Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1997, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
isuðurskautið«
„Það var einhver hópur úti á bát
sem tilkynnti í talstöðina að há-
hyrningar væru í kringum bátinn
og að þeir yrðu að forða sér í land,
út í eyju sem var algerlega friðuð.
Maðurinn sem kallað var í sagðist
þurfa að athuga hvort hann gæti
leyft þeim að fara í land. Hópurinn
var í mikilli klemmu og sagðist fara
í land, með eða án leyfis. Eftir þetta
fór maður að velta fyrir sér áhersl-
unum, hvort væri mikilvægara frið-
uð eyja eða mannslíf."
Fyrir kom að ís legði að landi
með miklum hraða og tvísýnt var
hvort bátarnir gætu siglt. Laus is
gat legið við land dögum saman.
Hann var þá hvorki nógu þéttur til
þess að hægt væri að ganga á hon-
um né nógu gisinn til þess að sigla
mætti í gegnum hann. Að sögn Ás-
rúnar eru plasttunnur með öllum
viðlegubúnaði úti í öllum eyjunum.
Fyrir hafi komið að fólk hafi ekki
komist i land og þá hafi það þurft að
gista. Það sé þó ekki spennandi
kostur þegar veðurhamurinn minni
á sig. Þá geti kuldinn orðið rosaleg-
ur og hreint ekki gaman að þurfa að
vera úti í tjaldi.
Sólarlagið yndislegt
Spurð um frístundimar segir Ás-
rún að lífið á Palmer hafi breyst
með tilkomu Internetsins á síðasta
ári. Þá hafi fólk eytt meiri tíma en
áður við tölvurnar.
„Annars var sólarlagið eitt það
yndislegasta þarna. Fólk gat setið
löngum stundum og hoift á sólina
setjast. Flestir þama hafa mikinn
áhuga á allri útiveru, gönguskíða-
ferðum og bátasiglingum og síðan
voru heiti potturinn og lyftingasal-
urinn vinsælir."
Spurð um geðheiisu fólks í ein-
angrun af þessu tagi segir hún að
nú sé skipt um áhafnir á hálfs árs
fresti. Þrátt fyrir að starfsfólkið sé
ekki sátt við það sé stefnt að því að
lengja þennan tíma upp í ár. Því
verði fylgt eftir með alls konar geð-
rannsóknum.
„Hálft ár í þeirri einangrun sem
er á svona stað getur haft mikil
áhrif á fólk. Fámennið og tilbreyt-
ingarleysið hefur þau áhrif að það
getur orðið mjög sérviturt og látið
ótrúlegustu hluti fara í taugamar á
sér. En þar með er ekki öll sagan
sögð. Það eru mikil viðbrigði að
koma aftur til baka „í menninguna“
sjá allan græna litinn, umgangast
fullt af fólki á ný og ég tala nú ekki
um að þurfa að fara að passa sig á
bílunum."
Sannkölluð ævintýraferð
Ásrún Ýr er nú farin aftur til
Bandaríkjanna þar sem hún er að
vinna úr þeim gögnum sem hópur-
inn aflaði sér við rannsóknirnar á
mörgæsunum.
„Það hefur lítill tími gefist til þess
að spá nokkuð í niðurstöðurnar. Ég
verð i þessu í ár og þá taka við önn-
ur verkefni. Ég hafði einbeitt mér
að fiskinum í náminu og átti eigin-
lega frekar von á því að fara til
Grænlands en Suðurskautslandsins.
Þetta var sannkölluð ævintýraferð
og ég á eftir að búa að henni alla
UmboOsmenn um land allt.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 69 15 OO
Rannsóknarskipið Polar Duke er lífæö stöðvarinnar. Það flytur fólk og nauð-
synjar á þriggja til sex vikna fresti.
ævi,“ segir Ásrún Ýr Kristmunds- stöðinni á Suðurskautslandinu. -sv
dóttir erfðafræðingur, eini íslending-
urinn sem dvalið hefur á Palmer-
í stærðtræði
Mikið úrval
reiknivéla
Verð frá:
1699 kr
staðgreítt
SET ehf. Eyravegur 41-45, 800 Selfoss
SET vatnsrör úr PE og PP
efni eru framleidd í öllum
víddum frá 16 til 500 mm að
þvermáli. Rörin henta vel í
vatnsveitur, hitaveitur, snjó-
bræðslu, ræsi o.fl.
Röraverksmiðja SET á
Selfossi hefur yfir að ráða
fullkomnustu tækni sem
völ er á við framleiðslu á
plaströrum og leggur
áherslu á vöruvöndun og
góða þjónustu við íslenska
lagnamarkaðinn.