Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1998, Page 20
2» 'tfréttaljós
*★ ★
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998 ]D"V
Olía og könnun setlaga á og við ísland:
- olíufélag lýsir áhuga - málið í höndum iðnaðarráðuneytis
Samkvæmt heimildum frá Orku-
stofnun var fyrsti „olíufundurinn" á
íslandi í Lóni við Öxaríjörð 1985. -
„Þar hafði myndast örlítið magn af
jarðolíu við sérstakar aðstæður í surt-
arbrandslagi í gömlu jarðhitakerfi.
Önnur vísbending um olíu fannst svo
í Öxarfirði ári síðar, en þar háttar svo
til, að olíu- og gasmyndun virðist vera
i gangi í virku jarðhitakerfi“, segir
Guðmundur Ómar Friðleifsson, jarð-
fræðingur á Orkustofnun, í kjallara-
grein í DV í marsmánuði 1996.
Fljótlega eftir að Jarðboranir ríkis-
ins hófu að bora um 500 metra djúpa
holu í Flatey á Skjálfanda birti DV
frétt um málið, og alllanga og sérstaka
umfjöllun í blaðinu á haustdögum
árið 1982. Tilgangurinn með borun-
inni þá var að kanna setlög undir
eynni. Kjarnann úr borholunni átti að
rannsaka af sérfræðingum hér og í
Noregi. Síðari skrif um málið, m.a. í
kjallaragreinum fræðimanna um
orkumál, benda og til að þær rann-
sóknir hafi farið fram. Þessi borun
Flatey átti sér stað austast á eynni.
Hvers vegna olíuleit?
Samkvæmt orðum Karls Gunnars-
sonar jarðeðlisfræðings í yfirlits-
skýrslu um hafsbotninn umhverfis ís-
land, þar sem hann fjallar um mynd-
un olíu segir hann: „Olía er talin
myndast úr leifum lífvera, sem setjast
fyrir í seti á sjávarbotni eða í vötnum.
Þær lífverur, sem leggja mest af mörk-
um eru plöntu- og dýrasvif, en sums
staðar er framburður plöntuleifa af
landi einnig mikilvægur." - Ailmikil
lægð er á hafsbotningum frá mynni
Skjálfanda út fyrir mynni Eyjafjarðar,
segir einnig í skýrslu Karls.
Svonefhd
„þyngdarlægð"
bendir til þess að
nokkuð þykkt set
hafi safnast í sig-
dæld, sem mynd-
ast hefur í mis-
genginu. Flatey á
Skjálfanda situr
ofan á setdæld-
inni, og eyjan er
hlaðin upp af
basalthraunum, og sýnir að basalt-
myndanir hylja nokkurn hluta sets-
ins. „Þótt engar upplýsingar liggi fyr-
ir um gerð þessara setlaga, má at-
huga, hvort þau geti hugsanlega upp-
fyllt þau skilyrði sem þarf til að olía
fmnist“, er haft eftir Karli enn frem-
ur. - Það virtist því ekki alveg út í
bláinn að gera frumkönnun á því með
borunum á þessu svæði, hvort eitt-
hvað frekar kæmi í ljós.
Ágiskanir
eða staðreyndir?
Talið er að mikill hluti setmyndana
á landgrunni íslands sé jökullfram-
burður frá ísöld, myndaðar á síðustu
3-4 milljónum ára. Því má búast við
að setið undir Flatey sé að miklu leyti
grófur jökulframburður, lítt fallinn til
olíumyndunar. Þetta eru þó hreinar
ágiskanir og beinar athuganir þarf til
áður en nokkuð verður fullyrt. Áætl-
aður hámarksaldur setsins er um 6
millj. ára og er nokkuð lágur, en þó
eru til álíka gamlar olíulindir í heim-
inum. Og ef setið er 4 km að þykkt
ætti hitastig jarðarinnar að vera nógu
hátt til myndunar olíu í neðri hluta
þess.
Þess má og geta, að flestar olíulind-
ir heimsins eru myndaðar á fyrri jarð-
sögutímabUum og þá helst frá miðís-
öld, fyrir um 65-230 miUj. ára, þótt
dæmi séu um að olía sé mynduð og
unnin úr setlögum á aldri við island,
kannski 20 miUj. ára.
Þeir kostir sem taldir voru koma tU
greina tU áframhaldandi könnunar á
jarðgasi hér voru m.a. að kortleggja
svæðisbundið gasuppstreymi tU yfir-
borðs í nágrenni við Skógalón með
2-3 m djúpum holum - að ljúka við
túlkun á fyrirliggjandi jarðeðlisfræði-
gögnum bæði af landi og sjó til að fá
betri mynd af setlagastaflanum í Öx-
arfirði - að gera endurkastsmælingar
á landi tU að kanna þykkt og uppbygg-
ingu setlagastaflas betur. - Þetta kem-
ur m.a. fram hjá Jakobi Bjömssyni,
fyrrv. orkumálastjóra, og Guðmundi
Pálmasyni, forstj. Jarðhitadeildar
Orkumálastofnunar, um könnun á
uppnma gass í Öxarfirði í árslok 1992.
Erlendir aðilar
Bandarískt olíufélag hefur nú lýst
áhuga á að kanna vísbendingar í
gögnum Orkustofnunar og fleiri aðUa
um hvort olíu sé
að finna í ís-
lenskri lögsögu.
Það er þó ekki
aUt þegar talað
er um erlenda
aðUa sem þama
koma nærri. Það
var hinn 17.
ágúst 1978 að þá-
verandi iðnaðar-
ráðherra, Gunn-
ar Thoroddsen, heimilaði rannsóknar-
fyrirtækinu Western Geophysical Co.
að framkvæma rannsóknir og olíuleit
á landgrunni íslands, þ.e. út af Eyja-
firði og Skjálfandaflóa. Niðurstöður
lofuðu mjög góðu um tUvist auðlinda
á þessu svæði, og mátti finna á svæð-
unum aUt upp í 4 km þykk setlög (líkt
og áður er minnst á hér að ofan).
í október árið 1981 var svo gerður
samningur miUi íslands og Noregs
sem tók gildi 2. júní 1982 um land-
grunnið á svæðinu miUi íslands og
Jan Mayen og í þeim samningi var
ákveðið að Island og Noregur myndu
sameiginlega láta fara fram rannsókn-
ir á ákveðnum svæðum. Settar voru
reglur um hvernig skyldi hátta olíu-
leit á þeim ef tU kæmi. Áttu Norð-
menn að kosta forrannsóknir á hafs-
botninum, en skipulag að vera í hönd-
um beggja aðUa sameiginlega. Lítið
hefur þó farið fyrir þessu samstarfi
frændþjóðanna að því er best er vitað.
Enn er þess ógetið, að árið 1973 bár-
ust óljósar fregnir af rannsóknum
rússnesks jarðeðlisfræðileiðangurs
sem var á ferð hér við land á skipinu
Akademik Kurchatov undir stjóm dr.
Gleb frá rússnesku vísindaakademí-
unni. Var á þeim tíma talað um að
leiðangurinn hefði fundið augljós
merki um olíu og gas í þykkum setlög-
um inn 160 km norðaustur af Langa-
nesi.
Ekki allir jákvæðir
Fyrir þessu máli öUu hefur ekki
ávaUt verið hrópað „húrra“, og tU
voru þeir sem sögðust ekki hafa
minnstu trú á að hér væri setlög að
finna, hvað þá olía sem væri vinnan-
leg úr þeim. Var þar hugsanlega hinn
ógurlegi „olíugróði" sem stakk í augu.
- Þannig skrifuðu bæði Júlíus Sólnes
verkfræðingur og Kjartan Thors jarð-
fræðingur í ÞjóðvUjann á sínum tíma
um málið. í Þjóðviljanum hinn 13. júlí
1978 mátti m.a. lesa eftirfarandi: „Olía
og olíuleit eru viðkvæm málefni og
vandasöm. Ef við íslendingar hættum
okkur inn á þau svið, erum við komn-
ir í frumskóg stórfyrirtækja og einka-
gróða og þar gilda lögmál frumskógar-
ins ... Við megum ekki flýta okkur um
of, og við megum ekki láta fram-
kvæmdahraða verkefnanna taka af
okkur völdin, líkt og gerst hefur við
Kröflu ... Náttuúruvemdarsjónarmið
koma e.t.v. ekki mikið við sögu í
fyrstu þáttum olíuleitar, en við verð-
um einhvern tíma að gera upp við
okkur hvaða áhættu við viljum taka í
sambandi við boranir og hvort við
viljum yfirleitt olíu eða ekki.“
Enn em áreiðanlega ekki allir sátt-
ir við leitina að svarta gullinu hér, á
landi eða við það, en einhvem tíma
verður að fá úr því skorið hvað kunni
að vera til staðar langt niðri iðrum
jarðar.
Málinu haldið vakandi
Það er langt í frá að málið hafi leg-
ið í láginni allan tímann frá því Jarð-
boranir ríkisins hófu boran á 500
metra djúpu holunni á haustdögum
árið 1982. Við og við hafa birst grein-
ar um málið. Aðallega og lengi vel ein-
göngu í DV. Þannig hafa verið skrifað-
ir á annan tug kjallaragreina í DV af
ýmsum aðilum sem málinu tengjast.
Þar má nefna Guðmund Ómar Frið-
leifsson jarðfræðing og Halldór Ár-
mannsson, báða á Orkustofnun, svo
og Þorkel Helgason orkumálastjóra,
alþingismennina Guðmund Hallvarðs-
son, Guðmund Guðjónsson og Áma
Ragnar Ámason, Áma Magnússon i
viðskiptaráðuneytinu og Bjöm Bene-
diktsson, fyrrv. oddvita í Öxarfjarðar-
hreppi. Auk leiðara í DV og lesenda-
bréfa á tímabilinu frá ótölulegmn
fjölda manna, allt til þessa dags.
Guðmundur Hallvarðsson alþm.
var í fararbroddi fimm annarra þing-
manna sem fluttu árið 1996 tillögu til
þingsályktunar um olíuleit við ísland.
Tillagan var síðan samþykkt í maí
1997.
Ráðherranefnd var skipuð í
september 1997. „Starfshópur um
olíuleit á landgrunni íslands."
Formaður þeirrar nefndar var
Sveinbjöm Bjömsson, deildar-
stjóri auðlindadeOdar Orkustofn-
unar. Þessi nefnd skilaði af sér
greinargerð um mitt þetta ár.
Samkvæmt heimildum DV mun
ætlunin að opinbera niðurstöður
nefndarinnar snemma í næstu
viku. Jafnvel strax á mánudag.
FuEyrða má, að talsvert vatn
eigi eftir að renna til sjávar við
Öxarfjörð áður en olíupallar
verða reistir við fjörðinn eða ann-
ars staðar á Norðausiurlandi. Það
má hins vegar taka undir orð Sig-
urgeirs Ingimundarsonar, fyrrv.
verkstjóra Jarðborana ríkisins, í
viðtali við DV árið 1982 um ol-
íufund hér: „Það er hugsanlegt,
það er það sterkasta, sem ég hef
heyrt tekið til orða.“
mr
Æ §
- '| 1
ml
iarlarkaup
■Staðarkaup
Kaupfélag Suðurnesja
■amkaup
pdafiHlf ■
n.n.
I" 11 Kjanval
Sparkaup
Allt í matinn!
HtmUiíml iérlnrlilm:
SBPknnt Stíiflvar 2 5351020
Greidir fyrir góda dagskrá!
Innlent
fréttaljós
Geir R.Andersen
Frá rannsóknum í Flatey. - Orkan streymir úr iðrum jarðar.