Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1998, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1998, Qupperneq 6
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998 jLlV stuttar fréttir Jákvæðir út í mynt Örlítið fleiri Evrópubúar eru já- kvæðir gagnvart sameiginlegri Evr- ópumynt en hinir sem finnst lítið til koma, eða 48 prósent gegn 41. Myntin á að taka gildi um áramót. Lipponen sigurviss Paavo Lipponen, forsætisráð- herra Finnlands, er viss um að jafnaðarmanna- flokkur hans muni rífa sig upp úr þeirri lægð sem hann er í, ef marka má skoðanakannan- ir, og fara með sigur af hólmi í þingkosningunum í mars á næsta ári. Þetta kom fram í finnsku blaði í gær. Klifurköttur tekinn Franski klifurkötturinn Alain Robert, sem hefur hlotið viður- nefnið kóngulóarmaöurinn, var handtekinn í gær eftir að hafa klifrað upp eina hæstu byggingu Tokyo. Mannfall í Tadsjikistan Varnarmálaráðuneytiö í Tadsji- kistan skýrði frá því i gær að meira en tvö hundruð manns, þar af margir óbreyttir borgarar, hefðu fallið í átökum uppreisnar- manna og hersins. Áflótta Að minnsta kosti 630 þúsund manns hafa farið á vergang vegna áframhaldandi átaka í norðvestur- hluta Rúanda. Ástand í flótta- mannabúðum fer hríðversnandi, að sögn starfsmanna SÞ. Sendiherra heim Stjórnvöld í Chile kölluðu sendi- j herra sinn á Spáni heim í gær eft- ir að spænsk stjórnvöld féflust á beiðni dómara um að fara fram á að Augusto Pinochet, fyrrum ein- ræðisherra í Chile, yrði framseld- ur frá Bretlandi. Prestur reynir að vehja Finnskur prestur hefur verið ávíttur fyrir að reyna að vekja fjögurra ára gamlan dreng upp frá dauðum með bænahaldi. Drengur- inn drukknaði. Milosevic samþykkti Richard Holbrooke, sendimaður Bandaríkja- stjórnar á Balk- anskaga, sagðií gær að ekki færi á milli mála að Slobod- an Milosevic Júgóslavíufor- seti hefði fallist á að leyfa rann- stríðsglæpadóm- stóls SÞ að koma til Kosovo. Semja við ESB Færeyingar og Evrópusamband- iö hafa gert með sér nýjan fisk- veiðisamning fyrir árið 1999. Hann er eins og sá fyrir 1998. Danmörk: Orkufyrirtæki einkavædd Fyrirtæki í Danmörku sem nota mikla raforku mega eiga von á af- sláttartilboðum frá einkavæddum orkufyrirtækjum sem dreifa raf- orku til neytenda. Orkuveitur hafa verið einkavæddar í Danmörku og hafa ýmist sameinast eða tekið upp samstarf. Þannig hefur hin einka- vædda rafmagnsveita Kaupmanna- hcifhar nýlega sameinast orkufyrir- tækjunum SEAS og NVE á Sjálandi og sænska fyrirtækinu Sydkraft. Framkvæmdastjóri SEAS segir í samtali viö Jyllands-Posten að verslun með raforku sé mjög svipuð verslun með gjaldeyri. Orkufyrir- tækin fjögur munu á næstunni opna skrifstofu 1 Kaupmannahöfn en þar mun tugur manna fylgjast stöðugt með alþjóðlegu raforkuverði og gefi ráð um kaup eða sölu á raforku þeg- ar verðlag gefur tilefni til. -SÁ Sprengjutilræöi í Jerúsalem dregur dilk á eftir sér: ísraelar stíga á bremsurnar Tveir tilræðismenn sprengdu sjálfa sig í tætlur og særðu tuttugu og einn þegar þeir óku bifreið, hlað- inni sprengiefni, inn á aðalmarkaðs- torg Jerúsalem í gærmorgun. Mikill fiöldi fólks var á markaðstorginu þegar árásin var gerð. ísraelsk stjórnvöld svöruðu með þvi að fresta staðfestingu á nýja friðar- samningnum við Palestinumenn. Bill Clinton Bandaríkjaforseti hvatti ísraela og Palestínumenn til að slá ekki slöku við í friöarvið- leitninni, þrátt fyrir árásina. „Það er besta leiðin til að tryggja öryggi ísraels og besta leiðin til að tryggja að Palestínumenn nái fram markmiðum sínum og þegar öllu er á botninn hvolft er það eina svarið við glæpsamlegu hryðjuverki dags- ins,“ sagði Clinton. ísraelska lögreglan sagði að óþekktur maður hefði lýst ábyrgð á sprengjutilræöinu á hendur skæru- liðasamtökunum Hamas. Samtökin hafa valdið dauða tuga manna í sjálfsmorðsárásum sínum. „Ég sá rauðan Fiat 127 sem í vor tveir menn. Eftir nokkrar sekúndur tókst hann á loft. Allt sprakk og ég þeyttist inn i einn sölubásinn," sagði Mordechai Haroush, 46 ára maður sem slasaðist lítillega í sprengingunni. Þetta var annað sprengjutilræðið á þessu markaðstorgi á sextán mán- uðum. Fimmtán manns týndu lífi í sjálfsmorðsárás Hamasliða í júlí 1997. Stjóm ísraels stöðvaði þegar í stað umræður um hvort staðfesta ætti friðarsamninginn. Hinn tveggja ára gamli Felix Silva grætur hástöfum í neyðarathvarfi fyrir þá sem komust undan gífurlegum aurskriöum i Posoltega í norövesturhluta Níkaragva. Óttast er aö um eitt þúsund manns hafi oröiö undir skriðuföllum af völdum fellibylsins Mitch. Tvö bæjarfélög þurrkuöust út í aurskriöunum. Mið-Ameríkuríki biðja um aðstoð: Lyf vantar i einum Mið-Ameríkuríkin sem urðu fyrir barðinu á fellibylnum Mitch, þeim mannskæðasta í tvö hundruð ár, fóra í gær fram á aðstoð erlendra ríkja við að koma í veg fyrir út- breiðslu sjúkdóma. Talið er vist að ellefu þúsund manns hafi týnt lífi í hamforunum í Hondúras, Níkaragva, Gvatemala og E1 Salvador og þrettán þúsunda er enn saknað. Björgunarsveitir keppast nú við að koma matvælum, vatni og lyfjum til milljóna manna sem hafa einangrast af völdum felli- bylsins. „Mið-Amerikurikin þurfa lyf fljótt. Við höfum fregnir af því að kólera og aðrir banvænir sjúkdóm- ar hafi skotið upp kollinum í kjölfar fellibylsins," sagði Claudio Ridel Telgue, sendiherra Gvatemala í Mexíkó, í útvarpsviðtali í gær. Arnoldo Aleman, forseti Níkar- agva, sagði að örvæntingin, hungr- grænum ið, niðurgangspest og kólera hefðu gert vart við sig á nokkrum stöðum. „Fiskimenn hafa sagt okkur að mönnum verði óglatt af nályktinni við stendumar," bætti Aleman við í viötali við mexíkóska sjónvarps- stöð. Mexíkósk stjómvöld hafa hvatt þjóðir heims til að aðstoða. Fómarlömb hamfaranna búa við mjög bágar aðstæður. Matur er af skomum skammti og hreinlætisað- staða sömuleiðis. Gorbatsjov hrósar áætlun Prímakovs Míkhaíl Gorbatsjov, fyi-ram leiðtogi Sovétríkjanna sálugu, jós efiiahagsumbótatillögur Jev- genís Príma- kovs, forsætis- ráðherra Rúss- lands, lofi í gær og sagði aukið hlutverk ríkisins, scm þar er gert ráð fyrir, lífsnauð- synlegt. „Mér sýnist stefnan, sem stjórn Jevgenís Prímakovs hefur valið, vera sú best hæfir. Það sem mestu máli skiptir nú er að varðveita öryggi landsins," sagði Gorbatsjov í viðtali við rúss- neskt dagblað. Áætlun Prímakovs, sem gerir meðal annars ráð fyrir rikisað- stoð til iðnfyrirtækja og seðla- prentun, hefur ekki hlotið náð fyrir augum Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins. Sjóðurinn neitaði að veita Rússum milljarðadollara- lán vegna þessa. Vill skattleggja vildarpunkta- ferðirnar Ole Stavad, ráðherra skatta- mála í Danmörku, er nú á eftir þeim þúsundum Dana sem á ári hverju fara í frí fyrir vildar- punkta sem þeir fengu fyrir flug- ferðir sem atvinnurekandi þeirra greiddi fyrir. Viðkomandi eiga að gefa upp andvirði ferð- anna á skattaframtalinu en lítið er um að farið sé eftir því, að sögn danskra skattayfirvalda. „Vandinn fer vaxandi og ég vil gera allt sem í mínu valdi stend- ur til að finna lausn sem tryggir að farið sé að viðeigandi skatta- reglum,“ segir Ole Stavad í við- Itali við Jyllands-Posten. Skattstjórar í Danmörku hafa í fjölda ára skorað á skattaráð- herrann stoppa upp í gatið á r skattalögunum. Sænska HIV- mannsins nú leitað í Hollandí Talið er að Mehdi Tayeb, | íranski HlV-smitaði maðurinn | sem sænska lögreglan hef- I ur leitað um nokkurt skeið, sé nú í felum í Hollandi. ITayeb er tal- inn hafa sofið hjá hundrað um ungra kvenna án þess að segja þeim frá smiti sínu. Sænska lögreglan gerði þeirri hollensku viövart eftir að tókst að rekja símtal Tayebs, eða James Kimballs eins og hann kallaði sig, til vina sinna í Sví- þjóð fra Hollandi. Sænska Aftonbladet hefur eft- ir yfirmanni í hollensku lögregl- unni að upplýsingar um Tayeb hafi verið sendar á allar lög- 1 reglustöðvar. Færeyskur ráð- herra ákærður fyrir nauðgun Fógetinn í Færeyjum ákvað í gær að ákæra John Petersen sjávarútvegsráðherra fyrir nauðgun. Ef hann verður fund- inn sekur á hann yfir höfði sér allt að sex ára fangelsisvist. í septemberlok var hinn fimm- 1 tugi Petersen opinberlega gran- ; aður um að hafa nauðgaö I sautján ára gamalli stúlku sem leigði hjá honum á árinu 1995. Petersen hefur lýst yfir sakleysi | sínu í málinu. Petersen hefur um tíma veriö í leyfi frá störfúm.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.