandi
sem ég fæ á hverjum degi frá
sendiráðinu í Stokkhólmi. Þá fer
ég yfir póstinn og athuga hvort
fleiri sjúklingar era að koma. Jú,
einn er væntanlegur eftir tíu daga.
- Ég þarf að undirbúa næstu
messu í Osló sem verður 3. nóv.
Sóknamefndin þar ætlar að gefa út
kirkjupóst fyrir messuna og þarf
ég að skrifa grein í hann sem ég
verð að koma frá mér í dag. Sím-
inn hringir, eitt fermingarbarn er
að bætast í hópinn en þau verða
um fimmtán í vetur í Osló og
Gautaborg. Síminn hringir enn,
áhyggjufull móðir sem hefur
áhyggjur af dóttur sinni í ákveð-
inni borg í Svíþjóð, veit ekki hvar
hún býr.
Tíminn á skrifstofunni er fljótur
að líða en úr því að klukkan er hál-
feitt fer ég upp á Sahlgrenska
sjúkrahúsið þar sem era nú sex
sjúklingar; þrír nýmaþegar, einn
sem gefur nýra, einn sem fékk
lunga og einn sem var að fá hjarta
og lungu. Ég fer og hitti alla þessa
sjúklinga. Það sem er svo ánægju-
legt er að allar aðgerðimar hafa
gengið vel. Batahorfur era góðar
hjá öllum og sjúklingar og aðstand-
endur því himinlifandi. í dag hef
ég verið beðinn að túlka samtal
læknis og eins sjúklingsins en sú
iðja er mjög venjuleg því mörgum
finnst betra að hafa einhvern með
sér í slík viðtöl sem örugglega skil-
ur það sem verið er að segja. Ekki
síst á þetta við þegar sjúklingurinn
fær niðurstöður rannsókna og
meðferðar.
Það var gaman að hitta nokkra
aðstandendur í kaffistofunni í dag
því þeim var mjög létt. Aðstand-
endur þurfa oft að bíða langa daga
eftir þessari stóru aðgerð, milli
vonar og ótta, því alltaf er áhættan
til staðar. Dvölin á spítalanum get-
ur oft orðið löng hjá mér, nokkrir
klukkutímar þegar sjúklingamir
Dagur í lífi sára Jóns Dalbús Hróbjartssonar, prests í Gautaborg:
Heimsóknir á sjúkrahúsið
„Á leiðinni heim kom ég viö hjá sjúkiingi sem býr úti í bæ og er aö bíöa eftir líffæri," segir séra Jón Dalbú Hró-
bjartsson, prestur í Gautaborg. DV-mynd IBS
eru eins margir og nú. í dag var
klukkan orðin fjögur þegar ég kom
út og ók ég þá heim á leið.
Prestsstarfið
er fjölbreytt
Á leiðinni heim kom ég við hjá
sjúklingi sem býr úti í bæ og er að
bíða eftir líffæri. Það var gott að
geta sagt honum fréttir af spítalan-
um því sjúklingahópurinn stendur
mjög þétt saman og fylgist grannt
með því sem gerist.
Enginn sjúklingur var að koma
eða fara í dag svo ég fór ekki út á
flugvöll en flugvallarferðirnar geta
verið á öllum tímum frá klukkan
sjö að morgni til klukkan 11 að
kvöldi.
í dag var gott að koma heim,
eins og ávallt. Við hjónin snædd-
um saman kvöldmat, fóram svo í
stutta göngu niður að strönd en
fegurð skerjagarðsins er mikil hér
um slóðir.
En verkefni dagsins era ekki
tæmd. í kvöld var söngæfing í Kór
íslendinga í Gautaborg og viö hjón-
in erum bæði í kórnum. Einu
sinni í viku hittast um 35 manns
sem eiga það sameiginlegt að vera
íslendingar og hafa ánægju af
söng. Kórinn syngur íslensk og er-
lend verk, heldur tónieika, kemur
fram við sérstök tækifæri og syng-
ur við messurnar sem eru einu
sinni í mánuði og rúmlega það á
haustmánuðum. Söngstjóri okkar
er Kristinn Jóhannesson lektor og
kona hans, Tuula, annast undir-
leik.
Eftir söngæfinguna var haldið
heim. Ég hringdi upp á spítala til
að spyrja um sjúklinginn sem enn
var á gjörgæslu og fékk þau góðu
svör að allt væri í lagi.
Einn dagur í lífi mínu var á
enda. Næsti dagur getur orðið
svipaður en líka allt öðravísi, því
prestsstarfið er einmitt þannig.
Maður veit svo lítið hvað bíður
manns. Eitt símtal getur breytt
dagskránni þannig að allt verður
að víkja fyrir mjög áríðandi verk-
efni, sem getur tekið allan daginn
ef því er að skipta. En þá á ég t.d.
við dauðsföll eða aðra vá sem upp
kemur. í dag var ekkert slíkt á
ferðinni, Guði sé lof.“
Finnur þú fimm breytingar? 381
Viö erum allir svekktir yfir aö fórnirnar færöu okkur ekki rigningu en
hann er sá eini sem þorir aö segja sína meiningu.
Nafn:
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð sjötugustu og
sjöundu getraun reyndust vera:
Valtýr Aron Þorrason Bergsteinn Steinn Steinþórsson
Hamarsgötu 9 Þingaseli 4
750 Fáskrúðsfjörður 109 Reykjavík
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfh sigurvegar-
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó með útvarpi, að
verðmæti kr. 4.900, frá Bræðrunum
Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verömæti kr.
1.790. Annars vegar James Bond-bókin
Gullauga eða Goldeneye eftir John
Gardner og hins vegar bók Luzanne
North, Fín og rík og liðin lík.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 381
c/oDV, pósthólf 5380
125 Reykjavík