Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1997, Side 50
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997 .iTfr'X/*
- :*
58*
myndbönd
r-------
W W
7
/
Rowan Atkinson er einn vinsælasti gamanleikari Breta.
„Heitasta" myndin í Bretlandi
um þessar mundir er ótvírætt Bean:
The Ultimate Disaster Movie og hef-
ur hún slegið öll aðsóknarmet. Mað-
urinn á bak við hinn seinheppna
Bean er Rowan Atkinson. En hver
er þessi maður?
Herra Bean
Margir muna eftir honum úr grín-
þáttunum um Mr. Bean, þekktustu
persónu hans frá upphafi. Bean er
andhetja, eins konar aulaútgáfa af
Chaplin. Hann er manngerðin sem
prófar tannbursta áður en hann
kaupir þá, ýtir bílum annarra út úr
bílastæðum ef þeir eru fyrir og neit-
ar að deila poppinu með kærustunni
í bíó.
Hann lék prestinn i Four Wedd-
ings and a Funeral sem sagði þá eft-
irminnilegu setningu: „í nafhi fóður-
in9, sonarins og hinnar heilögu geit-
ar.“ Hann léði Zazu rödd sína í Lion
King og lék auk þess i Never Say
Never again, The Tall Guy, The
Witches og Hot Shots-Part Deux.
Sjónvarpsþættirnir sem hann hefur
leikið I eru einnig orðnir æði margir,
t.d. hinir óborganlegu þættir um
Black Adder. Þá var hann síðbúinn
meðlimur í Monty Python genginu.
@.mfyr:Hefur meistaragráðu
Rowan fæddist á bóndabæ í Dur-
ham á Englandi 8. janúar 1956. Hann
lauk námi í rafmagnsverkfræði frá
Oxford. Hann bjóst alltaf við að eiga
eftir að vinna á lítilli rannsóknastofu
í miðju Englandi við rafrásir eða
stýrikerfi í tölvum, sem hann sér-
hæfði sig i þegar hann tók meistara-
gráðu sína.
„Ég er feginn því að þegar ég klár-
aði skóla, með allar þessar gráður,
fór ég strax að vinna í útvarpi og
sjónvarpi. Reyndar fannst mér ég
vera hálfgerður svikari - vegna þess
að ég þurfti ekki að berjast í bökkum
í 15 ár, eins og flestir aðrir, áður en
ég var upgötvaður. Frami minn var
mjög skjótur. Ég hafði þess vegna
engan tíma til að sjá eftir því að hafa
ekki haldið áfram í verkfræðinni. Ég
hef oft hugsað til þess þegar ég vann
við hana og aldrei hugsað: Æ, hvað
ég vildi vera verkfræðingur. Núna
hef ég eiginlega gleymt þessu.
Elskar sportbíla
Rowan ekur go-kart bílum um
tennisvellina sína og hefur að sögn
Stephen Fry, sem var svaramaður
hans og lék þjóninn sem gæddur var
stóískri ró í þáttunum Wooster and
Jeeves, ekki dropa af skemmtana-
bransanum í sér. Hann elskar sport-
bíla og á marga slíka, meðal annars
nokkra Aston Martin. Hann skrifar
einnig greinar í breska bílatímaritið
CAR.
En hvaða sjónvarpsefni horflr
maður eins og Rowan Atkinson á?
„Eins og svo margir sjónvarpsleik-
arar horfi ég sjaldan á sjónvarp. Ég
fylgist hins vegar með Formula 1,
það er eitt af stærstu áhugamálum
mínum. En að því frátöldu eru það
aðaflega framhaldsþættir og grín-
þættir sem ég horfl á. Ég hef mjög
gaman af Roseanne en reyni að horfa
ekki á spítalaþætti eins og ER og
Chicago Hope. Það tekur einfaldlega
of langan tíma að horfa á þá.
Ég get aðeins horft á sjónvarp í
hálftíma í senn. Að þeim tíma liðn-
um dettur mér alltaf eitthvað annað í
hug sem mig langar að gera, eins og
að leika mér á bíl, sem er ein uppá-
haldsiðja mín. Ég er enginn sjón-
varpssérfræðingur en ég hef gaman
af hinu og þessu. Ég man eftir að
hafa afltaf reynt að sjá þátt Monty
Python, Flying Circus, sem barn.
Monty Python höfðu mikil áhrif á
mig.“
mjög svipaður og hann er núna.
Hann er í rauninni barn. Það er
kjarni persónunnar - hann er
barn í fullorðnum líkama. Ég held
í rauninni að það sé þetta sem
fólki líkar best við hann. Hann
sýnir óþekktina og sjálfselskuna
sem böm ein geta stundum sýnt.
Mr. Bean er ótrúlega sjálfselsk-
m- maður, í rauninni afskaplega
óheill - mjög hefnigjarn. Hann lít-
ur út fyrir að vera ægilega saklaus
og hið besta skinn en sé honum
ögrað getur hann umturnast í hið
versta skrimsli.
-sf
Það getur verið hættulegt að raka sig.
m m m
mmmmmmmmmmm
Fjölhæfur
leikari
John Cusack er gamafl í hettunni
og hefur leikið í ótal bíómyndum en
hefur í rauninni aldrei skotist óum-
deilanlega upp á stjömuhimininn
fyrr en á síðustu misserum. John
leikur í myndinni Grosse Point
Blank sem sýnd hefur verið um
skeið hér á landi. Hann er einnig
meðframleiðandi að henni og vann
handritið fyrir kvikmyndatökur.
Þekktur leikstjóri
Auk þess að leika í bíómyndum
var hann einn af stofnendum New
Crime Theatre Company, sem er
annað stærsta fyrirtækið í leiklist í
Chicago á eftir hinu fræga Stepp-
enwolf Company. Hann hefur leik-
stýrt nokkrum leikritum fyrir fyrir-
tæki sitt, meðal annars „Amalgaz-
am...After the Dog Years“ og „Met-
husalem", en hann hlaut viðurkenn-
ingu sem besti leikstjóri á hinni
þekktu Joseph Jefferson verðlauna-
hátíð. Hann leikstýrði einnig leik-
riti Hunters S. Thompsons, „Fear
and Loathing in Las Vegas“.
Meðal nýlegra bíómynda með
John má nefna leik hans með
Nicolas Cage og John Malkovich í
spennumyndinni Con Air og City
Hall með A1 Pacino og Bridget
Fonda. Á afrekaskránni er einnig
hin þekkta gamanmynd leikstjórans
Woody Allens, Bullets over Broad-
way, og kvikmyndin eftir bók T.C.
Boyle, Road to Wellville sem
Bridget Fonda lék einnig í.
Undrabarn
John Cusack fæddist í borginni
Evanston í Illinois. Móðir hans var
kennari en faðir hans gerði heim-
ildamyndir og vann meðal annars
Emmy-verðlaunin fyrir verk sín.
Góðir vinir fjölskyldunnar ráku
leiksmiðju þar sem eldri systumar
Annie og Joan byrjuðu að leika, litli
bróðir fetaði svo fljótlega í fótspor
þeirra. Að horfa á hann leika af
fingrum fram var, að sögn leiklist-
arkennara hans, eins og að horfa á
undrabarn í tennis á þeim aldri,
ekkert nema eðlisávísun og áræðni.
Þó að honum hafi alla tíð þótt
geysilega gaman að leika hafnaði
hann formlegri menntun í leiklist.
Þegar hann fór svo í menntaskóla
fór
hann
prufu
fyrir aðal-
hlutverkið í
Hamlet í skóla-
uppfærslu. Hann
fékk hlutverkið ekki.
Raunar fékk hann ekk-
ert hlutverk í verkinu.
Hann vildi ekki sleikja
upp leikstjórann. Lít-
ið hefur breyst. John
lætur ekki ráðskast
með sig.
Nokkrar kvikmyndir með John
Cusack
Grosse Point Blank
Con Air
CityHafl
Bullets over Broadway
The Road to Wellville
The Grifters
Eight Men out
Say Anything
The Sure Thing
Stand by Me
Class
Sixteen Candles
Grandville USA
Better off Dead
One Crazy Sum-
mer
The Journey of
Natty Gann
Tapeheads
-sf
John hefur leikið frá ungaaldri.