Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1998, Page 2
mttir
LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998
Tveimur lögreglumönnum vikið tímabundið úr starfi.
Töldu öryggi sitt í hættu
- neituðu að stjórna umferð í fyrrakvöld
Tveimur lögreglumönnum í
Reykjavík var í gær vikiö úr starfi
tímabundiö.
Lögreglumennirnir, sem báöir eru
í umferðardeild, neituðu aö stjóma
umferð þegar umferöarljós biluðu á
Miklubraut í fyrrakvöld.
„Lögreglumennimir tóku ekki þá
áhættu að fara út á þessa miklu um-
feröargötu I þeim búningum sem
þeir voru í. Þeir tilkynntu i talstöö
að þeir teldu öryggi sitt í hættu og
ætluðu aö fá betri búnað. Nýlega var
okkur í umferðardeildinni bannað að
vera í leöurbúningum sem em búnir
að vera í umferð í 35 ár. Leðurbún-
ingamir eru vel búnir endurskins-
merkjum, einnig hjálmurinn og
hanskamir, enda notum við þennan
búnað oft í myrkri og slæmu skyggni
við að stjóma umferð. Nú eigum við
að vera i sömu búningum og al-
menna deildin. Þeir em ekki með
endurskinsmerkjum á hliðunum og
þannig klæddir vom þessir um-
ræddu lögreglumenn í fyrrakvöld,"
sögðu lögreglumenn í umferðardeild
sem DV ræddi við í gær.
Mikil óánægja hefur veriö I deild-
inni aö undanfómu með margar
ákvarðanir yfirstjómar lögreglunn-
ar. Á miövikudag lagöi yfirstjóm lög-
reglunnar bann við notkun lögreglu-
bifhjóla yfir vetrartímann og jókst þá
óánægjan enn frekar í deildinni. Lög-
reglumennirnir sem DV ræddi viö í
gær sögðu að brottvikning félaga
þeirra tveggja væri dropinn sem end-
anlega fyllti mælinn. Samkvæmt
heimildum DV ætla báöir lögreglu-
mennirnir sem um ræðir aö leita
réttar sins. Þeir höfðu í gærkvöld
'I:
|
Maöur slasaðist viö háhýsi við
Skúlagötu í gær.
DV-mynd S
Vinnuslys
við Skúla-
götu
Maöur slasaðist þegar timbur-
vömbretti féll á hann við Skúla-
götu um tvöleytið í gærdag.
Maðurinn var á gangi fram hjá
háhýsi sem verið var að gera við
þegar brettiö féil á hann. Taliö er
að brettið hafi fallið úr 12-15
metra hæð. Maðurinn var fluttur
á slysadeild. Hann slasaöist á
hálsi og í baki en ekki var vitaö
hve alvarlega. -RR
fengið sér aðstoö lögfræðinga í mál-
inu.
Agabrot
„Þessir tveir lögreglumenn vom
leystir undan vinnuskyldu þar sem
taliö er að þeir hafi ekki sinnt starfs-
skyldum sínum í ákveönu tilviki en
litiö er á slíkt sem agabrot. Það er
ekki óskað eftir að þeir mæti aftur til
vinnu fyrr en lögreglustjóra hefur
gefist ráðrúm til að skoöa mál þetta
nánar og taka ákvarðanir í ffarn-
haldi af því. Yfirstjóm lögreglunnar
hefur ákveöið að hjólunum verði lagt
í öryggisskyni í mestu vetrarófærð-
inni. Á götum borgarinnar sjást yfir-
leitt ekki bifhjól á þessum árstíma.
Annað hef ég ekki um málið að
segja," sagði Jónmundur Kjartans-
son yfirlögregluþjónn, aöspurður um
málið.
DV ræddi við Hilmar Þorbjöms-
son, yfirmann umferðardeildar, í
gær. Hilmar var í veikindafríi og
hafði ekki heyrt fréttimar frá yfir-
stjórn lögreglunnar um bann viö
notkun bifhjólanna.
„Mér fmnst þetta nú frekar ólík-
legt. Frá 1960 hefur það verið mat yf-
irmanna deildarinnar frá degi til
dags hvort hjólafæri er á götum. Það
hefur aldrei orðið slys á lögreglubif-
hjólum sem hægt er að rekja til
slæmrar færðar. Ef færðin gefur
minnsta tilefni til þess þá er hjólun-
um lagt en þau svo tekin fram um
leið og færð batnar. Ég minnist þess
ekki aö nokkum tíma hafi verið lagt
bann viö notkun bifh)ólanna,“ sagöi
Hilmar.
-RR
Ráðherra um ábyrgð lögreglustjóra gagnvart „týndu málunum:
Ákvörðun ekki verið
tekin um viðbrögð
- friðhelgi og þagnarskylda hefta birtingu Atla-skýrslunnar
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra segir að ákvarðanir hafi ekki
verið teknar um þaö hvemig bragð-
ist verður við þeirri staöreynd að tvö
fíkniefnamál tengd Franklín Steiner
„týndust". Ráðuneyti hans, lögreglu-
stjóri og margir þingmenn eru hins
vegar á öndveröum meiöi við ríkis-
saksóknara um aö birta eigi greinar-
gerö Atla Gíslasonar um rannsókn-
ina á meintum tengslum Franklíns
og fíkniefhalögreglunnar. Bogi Nils-
son ríkissaksóknari, sá sem hefur
forsjá yfir greinargerðinni, sagði af-
dráttarlaust í gær að skýrslan verði
ekki birt.
„Rannsóknin hefur ekki leitt í ljós
hver ber ábyrgð á því,“ sagði dóms-
málaráðherra I gær aðspurður um
hvort hann hafi í hyggju að grípa til
aögerða gagnvart lögregluembættinu
í Reykjavík meö hliösjón af því aö
fikniefnamálin tvö týndust.
„í sjálfu sér ber lögreglustjórinn
auðvitað stjórnunarlega ábyrgð á
sínu embætti," sagði ráðherra. „En
rannsóknin hefur ekki leitt í Ijós
ábyrgð einstakra manna á því. Því
miöur. Lögreglustjóri ber auðvitaö
ábyrgð gagnvart sínu embætti. Það
kann aö vera matsatriöi í hverju til-
felli hvemig á að bregðast við því.
Það hafa ekki verið teknar neinar
ákvaröanir um það.“
- Væntir þú einhvers af rannsókn
á því hvort fleiri mál séu týnd?
„Ég vona auövitaö að það séu ekki
frekari brotalamir en það verður
auðvitað að koma í ljós.“
Eins og fram kom í DV í gær er
þaö skoðun lögreglustjóra, þing-
manna og ýmissa aðila innan dóms-
málaráðuneytisins aö skýrslu Atla
Gíslasonar eigi
að birta.
„Þessu hefur
verið svarað og
þau svör
standa," sagði
Bogi Nilsson
ríkissaksóknari
við DV í gær.
Hann kvaðst
hafa „kannaö
Þorsteinn Palsson máliö„ eftir aö
dómsmalaraðherra hann tók við
embætti af Hall-
varði Einvarðssyni. „Um þetta hef ég
í raun ekkert annaö aö segja. Þaö
hefur engin breyting orðið og engra
Púðurtunna í Hafnarfirði:
Úrslitatilraun í dag
- alls óvist hvort samkomulag náist
Síðasti fundur sameiginlegrar kjör-
nefndar A-flokkanna í Hafnarfirði,
sem haldinn var á miðvikudag, leyst-
ist upp í ósamkomulagi og ríkir nú
mikil óvissa innan kjörnefhdar hvort
lokatilraun til að koma saman lista
og gerð veröur á laugardag muni
skila nokkrum árangri. Nafnalisti sá
sem fjölmiðlar hafa flutt fréttir af
varð til sem vinnuplagg sl. mánudag
og svo virðist sem snurða hafi hlaup-
ið á þráðinn síðan. Heimildarmaður
úr innsta hring orðaði það svo að
„það hefði verið hringlað fram og til
baka með kjömefndarmenn síðan“.
Fundur var haldinn í Alþýðuflokksfé-
lagi Hafnarfjarðar, þar sem flestir
þungaviktarkratar voru mættir, á
fimmtudagskvöld og voru þar skoðan-
ir manna mjög skiptar um framhald-
ið. Svo virðist sem ýmsir sitjandi
bæjarfulltrúar Alþýðuflokks eða
stuðningsmenn þeirra geti illa sætt
sig við framkomnar hugmyndir. Á
móti eru svo þeir sem telja að losa
verði þessa gömlu fulltrúa út, annars
muni engin sátt nást. í öllu falli era
menn í kjömefnd nú famir að ihuga
á nýjan leik hvort þaö megi leiða til
sátta ef Ingvar Viktorsson og Magnús
Jón Ámason komi inn á nýjan leik.
Um það rikir þó algjör óvissa hvort
það muni leysa hnútinn eða binda
nýjan. - phh
breytinga að vænta um ákvörðun í
því sambandi."
Um lögin er það hins vegar að
segja aö rannsóknir lögreglunnar
era ekki birtar opinberlega - og held-
ur ekki þaö sem þeim fylgir, greinar-
geröir um rannsóknir. Þetta er
grundvallarreglan nema að þær séu
hugsanlega lagðar fyrir dómstóla ef
opinber meðferð fer fram. Þetta er
bara svona í öllum málum. Þeir sem
era yfirheyrðir eiga að sumu leyti
þennan rétt. Þá eram við að tala um
friðhelgi einkalífsins og þagnar-
skylduákvæði," sagði Bogi Nilsson.
-Ótt
stuttar fréttir
Sameiningog nafn
í dag er kosið um samein-
mgu Eyrarbakkahrepps,
Sandvíkurhrepps, Selfossbæj-
ar og Stokkseyrarhrepps sem
og nýtt nafh. Alls era 3860
manns á kjörskrá, langflestir
á Selfossi eöa 3033.
Háskólahátíö
Páll Skúla-
í son háskóla-
rektor braut-
skráir i dag 126
| kandídata á
’ Háskólahátíð.
| Brautskráðir
! verði fyrstu
j kandídatarnir í |
i ljósmóðurfræð-
j um, sem numið hafa í tvö ár aö
| loknu hjúkrunarfræðiprófi.
Stuðningsyfirlýsingar
Félag ísl atvinnuflugmanna,
Dagsbrún-Framsókn og fleiri
j verkalýðsfélög hafa lýst stuöningi
I við sjómenn í kjaradeilu þeirra
við útvegsmenn.
Stúlka fyrir bll
Ung stúlka varð fyrir bíl á Þing-
vallastræti til móts við Mýrarveg
á Akureyri. Hún slasaðist ekki
mikið.
Flugfar á Netinu
Farmiðasala Flugleiða á Netinu
eflist stöðugt. Sérstakt tilboð á
I flugi til New York er í boöi, en að-
! ems á söluvef Flugleiða.
Sáttafundur á sunnudag
Sáttafundi í sjómannadeilunni
lauk í gærkvöldi og nýr fhndur
| hefst á morgun kl. 13.00
Skemmtanaskattur
afnuminn
Skemmtanaskattur veröur af-
j nummn samkvæmt stjórnarfrum-
varpi sem lagt hefur verið fram á
Alþingi. lagt er til að einungis
megi selja áfengi gegn stað-
: greiðslu.
Róleg verk-
fallsvakt
Verkfallsvakt
sjómanna hefur
gengiö mjög vel,
j verið róleg og
j engin verkfalls-
j brot tilkynnt.
Afturvirkni
Heilsugæslulæknar krefjast
j þess að úrskurður kjaranefndar
j um laun þeirra veröi afturvirkur
• til áramóta í fyrra. Úrskurðurinn
• hefur ekki komist í framkvæmd
j ennþá. RÚV sagöi frá.
Eldingafár
Eldmgum sló niður í Öræfum í
i fyrrakvöld og stórskemmdust raf-
i línur, símaimur, ljósleiðarar og
j símtæki. í gærkvöldi var enn
í rafnmagnslaust i sveitinni, en
símasamband var komið á.
Kanar í árekstrum
Óvenjumikiö var um árekstra í
umdæmi lögreglunnar á Keflavík-
urflugvelli í gær. Lögreglumaður
sem DV talaði við kvaðst ekki
muna eftir öörum eins árekstrar-
I degi í áratug. Enginn þeirra var
j alvarlegur.
Grátlegar deilur
Bryndís
I Hlöðversdóttir
alþmgismaður
' harmar deilur |
milli þing-
manna A-flokk-1
anna á Alþmgi
■ um auölmda-
gjald. Hún I
minnir á aö landsfundir flokk-
j anna ákveði stefnuna í málinu en
ekki alþingismenn. RÚV sagði frá.
Götusmiöjan
á götunni
Götusmiðjan missti húsnæöi
: sitt í Skeifunni í gær og eru 15
; unglmgar húsnæðislausir. Deilur
j hafa staöið milli leigusala og leigj-
1 anda um húsnæðið.
Breiðvarpið byrjaö
Breiövarp Landssímans hóf
j formlegar útsendingar á um 20
sjónvarpsrásum í gær. Tilrauna-
útsendingar hafa staðið yfir uro
hríð. -S.*