Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1997, Side 7
UV LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
7
Pétur H. Blöndal:
Kvófakaupin
fjármögnuð
1 á hlutabréfa-
i markaði
„Ég fæ ekki betur séð en að
kvótakaup hafi að stærstum hluta
verið fjármögnuð á hlutabréfamark-
aði. Þess vegna er verðið svona hátt.
Stóru útgerðarfyrirtækin, eins og
Grandi og ÚA, sem hafa farið á
hlutabréfamarkað, hafa notað þá
peninga til að kaupa sér kvóta og
þau hafa staðið upp úr. Og nú er
Samnherji að fara á hlutabréfa-
markað til að ná sér i fé til að kaupa
kvóta eins og hin. Mótorinn á bak
I við hlutabréfamarkaðinn hefur ekki
verið arðsemi fyrirtækjanna heldur
skattaafsláttur sem fólk fær þegar
I það kaupir hlutabréf. Gengi hluta-
bréfa hefur því hækkað alveg óháð
arði fyrirtækjanna. Þess vegna er
i gengi hlutabréfa í þekktustu fyrir-
' tækjum landsins orðið óeðlilega
hátt. En nú er verið að taka þennan
mótor úr sambandi. Verið er að af-
nema skattaafsláttinn vegna hluta-
bréfakaupa, í áföngum," sagði Pétur
H. Blöndal alþingismaður í samtali
við DV um kvótaverðið.
Hann segir að þá um leið fari fólk
að horfa á arðsemi fyrirtækjanna
við hlutabréfakaup. Hlutabréfaverð
verði miklu háðara hagnaði fyrir-
tækjanna en nú er.
„Það leiðir til þess að miklar
sveiflur verða á gengi hlutabréfa
hinna ýmsu fyrirtækja. Þau útgerð-
( arfyrirtæki sem sýna tap geta ekki
farið á markað og geta því ekki
keypt kvóta. Vel reknu fyrirtækin
geta keypt kvóta. Þau eru miklu
í færri og eftirspurn eftir kvóta mun
því minnka. Ég hygg að þetta leiði
til þess að kvótaverð lækki mjög
mikið,“ segir Pétur H. Blöndal.
Hann segir ástæðu þess að kvóta-
verð helst svona hátt nú sé sú að
um spottmarkað sé að ræða.
„Útgerðarmaður báts sem er að
veiða ýsu fær alltaf eitthvað af þorski
með sem hann verður að koma með
að landi. Það magn er svo lítið hlut-
fall af aflanum að hann munar ekkert
um að greiða 80 til 90 krónur fyrir
leigukvóta. Annar þátturinn er sá að
stærsti hluti kvótaeigenda hefur ekki
borgað neitt fyrir kvótann. Þess
vegna er meöalverð hans alveg viðr-
áðanlegt," segir Pétur.
Hann segir að við séum með lag-
| skiptan markað. Annars vegar er
gjafakvóti, sem útgerðarmenn fá út-
hlutað og svo hins vegar kvóti sem
þeir hafa keypt á markaði. í lagskipt-
um markaði geti myndast svona spott-
markaður þar sem verðið er hátt.
„Þetta er þekkt með vexti. Þegar
Húsnæðisstofnun var með niður-
greidda vexti hækkuðu vextir alls
staðar í kring þannig að meöalvext-
imir voru nokkurn veginn eðlilegir.
Þess vegna hygg ég að meðalkvóta-
verðið í landinu á gefnum kvóta og
keyptum kvóta sé alveg eðlilegt. Ég
held því fram að ef hver íslendingur
fær til sín sinn hluta í heiidarkvót-
anum og færi að selja hann muni
kvótaverðið alveg snarlækka. Þá
kæmi í ljós að menn geta ekki borg-
, að 80 krónur fyrir kílóið en fá svo
' ekki nema 100 krónur fyrir það hjá
fiskvinnslunni. Þá hygg ég að verðið
fari niður í 20 til 30 krónur fyrir kíló-
ið,“ sagði Pétur H. Blöndal. -S.dór
)
Óskalisti
brúöhjónanna
Gjafaþjónusta fyrir
brúðkaupið
(v?) SILFURBÚÐIN
Vxy Kringlunni 8-12 •Sími 568 9066
- Þar fœröu gjöfina -
Laugardag og sunnudag kl. 14 -17.
OUTBACK
Færir þig á vit
ævintýranna.
RúnarJónsson og
Jón Ragnarsson
margfaldir íslandsmeistarar
í rallyeru komnirá
sérsmíðaðan Subaru
Lagacy rallbíl sem við
sýnum um helgina.
SUBARU 1998
•Kraftmiklir
•Fjórhjóladrifnir
•Mikil veghæð
•Hátt og lágt drif
• Frábær búnaður
Komdu og prófaðu
-Finndu kraftinn