Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1997, Qupperneq 19
JLÞ'W LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
350-400 manns í fimmtugsafmæli Úlfars Eysteinssonan
hann í maraþonið
— getur nú sest í „helgan stein"
helgur *
teinn
Úlfar Eysteinsson fékk heilmikla samsuðu í afmælisgjöf frá Lionsfélögum
sínum, hinn helga stein. Par getur hann dúllað sér við áhugamálin þegar
hann sest í steininn helga. Þar má sjá stýrið úr rallinu, statíf fyrir veiðistöng-
ina, steikarpönnuna, fótanuddtækiö og bumbubanann.
Börnin með pabba gamla, Guöný Hrönn og Stefán.
Úlfar með eiginkonunni, Þuríði
Jörgensen, á afmælisdaginn.
Nýja og gamla útlitið. Miklu frísklegri og unglegri með þaö nýja, engin
spurning.
„Félagar mlnir skráðu mig í
maraþonið sér til gamans og þrátt
fyrir að veislan hafi staðið til að
ganga sex um morguninn var ég
mættur við rásmarkið þrjár mín-
útur yfir ellefu. Ég ætlaði bara að
láta taka af mér mynd til þess að
geta sagst hafa hlaupið en þegar til
kom var bara ein mynd eftir á
filmunni. Ég varð því að hlaupa
skemmtiskokkið til þess að fá
verðlaunapening sem sönnunar-
gagn,“ segir Úlfar Eysteinsson,
matreiðslumaður, rallkappi,
sjóstangveiðimaður og guð má
vita hvað. Hann varð fimmtugur á
laugardaginn var.
Greip um höfuðið
Úlfar segist hafa hitt félaga sinn
og gest úr veislunhi þegar hann
var að koma „hlaupandi“ í mark
Á milli 350 og 400 manns mættu í veisluna í Félagsheimili Kópavogs. Nokkrir vinir hans, kannski fyrrverandi núna,
tóku sig til og vöktu afmælisbarnið fyrir klukkan sjö. Tómir Mackintoshbaukar voru barðir og söngvar „sungnir".
og sá hafi gripið um höfuð sér. Svo
ótrúlegt fannst honum að sjá hann
í sporum hlauparans.
Á milli 350 og 400 gestir heiðr-
uðu Úlfar í tilefni dagsins í Félags-
heimili Kópavogs. Hann fékk
margar góðar gjafir, t.a.m. vara-
dekk sem búið var að sjóða á fest-
ingu fyrir vodkaflösku. Fleiri
flöskur fékk hann festar á ýmsa
hluti, suma svo þunga að hann
getur ekki hellt úr þeim með góðu
móti.
„Sjóstangavinir mínir á Hegra-
nesi komu með búr. Þar inni var
koníaksflaska og konan fékk af-
Ulfar Eysteins
fimmtugur
- við Úllen-dúllen doff
Ómar Ragnarsson samdi
brag um Úlfar í tilefni dags-
ins. Hann má syngja við lagið
Úllen-dúUen-doff og er svona:
Úllen-dúllen-doff,
kikelani-koff,
koffe-ane-bikke-bane,
Úllen-dúllen-doff.
Úlli dúllar hér,
Úlli dúllar þar,
Úlli dúllar sér við það
að steikja steikumar.
Úlli í gæsunum,
Úlli í veiðunum,
Úlli dúllar, Úlli rúllar,
eftir leiðunum.
Úlli skrallari,
Úlli trallari,
Úlli er góður,
Úlli er óður,
akstursrallari.
Úlli er ekki mjór,
Úlli er oröinn stór,
Úlli er orðinn fimmtugur
og Úlli er aldrei sljór.
Úlli er alltaf hress,
Úlli er ei með stress,
Úlli, hann er vinur okkar
einmitt vegna þess.
Úllen-dúllen-doff,
kikelani-koff
koffe-ane-bikke-bane,
Úllen-dúllen-doff.
ÚOa fyUum við,
ÚUa tryllum við,
því Úlli hann á afmæli
og ÚUa hyUum við.
hentan lykU að búrinu," segir Úlf-
ar sem varð að drífa sig norður til
Akureyrar nú um helgina tU þess
að taka þátt í sjóstangaveiðimóti.
Því var frestað um síðustu helgi
vegna afmælisins.
Var orðinn svo grár
Athygli undirritaðs vakti hið
nýja útlit afmælisbarnsins, rak-
aður í bak og fyrir. Hann segist
hafa verið svona frá því í fyrra en
safni smáhári í kuldanum yfir vet-
urinn.
„Ég var farinn að taka eftir því
á myndum að hárið var orðið svo
grátt og skeggið eiginlega lika.
Mér fannst ég eitthvað svo grár og
veiklulegur að ég ákvað bara að
hressa mig við og láta aUt fjúka,“
segir Úlfar Eysteinsson síungur.
-sv
Cherokee Sport á einstöku
númeri!
Jeep Cherokee Sport
Frá 2.670.000 kr.
Sport-útfærslan af hinum sígilda Jeep Cherokee
býður upp á amerísk þægindi, styrk, snerpu og
glæsilegt útlit. Ekki spilíir fyrir ánægjunni að
verðið er óbreytt þrátt fyrir hækkun á gengi
Bandaríkja- dollars: Hann kostar svipað og
„venjulegur" jeppi!
Með öllum nýjum amerískum bílum frá Jöfri
fylgja nú einkanúmer að eigin vali. Þú merkir
bílinn eins og þér sýnist, við greiðum kostnaðinn.
Skemmtu sjálfum þér og öðrum - innanbæjar
jafnt sem á fjöllum uppi!
Nýbýlavegi 2 • sími 554 2600
Umboðsmenn um land allt:
Akranes, Akureyri, Egilsstaðir,
Höfn, Selfoss, Reykjanesbær.
Opið laugardaga frá 12-16