Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1997, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
fyrír 15 árum
Um 1600 manns á Melarokki:
Krúnurakaðir og
með strý upp í loftið
V* uxtin itítnéwd mMni
„Sumirkrúni
rakaðir og
með s trý
uppíloftjð”
mitrc
if¥mSSi
aSSi
„Æ! Það fór hálfgerður hrollur
um mig að sjá unglingana. Hvernig
þeir voru málaðir.
ff■ I m j m Svo settu þeir alis
lyril konar vitleysu
arum
utan á líkamann. Sumir höfðu
krúnurakað sig og höfðu strý
beint upp í loftið. Ég er að vísu
orðinn aldraður en mér leist
ekkert á unglingana," sagði
starfsmaður Melavallarins þear
DV ræddi við hann fyrir 15
árum. Þá var rokkhátíðin
Melarokk nýafstaðin.
Melarokk var kallaður
konsert aldarinnar á
íslenskan mælikvarða þar
sem tuttugu innlendar
hljómsveitir fluttu
frumsamið efni. Mennirnir
sem stóðu á bak við
tónleikana kölluðu þá Rokk-
festival. Tónleikarnir voru
stærstu og lengstu
útitónleikar sem haldnir
höfðu verið en boðið var
iiklist
upp
á 10 tíma stanslausa
tónlist. Þarna
þótti á ferðinni
þverskurður af
þeim
vaxtarbroddi
sem hlaupið
hafði í íslenskt
tónleikahald
tveimur til
þremur árum
áður. Meðal þeirra
sem komu fram
voru Þeyr, sem
þótti í fremstu röð
íslenskra
hljómsveita og hafði
fengið lofsamlega
umfjöllun í erlendum
blöðum,
Baraflokkurinn,
Bandóðir, Vonbrigði,
Pungó og Daisy, Lola,
Grýlurnar, eina
kvennahljómsveitin,
Purrkur Pillnikk, þar
sem Einar Örn
Benediktsson söng, og
Tappi Tíkarrass, þar
sem Björk sá um
sönginn.
Skipuleggjendur
Melarokks voru frekar
óhressir með að ekki
Æfingar hafnar hjá LR á Ástarsögu 3:
Leikararnir brugðu á leik í Öskjuhlíöinni og glugguðu í helgarblað DV. Þetta eru þeir Arni Pétur Guðjónsson, Þor-
steinn Gunnarsson og Þórhallur Gunnarsson.
DV-myndir E.ÓI.
Æfingar hófust aftur í vikunni að
loknu sumarfrii Leikfélags Reykja-
víkur á leikriti Kristínar Ómars-
dóttur, Ástarsögu 3. Leikritið verð-
ur frumsýnt á Litla sviði Borgar-
leikhússins 12. september næstkom-
andi. Það er eitt þeirra verka sem
hlutu verðlaun í leikritasamkeppni
LR vegna 100 ára afmælis þess.
Melarokk í fullum gangi á gamla Melavellinum. Myndin er tekin af svölum
Hótels Sögu. DV-mynd S
skyldu fleiri áhorfendur mæta.
Taiið var að um 1600 manns hefði
mætt en hrollkalt var þennan
laugardag síðast í ágúst.
Starfsmaðurinn sem talað var við
Einar Örn Benediktsson.
sagði að töluvert margir hafi verið
með pela með sér en annars hafi
þetta farið prýðilega fram. „Engin
slagsmál eða læti nema bara
smávegis," sagði hann við DV.
Einar Örn segir að á Melarokki
hafi Purrkstímabilið, sem stóð í 15
mánuði, endað en þetta hafi verið
gróskumikill og skemmtilegur tími.
„Það voru allir að gera eitthvað
og menn létu sig hafa það að spila
hvar sem er. Ég á góðar minningar
frá þessum tíma. En þessir
tónleikar voru á vissan hátt endir á
líflegu tímabili sem hófst á
tímabilinu 1979-1980.“
í dag eru ekki skipulagðir
tónleikar af sömu stærðargráðu og
Melarokk enda þykir vanta
mannskap til að standa undir slíkri
uppákomu. En gróskan er engu að
síður til staðar. „Það er allt á fullu í
Hinu húsinu og Norðurkjallara MH
svo ég nefni dæmi,“ segir Einar.
Nú í haust er Einar Öm búinn að
vera í hljómsveitar- og
tónleikabransanum í 17 ár. Hann
kemur að undirbúningi tónleika
Skunk Anansie en fer brátt að draga
saman seglin á þessum vettvangi.
„Nú er nóg komið. Ég ætla að
gerast tedrengur, laga te,“ segir
Einar Öm.
Leikarar era þrír, þeir
Þorsteinn Gunnarsson, Þórhallur
Gunnarsson og Árni Pétur Guðjóns-
son. Leikstjóri er Auður Bjamadótt-
ir.
Leikhópurinn nýtti sér góða veðr-
ið í vikunni og æfði utandyra, nán-
ar tiltekið í Öskjuhlíðinni. Stemn-
ingin var góð i hópnum enda ekki
annað hægt í blíðviðrinu.
í kynningu á verkinu segir að
Ástarsaga 3 fjalli um ástir og vin-
áttu, í senn rómantísk og djörf saga.
Villst í ástarskóg
„Höfundurinn leiðir okkur inn í
táknrænan ástarskóg sem fólk
villist í og týnist. Við ráfum um
þennan skcg á mörkum draums og
veraleika. .g ótal spumingar vakna.
H\ ar liijgja mörk ástar og vináttu?
f'líðu og hörku? Draums og vera-
.eika? ímyndunarafli Kristínar
Ómarsdóttur virðast lítil takmörk
sett og óþrjótandi uppátækin í stíl
og persónusköpun. Textinn er oft á
tíðum grallaralegur en um leið afar
ljóðrænn, blíður, angurvær og fynd-
inn,“ segir m.a. í kynningunni.
Kristín Ómarsdóttir er fædd í
Reykjavík 1962. Ástarsaga 3 er
hennar fjóröa leikrit. Önnur era
Draumar á hvolfi, sýnt í Þjóðleik-
húsinu 1987, Hjartatrompet, sýnt í
íslenska leikhúsinu 1990, og Mar-
grét mikla, sýnt hjá Lundúnaleik-
hópnum í fyrra. Kristín hefur
einnig samið ljóðabækur, örsögur,
smásögur og skáldsöguna Dyrnar
þröngu sem kom út hjá Máli og
menningu fyrir tveimur árum og
vakti nokkra athygli. Um þessar
mundir er Kristín að leggja síðustu
hönd á skáldsögu sem væntanleg er
á markað í vetur.
Leikmynd og skemmtilega
skrautlegir búningar eru í hönnun
Þórunnar Jónsdóttur, Lárus Björns-
son sér um lýsingu, hljóðmeistarar
era Ólafur Örn Thoroddsen og Há-
kon Leifsson og sýningarstjóri Ást-
arsögunnar er Jón Þórðarson.
-bjb