Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1997, Side 26
26
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
%nglingar
Örn Arnarson og Hjalti Guðmundsson synda í fjóra tíma á dag:
Vakna hálffimm
- fyllilega þess virði, segja strákarnir
„Skólafélagar okkar eru oft
hissa á því að við skulum nenna að
standa í öllum þessum æfmgurn en
okkur flnnst þetta fyllilega þess
virði. Við stefnum að þvi að ná ár-
angri í þessu og til þess þarf þrot-
lausa vinnu. Þegar fram líða
stundir er hugsanlegt að sundið
hjálpi okkur á styrki í skóla er-
lendis og því má líta á þetta sem
fjárfestingu til framtíðar," segja
sundmenn framtíðarinnar, Örn
Arnarson, 16 ára, og Hjalti Guð-
mundsson, 19 ára, báðir í Sundfé-
lagi Hafnarfjarðar.
Örn og Hjalti eru nýkomnir til
landsins eftir þátttöku á heims-
meistaramóti í sundi í Sevilla á
Spáni og náðu þar báðir mjög góð-
um árangri. Hjalti varð í 20. sæti í
200 metra bringusundi, setti þar ís-
landsmet en var síðan aðeins frá
sínu besta í 100 metra bringusundi.
Hann hefði enda miðað við að vera
í toppformi á síðasta móti. Örn mið-
aði hins vegar við að toppa fyrir
mótið á Spáni og það skilaði sér.
Hann náði heimsmeistaramótslág-
marki í 200 metra baksundi, varð
16. og komst þar með í B-úrslit.
Hann bætti sig í 200 metra skrið-
sundi og 400 metra flugsundi, var að
vonum sáttur við það og segist vera
að byrja að æfa fyrir heimsmeist-
aramótið sem fram fer í Ástralíu í
jcmúar á næsta ári.
Sundið á uppleið
„Ég stefni að því að komast í B-
úrslit og setja íslandsmet. Nái ég
því get ég vel við unað,“ segir Örn.
Aðspurðir um stöðuna í sund-
íþróttinni segja þeir sundið vera á
uppleið hér á landi eftir nokkra
lægð. Til marks um það sé að eng-
inn hafi átt von á að nokkur næði
lágmörkum fyrir stórt unglingamót
í Lúxemborg fyrir nokkru. Tuttugu
krakkar hafi hins vegar, þvert á all-
ar spár, náð lágmörkunum og fariö
utan.
„Það kom nokkur lægð eftir að
Eðvarð Þór og Ragnheiður Runólfs-
dóttir hættu en nú er þetta allt á
uppleið. Öm var t.d. langyngstur
strákanna á mótinu á Spáni og ég
var yngstur í mínu sundi. Það er
fullt af mjög efnilegu sundfólki að
bætast við,“ segir Hjalti.
Tveir skólar
Strákarnir eru báðir nemar í
Flensborgarskóla í Hafnarfirði og
segjast ekki geta neitað því að sund-
ið taki tíma frá skólanum. Þeir
segja það reyndar taka svo mikinn
tíma að það sé eins og þeirra annar
skóli.
„Ég tók það einhvern tíma saman
að ég var jafn marga tíma á sundæf-
ingum og í skólanum," segir Hjalti
og Örn bætir við að þeir þurfi að
vakna klukkan hálffunm á morgn-
ana, mæting ofan í laugina sé
klukkan frnim og síðan sé yfirleitt
æfing á kvöldin lika. Þeir æfa í
lauginni þetta átta til tíu sinnum í
viku og síðan eru þrjár þrekæfmgar
að auki. Strákarnir eru því í um
fjóra tíma á dag að synda. En er
ekki alger bilun að æfa 30 tíma á
viku?
„Jú, jú, það má sjálfsagt segja
það og mörgum finnst það vissu-
lega. Við þurfum helst að vera
komnir í háttinn á milli tíu og ell-
efu á kvöldin og það er kannski
ekki alveg það sem ungt fólk gerir
í dag. Við stefnum að því að verða
Örn Arnarson, 16 ára, og Hjalti Guðmundsson, 19 ára, leggja mikið á sig til
þess að verða sundmenn í fremstu röð.
meðal þeirra bestu og gerum okk- æðingar," sögðu félagarnir og
ur grein fyrir því að það gerist stungu sér til sunds, nema hvað?
ekki nema við æfum eins og brjál- -sv
hin hliðin
Ragnheiður Jónsdóttir, markvörður Vals:
Davíð er bestur!
„Auðvitað urðum við svekktar
og sárar. Við áttum alveg eins
möguleika á sigri. Það var
óheppni að komast ekki í fram-
lengingu og fá þetta mark í lok-
in,“ segir Ragnheiöur Jónsdóttir,
17 ára markvörður Vals, sem var
valin maður leiksins í DV þrátt
fyrir tap gegn Breiðabliki í bikar-
úrslitaleik kvenna um síðustu
helgi, 2-1. Ragnheiður stóð sig
mjög vel og ekki ólíklegt að hún
fari að banka á landsliðsdyrnar á
næstunni. Hún æfði og lék með
Blikunum þar til í fyrrasumar að
hún skipti yfir í Vai. Var nýlega
komin í byrjunarlið Vals eftir að
aðalmarkvörðurinn, Birna
Björnsdóttir, meiddist.
Ragnheiður sýnir hina hliðina á
sér að þessu sinni.
Fullt nafn: Ragnheiður Ágústa
Jónsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 5. júní
1980.
Maki: Enginn.
Börn: Engin.
Bifreið: Engin
Starf: Vinn hjá ORA.
Laun: Þokkaleg.
Hefur þú unnið í happdrætti
eða lottói? Já, 150 krónur í happ-
drætti.
Hvað tlnnst þér skemmtileg-
ast að gera? Fara i bíó og slappa
af.
Hvað finnst þér leiðinlegast
að gera? Vakna á morgnana.
Uppáhaldsmatur: Hryggur og
hamborgari.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn og
kók.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur i dag? Ian Wright hjá
Arsenal. Smeichel er líka góður.
Uppáhaldstímarit: íþróttablað-
ið.
Hver er fallegasti karl sem þú
hefur séð? Rúnar Gauti, systur-
sonur minn.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkis-
stjórninni? Hlynnt.
Hvaða persónu langar þig
mest til að hitta? Celine Dion.
Uppáhaldsleikari: Tom Cruise.
Uppáhaldsleikkona: Sandra
Bullock.
Uppáhaldssöngvari: Celine
Dion.
Uppáhaldsstjómmálamaður:
Davið er bestur!
Uppáhaldsteiknimyndaper-
sóna: Andrés Önd og félagar.
Uppáhaldssjónvarpsefni:
íþróttir.
Uppáhaldsmatsölustað-
ur/veitingahús: Eldhúsið hennar
mömmu.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Enga sérstaka.
Hver útvarpsrásanna finnst
þér best? FM 957.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Þór
og Steini á morgnana í FM 957.
Hverja sjónvarpsstöðina horf-
ir þú mest á? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Enginn sérstakur.
Uppáhaldsskemmtistað-
ur/krá: íþróttavöllurinn, helst
Valsvöllurinn.
Uppáhaldsfélag í íþróttum?
Valur og Man. Utd.
Stefnir þú að einhverju sér-
stöku í framtlðinni? Komast í A-
landsliðið í fótbolta.
Hváð ætlar þú að gera í sum-
arfríinu? Vinna áfram.
Ragnheiður Jonsdóttir er í hópi efnilegustu markvarða landsins. I vinn-
unni ekur hún út vörum fyrir ORA. DV-mynd Hilmar Þór