Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1997, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAUR 28. JÚNÍ 1997 JLlV
útlönd
stuttar fréttir
Átök í Hebron
ísraelskir hermenn særðu
sjci Palestínumenn í átökum
sem brutust út á mótmæla-
fundi í borginni Hebron á Vest-
urbakkanum í gær.
Sameiginleg mynt
Helmut
Kohl, kansl-
ari Þýska-
lands, sagði
nær öruggt
að árið 1999
yrði áform-
um um sam-
eiginlegan
gjaldmiðil í Evrópu hrundiö af
stað. Hann varaði svartsýnis-
menn við og sagði að afleiðing-
arnar gætu orðið slæmar ef
ekki yrði af framkvæmdinni.
Norræn samvinna
Dómsmálaráðuneyti Svia og
Norðmanna telja nauðsynlegt
að norrænar þjóðir sameinist i
baráttu sinni við stríöandi
mótorhjólasamtök. Samtök
Vítisengla og Bandidos hafa
valdið miklum skaða i Skand-
inavíu undanfarin ár.
Selja börn sín
Tvær franskar mæður voru
teknar til fanga í gær grunaðar
um að hafa leigt barnaníðing-
um börn sin. Lögreglan hand-
tók einnig mann á sjötugsaldri
grunaðan um að hafa haft mök
við börn undir 15 ára aldri.
Fordæmir hryöjuverk
Hinn nýi vamarmálaráð-
herra Bretlands, David
Andrews, fordæmdi árás írska
lýðveldishersins á meðlimi lög-
reglunnar á Norður-írlandi í
gær. Hann hvatti IRA-menn til
að sýna stuðning í þeim friðar-
umleitunum sem Tony Blair
hefur átt nýtt frumkvæði að.
Clinton til Evrópu
Bill Clint-
on, forseti
Bandaríkj-
anna, mun
heimsækja
Pólland og
Rúmeníu að
afloknum
fundi æðstu
í manna NATO-ríkjanna í
; næsta mánuði . Er þetta hluti
af tilraun forsetans til að
J stuðla að lýðræðislegri,
óskiptri og öruggri Evrópu á
3 næstu öld.
Flóð á Indlandi
Yfir 100 manns hafa látist á
i síðustu dögum í miklum flóð-
um á Indlandi. Reuter
Evrópu-
markaðir
sterkir
Verð á hlutabréfamörkuðum í
Evrópu hækkaði, einkum árla dags á
fimmtudag, en seig örlítið eftir því
sem á leið. í Bretlandi voru það eink-
um olíuhlutabréf sem ýttu undir
verðhækkun á markaðnum. I Banda-
ríkjunum lækkaði Dow Jones-vísital-
an örlítið og situr nú 110 stigum neð-
an við hæstu stigatölu ársins sem
var 7796 stig 20. júní fyrir stóra
hrunið í vikunni. DAX-vísitalan í
Þýskalandi komst loks yfir 3800 stig-
in og var 3827 stig snemma dags.
Bensín- og hráolíuverð á heims-
mörkuðum hefur lækkað nokkuð
stöðugt undanfarnar vikur. Lokun-
arverð í gær á 95 oktana bensíni var
188 dollarar á tunnu en var 218 2.
júní. Þetta jafngildir því sem næst
14% lækkun á verði. -vix
Þurfum að líta
fram á veginn
- segir fyrrum utanríkisráðherra Kambódíu
„Við megum ekki gleyma okkur i
fortíðinni. Ef við höldum áfram að
tala um hið liðna ... hver leiðtogi
Kambódíu á sína fortíð ... þá getum
við aldrei sameinast sem þjóð og
náð framforum," sagði Ieng Sary
sem gegndi stöðu utanríkisráðherra
á ógnartíma Rauðu khmeranna.
Hann sagði að þjóðin ætti að hunsa
óskir þeirra er vilja að hann komi
fyrir alþjóðlegan dómstól.
Ieng Sary var dæmdur ásamt Pol
Pot fyrir íjöldamorð en hann fékk
sakaruppgjöf á síðasta ári er hann
Pol Pot.
yfirgaf uppreisnarmenn og lofaði að
vinna að því að koma á sáttum í
landinu.
„Ef þjóðin vill að Pol Pot svari til
saka og komi fyrir rétt þá á það að
gerast hér í Kambódíu án afskipta
erlendis frá. Þetta mál er öðrum
óviðkomandi," sagði Ieng Sary.
Heimildum ber ekki saman um
hvort Pol Pot sé á lífí en hann sást
síðast meðal almennings árið 1979.
Ieng Sary sagði við fréttamenn að
hann yrði ekki hissa þótt Pol Pot
hyrfi á leyndardómsfullan hátt.
Breskir hermenn í Hong Kong eru hér á æfingu fyrir innsetningarathöfnina sem fer fram 1. júlí. Þá munu Bretar af-
henda Kínverjum Hong Kong en Bretar hafa ríkt þar í 156 ár.
Biðja Frakka um
hernaðaraðstoð
Forseti Kongós hefur beðið
Frakka um hernaðaraðstoð gegn
vopnuðum uppreisnarmönnum sem
héldu því fram í gær að þeir hefðu
unnið flugvöllinn í Brazzaville á sitt
vald.
„Ef Frakkar bregðast ekki fljótt
við bón okkar munu margir láta líf-
ið í allsherjarblóðbaði," segir í bréfi
sem Pierre-Michael Nguimbi, sendi-
herra Kongó í París, sendi til
franskra þingmanna.
í bréfinu biður hann þingmenn-
ina um að skerast í leikinn og gera
hvað þeir geti til að fá ríkisstjórn
Frakklands til að senda aðstoð. Að
öðrum kosti muni pólitískar hörm-
ungar eiga sér stað í landinu.
Fyrrum leiðtogi marxista, Denis
Sassou Nguesso, stjórnaði landinu í
13 ár áður en boðað var til frjálsra
kosninga árið 1992. Hann hefur bar-
ist gegn stjórnaröflum í landinu síö-
an í byrjun júni og notað til þess
einkaher sinn.
„Samband Kongós og Frakklands
á sér langar sögulegar rætur og nú
treystum við á hjálp frá þeim,“
sagði Perrre-Michael Nguimbi.
Kauphallir og vöruverð erlendis
1
Netanyahu les
yfir leiðtoga
Verkamanna-
flokksins
Ehud Barak
leiðtogi verka-
mannaflokks-
ins i ísrael
fékk orð í
eyra frá for-
sætisráðherr-
anum, Benja-
min Netanya-
hu, á þingi I gær. Barak lét þau
orð falla að látinn bróðir forsæt-
isráðherrans, sem var þjóðhetja
í ísrael, myndi skammast sín
fyrir bróður sinn ef hann sæi til
hans nú. Barak sagði: „Ég þekkti
annan Netanyahu ... Yoni Net-
anyahu. Ég get sagt þér það Bibi,
að hann myndi skammast sín
fyrir þig nú. Ég skammast mín
líka og það á líka við um fólkið í
landinu."
Netanyahu sagði Baruk hafa
skotið langt yfir markið hvað
varðar siðferði í stjómmálum og
sagði það nokkuð sem heiðvirð-
ur maður myndi ekki gera.
Bleikur þvottur
úr sögunni?
Ný framleiðsluafurð unnin úr
ensími, sem er hvati sem mynd-
ast í lifandi frumum, gæti komið
í veg fyrir að hvítur þvottur yrði
bleikur þó mislitur fatnaður
slysaöist með í þvottavélina.
„Efnið hefur þau áhrif að fótin
upplitast ekki fyrr en eftir að
þau hafa verið þvegin," segir
Anders Pedersen, rannsóknar-
maður hjá danska fyrirtækinu
Novo Nordisk. „Við göngum
ekki svo langt að segja að fólk
þurfi ekki að flokka þvottinn
sinn en efnið getur hjálpað til
þegar þvotturinn hefur ekki ver-
ið flokkaður nægilega vel og
rauður sokkur slæðist með í
þvottavélina með ófyrirsjáanleg-
um afleiöingum."
Danska fyrii-tækið er þessa
dagana að kynna framleiðendum
þvottaefna efnið.
Afríka heims-
álfa munaöar-
lausra
Sameinuðu þjóðirnar segja
hættu á því að Afríka verði
heimsálfa munaðarlausra bama
ef ekkert verði aðhafst til að
hefta útbreiðslu alnæmis. Millj-
ónir barna eru í hættu og dag-
lega smitast yfir þúsund börn í
Afríku af sjúkdómnum.
í skýrslu kemur fram að í júní
1996 höfðu yfir níu milljónir
barna, yngri en 15 ára, misst
móður sína vegna sjúkdómsins.
Tölur sýna einnig að milljónir
foreldra em sýktar af veirunni
sem leiðir til alnæmis. Má því
búast við að munaðarlausum
bömum fjölgi til muna á næstu
áram.
Svikið vín not-
að í bremsu-
vökva
I
| Mörg hund-
ruð þúsund
1 flöskur af
sviknu vodka
| sem lögreglan
1 í Moskvu hef-
ur gert upp-
I tækt hefur ver-
ið sent í efna-
verksmiðju þar
endurunnið. Veröur efnið notað
til að búa til bremsuvökva og
gluggahreinsiefni.
Jeltsín, forseti Rússlands, hef-
ur hrundið af stað herferð til að
hefta framleiðslu á sviknu
j áfengi. Ætlar hann að setja höft
j á framleiðslu og verslun áfengis.
Reuter