Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1998, Side 2
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998 DV
* K
z *ifréttir
---
Ríkisspítalar dæmdir til að greiða starfsmönnum laun vegna námskeiðssetu:
Málssókn undirbúin
- þar sem dómurinn er talinn hafa fordæmisgildi
Sérstætt mál er í gangi milli Rík-
isspítala og vakt- og flutningsmanna
sem þar vinna. Neita Ríkisspítalar
að greiða starfsmönnum í deildinni
laun fyrir að sækja námskeið sem
þeir sóttu í frítíma sínum. Héraðs-
dómur hefur kveðið upp dóm í máli
eins þeirra sem höfðað var á hend-
ur Ríkisspítölum. Dæmdi Héraðs-
dómur fjármálaráðherra fyrir hönd
ríkisspítala til að greiða vaktmann-
inum laun og orlof meðan hann
sótti námskeiöið, svo og dráttar-
vexti og málskostnað. Ríkisspítalar
Hreyfing á viðrædum
Forráðamenn Ríkisspítala ræddu daglangt við þrjá meinatækna úr hópi
þeirra 47 sem hætt höfðu störfum hjá Landspítalanum. Viðræður hófust kl.
14 í gærdag hjá Vigdísi Magnúsdóttur forstjóra sem boðaði til fundarins. Á
myndinni eru fulltrúar meinatækna að ganga inn í skrifstofur Ríkisspítalanna
við Rauðarárstfg. Þegar DV fór í prentun stóð fundur enn og einhver
hreyfing var komin á mál. DV-mynd Pjetur
Framboðsmál vinstri samfylkingar í Reykjavík:
Pattstaöa
Alþýðubandalagið klofnaði í afstöðu til prófkjörs
Pattstaða er komin upp í samfylk-
ingu vinstra fólks og félagshyggju-
fólks í Reykjavík. Nefhdin getur ekki
komið sér saman um aðferð við að
raða á væntanlegan framboðslista. í
undirbúningsnefndinni leggur AI-
þýðuflokkurinn til að fram fari opið
prófkjör með ákveðnum sanngimisá-
kvæðum um að enginn fái færri en
tvo af átta sem kjömir yrðu á sameig-
inlegan lista. Alþýðubandalagið vill
ekki prófkjör heldur að stillt verði
upp á listann og enginn flokkanna fái
færri en tvo af sjö. Kvennalistinn tek-
ur ekki afstöðu til uppröðunaraðferða
að öðm leyti en því að hvemig sem
raðað verði á listann fái Kvennalist-
inn eitt af þremur efstu sæfrmum í
sinn hlut. Þá hefur Lára V. Júlíusdótt-
ir, fulltrúi Þjóðvaka í undirbúnings-
nefndinni, lýst sams konar afstöðu og
Kvennalistinn.
Birgir Dýrfjörð, einn þriggja fúll-
trúa Alþýðuflokksins, segir i samtali
við DV að Alþýðuflokkurinn hafi í
tvígang lagt fram tillögu sína um opið
prófkjör, nú síðast í vikunni sem er
að líða. Þá gerðist það að Alþýðu-
bandalagið klofnaði í afstöðu sinni og
Gísli Gunnarsson, einn þriggja fúll-
trúa Alþýðubandalagsins í nefndinni,
lýsti yfír stuðningi við tillögu Alþýðu-
flokksins um prófkjör.
Birgir Dýrfjörð segir að sanngimis-
ákvæðin í tillögu Alþýðuflokksins
þýði það að enginn skuli fá tvo full-
trúa á listann fyrr en allir framboðs-
aðilar séu búnir að fá einn mann á
hann. Framboðsaðilar em Alþýðu-
flokkur, Alþýðubandalag og Kvenna-
listi. Hann segir að Jóhanna Sigurðar-
dóttir eða Þjóðvaki séu ekki fram-
boðsaðili. Því sé í tiilögu Alþýðuflokks-
ins sérákvæði um að gefa Jóhönnu kost
á framboði þannig að hún fái sína fylg-
ismælingu og raðist í sæti samkvæmt
henni. „Þetta er gert til þess að tryggja
að talsmenn allra sjónarmiða eigi
mann inni og til að eyða tortryggni um
að einhveijir tveir eða þrír geti mynd-
að blokk gegn einhverjum i prófkjöri og
haldiðhonum utan við,“ segir Birgir. í
því ljósi undrist Alþýðuflokksmenn að
fúlltrúi Jóhönnu skuli ekki fallast á til-
löguna. Bæði Alþýðubandalag,
Kvennalisti og fúlltrúi Jóhönnu Sigurð-
ardóttir sitji því fastir við sinn keip og
hafi ekki skipt um skoðun í málinu.
Það eina nýja í málinu sé nýtilkominn
stuðningur Gísla Gunnarssonar. Fram-
boðsmál vinstri samfylkingarinnar séu
því í pattstöðu. -SÁ
Afskipti menntamálaráðuneytisins af Iðnskólanum:
Tilfærslur ógiltar
í kjölfar afskipta menntamálaráðu-
neytisins af tilfærslum starfsmanna
á bókasafni Iðnskólans í Reykjavík
hefur Ingvar Ásmundsson skóla-
meistari dregið ákvörðun sína þar að
lútandi til baka. Þetta kemur m.a.
fram í svari Björns Bjamasonar
menntamálaráðherra við spuming-
um DV um afskipti ráðuneytisins af
málefnum skólans.
Bókasafnsmálið snerist um það að
í septembermánuði sendi skólameist-
ari yfirmanni bókasafnsins bréf, þar
sem hann tilkynnti honum að verka-
skiptingu á safiiinu yrði breytt. Frá
1. október skyldi henni þannig háttað
að nýr yffrmaður yrði á safninu,
undir starfstitlinum „skipulags-
stjóri“. Þáverandi yfirmaður safnsins
skyldi verða óbreyttur bókasafns-
fræðingur. Svo háttaði til að yfirmað-
ur bókasafnsins var faglærður en
„skipulagsstjórinn" ekki.
Sem fyrr sagði hafði ráðuneytið af-
skipti af málinu og í kjölfarið dró
skólameistari bréf sitt til baka, „enda
segir í reglugerð um starfslið skóla
að yffrmaður bókasafns skuli vera
bókasafnsfræðingur og ber skóla-
meistara að hlíta henni“, segir í svari
ráðherra til DV.
Aðspurður hvort ráðuneytið hygð-
ist aðhafast eitthvað frekar til að
koma á friði í skólastarfinu í Iðnskól-
anum svaraöi ráðherra að ráðuneytið
hefði þegar tekið á ýmsum álitaefn-
um. Málefni skólans væru nú til skoð-
unar í ráðuneytinu. -JSS
hafa gert að fullu upp við þennan
starfsmann en fimm aðrir hafa ein-
ungis fengið greiddan höfúðstól -
ekki dráttarvexti. Tíu vaktmenn til
viöbótar hafa alls ekki fengið nein-
ar greiðslur frá Ríkisspítölum
vegna sama námskeiðs. Lögmaður
umræddra starfsmanna undirbýr
nú lögsókn á hendur Ríkisspítölun-
um fyrir hvern þeirra fyrir sig til að
innheimta kröfurnar.
Umrædd námskeið voru á árun-
um 1994 og 1995. Þá staðfesti starfs-
mannastjóri Ríkisspítalanna að
vaktmennirnir myndu fá greitt fyr-
fr að sækja námskeiðið. Þegar að-
eins huti þess var búinn fengu þeir
bréf þar sem þeim var sagt að
hætta. Var gert ráð fyrir endur-
skipulagningu námskeiðsins i sept-
ember 1995 með þarfir vakt- og
flutningadeildar í huga. Vaktmenn-
imir sóttu svo námskeið haustið
1995 og um greiðslur fyrir það
stendur styrinn. í dómnum segir að
niðurstaða þessa máls hafi „for-
dæmisgildi fyrir hópinn í heild
sinni“.
Launadeild Ríkisspítalanna hefur
gert upp við starfsmanninn sem
höfðaði málið eins og áður sagði.
Hitt vekur athygli, að fimm aðrir af
fimmtán manna hópi hafa fengið
greiðslur en þó ekki samkvæmt nið-
urstöðu Héraðsdóms því þeir hafa
enga dráttarvexti fengið.
Guðlaug Bjömsdóttir hjá launa-
deild Ríkisspítalanna kvaðst ekki
vilja tjá sig um málið við DV. Lög-
menn aðila væm að fjalla um málið.
Þegar DV spurði hana hvort for-
dæmisgildi dómsins ætti aðeins við
um fáa einstaklinga en ekki hópinn
allan sveiraði hún: „Það er auðvitað
spuming um hvaða hóp er verið að
tala.“ -JSS
Kirkjuvörðum við Hallgrímskirkju brá í brún er þeir komu til vinnu sinnar í gær-
morgun. Fyrir framan kirkjuna hafði dökkum fána með áletrunina „Látum morð-
ingja ekki sleppa" verið flaggað. Að sögn Sigríðar Norquist kirkjuvarðar er ekki
vitað hverjir voru að verki og ekki talið að verknaöurinn tengist kirkjunni. Sig-
ríður sagði að slíkum ógeðfelldum skilaboðum heföi ekki áður verið komið fyr-
ir við kirkjuna og vonaðist hún til að slíktgerðist ekki aftur. DV-mynd Pjetur
í stuttar fréttir
í flugprófun
Ein af þremur Boeing 757-300 þot-
; um sem nú era í flugprófunum í
| Bandarikjunum er væntanleg til
í Keflavíkurflugvallar í dag. Hún fer
I hér í ýmsar flugprófanir sem krefj-
í ast töluverðs vinds. Meðal þeirra
■r eru prófanir á kerfum fyrir sjálf-
| virkar lendingar og flugtak með 15
: hnúta vind i stélið.
1 Rektor Ustaháskólans
| Ríkisútvarpiö
| greindi frá því
f að stjórn Lista-
háskóla íslands
| hafi ráðið Hjálm-
■ ar H. Ragnars-
I son tónskáld
l rektor skólans til
i fimm ára. Hjálm-
; ar tekur við starfinu um áramótin.
Nýtt debetkort
Iíslandsbanki hefúr gefið út nýtt
debetkort sem nefnist Valkort en
það gefur viðskiptavinum bankans
margs konar valmöguleika og fríð-
a indi, s.s. afslátt af greiddum skulda-
j bréfavöxtum og val á útliti kortsins.
j Ýmis önnur nýmæli eru í þessari
j þjónustu en megináhersla er lögð á
? sveigjanleika og að fólk geti valið
j sér sínar eigin leiðir til hagræðing-
j ar og aukinnar þjónustu.
Axlar ekki sínar skyldur
Ríkisútvarpið greindi frá því að
j skrifstofústjóra Alþýðusambands-
j ins fyndist hryggilegt að heilbrigð-
: is- og tryggingaráðuneytiö ætlaði
j ekki að axla skyldur sínar til að ís-
j lendingar fari eftir tilskipun Evr-
ópusambandsins um vinnuvemd
i þungaðra kvenna.
Á rétt á upplýsingum
j Hæstiréttur er búinn að staðfesta
j dóm héraðsdóms um að Landsbank-
;; inn eigi að láta Fiskistofú i té allar
j upplýsingar um afurðalánavið-
j skipti bankans og fiskvinnslufyrir-
j tækis í Grindavík. Ríkisútvarpið
j greindi frá.
Friðrik vorkennir Ágústi
J Friðrik Þór
Friðriksson seg-
ist vorkenna
Ágústi Guð-
mundssyni fýrir
það hve tapsár
hann er vegna
j vals á fúlltrúa ís-
: : lands í keppnina
um óskarsverðlaunin. Hann seg-
j ir aö þær fúllyrðingar Ágústs að
I hann reki kolkrabbakvikmyndafyr-
5 irtæki séu algjörlega úr lausu lofti
j gripnar.
Verður niðurgreitt
Rikisútvarpið greindi frá því að
1 ríkisstjómin hafi ákveðið í gær að
styrkja loðdýrabændur í fjárhags-
| vanda þeirra með því að niður-
j greiða verð á loðdýrafóðri.
Á skíðum í sólarhring
Fjórtán unghngar í skíðadeild
| Leifturs í Ólafsfirði ætla að standa
1 fyrir svokallaðri „áheitaskíðun".
t Fyrirhugað er aö hefja leikinn eftir
j hádegi og vera samfleytt á skíðum í
p sólarhring. Tileíni þessa er að ung-
| lingamir hafa verið að safna
I áheitum meðal bæjarbúa vegna æf-
j ingaferðar sem fýrirhuguð er tU
j Noregs í janúar.
Ólafur G.
Ólafúr G. Ein-
j arsson, forseti
I Alþingis, hefur
3 tekið við for-
j mennsku stjóm-
ar Hjálparstofn-
unar kirkjunn-
j ar. Þá hefúr
1 nafni stofnunar-
; innar verið breytt í Hjálparstarf
j kirkjunnar.
Rannsókn Ragnars dregst
„Þetta hefúr tekið lengri tima en
ég bjóst við en ég geri ráð fýrir að
j málið veröi klárt um miðjan mán-
j uðinn. Það reyndist ekki hægt að
l ljúka málinu fýrr,“ segir Ragnar
; Hall vegna rannsóknar á afdrifúm
„týndu fikniefnanna“ hjá embætti
| lögreglustjórans í Reykjavik.
-SJ/BOE
formaður