Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1997, Side 56
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 30. AGUST 1997
Eyrnalokkar, hringir og kross eru
fest á hlutinn.
DV-mynd Hilmar Pór
Gróttuíjara:
Torkennileg-
ur gripur
„Ég var að ganga niðri i fjöru við
Gróttu með frænku minni þegar
við rákumst á þennan grip. Við
ákváðum að taka hann með heim
rannsaka hann. Mér þótti þetta
' mjög sérstakt. Þarna var skart inn
á milli - kross og hringir - og bréf
sem virðist skrifað á spænsku,"
sagði Helga Pálsdóttir, íbúi í vest-
urbænum, sem fann torkennilegan
grip i íjörunni við Gróttu í vik-
. unni.
Eyrnalokkar, hringir og ýmislegt
fleira virðist hafa verið sett inn í
brenndan, tjörukenndpn grunn
sem fjörusteinar umlykja. Bréf með
erlendu frímerki er einnig á grunn-
inum. Helga fór ásamt DV til gull-
^-jtniðs í gær með gripinn. Hann
taldi ekki að skartið, sem sést mis-
mikið í á gripnum, væri úr góð-
málmum. Á hinn bóginn hefur eng-
inn getað útskýrt hvers konar grip
er um að ræða.
Helga segist ætla að varðveita
gripinn á heimili sínu. Aðspurð um
það hvort hún ætlaði að freista
þess að brjóta hann upp til að
kanna hvort meira skart leyndist
inni 1 efnismassanum, sagði hún:
„Ég tími ekki að taka þetta í sund-
ur. Ég ætla að hafa þetta svona eins
og ég fann það.“
-Ótt
L O K I
Jón Marteinn Jónsson, stjórnarmaöur í Flugunni:
Þetta stóð
víst ansi tæpt
- tveir laxveiðimenn hætt komnir í Blöndu
Tveir veiðimenn sem voru
við veiðar í Blöndu rétt fyrir
ofan Æsustaði í Langadal í
fyrradag voru hætt komnir.
Þeir voru að fara yfir ána þar
sem farið er á báti rétt fyrir inn-
an Æsustaði. Slitnaði kaðallinn,
sem þeir toguðu sig yfír með,
með þeim afleiðingum að þeir
féllu í ána. Blanda er vatns.mik-
il þessa daga og hefur lítið
veiðst í henni, einn og einn lax.
„Það er rétt að þetta stóð víst
ansi tæpt, en báturinn fylltist af
vatni. Þetta voru veiðimenn frá
Akureyri sem lentu í þessu
volki,“ segir Jón Marteinn Jóns-
son, stjórnarmaður í Stanga-
veiðifélaginu Flugunni á Akur-
eyri sem leigir Blöndu. „Við
fréttum þetta í gær og mennim-
ir eru enn að veiða í ánni. En
þeir komust í land og það er fyr-
ir mestu."
Það var bóndinn á Æsustöð-
um sem sá veiðimennina í ánni
og kom þeim til aðstoðar.
Mönnunum tókst að koma sér
að landi en þeir misstu stangir
og veiðidót í ána. Það er metið
á 80-90 þúsund krónur. Talið er
útilokað að það flnnist þar sem
það hafi borist með straumi ár-
innar til sjávar. Veiðimennirn-
ir hafa jafnað sig að fullu eftir
volkið.
Lögreglan á Blönduósi sagði í
samtali við DV í gærkvöldi að
þetta mál hefði ekki komið inn
á borð til hennar.
G.Bender
Þremur vagnstjórum
SVR sagt upp:
Kvíði meðal
starfsmanna
„Það er kvíði í mönnum vegna
þessara uppsagna og menn óöruggir
um starf sitt,“ sagði Sigurbjörn
Halldórsson, trúnaðarmaðúr hjá
SVR. Tveimur vagnstjórum var sagt
upp í vikunni og einum í síðasta
mánuði.
Sigurbjöm sagði engar ástæðar
hafa verið tilgreindar fyrir upp-
sögnum tveggja starfsmannanna. „í
uppsagnarbréfi til eins þeirra var
talað um samstarfsörðugleika. Dag-
legur verkstjóri þessa vagnstjóra
tjáði mér hins vegar að hann hefði
aldrei orðið var neinna sam-
starfsörðugleika."
„Ég er satt að segja undrandi á að
þetta mál skuli vera umfjöllunar-
efni í fjölmiðlum," sagði Lilja Ólafs-
dóttir, forstjóri SVR, þegar DV leit-
aði eftir viðbrögðum hennar. Lilja
vildi ekki fara út í ástæður upp-
sagnanna þar sem ekki væri við
hæfi að hún ræddi málefni ein-
stakra starfsmanna opinberlega.
„Ég vil taka fram að það er ekkert
samhengi milli uppsagnanna og
hrein tilviljun að þær ber upp á
sama tíma.
-kbb
ft r Tl
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Halldór Blöndal samgönguráöherra hjálpast aö við að klippa á borðann
á nýju göngubrúnni yfir Miklubraut í gær.
DV-mynd Pjetur
Kennarar á Álftanesi:
Flestir hafa
sagt upp
„Ástæðan fyrir uppsögnunum
er einfaldlega sú að fólk hefur gef-
ist upp á að bíða eftir að eitthvað
gerist í okkar kjaramálum. Við
erum þreytt á því að menntun
okkar og ábyrgð skuli ekki metin
til launa,“ sagði Jóhanna Rúts-
dóttir, ein þeirra sem sagt hafa
upp. Fjórtán af sautján kennurum
skólans hafa sagt upp, þar af allir
umsjónarkennararnir. Þeir einu
sem ekki hafa sagt upp eru tveir
leiðbeinendur, auk eins kennara
sem ekki hefur gert vinnusamn-
ing.
Kennararnir mættu í gær-
morgun á skrifstofu hreppsins á
Bjarnastöðum og afhentu upp-
sagnir sínar. Þar tók Jóhann Jó-
hannsson, staðgengill sveitar-
stjóra, á móti þeim.
Sjá einnig frétt af
kennaradeilunni á bls. 2
-kbb
Veðrið á morgun og mánudag:
Fer kólnandi
Á morgun verður austan- og suðaustangola eða kaldi. Rigning eða súld Á mánudag verður austan- og norðaustanátt, stinningskaldi eða all-
um sunnanvert landið en þurrt að mestu norðanlands. Hiti verður 6 til hvasst um norðvestanvert landið en kaldi annars staðar. Rigning eða
13 stig. súld sunnan- og austanlands en annars þurrt að mestu. Hiti verður á bil-
inu 5 til 10 stig. Veðrið i dag er á bls. 57