Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1997, Side 16
'
\ I.
16
tjornur
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
Fína og fræga fólkið kemur gjarnan á Hótel Sögu þegar það heimsækir ísland:
Heitasta
gestabókin
Louis Armstrong, Ella Fitzgerald,
Charlton Heston, Olympia Dukakis,
Hussein Jórdaníukonungur, Filipus
drottningarmaöur, Damon Albam,
The Platters, Isabel Allende, Michel
Platini, Ivan Rebroff, Vaclav Havel,
Shimon Perez, Jerry Seinfeld. Hvað
skyldu þessi nöfn eiga sameiginlegt?
Jú, fyrir utan það að vera heims-
fræg þá hefur þetta fólk komið til ís-
lands á undanförnum áratugum og
allt gist í svítunum á Hótel Sögu.
Helgarblað DV fékk nefnilega leyfi
hótelstjórans á dögunum til að rýna
í gestabókina sem allt fina og fræga
fólkið skrifar i. Þar má finna ofan-
greind nöfn og fullt af öðrum. Bæk-
urnar eru orðnar tvær frá stofnun
hótelsins 1964.
í svítunum hafa gist kóngar,
drottningar, prinsar, prinsessur,
forsetar, ráðherrar, háttsettir emb-
ættismenn, kvikmyndastjörnur,
poppstjömur, tískuhönnuðir, rithöf-
undar, íþróttamenn, viðskiptajöfrar
og aðrir þeir sem hafa þótt nógu
merkilegir til að komast í þessa
góðu gestabók.
Jónas Hvannberg hótelstjóri segir
að þessir gestir séu yfirleitt mjög
áhugaverðir. Þeir gefi misjafnlega mik-
ið af sér. Sumir vilji algjörlegan frið en
aðrir gefi færi á nokkrum samskiptum.
„Sumir koma aftur og aðrir með
margra ára millibili. Það er
skemmtilegt með stjórnmálamenn-
ina að þeir koma kannski fyrst sem
óbreyttir þingmenn en næst sem
ráðherrar, jafhvel forsætisráðherr-
ar eða forsetar,“ segir Jónas.
Trúnaður og leynd
Starfsmenn eru bundnir trúnaði
um að upplýsa ekki hverjir gista á
hótelinu á meðan á dvöl þeirra
stendur, hvort sem það eru kóngar
eða almennir ferðamenn. Jónas seg-
ir ganga misjafnlega vel að halda
þessu leyndu með stjörnumar, eftir
því sem þær fari oftar út úr húsi sé
þeim mun líklegra að fréttist af dvöl
þeirra hér. Ekki síst ef þær fari á
öldurhús borgarinnar.
Fjölmiðlar hafa skiljanlega mik-
inn áhuga á stjörnunum þegar þær
koma hingað og fylgja þeim stíft eft-
ir. Það hefur hins vegar gerst
nokkrum sinnum, að sögn Jónasar,
að fjölmiðlar hafa „misst af‘ þeim.
Það séu reyndar ein bestu meðmæli
síns starfsfólks! Þannig gisti eigandi
Harrods í London og mögulegur til-
vonandi tengdapabbi Díönu prins-
essu, Mohammed A1 Fayed, á Sögu
þijár nætur nýlega án þess að nokk-
ur fjölmiðill vissi. Auðjöfurinn ferð-
aðist m.a. um Suðurland og hitti
fjölda fólks. Þetta upplýstist ekki
fyrr en í frétt i DV - eftir að kapp-
inn var farinn!
Víkjum aftur að gestabókunum.
Misjafnt er hvað fræga fólkið skilur
eftir sig i bókinni. Flestir skrifa ein-
göngu nafnið sitt, sumir skrifa
reyndar ekki neitt, af einhverjum
ástæðum, en margir skrifa smáum-
mæli um dvölina og þakkarkveðjur.
Oft er það
reyndar fyr-
ir færustu
hand-
rita-
Jónas Hvannberg, hótelstjóri Hótels Sögu, flettir gestabókunum sem stjörn-
urnar hafa skrifað í undanfarna áratugi. DV-mynd JAK
sérfræðinga að skilja skriftina
þannig að starfsmenn hótelsins hafa
verið svo forsjálir að setja skýring-
ar neðanmáls á síður bókanna.
Hér á síðunni getur að líta aðeins
brotabrot úr bókunum tveimur. Lík-
lega hcifa varla áður birst jafn marg-
ar eiginhandaráritanir fræga fólks-
ins á einum stað í íslenskum fjölm-
iðli! -bjb
Leonard Cohen, júní 1988.
Bobby Charlton,
13. maí 1972.
Francois Mitterand,
ágúst 1990.