Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1997, Page 28
28
helgarviðtalið
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
Stiklað á stóru
úr Skúnkasögu
Skunk Anansie hóf feril sinn
í Bretlandi í upphafi árs 1994.
Nafngiftin á annars vegar viö
hið ógeöfellda og illþefjandi
dýr, Skúnkinn, og hins vegar
er það vísun i þjóösögu
Jamaíkabúa sem amma Skin
var vön aö segja henni í æsku.
Aðalsöguhetjan var köngulóar-
maður sem hét Anansie. Þau
bættu Skunk fyrir framan til
að gera ímynd sveitarinnar
aðeins meira „cool“.
„Trommarinn ykkar er léleg-
ur. Ég er miklu betri!“
Ekki leið langur tími frá
stofnun þar til Skunk Anansie
var fyrst uppgötvuð. Það var
af sjálfum Rick Lennox í apríl-
mánuði 1994, sama dag og
Kurt Cobain gaf upp öndina.
Hljómsveitin heillaði hann
það mikið að tónlist hennar
fékk hann til að gleyma dauðs-
falli Cobains! Nokkrum mán-
uðum síðar náði sveitin samn-
ingi við One Little Indian,
sama útgáfufyrirtæki og gaf út
plötur Sykurmolanna og
Bjarkar.
Fyrsta platan sló í
gegn
„Þau“ eru söngkonan Skin,
sem kynnt er rækilega til sög-
unnar hér í opnunni, gítarleik-
arinn Ace, fullu nafni Martin
Ivor Kent, fæddur í Bretlandi í
mars 1967, trommuleikarinn
Mark Richardson, fæddur í
Bretlandi í maí 1970, og bassa-
leikarinn Cass, öðru nafni Ric-
hard Keith Lewis, fæddur á
Barbados í kringum 1970.
Fyrsta smáskífan hét Little
Baby Swastikkka en fyrsta
stóra platan kom út i septem-
ber 1995, Paranoid & Sunburnt.
Meðal laga á þeirri plötu var
Selling Jesus úr framtíðar-
kvikmyndinni Strange Days.
Hljómsveitin kom einnig fram
í þeirri mynd. Fyrsta platan
vakti sannarlega athygli á
Skunk sem náði nokkrum lög-
um ofarlega á vinsældarlista í
Bretlandi. Á nokkrum mán-
uðum seldust 200 þúsund ein-
tök af plötunni í Bretlandi.
Sveitin var kosin sú besta úr
hópi breskra nýliða árið 1995
af lesendum tónlistartímarits-
ins Kerang. Árið eftir gaf sami
hópur sveitinni titilinn Besta
tónleikasveitin.
Næsta plata, Stoosh, kom út
í október á síðasta ári. Lagið
All I want af þeirri plötu hefur
slegið alls staðar í gegn og
fleiri smáskífur af plötunni.
Nú síðast Brazen sem fengið
hefur góðar viðtökur.
Upprunnin í Kings
Cross
Bönnuð á MTV
Hljómsveitin er upprunnin
frá Kings Cross hverfinu í
London. Þau Skin og Cass
voru að hætta í einni hljóm-
sveit þegar þau hittu Ace á
næturklúbbi hans í Kings
Cross. Þau ákváðu að stofna
hljómsveit og fengu Robbie
Hljómsveitin hefur á
skömmum tíma náð miklum
vinsældum í Evrópu, Banda-
ríkjunum og Ástralíu. Hún
þykir bjóða upp á einhverja þá
bestu tónleika sem fást í dag og
myndbönd hennar eru mikið
spiluð á MTV. Þess má geta að
eitt myndbandið, Hedonism,
var í fyrstu bannað þar sem
A
f hverju ekki?“ spurði
söngkonan Skin í Skunk
Anansie þegar hún var
* B spurð af hverju hljóm-
sveitin væri að koma aftur til íslands
að spila á tónleikum. Hún lék sem
kunnugt er í Laugardalshöll í vor fyr-
ir troðfullu húsi og bókstaflega gerði
allt vitlaust! Tónleikarnir voru með
því besta sem sést hefur hér lengi og
er hljómsveitin með þeim heitustu í
dag. Skin ásamt þeim Ace, Mark og
Cass ætla að leika í Laugardalshöll
næstkomandi fóstudagskvöld.
Helgarblaðið sló á þráðinn til Skin
í byrjun vikunnar. Hún var þá stödd
í London, á kafi í sjónvarpsupptök-
um. Hljómsveitin hefur verið á tón-
leikaferðalagi um Evrópu til að fylgja
eftir útkomu nýjustu hljómplötunn-
ar, Brazen, sem er hennar þriðja
plata. ísland er viðkomustaður á leið-
inni til Bandaríkjanna þar sem
hljómsveitin heldur nokkra tónleika.
heillast af hljómsveitunum sem hit-
uðu upp fyrir þau í Höllinni í vor,
mundi bara ekki nöfnin á þeim en
til upplýsinga fyrir lesendur voru
þetta Unun og Botnleðja.
Skunk Anansie hefur verið á
ferðalagi um Evrópu eins og áður
segir. Skin sagði þetta hafa verið
frábæra ferð, ein tónlistarhátíð allan
tímann. í fyrra hefðu þau einmitt
verið á tónlistarhátíðum en núna
með sína eigin stórtónleika, enda
mun frægari en þá. Núna hefði tæki-
færi gefist til að skoða sig um í þeim
löndum sem þau fóru til. Hljómsveit-
in hefði gefið sér tíma til að taka
smáfrí í ísrael og spókað sig á sólar-
strönd þar.
Skin sagðist ekki vilja líta á sig
sem rokkstjörnu, til væru frægari
hljómsveitir. Þau sjálf hefðu a.m.k.
lítið breyst á undanfórnum árum.
Allt annað hefði breyst.
Héldum bara tónleikana
og duttum í það!
Upptökur í draugahúsi
„Það er vel við hæfi að koma við
á íslandi. Við fmnum fyrir miklum
áhuga þar og viljum því uppfylla
óskir aðdáenda okkar. Síðasta ís-
landsferð okkar var frábær þrátt fyr-
ir að við stoppuðum þar aðeins í 12
tíma. Við héldum bara tónleikana og
duttum svo í það. Við hlökkum mjög
mikið til núna og munum stoppa
lengur. ísland er mjög sérstakt land.
Þið eruð hálft árið í myrkri og viljið
nota hvert tækifæri til að njóta lífs-
ins. Nú er farið að dimma aftur og
því gaman að geta komið og stytt
ykkur stundirnar," sagði Skin.
Uppnefnið frá mömmu
Island er frábært
Aðspurð hvort hún gæti hugsað
sér að búa hér á íslandi, kaupa íbúð
í Reykjavík líkt og Damon í Blur,
sagði Skin að sér litist ekki illa á
hugmyndina í sjálfu sér en:
„Ég hef svo gaman af að ferðast að
Svo skemmtilega vill til að Skin,
réttu nafni Deborah A. Dyer, verður
þrítug 3. september næstkomandi eða
um það leyti sem hún kemur til ís-
lands. Hún fæddist á Jamaíku en ólst
upp í Brixton-hverfinu í London.
Nafnið Skin er komið frá uppnefni
hennai- í barnæsku, Skinny, sem móð-
ir hennar gaf henni. Skin sagðist hafa
haft mörg uppnefni sem krakki en
þetta hefði fest við sig.
„Ég sé mig ekki fyrir mér uppi á sviöi öskrandi meö Skunk þegar ég verö sextug,"
segir Skin m.a. í opinskáu viötali viö helgarbiaöiö.
Elskar kynlíf
Skin sagði að það ætti að vera öll-
um kunnugt að hún væri tvikyn-
hneigð, hún elskaði kynlíf. Aðspurð
hvort hún hefði reynslu af íslenskum
konum eða körlum sagði hún svo ekki
vera, hún hefði ekki haft tækifæri til
þess í vor hvað sem gerðist um næstu
helgi!
„Annars er ég mjög stillt stúlka.
Við í hljómsveitinni dettum í það eins
og aðrir en notum ekki flkniefni, höf-
um aldrei gert. Allir vita að við höfum
mjög mikið að gera og við værum
ekki komin svona langt hefðum við
verið að sukka í fikniefnum. Við
erum mjög samstillt," sagði Skin.
Kynþáttafordómar víða
Fyrstu tvær breiðskífur sveitar-
innar voru teknar upp í gömlu og
draugalegu sveitasetri skammt frá
London. Andans menn telja sig hafa
séð þar drauga. Skin var spurð
hvort hún hefði séð eitthvað yfir-
náttúrulegt en hún svaraði því neit-
andi. Félagi sinn, Ace, hefði fundið
fyrir einhverju en hann væri alltaf
að finna á sér!
„Einu andarnir (e. spirits) sem
ferðast með okkur eru tequila og
vodka," sagði Skin og hló.
Textar hljómsveitarinnar eru oft
beittir og taka á heitum málefmnn,
s.s. eins og pólitík og kynjamisrétti.
Enda segjast þau ekki semja ástar-
söngva heldur miklu frekar haturs-
söngva. Skin sagðist víða finna fyr-
ir kynþáttafordómum á ferðalögum
sínum, í þau fáu skipti sem hún
fengi tækifæri til að fara út á meðal
fólks, en hún hefði ekki orðið vör
við neitt slíkt hér á íslandi. Annars
ætti hún í erfiðleikum með að fella
dóma um einstök lönd því samskipt-
in við íbúana væru ekki það mikil.
„Hvert land hefur sitt einkenni
en ég held að ég geti fullyrt að kyn-
þóttafordómar séu minnstir á ís-
landi af þeim löndum sem við höf-
um heimsótt. Svartur maður, bú-
settur á íslandi, gæti hins vegar haft
aðra sögu að segja, ég veit það
ekki.“
Peningar skipta engu
Skin sagðist ekki vera rík, pening-
ar skiptu hana litlu. Hún hefði alist
upp í fátækt þar sem hver dagur hefði
verið tekinn fyrir í einu.
„Ég byrjaði snemma að vinna fyrir
mér, vU ekki þiggja peninga frá öðr-
um. Annars er það ekki mitt mikU-
vægasta í lífinu að safna peningum,
ég hugsa um eitthvað aUt annað en
peninga í dag. Frekar vU ég hugsa um
að komast á þá staði þar sem áhugi er
fyrir okkur og plöturnar seljast vel,
sinna aðdáendunrnn."
Skunk Anansie er bókuð langt fram
í tímann og Skin taldi að hljómsveitin
ætti langa lífdaga framundan, þó ekki
eins langa og RoUing Stones!
„Ég sé mig ekki fyrir mér uppi á
sviði öskrandi með Skunk þegar ég
verð sextug. Vonandi verð ég komin í
aðra og rólegri tegund af tónlist, hver
veit?“
Fljót að reiðast
Skin minnir um margt á Grace
Jones hvað limaburð varðar og
ímynd, en röddm er aUt önnur. Hún
sagðist hafa verið sköUótt frá því
hún var tvítug og ahtaf verið svona
horuð. Sumir segja að hún sé ofbeld-
ishneigð en Skin sagði það alrangt.
Hún væri reyndar ekki aUtaf ljúf
sem lamb.
„Ef þú snertir rangar taugar þá
Skin, söngkonan litríka í hljómsveitinni Skunk Anansie, verður þrítug í vikunni í ai
Ætlar að detta ærlei
nokkurn France til að berja
húðir. Hann hætti í sveitinni í
júli 1995 og Mark tók þá við.
Mark kom úr hljómsveitinni
Little Angels og hitti meðlimi
Skunk bara í partíi. Hann
sagði einfaldlega við þau:
tvær konur sáust í heitum
kossaflens! Skunk þurfti að
búa til nýtt og siðlegra eintak
svo myndbandið fengist sýnt á
MTV. KaUa þeir þó ekki aUt
ömmu sína þar!
-bjb
ég vU helst ekki setjast að neins
staðar. ísland er frábær staður, ítal-
ía er það líka og sama er að segja
um London, Sydney og New York.“
Skin hefur hitt Björk og er hrifin
af tónlist hennar, hefur tU þessa ver-
ið hjá sama útgefanda, One LitUe
Indian. Um aðra íslenska listamenn
sagðist hún lítið vita. Hún hefði þó
Hún sagðist vera búin að halda upp
á þrítugsafmælið að minnsta kosti
tvisvar sinnum, fyrst i London á dög-
unum og síðan í Israel langt fram á
morgun!
„Kannski höldum við áfram í
veisluhöldum i Reykjavík og dettum
ærlega í það,“ sagði Skin og hló enn
meir.
bregst ég við, kannski fljótar en
margir aðrir. Ég læt engan vaða yfir
mig og er fljót að reiðast. En ég beiti
aldrei ofbeldi. Við erum pólitísk í
okkar lögum af því að við tökum af-
stöðu. Það er vel hægt að gera án
þess að beita ofbeldi. Við erum ekki
hljómsveit sem fær fólk til að mála
skrattann á vegginn. Við höfum