Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1997, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1997, Síða 15
LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1997 15 Náttúrulegt stífelsi Frá og meö Jónsmessu og fram yfir verslunarmannahelgi fer ís- lenskt samfélag í hægagang. Menn leggjast í sumarfrí, slaka á og safna kröftum fyrir næsta vet- ur. Viö stigum inn í þessa sumar- veröld um síöustu helgi. Það má segja að íslenskt vor sé í raun fram að 20. júní. Þá tekur sumar- iö við og það varir rétt fram yfir verslunarmannahelgi. Raunveru- legt sumar er því varla nema tveir mánuðir. Það er því betra að nýta þann tíma þokkalega. Það er þó ekkert garantí fyrir því að sumarið komi að neinu gagni. Til eru þau sumur sunnan heiða þar sem rigning er allsráð- andi og kuldi fyrir norðan. Þetta fer þó tæpast saman. Ef vel viðrar fyrir sunnan er veður síðra norð- anlands og öfugt. Þeir sem eru í fríi geta því brugðið undir sig betri fætinum og elt veðrið. Duttl- ungar þess eru þó slíkir að eins er líklegt að þoka og suddi bíði þess sem ætlar sér að elta sólina. Regnvot sólarströnd Við höfum þvi lært af langri reynslu. Við tökrnn því veðri sem er enda fátt annaö til bragðs að taka. Menn verða að halda sinni dagskrá hvemig sem viðrar. Þeir sem hafa gefist upp á sólarleitinni fara einfaldlega til sólarlanda. Það er þó eins með sólarlönd og önnur lönd. Þar getur rignt. Það eru að- eins tvö ár síöan við hjónakomin vorum á spretti um Evrópu og ákváðum að vera sex daga á Rim- ini, ítalskri sólarströnd, til slök- unar. Það hellirigndi alla dagana. Fátt var til ráöa gegn þessari ít- ölsku rigningu. Við höfðum keypt okkar gistingu eins og lög gera ráð fyrir. Við sátum því sólarlaus í sólarlandinu. Það er ekkert að því að vera í borg þótt það rigni. Þar er hægt að skoða sig um á söfnum, fara á veitingastaði, í leikhús eða bíó. Staðan er önnur á sólarströndinni. Rigni þar er ekk- ert um að vera. Fólkið hverfúr. Allt er miðað við útiþjónustu. Sums staðar er þjónustunni hreinlega hætt og hengilás settur fyrir. Það þýðir lítið að bjóða báta, seglbretti og sóltjöld ef eng- inn er á ströndinni. Það dofhar yfir öllu. Rok á þjóðarsálinni Konan var heldur sorgmædd yfír þessu enda sólarvera. Ég nýtti mér ástandið og sagði henni að í svona veðri væri betra að vera á íslandi en Ítalíu. Á Fróni væri reiknað með skítviðri. Allt mannlíf byggðist upp á vondu veðri. Byggingar væra rammgerð- ar, ökutæki traust og útiveitinga- staðir þættu grín eitt. Allt væri heldur grátt að eðlisfari. Fólkið væri fólt og kappklætt. Þar væm tilfinningar ekki bomar á borð. íslendingum væri eðlislægt að vera stífir. Fólk faðmaðist ekki nema einhver dæi. Rigningin og rokið væm inngróin í þjóðarsál- ina. Stifelsið væri náttúrulegt ástand. Ég tók dæmi og benti konunni á utanríkisráðherrann. Hann væri stífúr sem klettur í hafinu. Sá góði ráðherra lítur flest mál al- varlegum augum og brosir tæpast nema við náum að krækja í norskan veiðiþjóf og færa til hafn- ar. Svona skrýtin er íslensk lund. Til viðmiðunar benti ég kon- unni á að svo væri hins vegar ekki i suðlægum löndum. Þar væm menn opnir og tilfinninga- ríkir. Sólin og hitinn hefði þessi áhrif á fólk á þeim breiddargráð- um. Vandinn væri bara ef hann rigndi. Þá kynni sunnanfólkið ekki að hegða sér eðlilega. Því lamaðist samfélagið í sumarregni. Þá væri skítt að vera gestur á sól- arströnd. Það væri varla hægt að Laugardagspistill Jónas Haraldsson kaupa sér bjór. Allir væra famir heim. Hver vill svo sem lepja bjór í rigningu á sólarströnd? Ekki ónáða Arnesinginn Meö þessum snilldarlegu rök- um reyndi ég að sannfæra konuna um að betra væri aö vera heima en að eyða peningum í útlöndum. Ég sagði henni að í næsta sumar- frii gætum við tjaldað hjá Heimi þjóðgarðsverði á Þingvöllum, hit- að okkur súpu á prímus ef okkur væri kalt og gengið okkur til hita að Valhöll. Þar gætum við farið í sjoppuna og fengið okkur pulsu og kók hvemig sem viðraði. Við gæt- um líka róið saman á Öxará. Það skipti ekki máli á þeim góða stað hvort sól skini eða regnið lemdi tjaldið. Nokk mætti treysta á bát- ana þar. Það væri eitthvað annað en þessar hjólabátadmslur á suð- rænni strönd. Traustir trébátar með árum. Áður en ég lýsti fleiri ferða- möguleikum, t.d. heimsókn í Húsafell, Bjarkalund, Ásbyrgi og Vík í Mýrdal greip konan fram í. „Við eigum ekki tjald,“ sagði hún. „Ég sé því enga ástæðu fyrir því að ónáða Heimi Ámesing. Svo vil ég benda þér á,“ hélt konan áfram, „að við eigum ekki prímus. Þú fengir því ekki heita súpu á Þingvöllum." Ég fann að rigningin í sólar- landinu hafði áhrif á fleiri en inn- fædda og nefndi því hvorki Kalda- dal né Melrakkasléttu. Það verður að bíða betri tíma. Þessi rigning á Rimini hafði þó ekki varanleg áhrif á konuna. Eftir að við kom- um heim úr Ítalíureisunni liðu ekki nema 48 stundir þar til hún var farin að huga að næstu ferða- möguleikum okkar - utanlands. Hvild frá brauðstritinu Sumarfríið í ár bíður flestra, nema þeir hafi verið svo bráðlátir að stökkva í frí í júníbyrjun. Þá er farið að styttast í sælunni hjá þeim. Þeir em þó væntanlega orðnir fullir af vítamínum og koma galvaskir til starfa. Aðrir geta látið sig hlakka til. Þegar vel er að gáð skiptir nefnilega ekki öllu hvar menn eyða fríinu. Það er tilbreytingin, hvíldin frá brauð- stritinu sem gerir fríið svo eftir- sóknarvert. Menn ná að hlaða sig upp og koma endurnærðir til baka. Sárstök hagfræðiformúla Ég hef ekkert minnst á Rimini við frúna þetta sumarið. Ég hef lítillega neöit stuttar ferðir í ná- grenni höfuðborgarinnar en læt lengri bunur bíða betri tíma. Það fer eftir veðri og vindum. Aðeins hefur frúin orðað Lundúnaborg við mig og nefnt það sem ástæðu að hún þurfi að kaupa veggfóður. Hún sagði mér að ódýrara væri að fljúga til London en til Akureyrar. Ég kunni ekki við að spyrja hvort veggfóður fengist líka á Akureyri. Ég veit nefnilega að eiginkona mín fær stundum góðar hagfræði- hugmyndir. Þessi er ein af þeim. Hún veit af búð í London þar sem hún kemst á veggfóðursútsölu. Hún ber það saman við verð á veggfóðri út úr búð hér á landi. Sá samanburður er ensku útsölurini í hag. Konan lætur aðra útreikn- inga við veggfóðurskaupin liggja milli hluta. íslandsflug-leiðir Þessar vangaveltur hennar vom raunar áður en íslandsflug sprengdi upp markaðinn. Nú munu flestir íslendingar ætla i innanlandsflug. Erindið er auka- atriði. Þetta er orðið svo ódýrt. Ef sagan kennir okkur eitthvað stefriir í það að samgönguráð- herra sameini Flugfélag íslands og íslandsflug líkt og gerðist með Flugfélagið og Loftleiðir í eina tið. Það félag sameinast svo Flugleið- um. Þá verður allt eðlilegt á ný. Gæti félagið ekki kallast íslands- flug- leiðir? Það yrði leiðandi flug- félag á íslandi. En er á meðan er. Það verður væntanlega nóg að gera í innan- landsfluginu frá og með næsta þriðjudegi. Verst að ekki skuli einnig boðinn kynningarafsláttur á ferðum til borga sem selja vegg- fóður fyrir slikk eða til niður- rigndra sólarstranda. Þá væri lík- legra að hagfræðiformúla eigin- kommnar gengi upp.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.