Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1997, Page 8
8
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
sælkerinn
Sjávarréttarsalatið er spari
- segir Helga Gunnarsdóttir sælkeri
„Ég nota þennan rétt gjarnan þeg-
ar ég er með stórar veislur. Þetta er
spariréttur hjá mér og ofsalega vin-
sæll. Bestur held ég að mér finnist
hann á undan nautakjöti," segir
Helga Gunnarsdóttir, sælkeri dags-
ins. Hún býður upp á sjávarréttar-
salat sem forrétt og síðan pönnu-
kökutertu með rifsbeijum og hlá-
berjum.
Hráefni
300 g hörpuskel
300 g rækjur
100 g krabbakjöt (súrimi)
1 rauð paprika
1 laukur
3 epli
1 púrra
karrí
hvítlaukur
paprikuduft
hvítvín
sýrður rjómi (2 dósir)
Aðferð
Paprika, laukur og púrra eru látin
krauma smástund í smjörlíki á
pönnu. Karríið sett út i eftir smekk
og síðan eplum, hvítlauk og papriku-
dufti bætt út í. Því næst er hvítvíni
hellt út á pönnuna
og hörpudiskurinn
látinn malla í þessu
öllu í um það bil
eina mínútu. Rækj-
ur og krabbakjötiö
fara síðast út á
pönnuna. Þessu er
siðan öllu blandað
saman við sýrðan
ijóma, 2 dósir ættu
að nægja. Best er að
láta þetta bíða yfir
nótt. Bæði má
krydda þetta með
salti og meira karríi
ef viU, daginn eftir.
Þetta sjávarréttar-
salat má bæði bera
fram heitt og kalt.
Berið fram með ný-
bökuðum smjör-
deigslengjum (fæst
frosið í matvöru-
verslunum). Það er
skorið í fingurlangar
lengjur og bakað
eins og segir tU um Helga Gunnarsdóttir aö búa rifsberin undir að fara í gómsæta pönnukökutertuna.
á pakkanum. DV-mynd Sigrún Lovísa.
Pönnukökutertan
Pönnukökumar eru bakaðar að-
eins í þykkra lagi. Lagðar saman
með rifsberjum og þeyttum rjóma
og bláberjum og þeyttum rjóma.
Tertan er höfð eins há og hver viU
en best er að láta hana bíða í eina
klukkustund. -sv
Italskt
ávaxtasalat
Þegar fjöldi manna er
væntanlegur eru menn oft
í vandræðum með hvað
skuli bjóða upp á. Hér
kemur uppskrift að afar
gimilegu ítölsku ávaxta-
salati sem ætlað er fyrir
15 manns.
matgæðingur vikunnar
Guðbjörg Bjömsdóttir býður upp á Chow chow og eplaköku:
Vil ekki verða leið á honum
Hráefni
600 ml appelsínusafi
rifinn börkur af
2 sítrónum
6 msk. sítrónusafi
125 g svört kirsuber
y2 melóna
3 bananar
4 nektarínur
1 mangóávöxtur
3 ferskjur
125 g apríkósur
4 græn epli
2 perur
125 g hvítt greip
25-50 g strásykur
10 msk. Maraschino
líkjör
Aðferð
Hellið appelsínusafan-
um og berkinum og safan-
um úr sítrónunni í stóra
skál. Undirbúiö að setja
ávextina í skálina: Takið
steinana úr kirsuberj-
unum; skerið melónuna í
litla bita; skerið banan-
ana; steinhreinsið og sker-
ið nektarínurnar,
mangóið, ferskjurnar og
apríkósurnar; kjarn-
hreinsið og skerið eplin og
pemrnar. Setjið greipið út
í og hrærið öllu vel sam-
an.
Sáldrið strásykrinum
yfir og hellið líkjörnum út
í. Hrærið vel. Hyljið og
kælið í eina klukkustund.
Berið fram með rjóma og
„Ég hef ekki hugmynd um hvaðan
þetta nafn er komið en réttinn nota
ég svona frekar spari. Fyrir fimmtán
áram var ég alltaf með einn tilrauna-
rétt í hverri viku og þetta er einn
fárra sem ég nota aftur og aftur.
Reyndar reyni ég að vera ekki með
hann alltof oft því ég vil alls ekki
verða leið á honum,“ segir Guðbjörg
Björnsdóttir sem býöur upp á Chow
chow og eplaköku.
Eplakaka Helgu ömmu
150 g smjörlíki
200 g sykur
2 egg
200 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
2 epli
hnetuspænir og kanilsykur
Þeytið smjörlíki, sykur og egg
saman og blandið þurrefnunum út í.
Eitt og hálft epli er brytjað smátt út
í og deigið sett í form. Hálft epli skor-
ið í báta og sett ofan á deigið. Stráið
hnetuspæninum og kanilsykri yfir.
Bakið i u.þ.b. eina klst. við 200° hita.
„Þetta er mjög góð kaka og ekki
verður hún verri við að hafa með
henni ís eða rjóma,“ segir Guðbjörg.
Hún skorar á samstarfskonu sína,
Bryndísi Halldórsdóttur, til þess að
vera næsti matgæðingur.
-sv
Hráefni
800-900 g
nautakjöt
1 stór laukur
1 græn paprika
1 rauð paprika
300 g
ferskir sveppir
3 msk.
tómatkraftur
1 lítil dós svepp-
ir (með vökva)
1 lítil dós an-
anas (án vökva)
1 lítil dós maís-
kom (án vökva)
iy2 tsk. karrí
Yz-Vi lítri rjómi
smjör til steik-
ingar
Aðferð
Brúnið kjötið á
pönnu í smjöri og
stráið karríi yfir.
Steikið sveppi,
lauk og papriku á
pönnu. Allt saman
sett í pott ásamt
niðursoðnu svepp-
unum, tómatkrafti
og rjóma. Látið
malla við vægan
hita þar til kjötið
eru orðið meyrt.
Maísbaunir og an-
anas sett út í síð-
ast og hitað með.
Berið fram með
hrísgrjónum og
hvítlaukshrauði.
Guöbjörg Björnsdóttir matgæðingur býöur upp á rétt sem hún vill helst ekki nota hversdags.
Eplakakan hennar Helgu ömmu. DV-mynd Pjetur
Núðlur með
fiskisósu
10 ansjósur
2-3 msk. mjólk
75 g smjör
1 stór saxaður laukur
1- 2 hvítlauksgeirar,
saxaðir mjög smátt
150 ml þurrt hvítvín
250 ml fiskisoð
175 rækjur
salt og pipar
2- 3 msk. söxuð persilla
500 g ferskar núðlur
skreyta má með ópilluðum
rækjum eða ansjósuflökum.
Látið ansjósurnar standa í
mjólk I um 30 mínútur. Látið síð-
an leka af þeim, skerið niður og
leggið til hliðar. Bræðið 50 g af
smjörinu á pönnu og brúnið lauk-
inn í smjörinu. Setjið hvítlaukinn
út í og eldið í eina mínútu. Hellið
víninu út á pönnuna, látið suðuna
koma upp og sjóðið kröftuglega
þar til helmingurinn er gufaður
! upp. Þessu næst er fiskikrafturinn
settur út í, ansjósurnar og rækj-
umar og salt og pipar eftir smekk.
Sjóðið án loks í tvær mínútur.
Takið af hitanum og stráið persill-
unni yfir.
Sjóðið núðlurnar þar til þær era
nærri tilbúnar (al dante). Sigtið
vatnið af þeim og setjið á heitan
disk. Setjið restina af smjörinu út
á og blandið vel.
Hitið sósuna í eina mínútu,
hellið yfir núðlurnar og blandið
vel. Berið fram strax með
parmesanosti. Rétturinn er fyrir
sex.
Fiskisoð
Til þess að gera fiskisoðið er
haus og bein af fiski sett í pott
ásamt einum lauk, einni gulrót og
bouquet gami. Hellið köldu vatni
út á, látið suðuna koma upp og lát-
ið malla í eina klukkustund. Sigt-
ið.
Sveppa- og lauk-
pottréttur
50 g smjör
500 g saxaðir laukar
500 g sneiddir sveppir
200 ml kraftur
2 msk. sérrí
2 msk. sítrónusafí
salt og pipar
söxuð steinselja til skrauts
Aðferð
Bræðið smjöriö í eldföstum
potti. Setjið laukinn út í og steikið
í 10 mín. eða þar til hann er orð-
inn mjúkur. Bætið sveppunum,
kraftinum, sérríinu og
sítrónusafanum út í og saltið og
piprið eftir smekk. Setjið lok á
pottinn og eldið í 180 gráða heitum
ofhi i 15 mín. Berið fram heitt og
skreytið með steinselju.
-sv