Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1997, Blaðsíða 16
16
nlist
LAUGARDAGUR 28. JUNI 1997
Ade, eigandi Plastic People í London, flytur inn nokkra af frægustu plötusnúðum heims:
Islendingar dýrvitlausir
þegar þeir skemmta sár
Ade er eigandi skemmtistaöarins
Plastic People i London. í sumar
mun hann í samvinnu viö Rósen-
berg- klúbbinn flytja inn nokkra af
þekktustu plötusnúðum heims. Ade
var hér á landi á dögunum til að
skoða sig um og velja skemmtistað
fyrir erlendu plötusnúðana.
Heimsfrægir plötusnúðar
Þegar Ade hafði fengið þá flugu í
hausinn að koma til íslands með
rjómann úr plötusnúðaheiminum
komst hann fljótt að því að það var
ótrúlega lítið vandamál að sannfæra
þá um að koma.
„Það sem skiptir flesta þeirra
mestu máli er að hafa góðan hóp
áheyrenda sem vilja dansa við tón-
listina sem þeir eru að spila. íslend-
ingar gera það. íslendingum líkar
vel við tónlistina og sýna það. Þeir
sleppa sér alveg gjörsamlega. Það er
öskrað og spriklað og það við al-
mennilega tónlist, tónlistina sem
þessir menn eru að spila.
Það er sjaldgæft að finna fólk sem
bregst svona við þessari tónlist.
Svona er þetta í London og New
York enda eru það mjög stórar borg-
ir og mikið af fólki. Það er magnað
að sjá fólkið frá þessu litla landi á
dansgólfinu. Þessir plötusnúðar
spila danstónlist og þeir vilja sjá
fólk dansa við hana. Ég hringdi í
Derrick May og spurði hann hvort
hann vildi spila í London á föstu-
degi og hann nennti því engan veg-
inn. Síðan spurði ég hvort hann
vildi koma til íslands og þá var það
bara „Já, frábært!" Það er bara
hversdagslegt að spila í London og
standa í einhverju prútti um verð
og svoleiðis leiðindum. Á íslandi er
það hrein upplifun að spila.“
Rósenberg
Rósenbergklúbburinn í Austur-
stræti var opnaður aftur sem griða-
staður danstónlisarinnar á íslandi í
apríl. Þá voru tvö ár liðin síðan
danstónlistin kvaddi Rósenberg-
kjallarann og haldið var eftirminni-
legasta lokakvöld í manna minnum.
Staðurinn hefur löngum verið
þekktur fyrir að spila „und-
erground" danstónlist og leggja
metnað sinn í að vera inni í öllu því
nýjasta í þessum geira tónlistar-
heimsins.
Þeir sem ekki sjá sér fært að
leggja leið sína í Rósenberg geta
heyrt í plötusnúðunum í útvarps-
þætti Party zone á Xinu.
„Plötusnúðamir ykkar eru mjög
góðir. Tónlistin sem þeir spila er
með örlitlu diskóívafi sem mér
finnst alveg frábært. Það er alvöru
danstónlist. Þeir spila til að
skemmta fólkinu og leggja sig alla
fram við að fólkið hafi gaman af því
að dansa við tónlistina. Ég hef bara
heyrt í fjórum plötusnúðum hérna
en þetta er það sem þeir áttu allir
sameiginlegt. Þeir sem ég heyrði í
eru nógu góðir til að spila hvar sem
er í heiminum. Margeir, Arnar; þeir
gætu spilað hvar sem er.“
Einstök upplifun
Reykjavík er nýr heimur fyrir
klúbbeigandann. „Fyrir mig er
þetta einstök upplifun. Eftir tíu ár
get ég sagt frá því að einu sinni hafi
ég staðið fyrir fjögurra mánaða tón-
listarveislu og stanslausu partii á
íslandi. Þetta er ógleymanlegt. Ég
vil vera á óvenjulegum og sérstök-
um stöðum og trúðu mér, Reykjavík
er óvenjuleg. Þetta er bara ævintýri.
ísland er staður sem allir vilja sjá
en komast ekki til.“
„Skemmtistaðurinn sem ég rek
Derrick Carter
London er mjög lítifl á okkar mæli-
kvarða. Hann er álíka stór og
Rósenberg og tekur bara 200 manns.
Hefur verið í gangi í um 3 ár. Fyrsta
árið valdi tónlistartimaritið Bumpy
Capers okkur næstbesta House-
klúbbinn í Englandi. Síðustu tvö ár
hefur síðan tímaritið Muzik valið
okkur besta House-klúbbinn í Lon-
don. Þetta er einstakur árangur með
skemmtistað sem er svona lítill á
meðan flestir skemmtistaðir í Lon-
don taka 1-2000 manns.“ .
En Ade er ekki bara hrifinn af
íslendingum. Landið hefur líka
komið honum skemmtilega á óvart.
sjá einhverja náttúru sem nálgast
það að vera spennandi."
íslendingar dýrvitlausir
Það er mikið hlegið þegar spurt
er um hvað Englendingum flnnist
um íslendinga og skemmtanalífið
Plötusnúðarnir sem koma í sumar
Luke Solomon
House/teknó.
Lewis Coplenad & J.P.
House. Lewis verður að spila nú
um helgina á Rósenberg.
Twitch
Spilar blöndu af teknó og house
sem hann kallar cosmic disco.
Derrick spilar á Rósenberg um næstu
helgi, laugardaginn 6. júlí. Hann er
frá Chicago og er, ásamt nafna sínum
May og Terry Frances, eitt stærsta
nafnið sem hingað hefur komið frá
Plastic People.
Derrick May þeytir skífur á Plastic
People.
Líf og fjör á Plastic People í London.
„Mér finnst landið ykkar frábært.
Mér finnst frábært að geta verið í
Reykjavík sem er borg þar sem
hægt er að skemmta sér langt fram
eftir kvöldi á nokkrum mjög góðum
skemmtistöðum og geta síðan keyrt
í flörutíu mínútur út fyrir borgina
og geta séö sérstaka og fallega nátt-
úru. Þetta er ekki hægt í London.
Það þarf að hella sér út í margra
klukkutíma akstur frá London til aö
héma.
„Þeim finnst þið drekka of mikið.
Ég er reyndar ekki á þeirri skoðun.
Mér finnst þið bara drekka mikið.
Það er allt í fína enda yrðuð þið
ekki svona rosalega skemmtileg ef
þið gerðuð það ekki. Almennt eru
menn þó sammála um að íslending-
ar verði dýrvitlausir þegar þeir fara
út að skemmta sér.“ -vix
Eric Rug
Deep house.
Harri
House/teknó.
Kenny Hawkes
Deep house. Plötusnúðurinn á
opnunarkvöldi Plastic People á
Rósenberg um síðustu helgi.
Rob Mello
House. Einnig þekktur undir
nafninu Reel House. Spilaði á Tetriz
um áramótin.
Derrick May
Wishmountain og spilar þá di'um
and base og sem Dr. Rocket og er þá
í trip hoppi.
Terry Francis
Teknó.
Jon Marsh
House. Potturinn og pannan í
indie/danshljómsveitinni The
Beloved.
Teknó. Derrick er að mestu kennt
um að fyrirbærið teknótónlist hafi al-
mennt orðið til og er einn af frægustu
plötusnúðum heims. Guðfaðir teknós-
ins. Hefur átt 15 mjög vinsæl lög þar
sem Nude Photo og Strings of Life eru
hvað þekktust.
Herbert
Teknó.
Einnig þekktur
sem Funky
Teknó.