Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1998, Blaðsíða 25
25
LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998
sviðsljós
1 w n
BODDIHLUTIR
Verðdæmi:
Bretti á Corolla
Bretti á Lancer
Bretti á Charade
Stuðari á Sunny
Framljós á Corolla
kr. 3.764
kr. 4.524
kr. 3.464
kr. 5.605
kr. 6.598
í flesta bfla
Bílavörubúðin
FJÖÐRIN
ífararbroddi
SKEIFUNNI2,108 REYKJAVÍK SlMI 588 2550
David Duchovny og Gilian Andersen sem rannsóknariöggurnar Mulder og
Sculiy.
Ráðgátur til
Hollywood
Framleiðendur sjónvarpsþátt-
anna vinsælu, Ráðgátna (X-files),
hafa nú loksins ákveðið að fara að
vilja leikarans Davids Duchovny og
taka þættina upp i Hollywood en
ekki í Vancouver í Kanada eins og
hefur verið gert til þessa. Davíð
vildi vera nærri sinni heittelskuðu,
Téa Leoni, sem hann kvæntist á síð-
asta ári og hefur nú barnað.
Framleiðendumir vildu að sjálf-
sögðu ekki styggja goðin og fóm að
vilja Davíðs. Reyndar var mótleik-
ari hans, hin rauðhærða Gilian
Anderson, ekkert á móti því að
flytja tökustaðinn. Þau er líka orðin
svo fræg að þau verða að vera í
hringiðu stjarnanna í Hollywood.
Þau hafa líka stórgrætt a þáttunum
og þéna margfalt meira en þegar
þau byrjuðu að leika Mulder og
Scully á sínum tíma.
Nýlega undirrituðu þau nefnilega
samninga um að leika í tveimur
syrpum í viðbót. Fyrir það fær Dav-
íð um 950 milljónir króna og Gilian
ríflega 700 milljónir. Ekki vitum við
af hverju munar þarna svona
miklu. Skyldi Jafnréttisráð vita af
þessu?
Elísabet Sif og James Jordan:
Standa sig vel
í dansinum
Elisabet Sif Haraldsdóttir og
enski dansherrann hennar, James
Jordan, hafa verið að standa sig vel
að undanfornu i sterkum, alþjóðleg-
um danskeppnum. í einni stærstu
danskeppni Bretlands, UK-open,
öttu þau nýlega kappi við bestu
dansara heims og í opnum flokki, 16
ára og eldri, komust þau að 20 para
úrslitum en 180 pör hófu leik.
í kjölfarið á UK-open tóku þau
þátt í danskeppninni Rising Star
ásamt 12 öðrum sterkum pörum og
höfnuðu þau í 8. sæti.
Nokkrum dögum síðar fóru þau
til Þýskalands að taka þátt í opinni
danskeppni. Þar lentu þau í 18. sæti
af 136 pörum sem tóku þátt.
Elísabet og James eru ung að
árum, hún verður 17 ára á árinu og
hann 19. Þau hafa dansað saman í
eitt ár og eiga góða möguleika á aö
verða á meðal bestu dansara heims.
AUSTURSTRÆTI • BARONSSTIG
GLÆSIBÆ • LAUGALÆK
LÁGMÚLA • SP0RHÖMRUM
LANGARIMA • ENGIHJALLA
SETBERGSHVERFI0G FIRÐIHAFNARFIRÐI
-fepvþiritrt*!