Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1997, Page 46
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
54 t&fmæli
ik
Til hamingju
með afmælið
30. ágúst
85 ára
Signý Sigmundsdóttir,
Steinadal, Broddaneshreppi.
80 ára
Guðmundur Ólafur
Bæringsson,
Höfðagötu 17, Stykkishólmi.
75 ára
Kristgerður Þórðardóttir,
Skagabraut 25, Akranesi.
70 ára
Þórey Jónsdóttir,
Nesvegi 2, Árskógshreppi.
Jón Magnús Finnsson,
Kjartansgötu 22, Borgarbyggð.
Jóhann Antonsson,
Nesvegi 4, Árskógshreppi.
60 ára
Ingvi Óskar Haraldsson,
bóndi á Fossá á
Barðarströnd.
Kona hans
er Jóna Stella
Jónsdóttir,
húsmóðir.
Þau hjón verða að
heiman á afmælis-
daginn.
Guðbjörg Anna
Pálsdóttir,
Norðurási 4, Reykajvik.
Guöbjörg Anna verður
að heiman á afmælisdaginn.
Baldvin Njálsson,
Lyngbraut 5, Garöi.
Sigrún Sigurjónsdóttir,
Esjubraut 28, Akranesi.
Sandra Kolbrún
Isleifsdóttir,
Sólhlíð 21, Vestmannaeyjum.
50 ára
Aðalbjörg Guðmundsdóttir,
Mánagötu 13, Reyðarfiröi.
Magnús Pétursson,
Strandgötu 3c, Eskifirði.
Þóra V. Jónsdóttir,
Kjarrmóum 11, Garðabæ.
40 áxa
Jón Jónsson,
Hraunbæ 160, Reykjavík.
Einar Ólason,
Lindarsmára 1, Kópavogi.
Jóhanna Sigrfður
Ingadóttir,
Álfaskeiði 74, Haíharfiröi.
Sigrún Þorsteinsdóttir,
Laufengi 68, Reykjavik.
Charlotta Ingadóttir,
Austurgötu 23, Hafharfiröi.
Árni Ámason,
Suðurgötu 7, Reykjanesbæ.
Garðar Ægisson,
Háhlíð 3, Akureyri.
Þórólfur Már Antonsson,
Barónstig 59, Reykjavik.
Þráinn Hauksson,
Brekkuhlið 20, Hafnarfirði.
Hildur Pálsdóttir,
Fannafold 147, Reykjavík.
Sigrún Helga
Valdimarsdóttir,
Heiðarbrún 20, Stokkseyri.
Björg Guðfinnsdóttir
Björg Guðflnnsdóttir,
húsfreyja í Reykjavík, er
85 ára í dag.
Starfsferill
Björg er fædd í Litla-
Galtardal á Fellsströnd
1912. Á fyrsta ári var hún
tekin í fóstur af þeim
hjónunum Sofflu Magnús-
dóttur og Magnúsi Frið-
rikssyni b. á Staðarfelli á
Fellsströnd. Hjá þeim ólst
hún upp til 6 ára aldurs en
flutti þá með Björgu Magnúsdóttur,
dóttur þeirra Staðarfellshjóna, og bjó
hjá henni og Magnúsi Jónassyni,
manni hennar, í Túngarði á Fells-
strönd til 11 ára aldurs. Þá flutti hún
heim til foreldra sinna i Litla-Galtar-
dal. 16 ára flutti Björg til Reykjavíkur
þar sem hún hefur búið síðan. Hún
vann m.a. í vistum og í fiski þar til
hún giftist en vann síðan við Austur-
bæjarskólann í 40 ár við ræstingar,
baðgæslu og sem kafflkona. í 18 ár
vann hún einnig við ræstingar í
Slökkvistöðinni í Reykjavík.
Fjölskylda
Björg giftist 1936 Ragnari Jónssyni,
baðverði við Austurbæjarskólann, f.
12.8. 1912 d. 19.apríl 1991. Foreldrar
hans voru Ingveldur Rut Ásbjöms-
dóttir og Jón Kristjánsson, verkamað-
ur í Reykjavík.
Böm Bjargar og Ragnars em Erla
Hólmfríður f. 25.4.1935, áður ritari við
Félagsmálastofnun Reykjavikur, gift
Hilmari Guðmundssyni búfræðingi,
tamningamanni og bílstjóra. Dóttir
þeirra er Hrönn Hilmars-
dóttir f. 15.6. 1966, BA í ís-
lenskum fræðum, kennari
við Borgarholtsskóla.
Hennar maður er Þorgeir
Adamsson, garðyrkjufræð-
ingur hjá Kirkjugörðum
Reykjavíkur. Þeirra börn
eru Adam f. 1991 og Ragn-
hildur Erla f. 1995. Guð-
finna Sigurbjörg f. 30.3.
1943, jarðfræðingur og
blaðamaður, kennari við
Menntaskólann í Reykja-
vík. Guðflnna var gift Dr.
Jan-Erik Juto, lækni í Stokkhólmi.
Þau skildu. Böm þeirra eru Björg
Jónsdóttir Juto f. 8.1. 1972, nemi í
hjúkrunarfræðum við Háskóla ís-
lands í sambúð með Ingvari Bjama-
syni, nema í verkfræði við Háskóla ís-
lands og Ragnar Jónsson Juto f. 17.11.
1979, nemi við Iðnskólann í Reykja-
vík. Fjarbýlismaður Guðfinnu er Dag-
ur Jóhannesson, bóndi og oddviti
Haga Aðaldal.
Systkini Bjargar eru Ósk f. 1896 d.
1991, verkakona i Reykjavík, Agnes
Guðflnnsdóttir f. 1897 d. 1987 hús-
freyja á Ytra-Skörðugili, Skagaflrði,
Magnús Zophonias f. 1898 drukknaði
1920, Hólmfríður f.1902 d. 1936, Bjöm f.
1905 d. 1950, prófessor við Háskóla ís-
lands, Ólafur f. 1908 d. 1997 húsgagna-
smíðameistari í Reykjavík, Gestur f.
1910 d. 1984, skáld og blaðamaður í
.Reykjavík, Matthías Hildigeir af-
greiðslumaður i Reykjavík, f. 1914 d.
1984 og Pálína, verkakona í Reykja-
vík, f. 1917.
Foreldrar Bjargar voru hjónin Sig-
urbjörg Guðbrandsdóttir f. 1875 d.
1958 og Guðfinnur Jón Bjömsson f.
Á§70 d. 1942, bóndi og búfræðingur
Litla-Galtardal, Fellsströnd.
Ætt
Guðflnnur var sonur Björns b. á
Ytrafelli á Fellsströnd Ólafssonar b.
og hagyrðings á Tannstöðum og
Hlaðhamri Björnssonar. Móðir Guð-
fmns og kona Bjöms var Agnes Guð-
finnsdóttir ljósmóðir Helgasonar b.
Litla-Bakka Miðfirði. Móðir Agnesar
var Jóhanna Hólmfríður Steinsdóttir
(Bama-Steins) Sigfússonar Berg-
manns hreppstjóra Þorkelshóli Víði-
dal, ættföður Bergmannsættarinnar,
Sigfússonar skálds og prests Sigurðs-
sonar Felli. Sigurbjörg var dóttir
Guðbrands b. Vogi Fellsströnd Ein-
arssonar b. Kýrunnarstöðum Einars-
sonar b. Kýrunnarstöðum Jónsson-
ar. Þuríður systir Guðbrands var
amma Ásgeirs Bjarnasonar fv. al-
þingismanns og þingforseta og Einar
bróðir Guðbrands var afi Einars
Kristjánssonar fv. skólastjóra á
Laugum, föður Tómasar Ragnars
bassaleikara. Móðir Guðbrands var
Jóhanna Jónsdóttir, b. á Örlygsstöð-
um í Helgafellssveit Jónssonar en
bróðir Jóhönnu var Jóhann Jónsson
.ættfaðir Laxárdalsættarinnar. Móð-
ir Sigurbjargar var Vigdís Vigfús-
dóttir b. Fagradalstungu Ormssonar
frá Fremri-Langey Sigurössonar sem
Ormsætt er við kennd. Móðir Vigdís-
ar var Guðbjörg Þórarinsdóttir b. í
Ólafsdal Þórinssonar. Systir Vigdís-
ar og fóstra Sigurbjargar var Þuríð-
ur, langamma Gests Magnússonar
cand. mag. og kennara og Sofflu
Magnúsdóttur fv. deildarstjóra hjá
heilbrigðismálaráðuneytinu.
Björq Guöfinnsdóttir.
Erna Kjartansdóttir
Erna Kjartansdóttir, skrifstofu-
stjóri, Miðholti 11, Mosfellsbæ, er
fimmtug í dag.
Starfsferill
Ema er fædd í Vestmannaeyjum
og ólst þar upp svo og í Hafnarfirði.
Á unglingsárunum starfaði hún í
fiski í Vestmannaeyjum og í Hafn-
arfiði en frá árinu 1976 til 1987 var
hún við störf á bílaverkstæði í Mos-
fellsdal. Frá 1990 til 1996 starfaði
Erna í sultugerðinni Búbót, fyrst
sem sölumaður en síðar sem fram-
kvæmdastjóri. Frá 1996 hefur Ema
verið skrifstofustjóri hjá Ræsti-
tækni ehf.
Erna var í stjóm Framsóknarfé-
lagsins í Mosfellsbæ í nokkur ár
auk þess að vera stofnfélagi í Félagi
framsóknarkvenna í Mosfellsbæ.
Hún var ennfremur klúbbfélagi i
Sinawik í Mosfellsbæ frá 1982 til
1989 og var tvisvar kos-
inn formaður á þeim ár-
um.
Fjölskylda
Erna giftist 19.2. 1966
Guðvarði Jóhanni Há-
konarsyni, f. 10.12. 1946,
bílaviðgerðarmanni.
Hann er sonur Hákons
Jóhannssonar, sem nú
er látinn, og Hólmfríðar
Guðvarðardóttur. Hólm-
fríður er búsett að Ás-
braut 5 í Kópavogi.
Ema og Guðvarður
eiga þrjú börn. Þau eru: Hákon,
kvæntur Kristjönu Tómasdóttur og
eiga þau eitt bam, Hólmfríði, f. 4.3.
1996; Kjartan, sambýliskona hans er
Berglind Skarphéðinsdóttir auk
þess sem Kjartan á son með Katrínu
Rúnarsdóttur, Jóhann Rúnar, f.
29.11. 1995; Ósk, sam-
býlismaður hennar er
Magnús Gíslason. Þau
eiga dótturina Ernu
Margréti, f. 20.5. 1995,
og eru búsett í Dan-
mörku.
Systur Emu em þær
Inga Kjartansdóttir, f.
4.5. 1943, búsett i
Reykjavík og Gréta
Kjartansdóttir, f. 19.10.
1952, búsett í Hafnar-
firði.
Foreldrar Emu voru
Kjartan Ólafsson, f. 3.8.
1917, d. 13.12. 1969, kennari og k.h.
Sigríður Bjarnadóttir, f. 6.3. 1915, d.
2.11. 1971.
Hjónin taka á móti gestum í dag,
laugardag 30.8., í Kiwanishúsinu í
Mosfellsbæ, Leirvogstungu, Tungn-
abökkum, milli kl. 16 og 18.
Erna Kjartansdóttir.
Til hamingju
með afmælið
31. ágúst
80 ára
Karólína Stefánsdóttir,
Bergþórugötu 6b, Reykjavík.
Sigríður Kristbjörnsdóttir,
Meltröð 4, Kópavogi.
75 ára
Sesselja Svavarsdóttir,
Garðabyggð 8, Blönduósi.
70 ára
Kristin Jóhanna
Eiríksdóttir,
Sogavegi 94, Reykjavík.
Jón Árni Egilsson,
Hátúni 29, Reykjavík.
60 ára
Bjami B. Ásgeirsson,
Barðaströnd 41,
Seltjamarnesi.
Elsa Georgsdóttir,
Hátúni 12, Reykjavík.
Inga Valdís Tómasdóttir,
Smáragmnd 2, Sauðárkróki.
Margrét Teitsdóttir,
Sörlaskjóli 66, Reykjavík.
Sigrún Friðriksdóttir,
Torfufelli 48, Reykjavik.
Sigurjón Þórarinsson,
Mýrarseli 11, Reykjavík.
50 ára
Brynja Pálmadóttir,
Heiðargerði 11, Húsavík.
Rannveig Hjaltadóttir,
Einibergi 5, Hafnarfirði.
Guðrún Ása Þorvaldsdóttir,
Keilusíðu lOd, Akureyri.
Ólafur Rúnar Jónsson,
Starrahólum 2, Akureyri.
Þórður Þórðarson,
Hlíðarhjalla 57, Kópavogi.
Edda Farestveit,
Hjallavegi 34, Reykjavík.
40 ára
Gróa og Guðný Grímsdætur,
báðar til heimilis að
Ketilvöllum,
Laugardalshreppi.
Þær systur verða með opið
hús í sal Menntaskólans á
Láugarvatni í dag,
laugardaginn 30.8. kl. 20.00.
Gunnar Rúnar Pálsson,
Hramiteigi 24, Reykjavík.
Óskar Jósefsson,
Brekkubyggð 38, Garðabæ.
Þorbjörg Guðrún
Jónsdóttir,
Borgarvegi 35, Reykjanesbæ.
Tómas Jóhannesson,
Skeiöarvogi 77, Reykjavik.
Þorvaldur Nóason
Svavarsdóttir
Kristín Svavarsdóttir,
starfsmaður í eldhúsi
dvalarheimilisins Hlíð-
ar, Hjallalundi 3d, Akur-
eyri, er fimmtug í dag.
Fjölskylda
Kristín giftist 22.7.
1967 Ingimar Tryggva
Harðarsyni, f. 8.6. 1946,
iðnverkamanni. Hann er
sonur Harðar Kristjáns-
sonar og Sigríðar Guð-
mundsdóttur.
Börn Kristínar og Ingi-
mars em Sigurður Hörður Ingimar,
f. 7.8. 1970, búsettur í Reykjavík;
Ágústa Eygló, f. 18.2. 1975, búsett á
Akureyri; Svava Ingibjörg, f. 1.11.
1976, búsett á Akureyri og Heimir
Kristín Svavarsdóttir.
Bjarni, f. 2.9. 1980, bú-
settur á Akureyri.
Systkini Kristínar
em þau Aðalheiður
Sigríður, f. 1.2.1937; Jó-
hanna, f. 21.6. 1940 og
Sigfús Kristinn, f. 23.3.
1944.
Foreldrar Kristínar:
Svavar Sigurðsson, f.
10.5. 1912, d. 23.7. 1976,
brunavörður og Ágústa
Kolbeinsdóttir, f. 26.8.
1915.
Þau voru búsett í
Reykjavík.
Kristín tekur á móti gestum að
Teigi, Eyjafjarðarsveit, eftir kl. 18 á
afmælisdaginn.
Þorvaldur Nóason,
Brönnvegan 16, Sparbu
Noregi, verður fimmtug-
ur 7. nóvember næstkom-
andi, en er staddur á ís-
landi til að halda upp á
afinælið sitt.
Starfsferill
Þorvaldur ólst upp í
Reykjavík en þegar hann
var ellefu ára fluttist
hann með móður sinni og
fósturföður að Sandhóla-
ferju í Djúpárhreppi. Þar
bjuggu þau í fimm ár en fluttu þá á
Selfoss.
Þorvaldur var í Skógarskóla og
Menntaskólanum á Laugarvatni og
að loknu stúdentsprófi var hann eitt
ár í Tækniskóla íslands en lauk
tæknifræöinámi í Noregi.
Hann hefur unnið hjá norsku
vegagerðinni mest alla ævina en
kom til íslands og vann hjá Vega-
Þorvaldur Nóason.
gerð Islands 1975 til
1977 með aðsetur í
Borgarnesi og vann
hjá Þróunarstofnun
Sameinuðu þjóðanna í
Botswana við vega-
gerð árin 1986 til 1988.
Þorvaldur stofnaði
ráðgjafafyrirtæki á
þessu ári og starfar
þar nú.
Fjölskylda
Þorvaldur giftist
27.2.1971 Anne Ström,
f. 25.4.1948. Böm þeirra em: Mar-
grét, f. 9.5.1971, Arne Jakob, f.
2.3.1974 og Ragnhild f. 4.12.1980.
Systkini Þorvaldar samfeðra eru
Ágústa Guðlaug, f. 8.12. 1949, d. 15.5
1950; Jón Sólberg, f. 30. 1953 og
Hulda Björk, f. 27.2. 1956.
Systkini Þorvaldar sammæðra
eru Katrín, f. 13.10. 1958; Sólveig, f.
3.1. 1961 og Anna Snædís, f. 12.2.
1962, Sigmarsdætur.
Þorvaldur er sonur hjónanna Nóa
Jónssonar skipstjóra, f. 9.1.1915, d.
9.3.1956 og Ingimundu Guðrúnu Þor-
valdsdóttur, f. 10.9.1929. Fósturfaöir
Þorvaldar er Sigmar Karl Óskars-
son, f. 1.7.1932.
Systkini hans halda honum kaffi-
samsæti í Sjálfstæðissalnum í
Hamraborg í Kópavogi
laugardaginn 30.8. frá kl. 14 til 17.
a\tt milli him,
'ins
°%
%
Smáauglýsingar
550 5000