Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1998, Page 6
6 útlönd
LAUGARDAGUR 23. MAI 1998
stuttar fréttir
Ekki fyrir konur
Framleiðandi vinsæla getuleys-
islyfsins Viagra segir að konur
eigi ekki að taka til að auka
ánægju sína af kynlífí.
Börn í þrældóm
Um tíu þúsund börn frá Afríku-
ríkinu Malí, þar sem þurrkar eru
alit að drepa, hafa veriö seld í
þrældóm til plantekrueigenda í
nágrannaríkinu Fílabeinsströnd-
inni.
Fylgismenn fleiri
Poul Nyrup Rasmussen, forsæt-
i isráðherra Danmerkur, getur
glaðst yfir því að fylgismenn
Amsterdam-
sáttmála Evr-
ópusambands-
ins meðal
danskra kjós-
enda eru enn þá
miklu fleiri en
andstæðingar,
þótt bilið hafi
minnkað. Útilokað er þó talið að
3 andstæðingarnir nái að vinna
I muninn upp fyrir þjóðaratkvæða-
I greiðsluna í næstu viku.
Of stuttar flugbrautir
Sjö nýjar flugbrautir sem verið
| er að leggja á Grænlandi eru ekki
nógu langar til að nýtast sem
skyldi. Enn er þó hálft ár þar til
| sú fyrsta verður tekin í notkun.
Finnar anda köldu
Fleiri Finnar eru andvígir því
en fylgjandi að land þeirra gangi í
Atlantshafsbandalagið, þó svo að
andstæöingunum hafi fækkað á
síðustu þremur árum.
Klkt á sannanir
Ríkissaksóknari Svíþjóðar ætl-
| ar að kanna hvort átt hafi verið
: við eina af þeim sönnunum sem
notaðar eru til að fá Palme-málið
endurupptekið. Um er að ræða
| bréf frá dauðum bófa þar sem
| Christer Petterson er kennt um
I morðið.
Gegn útlendum böfum
Kristilega bandalagiö, flokkur
Theos Waigels, fjármálai'áðherra
Þýskalands, hvatti til þess í gær
að lögum um
útlendinga sem
koma til Þýska-
lands og fremja
glæpi þar verði
framfylgt af
meiri festu. í
tillögu sem kom
fram á flokks-
þingi í gær er lagt til að erlendum
glæpamönnum og fjölskyldurn
þeirra verði visað úr landi eftir
i sakfellingu.
n
Mannskaöi í skjálfta
Öflugur jarðskjálfti varð að
I minnsta kosti átján manns að
bana í miðhluta Bólivíu í gær.
Um eitt hundrað manns grófust
undir rústum heimila sinna og
var óttast um afdrif þeirra.
Reuter
Skýrsla um gulliö
Skýrsla um gullkaup Svisslend-
inga af þýsku nasistunum verður
gerð opinber á mánudag. Skýrslunn-
ar hefur verið beðið með eftirvænt-
ingu. Hún var tilbúin í mars, en út-
gáfunni var þá frestaö þar til búið
yrði að þýða hana á ensku, frönsku
og ítölsku.
Skýrslan var unnin af nefnd
stjórnskipaðra sagnfræðinga. For-
maður hennar, Jean-Francois Bergi-
er, sagði við íféttamann Reuters í
gær að í henni komi fram í hve mikl-
um mæli svissneski seðlabankinn
keypti nasistagull og hve mikið for-
ráðamenn bankans og annarra sviss-
neskra banka vissu um uppruna
gullsins og það væri ránsfé, fengið
m.a. úr tönnum myrtra fórnarlamba
helfararinnar gegn gyðingum.
„Skýrslan verður gefin út óritskoðuð
og hún verður sannarlega ekki auð-
veld lesning," sagði Bergier. Hann
sagði að í henni væru upplýsingar
sem ættu eftir að koma á óvart en
vildi ekki skýra orð sín nánar.
Madeleine Albright hvetur til umbóta í Indónesíu:
Hermenn ryðja
út úr þinghusinu
Tugir indónesiskra hermanna
ruddust inn I þinghúsið í höfuð-
borginni Jakarta seint í gærkvöld
til að reyna að ryðja út þúsundum
námsmanna sem hafa hafst þar við
undanfarna daga.
Fréttamaður Reuters, Terry Friel,
sá mikinn fjölda hermanna fara inn
í bygginguna um klukkan hálftólf
að staðartíma. Á sama tíma þustu
hundruð námsmanna inn i aðal-
bygginguna.
Hermennirnir voru með hátalara
og hvöttu námsmennina til að yfir-
Sextán ára menntaskólanemi lést
í gærmorgun af völdum skotsára
sem hann hlaut á fimmtudagsmorg-
un í ffamhaldsskóla í Springfield í
Oregon þegar skólafélagi hans gekk
berserksgang og skaut á allt sem
fyrir var. Einn nemandi lést sam-
stundis og tugir hlutu sár.
Tilræðismaðurinn, Kip Kinkel,
var rekinn úr skóla daginn áður en
hann framdi ódæðið fyrir að vera
með byssu í skáp sínum í skólanum.
gefa þinghúsið á friðsamlegan hátt.
Námsmennirnir hafa verið í þing-
húsinu ffá því á þriðjudag. Fyrst
fóru þeir fram á afsögn Suhartos
forseta en nú krefjast þeir afsagnar
Jusufs Habibies, eftirmanns hans,
sem var skipaður forseti á fimmtu-
dag.
Mikil spenna var í þinghúsinu,
þar sem námsmennirnir höfðu safn-
ast saman í aðalfordyrinu, en ekki
hafði komið til neinna.
„Við gefumst ekki upp, við hlaup-
umst ekki á brott. Herinn brýtur í
Hann var leiddur fyrir dómara í Or-
egon síðdegis í gær að staðartíma,
ákærður fyrir morð. Ef hann verður
fundinn sekur á hann yfir höfði sér
lífstíðarfangelsi. Samkvæmt lögum I
Oregon er ekki hægt að dæma ófull-
veðja til dauða.
Sjónarvottar segja að Kinkel, sem
var fyrsta árs nemandi í skólanum,
hafi verið ótrúlega rólegrn þegar
hann gekk inn í matsal skólans og
hóf skothríð úr hálfsjálfvirkum riffli.
bága við vilja fólksins. Við getum
ekki látið það viðgangast. Við mun-
um halda kyrru fyrii’ og berjast,"
sagði einn námsmannanna.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandarikjanna, hvatti í gær
til þess að gerðar yrðu umfangs-
miklar umbætur á stjórnmálakerfi
Indónesiu, í kjölfar afsagnar
Suhartos forseta á fimmtudag. Jafn-
framt hvatti hún leiðtoga landsins
og almenning allan til að forðast öll
ofbeldisverk. Hún lofaði Indónesum
aðstoð bandarískra stjórnvalda.
„Hann var ósköp eðlilegur á svip-
inn, rétt eins og hann gerði svona á
hverjum degi,“ sagði David Willis,
fimmtán ára gamall nemandi.
„Hann setti fótinn ofan á bak eins
nemendanna og skaut hann fjórum
sinnum.“
Aðrir nemendur náðu að yfirbuga
Kinkel. Lögregla fann siðan tvö lík
á heimili hans og er talið að þau séu
af foreldrum tilræðismannsins.
Lykketoft til
Færeyja að
ræða málin
Mogens Lykketoft, fjármála-
| ráðherra Danmerkur, kom til
j Færeyja í gær
til að viðra
hugmyndir
dönsku stjóm-
arinnar um
skaðabætur í
bankamálinu
og endur-
greiðslur á
tugmilljarða-
skuldum Færeyinga.
Anfinn Kallsberg, nýr lög-
maður Færeyja, segir að Poul
Nyrup Rasmussen, forsætisráð-
herra Danmerkur, hafi hringt í
j sig í vikunni og lagt til að
Lykketoft færi til eyjanna, með-
al annars til aö hitta nýja land-
j stjóm.
„Nyrup hringdi og spurði
hvort Lykketoft fjármálaráð-
herra gæti komið til Færeyja til
að ræða óformlega við nýja
landsstjórn, meðal annars um
| hvernig hægt sé að hraða samn-
ingaviðræðunum um skaðabæt-
ii ur í bankamálinu og skuldir
Færeyja,“ segir Kallsberg í
; Berlingske Tidende.
Hjúkkurnar
segjast hafa
verið pyntaðar
Bresku hjúkmnarkonurnai'
;; tvær, sem vom dæmdar fyrir
;! að myrða ástralska starfssystur
sína í Sádi-Arabíu, lýstu í gær
| yfir sakleysi sínu og sögöust
| hafa verið pyntaðar af sádi-ar-
; abísku lögreglunni.
Konungur Sádi-Arabíu
: breytti líflátsdómum yfir kon-
j unum og þær eru nú komnar
| heim.
„Ég var barin, hálfnakin og
| sársvöng. Þeir hótuðu að
! nauðga mér hver á fætur öðr-
um,“ sagði Lucille McLauchlan
j í viðtali við blaðið Mirror.
Fjórtán fórust í
sprengjutilræði
í Algeirsborg
Fjórtán manns týndu lifi og
33 slösuðust þegar sprengja
sprakk á markaðstorgi í einu
úthverfa Algeirsborgar, höfuð-
1 borgar Alsírs. Svo virðist sem
1 sprengjan hafi verið falin í
plastpoka.
! Þetta var annað sprengjutil-
ræðið á þessu svæði á tveimur
I sólarhringum. í fyrra tilræðinu
S særðust sjö manns.
f Sprengjur era eitt af uppá-
| haldsvopnum uppreisnar-
manna úr röðum bókstafstrú-
aðra sem hafa barist við stjóm
! Alsírs frá 1992.
Námumenn
svara Jeltsín
fullum hálsi
Borís Jeltsín Rússlandsfor-
1 seti reitti námumenn til reiði í
I gær þegar
| hann sagði i
:. útvarps-
| ávarpi að
!; verkfall
1 þeirra heföi
slæm áhrif á
; efnahagslífið,
| sem ekki
* væri þó beysið fyrir.
Námumenn svöruðu að
; bragði og sögðu að orö Jeltsins
1 hefði aðeins stappað í þá stál-
; inu. Námumenn hafa stöðvað
allar jámbrautarsamgöngur um
| Rússland þvert og endilangt.
Saksóknari Rússlands sagði
| eftir viðræður við Jeltsín I gær
| að námumenn ættu yfir höfði
; sér málshöfðun vegna þess
skaða sem efnahagslíf landsins
| yrði fyrir vegna aðgerða þeirra
aö sögn fréttastofunnar RIA.
Þessar brosmildu kaþólsku stúlkur í Belfast á Norður-írlandi voru ekki í nokkrum vafa um hvernig þær hefðu greitt
atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni um friðarsamkomulagiö sem gert var fyrir páska ef þær hefðu kosningarétt.
Kjörsókn í atkvæðagreiöslunni var mikil og að sögn yfirkjörstjórnar er gert ráð fyrir að niðurstööur veröi kynntar síð-
degis í dag. Miklar öryggisráðstafanir voru viðhafðar á kjörstöðum.
Annað fórnarlamb deyr í Oregon