Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1998, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1998, Qupperneq 4
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1998 JjV 4 Weéttir wk ★ Ritstjóri Moggans Nokkrar umræður hafa orðið í heimi fjölmiðla um hver verði eftir- maður Matthlasar Johannessen sem ritstjóri Morgun- blaðsins þegar hann hverfur endanlega skáldgyðjimni á vald. Síðustu vikur hefur þjóðinni ekki dulist að Morgimblaðinu hefur í raun verið ritstýrt af fyrrver- andi bankastjóra og þrátt fyrir yfirvofandi kosningar hefur blaðið aðallega einbeitt sér að þeim sem bankastjórinn gamli telur sig eiga sökött við. Mogginn hefur fyrir vikið orðið bæði meira spenn- andi og miklu kjarnyrtari. Menn telja því augljóst að eftirmaður : Matthíasar sé fundinn enda þegar I kominn til starfa. Næsti ritstjóri hljóti sem sagt að verða Sverrir Hermannsson ... Flugleiðastjórinn Sá orðrómur er ágengur að með Jhreyttri eignaraðild að Hagkaupum sé Óskar Magnússon forstjóri á förum þaðan til annarra verka. Þeir sem til þekkja segja að forstjórastóllinn hjá Flugleiðum bíði Óskars. Sigurður Helgason muni brátt axla skinn sín og fara í tveggja ára frí til aö vinna að þeim fagnaði sem verður í tilefni landafúndanna mn aldamót. Óskar þvertók fyrir þetta á dögunum en áfram grasserar umræðan og ekki síst eftir að Hagkaupsveldið varð falt... Raðbósinn íbreska blaöinu The Sun segir frá eins konar raðkvennabósa. Sá eðli maður sem heitir David Coombs er sagur hafa lagt að velli og svikið í tryggðum 227 norrænar fegurðar- dísir. Heldur kom þó babb i bátinn hjá hinum norræna bósa því Sun ræðir við eina af hinum fóllnum meyjum sem segir ástarlífið meö hinum svikula kvennamanni álíka „skemmtilegt“ og að strauja þvott eða horfa á sjónvarp, standandi. Kvennabósinn ógurlegi mun eiga sér þann draum æðstan að flytja til Danmerkur eða íslands þar sem 62 prósent íbúanna séu konur. Þá sá bósinn þann kost við ísland aö þar eru eiginmenn alla daga á hafi úti og því ótvíræð sóknarfæri. Nú er bara að sjá hvort hann birtist i einhverju sjávarplássi með veiðaifæri sín ... Litlir kærleikar Það hefur löngum verið vitað að litlir kærleikar eru meö Útgerðarfé- lagi Akureyringa og Samherja hf. á ; Akureyri. Skömmu J eftir að Sainherji hóf starfsemi snemma á síðasta áratug fór að bera á togstreitu milli fyrirtækjanna og síðan hefur kóln- að milli þessara 'aðila. Það er svo sjálfsagt ekki til aö bæta ástandið að „kol- ikrabbinn" ógurlegi hefur seilst til aukinna valda í Útgerðarfélagi Ak- ureyringa síðustu misserin þegar Akureyrarbær hefur verið að minnka eignarhlut sinn í fyrirtæk- inu. Samherji og Eimskip hafa ekki átt samleið lengi, en heldur virkar ; það öfugsnúið að sjá allt að því hat- ur milli sjálfstæðismannanna beggja þessara fylkinga. En segir ekki mál- ; tækið að það sé enginn annars bróð- ir í „bisness" eða þannig? ... Umsjón: Reynir Traustason Netfang: sandkorn (íiff. is Gangamunninn norðan megin. Þegar ekið er niður þeim megin sést glöggt að taka verður aflíöandi hægri beygju til að komast undir fjörö. DV-myndir GVA Aöeins 49 dagar þangað til HvalQaröargöngin verða opnuð: Traustvekjandi göng H valfj arðargöngin virka mjög traustvekjandi. Það tekur aðeins 5-6 mínútur að aka í gegnum þau. Mið- að við að „Bankastrætishalli" sé á göngunum sunnan megin og „Kambahalli" að norðanverðu finnst þeim sem aka um þau að hall- inn sé ekki svo ýkja mikill. Þau virka styttri, láréttari og þurrari en maöur átti von á. Akst- urinn í gegn tekur fljótt af - það kemur engin ónotatilflnning. En þetta er gríðarlegt mannvirki. Þetta var skoðun DV-manna eftir að hafa ekið í gegnum göngin i gær. Byrjaö í 7 gráöa halla Þegar ekið var að göngunum sunnan megin stóðu malbikunar- framkvæmdir við aðkomuna sem hæst. Inni í göngum er búið að mal- bika og vinnu við ljós að verða lok- ið. Jóhann Kröyer, yfirverkfræðing- ur Fossvirkis, gamalreyndur ganga- maður, m.a. frá Vestfjarðagöngum og gangagerð erlendis, var leiðsögu- maður. Þegar ekið er inn um suðurmunn- ann tekur fljótlega við 7 prósenta halli - svipað og hallinn í Banka- strætinu. Eftir á að giska mínútu akstur minnkar hallinn niður í 4 prósent. Það tekur röska mínútu að aka hann. Ferðamanninum kemur dálítið á óvart hvað göngin eru björt og þurr. Á lárétta botninum Þegar 4ra prósenta kaflanum er lokið er leiðin rúmlega hálfnuð yfir íjöröinn - við erum komin á botn- inn. 165 metra undir sjávarmáli - það nemur rúmlega tveimur Hall- grímskirkjum. 45 metra þykkt berg er fyrir ofan mann, þar fyrir ofan 70 metra setlög og síðan 40 metra djúp- ur Hvalfjörðurinn. Vegfarandinn hefur takmarkaða tilfinningu fyrir því að allt þetta sé fyrir ofan. Við botninn er hinn eini lárétti kafli ganganna, tiltölulega stuttur. Þar hefur verið borað 60 metra inn í bergið til vesturs þannig að stórt holrúm hefur myndast sem getur (botni Hvalfjaröarganganna á leið frá Reykjavík upp á Akranes. Þar sem láréttur botnkafii endar tekur hægri beygja viö og leiöin liggur sföan upp „Kambahalla". Þegar nær dregur nyrðri gangamunnanum kemur aflíöandi vinstri beygja. Hámarkshraði í göngunum veröur 80 km á klst. Sérfræöingar segja aö fara veröi varlega í botninum meö hliösjón af hraba. 42 kílómetra. Malbikunarframkvæmdir standa sem hæst yfir báöum megin fjaröarins. Myndin er tekin sunnan megin. Handan fjaröarins hefur hringtorg veriö gert fyrir umferöina sem mun beina feröamönnum ýmist vestur meö Akrafjalli eöa austur, fyrir þá sem ætla beint norður. rúmað afrennslisvatn ámóta mikið og í 25 metra langri sundlaug. Þar renna að meðaltali 6 lítrar af vatni á sekúndu. Þrjár dælur, sem geta dælt 11 sekúndulítrum hver, eru notaðar til að dæla því upp. Aðeins ein þeirra er notuð í einu. Öflug neyðardæla er einnig til staðar. Og svo kom beygja Þegar ekið er frá botninum kem- ur beygja til hægri. Nú fer hallinn aðeins að aukast því nú tekur fljót- lega við 8 prósenta halli. Á þessum kafla eru tvær „uppreinar" svipað og í Kömbunum. Hallinn er þó á engan hátt óþægi- legur. Fljótlega tekur við aflíðandi vinstri beygja og eftir um tveggja mínútna akstur frá botninum fer aftur að sjást í dagsbirtuna. Þetta tók ekki nema 5-6 minútur. Nýjungar á www.visir.is: Kosningavakt og HM98 Kosningavakt verður á Netmiðl- inum Vísi í kvöld og í nótt. Þar veröa nýjustu tölur birtar og greint frá fyrstu viðbrögðum fram- bjóðenda. Ávallt veröur hægt að nálgast nýjustu tölur í öllum sveit- arfélögum jafnóðum. Slóðin er www.visir.is HM-vefur Vísis á slóðinni www.hm98.is var opnaður í gær. Á forsíðu eru fréttir af undirbún- ingi fyrir HM sem hefst í Frakk- landi 10. júní. Á undirsíðum má fá upplýsingar um liðin, riðlana, leiki, leikdaga, leikmenn og fleira. Á meðan á HM stendur verður fylgst grannt með gangi mála auk þess sem notendum mun gefast kostur á margs konar þjónustu og þátttöku í leikjum sem tengjast HM. íslenskar getraunir eru aðalstyrktaraðili HM-vefsins. -hlh Hægt er aö fara inn á HM-vefinn af forsíöu Vísis á www.visir.is eöa aö fara beint inn á HM-vefinn með því aö slá inn www.hm98.is. Slysalaust „Við getum verið stoltir af því að hafa verið lausir við slys á mönnum. Það hafa aðeins verið minni háttar óhöpp,“ sagði Jó- hann Kröyer yfirverkfræðingur. Verkið hefur gengið ótrúlega vel enda var ekki gert ráð fyrir að göng- in yrðu opnuð fyrr en á næsta ári. „Þetta hafa verið mjög vönduð vinnubrögð, tækninni hefúr fleygt fram og mannskapurinn unnið vel,“ segir Jóhann. Hann segir að heyrast muni í GSM-símum í göngunum. Ef stillt verður á rás 1, rás 2 eða Bylgjuna í bílunum sem aka í gegn verður hægt að koma tafarlausum boðum til ökumanna frá sólarhringsvakt í vegtollstöðinni við gangamunnann. 500 metrar eru á milli neyðarsíma í göngunum og aðeins 200 metrar á milli slökkvitækja. Ekki gangandi eöa hjólandi Þó að Reykjavíkurmaraþonhlaup- arar muni skokka i gegnum göngin á opnunardaginn, laugardaginn 11. júlí, mun ekki verða leyfilegt að fara í gegn á tveimur jafnfljótum. Heldur ekki ríðandi né á hjóli, segir Jóhann. Vigsla ganganna verður klukkan 14 framangreindan dag en umferð fyrir almenning verður hleypt á klukkan 19. Frítt verður að aka um göngin fyrstu 4 dagana. Hvort verðið á eftir að lækka úr 1000 krónum hvora leið niður í 600 krónur, eins og margir hafa óskað eftir, á eftir að koma í ljós. Bæjar- stjómir Akraness og Borgarbyggðar hafa báðar lagt fram tilmæli til Spalar um að lækka verðið. -Ótt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.