Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.1999, Qupperneq 30
LAUGARDAGUR 1. MAÍ1999
30
★
iðsljós
Pacino þráir
afkvæmi
Þó aö A1 Pacino eigi aðeins örfá ár í eftirlaunaald-
urinn þá reynir hann allt til þess að bama kærust-
una sína, Beverly D'Angelo. Svo rammt kveður að
þessari bamasýki að Pacino krefst þess að Beverly
fljúgi til sín, stundum þúsunda kílómetra leið, til
þess aö þau geti hitt á rétta tímabilið til frjóvgunar.
Beverly hefúr farið til frjósemislæknis sem hefur
ráðlagt nákvæman tíma sem á að vera heppilegur.
Og þegar hitastigið hækkar tekur hún ferðatöskuna
og hoppar upp í flugvél, því bóndinn er sjaldan
heima við.
Því miður fær A1 svo ekkert kynlíf á milli þessara
réttu stunda því Beverly vill að hann „spari vopnin"
eins og hún orðaöi það sjálf. A1 þarf að standast all-
ar freistingar og ekki þýðir að láta frygðina hlaupa
með sig í gönur. Hann getur þó einn sagt til um
hversu sparsamur hann er.
Úr forystugrein Dags.
Ellert B. Schram
forseti ÍSÍ
„ Verstur er þó hlutur öryrkj-
anna, sem aldrei hafa beðið
um sína örorku en eru háðir
þeim smánarskammti sem
hrekkur af borðum allsnægt-
arinnar. “
Október 1998.
„Aðeins lítið brot af öllum þeim milljörðum sem ríkissjóður hefur bætt
við sig í skatttekjum á þessu ári og því næsta myndi duga til að gera
hér nauðsynlegar úrbætur."
Desember 1998.
Úr forystugrein Morgunblaðsins:
„í Ijósi réttsýni og sanngirni ertímabært, að ekki sé fastar að orði
kveðið, að endurskoða stöðu öryrkja, sérstaklega þeirra
sem urðu öryrkjar ungir."
Desember 1998.
Oryrkjabandolag Islands
i
i
i
i
i
i
i
i
I
i
I
t Þú um einhverjar uw einsP
Ef svo er þá hvetjum við þig til að senda okkur mynd því í tilefni mæðradagsins er
leitin hafin að líkustu mæðgum íslands.
Skilafrestur á myndum er til 30. apríl.
Dómnefnd mun velja tiu líkustu mæðgurnar og frá 3 - 6. maí
fer fram atkvæðagreiðsla á visir.is.
Úrslitin verða kynnt þ. 8. maí.
visir.is
Tíu líkustu mæðgurnar fá blómvönd frá Blómum & ávöxtum en líkustu mæðgurnar fá að auki ferð til
Lundúna með Samvinnuferðum -Landsýn og Pentax Espio 738 myndavél frá Ljósmyndavörum, Skipholti 31.
*BIÓM©ÁyEXHR
hf
Tvær eins - Matthildur FM 88,5 - Hverfisgötu 46,101 Reykjavík
I
I
I
I
I
"I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Framhjáhaldarinn Robin
Robin Williams lítur út fyrir að
vera einlægur og góður maður en
margt óhreint um hann er þó dreg-
ið fram í nýútkominni ævisögu.
Þegar hann var giftur Valerie Vel-
ardi var hann óforbetranlegur fram-
hjáhcddari og dópisti - en skildi við
eiginkonu sína þegar hann komst
að því að hún hefði haldið fram hjá
honum, jafnvel þó að hann hefði
sjálfur staðið í slíku árum saman.
Valerie er sögð hafa þolað manni
sínum svikin í þau tíu ár sem þau
voru gift en þurfti þó sina útrás
annað slagið. Stimdum óð hún að
einhverjum konum sem sátu hjá
Robin og sagði: „Komdu sæl, ég
heiti Valerie Williams, eiginkona
Robins. Ef þú heldur að hann muni
yfirgefa mig vegna þín þá hlýturðu
að vera eitthvað klikkuð." En þegar
Valerie féll í þá gryfju að fara að
leika sama leik og Robin þá sótti
hann um skilnað. „Ég var kvik-
indi,“ viðurkenndi leikarinn slðar.
„En þar kom að ég gat ekki gert
sjálfum mér þetta lengur."
Eru menn sjálfhverfir eða eru
menn sjálfhverfír?
Ford með fiðringinn?
Ætli Harrison Ford sé kominn
með gráa fiðringinn? Samkvæmt sér-
lega ólygnum heimildarmönnum hef-
ur spennufíkn hans keyrt um þver-
bak upp á síðkastið og leikarinn
stefnt hjónabandi sínu og Melissu
Mathison í voða, svo rammt kveður
að vitleysunni. Folinn, sem er orðinn
56 ára gamall, hefur sótt í hrað-
skreiða bíla og flugvélar og ærslast
um með konum sem eru helmingi
yngri en hann. Hann hefur einnig
leikið óvenjumörg áhættuatriði sjálf-
ur í kvikmyndum á borð við Six
Days, Seven Nights og meðal annars
hangið neðan úr flugvél bara til þess
að fá adrenalínkikkið. Ætli það séu
ekki til hormónalyf fyrir karla eins
og konum eru gefin á breytingaskeið-
inu?
Kevin klúðraði leiknum
Kevin Costner gerði sig aldeihs að
fífli á íþróttavellinum um daginn þeg-
ar hann sneri aftur í sinn gamla há-
skóla til þess að spila hafnabolta á
móti Anaheim Angels-liðinu. Allt
gekk eins og í sögu til að byija með en
síðan klúðraði Costner auðveldu kasti
og endaði á að eyðileggja leikinn.
Hann var skömmustulegur þegar
hann kom fram eftir á og sagði: „Mér
Uður verulega illa yfir því að eyði-
leggja fyrir öllum hinum. Ég klúðraði
þessu. Og mig sem langaði svo rosa-
lega til þess að vinna."
Til að kóróna allt saman er Kevin
að fara að leika í kvikmynd sem ber
nafnið For the Love of the Game og
fjallar um hafnaboltaleikara sem hef-
ur klúðrað ferh sínum. Það hlýtur að
núa salti í sárin.
ifókus
N ý r! 7 6 f u r s e m f y 1 g i r V í r. i • i *. á H v e r j u m d e g i
vísir.is
I