Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1999, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1999, Blaðsíða 50
LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999 TYW <62 jfmæli - / * Hl hamingju með afmælið 17. apríl 85 ára Helga Hannesdóttir, Hæðargarði 33, Reykjavík. Sigurbjörg Guðjónsdóttir, Hlíðarvegi 16, ísafirði. 80 ára Kristmann Jónsson, Strandgötu 21A, Eskifirði. 75 ára Pálína Magnea Pálsdóttir, Skipholti 8, Reykjavík. Roy B. Breiðfjörð, Blikahólum 2, Reykjavík. Sigurður Sigfússon, Skarðsbraut 15, Akranesi. 70 ára Anna Magnúsdóttir, Sunnuflöt 25, Garðabæ. Hún tekur á móti gestum á heimili sonar síns að Sigur- hæð 4, Garðabæ, á afmælis- daginn milli kl. 15 og 19. Hjalti Eyjólfsson, Lágholtsvegi 15, Reykjavík. 60 ára Konráð Halldór Júlíusson, Háaleitisbraut 34, Reykjavík. Jónas Guðmundsson, Stekkjarseli 3, Reykjavík. Hallberg Kristinsson, Iðufelli 2, Reykjavík. 50 ára Halldór Halldórsson, Frakkastíg 7, Reykjavík. Pétur Sævar Kjartansson, Hraunbæ 136, Reykjavík. Jón Mar Guðmundsson, Arageröi 17, Vogum. Þorleifur Leó Ananíasson, Dalsgerði 5G, Akureyri. 40 ára Óskar Már Ásmundsson sölustjóri, Seljabraut 52, Reykjavík. Helga Jóna Pálmadóttir kennari.Tunguvegi 28, Reykjavík. Birgitte Heide, Ljósheimum 4, Reykjavík. Marjan Herkovic, Vallarási 2, Reykjavík. Þráinn Öm Ásmimdsson, Brúarási 15, Reykjavík. Ottó Sveinn Hreinsson, BoUagörðum 89, Seltjamarnesi. Runólfur S. Steinþórsson, BoUatanga 20, MosfeUsbæ. Hörður Jónsson, SólvöUum 9, Grindavík. Lára Björk Kristinsdóttir, Ránargötu 23, Akureyri. Heiðar Eliasson, Vestursíðu 26, Akureyri. Hafdfs Jóna Kristjánsdóttir, Lóurima 4, Selfossi. Arnljótur Guðmundsson Arnljótur Guðmundsson húsa- smíðameistari, Beykihlíð 4, Reykja- vík, er sjötugur í dag. Starfsferill Arnljótur fæddist í Sléttárdal i Austur-Húnavatnssýslu. Hann var átta ára er hann missti föður sinn og ólst upp með systkinum sínum hjá móður sinni sem hafði alltaf sjálfstæðan búskap á ýmsum bæj- um í Svínavatnshreppi. Arnljótur stundaði nám í farskóla í sveitinni, tvo mánuði á vetri í fjóra vetur og vann auk þess al- menn sveitastörf á búi móður sinn- ar til fjórtán ára aldurs. Arnljótur flutti til Reykjavíkur 1946, stundaði nám við Iðnskólann í Reykjavík, lauk þaðan prófum 1949, lærði húsamíði hjá Magnús Vigfús- syni frá Þorleifskoti í Flóa, lauk sveinsprófi í húsasmíði 1951 og öðl- aðist meistararéttindi 1954. Frá því Arnljótur öðlaðist meistararéttindi hefur hann verið sjálfstæður at- vinnurekandi. Arnljótur var einn af stofnendum Kiwanisklúbbsins Esju 1970, forseti hans 1979 og svæðisstjóri Þórssvæð- is 1984-85. Hann var kosinn í stjórn Meistarafélags húsasmiða 1984, var gjaldkeri félagsins 1990-94 og hefur verið formaður Meistarafélags húsasmiða frá 1994. Fjölskylda Eiginkona Arnljóts er Hrefna Magnúsdóttir, f. 20.3. 1934, textíllistakona. Foreldrar hennar voru Magnús Jónsson, frá Breiðholti og Hrefna Egg- ertsdóttir Norðdahl, frá Hólmi við Suðurlandsveg í Reykjavík. Börn Arnljóts og Hrefnu eru Ásdís Sólrún, f. 20.6. 1957, starfar hjá Almannavörnum ríkisins, var fyrst gift Gunnari Hreinssyni, f. 29.11. 1955, og er dótt- ir þeirra Hrefna Marín, f. 1.3. 1977, nemi í rafmagnsverkfræði við HÍ, og er sambýlismaður hennar Finn- ur Breki Þórarinsson, f. 29.7. 1974, kerfisfræðingur, en seinni maður Ásdisar Sólrúnar var Bjami Heiðar Halldórsson, f. 21.10. 1952, og eru synir þeirra Nökkvi Jarl, f. 3.9.1987, Pétur Breki, f. 11.1. 1990, og Bjarni Heiðar, f. 5.6. 1991, auk þess sem stjúpdóttir Ásdísar er Helga Heið- arsdóttir, f. 18.5. 1979, verslunar- maður; Hulda Anna, f. 2.11. 1960, námsráðgjafi og verkefnisstjóri hjá Rannsóknarþjónustu HÍ, en sambýl- ismaður hennar er Ágúst H. Ing- þórsson, f. 22.8. 1961, framkvæmda- stjóri Rannsóknarþjónustu HÍ, en sonur Huldu Önnu og fyrrv. sam- býlismanns hennar, Sigtryggs Jóns- sonar, f. 21.2. 1952, er Unnar Steinn, f. 30.9. 1983, og börn Ágústs af fyrra hjónabandi eru Hjörtur, f. 18.10. 1983, og Embla, f. 12.8. 1990; Guð- mundur, f. 30.1. 1963, raf- magnsverkfræðingur í Sviþjóð, en kona hans er Líney Björk Weisshappel, f. 3.10. 1963, veitingamað- ur, og eru börn þeirra Diljá Björt, f. 11.8. 1989, og Arnljótur, f. 28.7. 1994; Arnar Þorri, f. 16.4. 1968, tæknimaður hjá Öryggismiðstöð íslands og nemi á Tölvubraut Iðnskólans, en sambýl- iskona hans er Magnea Gunnars- dóttir, f. 16.7. 1965, bankaritari. Systkini Arnljóts eru Hannes, f. 3.4. 1925, lengi bóndi á Auðkúlu í Svínadal en dvelst nú á Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi; Elín Sigurhjörg, f. 24.4. 1931, bóka- vörður í Reykjavík, en dóttir henn- ar er Áslaug Inga Þórisdóttir, f. 6.11. 1959. Foreldrar Arnljóts voru Guð- mundur Kristjánsson, bóndi í Slétt- árdal, og k.h., Pálína Anna Jóns- dóttir húsfreyja. Ætt Guðmundur var sonur Kristjáns, ráðsmanns á Hafgrímsstöðum í Tungusveit, Kristjánssonar, b. á Hólkoti í Staðarhreppi í Skagafirði, bróður Sigríðar á Þönglabakka, langömmu Sverris, fóður Valgerðar alþm. Kristján var sonur Jóns, b. og hreppstjóra á Kimbastöðum, Rögn- valdssonar. Móðir Guðmundar var Elín Arn- ljótsdóttir, f. á Syðri-Löngumýri í Blöndudal, Guðmundssonar, alþm. frá Guðlaugsstöðum, Amljótssonar. Pálína var systir Guðrúnar, ömmu Guðrúnar Agnarsdóttur, fyrrv. alþm., og Ástríðar Thoreren- sen forsætisráðherrafrúar. Pálína var dóttir Jóns, b. á Brún í Svartár- dal, bróður Guðmundar læknapró- fessors, og Páls á Guðlaugsstöðum, fóður Björns, fyrrv. alþm. á Löngu- mýri, og Huldu, móður Páls Péturs- sonar félagsmálaráðherra. Jón var sonur Hannesar, b. og silfursmiðs á Eiðsstöðum, Guðmundssonar, bróð- ur Amljóts á Syðri-Löngumýri. Móðir Pálínu var Sigurbjörg Frí- mannsdóttir, hálfsystir Þorgríms, afa Ásbergs borgarfógeta, fóður Jóns, framkvæmdastjóra Útflutn- ingsráðs íslands, og afa Valborgar, fyrrv. skólastjóra Fósturskólans, móður Stefán Snævarr heimspek- ings," Sigurðar Snævarr hagfræð- ings, og Sigríðar Snævarr, sendi- herra í París. Arnljótur verður staddur á æsku- slóðum sínum í Húnavatnssýslu á afmælisdaginn. Arnljótur Guðmundsson. Sigrún Sturludóttir, fyrrv. kirkju- vörður, Espigerði 4, Reykavjík, verður sjötug á morgun. Starfsferill Sigrún fæddist á Suðureyri við Súgandaíjörð og ólst þar upp. Hún stundaði nám við Héraðsskólann á Núpi og við Húsmæðraskólann Ósk á Ísafírði. Sigrún var kirkjuvörður við Bú- staðakirkju, var gjaldkeri á Póst- gíróstofunni og stundaði verslunar- og skrifstofustörf. Sigrún hefur tekiö virkan þátt i félagsmálum af ýmsum toga. Hún sat í stjóm Póstmannafélagsins, í stjórn Bandalags kvenna í Reykja- vík, i stjórn Kvenfélagasambands ís- lands, í stjórn Félags framsóknar- kvenna í Reykjavík og var formað- ur þess, sat í stjórn Landssambands framsóknarkvenna og var formaður þess, sat í stjórn kvenfélagsins Ár- sólar í Súgandafirði og var formað- ur þess og formaður leikfélagsins á Súgandafirði, situr í stjóm Kvenfé- lags Bústaðasóknar og er formaður þess. Sigrún sat í áfengisvarnaráði, í orlofsnefnd húsmæðra í Reykjavik, situr í skólastjórn Hússtjómarskól- ans í Reykjavík og hefur tekið mik- inn þátt í starfi IOGT og starfað mikið með Framsóknarflokknum í Sigrún Sturludóttir Reykjavík. Fjölskylda Sigrún giftist 17.4. 1949 Þórhalli Halldórssyni, f. 21.10. 1918, fyrrv. verkstjóra. Hann er sonur Halldórs Jónssonar, bónda á Arngerðareyri við ísafjörð, og Steinunnar Jóns- dóttur húsfreyju. Dætur Sigrúnar og Þórhalls eru Inga Lára Þórhallsdóttir, f. 1.9.1949, aðstoðarmaður sjúkraþjálfara á ísa- firði, gift Elvari Bæringssyni bíla- sala og eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn; Sóley Halla Þórhalls- dóttir, f. 11.7. 1953, kennari í Njarð- vík, gift Kristjáni Pálssyni alþm. og eiga þau tvö börn, auk þess sem hann á tvö börn frá fyrra hjóna- bandi og eitt barnabarn; Auður Þór- hallsdóttir, f. 28.5. 1958, kennari, bú- sett í Kópavogi, gift Siggeir Sig- geirssyni rafeindavirkjameistara og eiga þau þrjú börn; Steinunn Þór- hallsdóttir, f. 16.10. 1966, markaðs- fulltrúi, búsett í Kópavogi, í sambúð með Einari Þór Einarssyni útsend- ingastjóra og eiga þau eitt barn auk þess sem hann á bam frá því áður. Systkini Sigrúnar eru Eva Sturlu- dóttir, f. 7.9. 1928, fulltrúi, búsett í Reykjavík; Kristín Sturludóttir, f. 14.6. 1930, skrifstofumaður, búsett í Reykjavík; Jón Sturluson, f. 21.10. 1932, rafvirki, búsettur í Reykjavík; Eðvarð Sturluson, f. 23.3. 1937, umsjónarmaður á Súgandafirði. Foreldrar Sigrúnar voru Sturla Jónsson, f. 24.8. 1902, d. 2.10. 1996, oddviti og hreppstjóri á Suðureyri við Súganda- fjörö, og k.h., Kristey Hallbjörnsdóttir, f. 22.2. 1905, d. 30.7. 1983, hús- freyja. Sigrún Sturludóttir. Ætt Sturla var sonur Jóns, formanns og síðar íshússtjóra á Suðureyri, Einarssonar, b. á Meiribakka í Skálavík, Jónssonar. Móðir Sturlu var Kristín Krist- jánsdóttir, útvegsmanns á Suður- eyri, Albertssonar. Móðir Kristínar var Guðrún Þórðardóttir, b. í Vatnadal, Þórðarsonar, bróður Guð- ríðar Bjarnadóttur, móður Guð- mundínu, ömmu Gils Guðmunds- sonar, fyrrv. alþm. Guðríður var amma Guðrúnar, langömmu Ólafs Þ. Þórðarsonar alþm. og Kjartans Ólafssonar, fyrrv. alþm. og ritstjóra. Kristey var dóttir Hallbjamar, ættföður Hallbjarnarættar, Odds- sonar, pr. í Gufudal, Hallgrimsson- ar, pr. í Görðum á Akranesi, Jóns- sonar, stiftprófasts á Hólum, bróður Skúla landfógeta. Móðir Hallgríms var Þórann Hansdóttir Scheving, klausturhald- ara á Möðruvöllum, Lár- ussonar Schevings, ætt- föður Schevingættar. Móðir Þórunnar var Guð- rún Vigfúsdóttir, stúdents á Hofl, Gíslasonar, rekt- ors á Hólum, Vigfúsonar. Móðir Odds var Guðrún Egilsdóttir, systir Svein- bjarnar rektors, föður Benedikts Gröndals. Móðir Hall- bjarnar var Valgerður Benjamíns- dóttir, b. í Langeyjamesi, Björns- sonar. Móðir Benjamíns var Ragn- heiður Magnúsdóttir, sýslumanns i Búðardal, Ketilssonar. Móðir Val- gerðar var Sigríður Sigmundsdóttir, gullsmiðs í Akureyjum, Magnússon- ar, bróður Ragnheiðar. Móðir Sig- ríðar var Valgerður Jónsdóttir, pr. í Holti í Önundarflrði, Eggertssonar, og Gunnhildar Hákonardóttur, pr. á Álftamýri, Snæbjömssonar, bróður Magnúsar, langafa Jóns forseta. Móðir Kristeyjar var Sigrún Sig- urðardóttir, b. i Gufudal, Jónssonar og konu hans, Guðrúnar Níelsdótt- ur. Sigrún og Þórhallur taka á móti ættingjum og vinum í safnaðar- heimili Bústaðakirkju sunnudaginn 18.4. milli kl. 16.00 og 19.00. María Jónasdóttir María Jónasdóttir, hús- móðir og starfsmaður við umönnun sjúkra, Skúla- götu 76, Reykjavík, verður sjötug á morgun. Starfsferill María fæddist í Lang- húsi í Fljótsdal en ólst upp á Þuríðarstöðum. Hún var í bamaskóla til íjórtán ára aldurs. Á unglingsárunum starfaði María í mötuneytum og stundaði fiskvinnslu. María flutti til Reykjavíkur 1954. Jafnframt heimilisstörfum vann hún í mötuneytum um árabil. Hún lærði umönnun aldraðra, fatlaðra og sjúkra og starfaði síðan við um- önnun á Heilsuverndarstöð Reykja- víkur, á Grensásdeild og i Hátúni. Hún hætti störf- um við sextíu og sjö ára aldur. María hefur starfað mikið fyrir Rauða kross- inn sl. tuttugu ár. Þá starfar hún í félagssam- tökum eldri borgara. Fjölskylda Eiginmaður Maríu var Ólafur Indriðason, f. 4.10. 1921, d. 16.10. 1986, starfsmaður hjá Vegagerð ríkisins og bifreiðastjóri hjá KHB. Hann var sonur Indriða Jóhannsson, bónda í Áreyjum og Grænuhlíð í Reyðarfirði, og Kristín- ar Hildar Einarsdóttur húsfreyju. Börn Maríu og Ólafs eru Indriði Páll Ólafsson, f. 6.12.1951, vagnstjóri hjá SVR, búsettur í Reykjavík, kvæntur Eddu Ármannsdóttur hús- móður; Soffla Guðbjört Ólafsdóttir, f. 13.6. 1956, vinnur við bókband hjá Bókvirki, gift Jóni Emil Kristins- syni rafvirkja og eiga þau flögur börn og tvö barnabörn; Jónas Ölafs- son, f. 1.5. 1963, kokkur í Kaup- mannahöfn, og á hann eina dóttur. Fósturdóttir Maríu á vegum SOS er Marita Saídí, f. 6.1. 1989, búsett í Lilongwe í Malavi i Afríku. Systkini Maríu: Ágústa, f. 9.4. 1927, d. 31.1. 1999, húsfreyja á Þuríð- arstöðum í Fljótsdal; Þórhildur, f. 18.9. 1930, starfsmaður við Sjúkra- húsið á Egilsstöðum; Þorsteinn, f. 11.4. 1932, bóndi á Arnaldsstöðum í Fljótsdal; Hjalti, f. 12.12.1933, verka- maður á Egilsstöðum; Jón Þór, f. 5.5.1935, fyrrv. bóndi í Hjarðarholti í Stafholtstungum í Borgarfirði, nú búsettur í Borgarnesi; Skúli, f. 21.6. 1936, fyrrv. hóndi á Lynghóli í Skriðdal, nú búsettur á Egilsstöð- um; Bergljót, f. 24.9.1937, fyrrv. hús- freyja á Þorgerðarstöðum í Fljóts- dal; Benedikt, f. 7.8. 1939, múrari á EgÚsstöðum; Ásgeir, f. 29.8. 1941, fyrrv. bóndi á Melum i Fljótsdal, nú verkamaður á Egilsstöðum; Unnur, f. 24.3. 1942, húsmóðir og starfar við dagheimili á Selfossi, búsett á Sel- fossi; Soffía, f. 21.6. 1944, húsmóðir og starfar við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, búsett á Akureyri. Foreldrar Maríu voru Jónas Þor- steinsson, f. 16.5. 1898, d. 11.5.1968, bóndi á Þuríðarstöðum, og k.h., Soffía Ágústsdóttir, f. 8.7. 1906, d. 21.6.1944, húsfreyja. María Jónasdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.