Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1997, Side 60
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú Sbendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Flugmannaverkfall:
Tugmilljóna
króna tjón
„Þaö er gríðarlega mikið í húfi að
samningar takist og ljóst að við erum
að tala um tugmilljónatjón ef verkfall
stendur alla helgina," sagði Einar Sig-
urðsson, aðstoðarmaður forstjóra
Flugleiða, við DV laust fyrir klukkan
20 í gærkvöld en þá var ljóst að ekki
yrði samið í flugmannadeilunni áður
en boðað verkfall átti að hefjast
klukkan 20.
Heimildir DV herma að mikið beri
í miili deiIuaðOa og að líklega sætu
menn við einungis vegna þrjósku
sáttasemjara.
Einar sagði að um 1.500 farþegar
ættu bókað far innanlands dagana
tvo, rúmlega 3.000 milli íslands og út-
landa og loks þyrfti að útvega liðlega
2.000 farþegum á milii Evrópu og Am-
eríku far með öðrum flugfélögum.
„Reynslan sýnir okkur að ef verkfall
skellur á nú hefur það langtimaáhrif á
bókanir," segir Einar Sigurðsson. -sv
Hvalfjörður:
Huldumaður
enn að
Huldumaðurinn í Hvalfirði held-
i'tr áfram að skemma fyrir verktök-
um sem leggja veg frá Hvalfjarðar-
göngunum að sunnanverðu. Aðfara-
nótt fimmtudags setti hann möl og
sand í olíu eins tækisins og stakk
stóru áhaldi í gegnum vatnskassa á
öðru. Lögreglan leitar ákaft þess
sem þetta stundar því hann hefur
valdið miklum skemmdum og óþæg-
indum hjá verktakanum. Eins og
DV greindi frá fyrir nokkru skildi
huldumaðurinn eftir skilaboð í
einni vélinni þar sem hann hótaði
að brenna svefnstað verktakanna og
sprengja vélarnar í loft upp með
dínamíti ef ekki yrði hætt við lagn-
ingu vegarins. -sv
Sjálfskipt
NISSAÍNJ
Almera
L O K I
Sérstakt sakamál komið í dómsmeðferð á landsbyggðinni:
Innbrotafaraldur á
Seltjarnarnesi:
Kona fer fram á
630 þúsund
fyrir koss
Ung kona í sjávarplássi á lands-
byggðinni hefur farið fram á að
samstarfsmaður hennar í fisk- og
kjötvinnslufyrirtæki á staðnum
greiði henni 630 þúsund krónur í
skaða- og miskabætur fyrir að
hafa misboðið henni með því að
taka utan um hana og kyssa. Kraf-
an er lögð fram með ákæru ríkis-
saksóknara því manninum hefur
verið gefið að sök að særa blygð-
unarsemi konunnar.
Samkvæmt upplýsingum DV
voru málavextir þeir að konan
var við daglega vinnu sína í
geymsluhúsi þegar umræddur
maður, sem er talsvert eldri, kom
að máli við hana þar inni. Það
sem síðan gerðist mun hafa verið
á þá leið að maöurinn sýndi kon-
unni áhuga og stóðst hann síðan
ekki þá freistingu að taka utan
um konuna og kyssa hana. Konan
gaf greinilega til kynna að hún
bæri ekki sama áhuga tfi manns-
ins.
Fljótlega eftir atburðinn kærði
konan faðmlag og koss mannsins
til Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Hún fór einnig í neyðarmóttöku
Borgarspítalans. Til grundvallar
kæru sinni lagði konan einnig
fram umsögn læknis varðandi
andlega líðan sína, bæði fyrir og
eftir atvikið í geymsluhúsinu. At-
vikið mun hafa lagst þungt á kon-
una. Lögmaður, fyrir hönd
mannsins, bauð henni síðan bæt-
ur en þeim var hafnað. Var þá
ákært í málinu og framangreind
hótakrafa látin fylgja ákærunni.
Maðurinn er ákærður fyrir 209.
grein hegningarlaganna sem kveð-
ur á um að hver sem með lostugu
athæfi særi blygðunarsemi manna
eða sé til opinbers hneykslis skuli
sæta refsingu. Málið er nú komið
til dómsmeðferðar og má því búast
við að niðurstaða liggi fýrir með
vorinu. -Ótt
Játa aðild
að 19 inn-
brotum
Lögreglan í Reykjavík hefur, í
samvinnu við Rannsóknarlögreglu
ríkisins, upplýst innbrotafaraldur
sem gengið hefur yfir Seltjamarnes
frá áramótum.
Um er að ræða alls 19 innbrot.
Lögreglan handtók 5 unga pilta í
gærdag vegna gnms um aðild að
innbrotunum. Samkvæmt upplýs-
ingum lögreglu eru þrír 16 ára pilt-
ar búnir að játa öll innbrotin en
hinir tveir tengjast nokkrum þeirra.
Piltamir búa allir á Seltjamamesi.
Þeir munu lítið sem ekkert hafa
komið við sögu lögreglu áður.
í mars upplýsti lögreglan innbrot
í Valhúsaskóla þar sem tölvum og
öðrum búnaði og tækjum var stolið.
í framhaldi af því komu upplýsing-
ar sem leiddu til uppljóstrunar í
fleiri innbrotum. Þar með komst
lögreglan á slóð innbrotsþjófanna.
Síðasta stórrán piltanna var í lík-
amsræktarstöð á Seltjamarnesi að-
faranótt miðvikudagsins. Þar var
stolið hljómtækjum og líkamsrækt-
artækjum að verðmæti um milljón
króna. í heild er um að ræða þýfi
upp á milljónir króna. Mikill hluti
þýfisins hefur komið í leitirnar en
lögregla leitar enn að hluta þess. -RR
Trúnaðarmenn
áteppiö
Lilja Ólafsdóttir, forstjóri SVR,
tók trúnaðarmenn vagnstjóra á
teppið í gær vegna ályktana sem
vagnstjórar samþykktu á fundi Ní-
undu deildar. Þar voru stjórn og yf-
irmenn SVR harðlega gagnrýnd fyr-
ir hörku í samskiptum við vagn-
stjórana. DV hefur birt hluta af
samþykktum fundarins en forstjór-
inn hafði ekki séð þær.
í tilefni þessa hafa fjórir trúnaðar-
menn vagnstjóra undirritað plagg til
félaga sinna þar sem þeir harma að
samþykktimar hafi borist fjölmiðlum
á undan stjómendum SVR og segja
slíkt ekki við hæfi. Vegna þessarar
yfirlýsingar er a.m.k. hluti vagnstjóra
æfur og segir ályktanimar vera opin-
ber plögg sem allir megi sjá. Sjá
fféttaljós um SVR á bls. 20 -rt
Samningar höfðu ekki tekist milli flugmanna og Flugleiða þegar DV fór í prentun í gærkvöld og því var allt útlit fyrir að
verkfall hæfist á boðuöum tíma klukkan 20. Á myndinni gefur Björn Antonsson flugvirki þeim Benedikt Arnarssyni að-
stoöarflugstjóra og Haraldi Baldurssyni flugstjóra grænt Ijós fyrir eina af síðustu feröunum í gær. DV-mynd E.ÓI
Él á mánudag
A morgun er gert ráð fyrir norðan- og norðvestanátt og
víða kalda. Slydda verður norðanlands, rigning vestanlands
en bjart um landið sunnanvert. Hiti verður nálægt frostmarki
fyrir norðan en 3-8 stig syðra.
Á mánudag verður norðankaldi, él norðanlands og austan
en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Hiti verður 0-9 stig að
deginum, hlýjast syðst á landinu.
Upplýsingar frá Veðurstofu