Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1998, Side 52
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998 JU V
60
mm
BodyPump er 45-60 mínútna líkamsræktartími þar sem unnið er með lóð og lóðastangir til þess að þjálfa alla vöðvahópa líkamans í takt við hvetjandi tónlist.
BodyPump er nýtt æði í líkamsræktarstöðvum:
Áhrifarík lyftingatækni
Líkamsræktaræðið sem heltekið
hefur hinn vestræna heim heldur
valdið miklum breytingum á lífi
Qölda fólks. Allir kannast við eró-
bikk-æðið sem gekk eins og eldur í
sinu um heimsbyggðina og hefur
hvergi nærri runnið sitt skeið.
Pallaleikfimi nýtur mikilla vin-
sælda og tiltölulega stutt er síðan
„spinning-æðið“ kom til sögunnar.
Nú er nýtt æði að ryðja sér til rúms
í líkamsræktarstöðvum víða um
heim. Nýja líkamsræktarformið er
„BodyPump", en flestar helstu lík-
amsræktarstöðvar hér á landi bjóða
tíma í BodyPump-æfingakerfinu.
Jón Halldórsson, eigandi líkams-
ræktarstöðvarinnar Þokkabót, hef-
ur verið leiðbeinandi í BodyPump
um nokkurra mánaða skeið.
„BodyPump er 45-60 mínútna lík-
amsræktartími þar sem unnið er
með lóð og lóðastangir til þess að
þjálfa alla vöðvahópa líkamans í
takt við hvetjandi tónlist. Þrátt fyr-
ir að tónlist sé notuð er engin nauð-
syn að kunna dansspor eða þolfimi
til þess að vera þátttakandi," sagði
Jón.
„Mikil áhersla er lögð á rétta
lyftingatækni. Notaðar eru viðráð-
anlegar þyngdir sem hver og einn
ræður við. Endurtekningafjöldi æf-
inganna er mikill og þar af leiðandi
Nýkomið
mikið úrval
af herraskóm
Laugavegi40
sími 551 3577
unnið mikið í fitubrennslu og kraft-
þoli. Hver þátttakandi fær sína
ákveðnu stöng og ákveðið magn af
lóðum sem hentar hans líkamsá-
standi. Allir tímar byrja á góðri
upphitun þar sem unnið er með alla
stærstu vöðvahópa líkamans.
Eftir upphitun eru allir vöðva-
hópar þjálfaðir fyrirfram á skipu-
lagðan hátt. Byrjað er að fara í æf-
ingar fyrir fætur og rassvöðva, þá
er brjóstkassinn þjálfaður ásamt
efra-, mið- og neðra baki. Því næst
eru axlir og handleggir þjálfaðir en
síðan aftur farið í þjálfun fótanna og
rassvöðvanna. Kviðæfingar eru
gerðar í hverjum tíma sem endar
síðan á góðum teygjum og slök-
unaræfingum."
Orkukerfi líkamans
„Þeir sem hafa prófað BodyPump
finna strax mikinn árangur vegna
þess að það er hannað til þess að
vinna með tveimur stærstu orku-
kerfum líkamans. Þau eru annars
vegar loftháð þjáifun, aðferð þar
sem súrefni er notað til þess að
brenna fitu og kolvetnum og skapa
þannig orku fyrir vöðvahópa líkam-
ans.
Hins vegar loftfirrð þjálfun, orku-
ferli sem tekur við þegar álagið á
vöðvahópa líkamans er orðið það
mikið að loftháða þjálfunin nær
ekki að koma nægu súrefni til
vöðvanna. Loftfirrð þjálfun gefur
vöðvunum tækifæri á að þjálfa af
mikilii ákefð í stuttan tíma.
Kosturinn við BodyPump er sá að
allir geta tekið þátt hlið við hlið, án
tillits til líkamsforms. Þátttakendur
velja sjálflr þá þyngd lóða sem þeir
vinna með í BodyPump. BodyPump
er því fyrir konur og karla, unga
sem gamla, byrjendur sem lengra
komna.
BodvPumn er
liðin eru frá því það kom fyrst til
sögunnar. Það var fyrst kynnt hér
til sögunnar í júlí á þessu ári. Kerf-
ið er byggt upp eftir ákveðnum að-
ferðum og mjög ströngum reglum.
Ef ég ætla mér að kenna BodyPump,
þá verð ég fyrst að undirgangast
stífa þjálfun í tvo daga og eftir það
fæ ég tvær vikur til að æfa kerfið.
Að loknum tveggja vikna æfingum
hitti ég aftur kennarann að máli og
fer með honum yfir grundvallarat-
riðin, tæknina í lyftingunum,
hvemig leiðbeina beri nemendum,
hvemig skapa eigi gott andrúmsloft
og svo framvegis.
Eftir það er mér úthlutað bráða-
birgðaleyfi og kenni eftir því í 3
mánuði. Að loknum þessum þrem-
ur mánuðum ber mér að senda
myndbandsspólu út til Les Mills
með æfingum mínum og nemenda
minna. Farið er gagnrýnum hönd-
um um efnið. Er kennarinn að
beita réttum aðferðum, gefur hann
rétt merki til nemenda sinna, beit-
ir hann réttri lyftingatækni eða er
hann í takt við tónlistina? Ef öll at-
riði em í lagi úthlutar Les Mills
leyfum til þeirra kennara sem
Kosturinn við BodyPump er sá að allir geta tekið þátt hlið við hlið, án tillits til iíkamsforms.
ekki alveg nýtt af
nálinni. Það kem-
ur frá fyrirtæki i
Nýja-Sjálandi sem
heitir Les Mills,
sama fyrirtæki og
byrjaði með palla-
leikfimina.
BodyPump kom
fyrst fram á sjón-
arsviðið hjá þeim
fyrir tæpum 8
árum.
Ýmsar ástæður
em fyrir því að
BodyPump náði
strax miklum vin-
sældum. Þeirrar
tilhneigingar
gætti í líkams-
ræktarstöðvum
víða um heim að
gestir stöðvanna
færðu sig úr eró-
bikkinu yfir í
tækjasalinn. Ráð-
endur hjá Les
Mills komu auga
á þessa þróun og
datt fljótlega í hug
að senda sérfræð-
inga inn í tækja-
salinn með lóð og
láta hann gera æf-
ingar. Afleiðingin var sú að tækja-
salurinn fylltist af fólki. Les Mills
hófu strax að þróa ákveðið lyftinga-
kerfl sem byggt var á leiðbeiningum
sérfræðinga og afraksturinn af
þeirri vinnu er það sem nú er kall-
að BodyPump. Þeir sem koma að
framþróun þessa kerfis í dag eru
allt sérfræðingar, læknar, íþrótta-
fræðingar og sjúkraþjálfarar," sagði
Jón.
Strangar reglur
„BodyPump hefur tekið nokkram
breytingum á þeim átta áram sem
standast prófið.
BodyPump er í stöðugri fram-
þróun. Ný útgáfa er sett á markað-
inn á þriggja mánaða fresti. Lög-
giltir kennarar þurfa að kynna sér
nýjar útgáfur, að minnsta kosti
þrjár af fjórum á hverju ári, til að
halda réttindum sínum. í
BodyPump eru ákveðnar línur sem
fara verður eftir. Kennurum er
meðal annars gert að klæðast
þröngum fotum til þess að nemend-
ur geti séð réttar líkamslínur og
rétta beitingu líkamans," sagði
Jón. -ÍS
Fram undan
114. nóvember:
Stjörnuhlaup FH
Hlaupið hefst klukkan 13.00
I við íþróttahúsiö Kaplakrika.
Hafnarfirði. Vegalengdir. Tíma-
■ taka á öllum vegalengdum og
P flokkaskipting bæði kyn. 10 ára
: og yngri (600 m), 11-12 ára (1
| km), 13-14 ára (1,5 km), 15-18
ára (3 km), 19-39 ára, 40 ára og
eldri (5 km). Allir sem ljúka
keppni fá verðlaun. Upplýsing-
: ar gefur Sigurður Haraldsson i
sima 565 1114.
31.desember:,
Gamlárshlaup IR
| Hlaupið hefst klukkan 13.00
j og skráning er frá klukkan
11.00. Vegalengd. 10 km með
f tímatöku. Flokkaskipting bæði
kyn; 18 ára og yngri, 19-39 ára,
p 40-44 ára, 45-49 ára, 50-54 ára,
í 55-59 ára, 60 ára og eldri. Upp-
j lýsingar gefúr Kjartan Árnason
I í síma 587 2361, Hafsteinn Ósk-
í, arsson í síma 557 2373 og Gunn-
s ar Páll Jóakimsson í síma 565
j 6228.
131. desember:
Gamlárshlaup UFA
Hlaupið hefst klukkan 12.00
við Dynheima og skráning er
frá kl. 11.00-11.45. Vegalengdir.
4 km og 10 km með tímatöku.
Flokkaskipting bæði kyn; 13-15
j ára (4 km), 16-39 ára, 40 49 ára,
j 50-59 ára, 60 ára og eldri. Upp-
lýsingar hjá UFA, pósthólf 385,
I 602 Akureyri.
31. desember:
Gamlárshlaup KKK
Hlaupið hefst klukkan 13.00
j við Akratorg, Akranesi. Vega-
1 lengdir. 2 km, 5 km og 7 km.
| Upplýsingar gefúr Kristinn
; Reimarsson í síma 431 2643.