Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1997, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1997, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1997 Tfr’XT’" "itfágur í lífi W:................................... Rallkappinn og bílasalinn Jón R. Ragnarsson: Bíllinn fór ekki í gang „Dagurinn byrjaði frekar snemma. Ég gat ekki sofið lengrn- en til sex. Fram undan var erfiður dagur þar sem ég þurfti bæði að sjá um hin daglegu störf í vinn- unni og eins að undirbúa mig fyr- ir Nóatúns-rallið sem átti að byrja um kvöldið. Um sjö dreif ég mig á lappir, fékk mér komilögur, las blöðin og var mættur í vinnuna hálfátta. Næstu þrjá tímana var ég að undirbúa daginn, átti eftir að fara á marga staði þennan dag. Til að reka góða bílasölu, eins og við gerum í Bílahöllinni, þarf að leggja gríðarlega mikla vinnu í umsýslu og halda mjög vel utan inn alla pappíra. Ég held að fólk geri sér ekki alveg grein fyrir hversu mikiU tími fer í þessar ferðir. BílHnn ekki í gang Þennan morgun fór ég af stað í útréttingar um klukkan ellefu, m.a. til Sýslumannsins í Reykjavík og Kópavogi þar sem ég þurfti að fara með bréf úr og í þinglýsingu. Síðan lá leiðin í lánastofnanir eins og Samvinnusjóð Islands, Sjóvá- Almennar, Glitni og VÍS. Annað- hvort v£ir ég að sækja bréf eða borga upp bréf og fara síðan með í aílýsingu. Segja má að nánast ann- ar hver bíll sé með veðböndum í dag. Föstudagsstressið i umferðinni var hafið og maður varð var við þessa dæmigerðu umferðarmenn- ingu íslendinga þar sem alltaf eru ákveðnir menn sem aka á 40 km hraða á vinstri akrein og aðrir sem gefa séns. Alltaf eru nokkrir sem telja sig ofsalega góða öku- menn og glanna eins og bjánar. Skilaboð mín til þeirra eru að koma heldur og keppa í ralli eða rallkrossi. Færum kappakstm-inn út af götunum. Um klukkan þrjú var ég aftur kominn upp í Bílahöll og þá átti að fara að huga að rallbílnum. Rúnar ætlaði að setja bOinn í gang en það gekk ekki. Nú voru góð ráð dýr þar sem bíllinn átti að vera mættur klukkan sex í Nóatún í Mosfells- bæ. Bíllinn hafði hrokkið í gang daginn áður er við fórum með hann í skoðun fyrir rallkeppnina og við trúðum því ekki að hann ætlaði að fara að vera með leið- indi. Stressið rosalegt Okkar frábæru viðgerðarmenn höfðu undirbúið bílinn mjög vel og þess vegna var þetta óskiljan- E.ÓI. legt. Nú var stressið orðið rosa- legt. Nú var ákveðið að safna liði og ýta bilnum í gang. Menn ýttu og ýttu en ekkert gekk. Þá var bara að draga hann í gang. Það var vitaskuld alveg sama sagan, bíllinn ætlaði ekki í gang. Nú var ég orðinn hrikalega stressaður og hringdi í annan viðgerðarmann- inn okkar og kom hann með reyk. Hann var varla búinn að vera mikið lengur en fimm mín- útur þegar hann sá hvað var að. Tölvuheilinn sem stjómar öllu hafði verið tekinn úr sambandi á meðan verið var að sjóða í boddí- ið og það var bara eftir að setja hann aftur í samband. Hvílíkur léttir. Síðan um klukkan sex var ég mættur með bílinn i Nóatún og fór svo aftur að vinna, var að til rúm- lega sjö og fór þá að gera mig klár- an í rallið. Ég skipti um fót í Bíla- höllinni þar sem fyrirséð var að ég hefði ekki tíma til að komast heim. Nú leið már vel Rúmlega átta var ég sestur í rall- stólinn, hjálmm-inn kominn á hausinn, beltin spennt og við komnir á annað hundraðið á leið um Geitháls. Nú leið mér vel. Geit- hálsleiðin var farin tvisvar og sið- an var gert hlé fram á laugardag. En það var nóg eftir að gera, fýrst að fara yfir með viðgerðarmönnun- um hvað þyrfti að gera um kvöldið þar sem meðal annars þurfti að skipta um stýrisdælu. Hún gaf sig á Geithálsi. Síðan þurfti að skipu- leggja laugardaginn. Þegar allt í kringmn rallið var búið þaut ég heim, klæddi mig í mitt finasta dress og brunaði niður í Borgarleikhús þar sem Toyota- umboðið var með stórglæsilega kynningu á hinum nýja Corolla-bíl sínum. Því miður missti ég af frá- bærri sýningu en náði þó að kom- ast í ljúffengar veitingar sem þar voru bomar fram. Um miðnætti fórum við hjónin heim þar sem ég þurfti að vakna rétt fyrir sex og gera klárt fyrir seinni dag Nóatúns-rallsins sem átti að hefjast klukkan átta.“ Finnur þú fintm breytingar? 417 Þaö er akkúrat þetta sem er hættan vib þessi opnu hús. Nafn: _ Heimili: Vinningshafar fyrir fjögur hundruðustu og fimmtándu getraun reyndust vera: Sandra Dögg Svansdóttir, Kristinn Gislason, Ásgaröi 19, Hátúni 11, 108 Reykjavík. 230 Keflavik. Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kem- ur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum veriö breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafhi þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikiun liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: Kalimar-Spirit AF, 35 mm myndavél frá Radíóbæ, Ármúla 38, að verðmæti 3.995 kr. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli- brísúpan eftir David Parry og Patrick Withrow. Vinningamir verða sendir heim. Merkið umslagið meö lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 417 c/oDV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.