Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.1999, Qupperneq 44
56
fólk
LAUGARDAGUR 1. MAI 1999
- gengi nokkurra fyrirtækja
Á siðustu árum hafa sprottið upp íslensk
hátæknifyrirtæki, drifm áfram af hugsjón
frumherjanna sem tekist hefur að hrista upp
í viðteknum hugmyndum og leyst þrautir
sem miklu stærri fyrirtæki íslensk og erlend
höfðu geflst upp á eða ekki komið auga á.
Þetta hefur vakið athygli erlendis og þaðan
hefur komið nýtt flármagn sem í mörgum til-
fellum var ekki að fá hér á landi. Raunar
hefði eitt þekktasta fyrirtækið í hátækniiðn-
aði sennilega þurft að leggja upp laupana ef
ekki hefði komið til tiltrú erlendra flárfesta.
Frumherjarnir hafa nánast lagt líf sitt að
veði fyrir framgangi hugmynda sinna. Þeir
hafa þurft að selja hlut í hugmyndinni, fórna
eignarhluta í fyrirtækjum sínum, og oft
meirihluta, til að fá nýtt flármagn inn í fyrir-
hefur snarhækkað á undanförnum
tækið. Þeir hafa sjálfir verið í sviðsljósinu en
í mörgun þessara fyrirtækja er Bjöm að baki
Kára, annar frumherji sem skiptir alveg jafn-
miklu máli og hinn sem mest ber á.
Þótt gengi hlutabréfa í þessum fyrirtækjum
séu ekki opinberlega skráð hefur myndast
verð á þeim hjá verðbréfafyrirtækjum. Það er
erfitt að meta óskráð einkafyrirtæki því þeim
ber engin skylda til að birta afkomutölur né
annað sem varpar ljósi á raunverulega af-
komu. Fréttir af nýjungum, samningum og
samstarfi við erlend fyrirtæki, jafvel sögu-
sagnir hafa haft áhrif á þetta „neðanjarðar-
verð“. Það sveiflast miklu meira heldur en
verð á hlutabréfum í skráðum fyrirtækjum.
Síðustu vikur og mánuði hefur gengi nokk-
urra hátæknifyrirtækja hækkað um tugi pró-
mánuðum og samkvæmt því eru
senta á nokkrum vikum og mánuðum. Menn
velta þvi fyrir sér hvað sé raunverulega að
marka þessar hækkanir og hvort eigendurnir
séu orðnir moldríkir, fyrirtæki sem enginn
hafði heyrt um áður orðið milljarða virði.
Hækkanirnar þurfa ekki að endurspegla góða
eða trausta afkomu heldur einungis mikla trú
á framtíðarmöguleikum fyrirtækjanna, hæfni
starfsfólks þess eða hreinlega tilflnningalegu
mati vegna frétta um samstarf og samninga.
Gildi ,jákvæðra“ frétta af gengi umræddra
fyrirtækja er mikið og margir halda að þær
séu oft á tíðum nokkuð „ýktar" (“fake-it-till-
you-make-it“), verið sé að láta hlutina líta bet-
ur út en ástæða sé til.
Þessar hækkanir eru oft skammgóður
vermir og mikil áhætta tekin með flárfest-
eigendurnir orðnir stórefnaðir
ingu í þessum fyrirtækjum. Reyndar fær ekki
hver sem er að kaupa hlutabréf óskráðra há-
tæknifyrirtækja hjá verðbréfasölum og við-
skipti eru lítil sem engin. Einhverjir gætu þó
haldið að frumherjarnir væru farnir að koma
„sýndarhagnaði" sínum fyrir í glæsilegum
húsum og bifreiðum og berast mikið á. Sú er
þó ekki raunin enda miklar hækkanir mest á
pappirnum. Virði hlutabréfanna er eiginlega
fast í fyrirtækjunum. Ef einhver frumherj-
anna selur skyndilega stóran hlut á markaði
verður fyrirtækið fljótlega einskis virði. Þótt
viljinn væri fyrir hendi hjá frumherjunum til
að losa eitthvað af hækkunum síðustu ára þá
skortir sjálfsagt tíma til að hugsa um slíka
hluti - þeir eru jú vinnandi frá morgni til
kvölds alla daga. -aöh
Nafn frumkvöðuls: Sigfús Halldórs.
Aldur: 26 ára.
Stjörnumerki: Vog.
Menntun: Tölvufræðingur frá HÍ.
Fyrirtæki: Memphis.
> Framleiðsluvara: Survey Explorer.
Áætlað markaðsvirði: 800 milljónir kr.
Eignarhlutur: 40%.
Áætlað virði: 320 milljónir kr.
Félagarnir
þorðu ekki
Sigfús Halldórs stofnaði tölvuþjónustuna
Höfuðlausn og seinna Huggildi eftir útskrift
úr HÍ. Einn daginn fékk hann hugmynd að
nýjum hugbúnaði sem félögum hans leist vel
á en þorðu ekki að leggja fé í. Sigús hélt sjálf-
ur áfram og þróaði hugbúnaö til að vinna úr
skoðanakönnunum, Survey Explorer, sem nú
er notaður hjá 53 aðilum hérlendis og vakið
hefur athygli erlendis. Forritið auðveldar
mjög vinnslu gagna sem aflað er með könn-
unum á viðhorfi fólks. Það er fyrsta könnun-
arforritið sem gerir kleift að senda niðurstöð-
ur í tölvutæku formi og jafnvel með tölvu-
pósti auk þess sem vinna má úr flóknum
markaðsgögnum á myndrænan hátt.
Það eru aðallega stórfyrirtæki og stór mark-
aðs- og könnunarfyrirtæki sem hafa sýnt Sur-
v vey Explorer áhuga. Móðurfyrirtækið er skráð
í Bretlandi en hugbúnaðardeildin er hérlendis.
Stefnt er að því að fara með það á hlutabréfa-
markað árið 2001. Nú vinna 14 manns hjá
Memphis og ef samningar ganga eftir þarf fyr-
irtækið að ráða til sín aðra 10-20. Allir starfs-
menn eru eigendur og eiga um 5% hlut. Önn-
ur eignaraðild er dreifð og á margra höndum.
Nafn frumkvöðuls: Guðjón Már Guð-
jónsson.
Aldur: 27 ára.
Stjömumerki: Vatnsberi.
Menntun: Næstum því stúdent eins og
Bill Gates.
Fyrirtæki: OZ og OZ.com.
Áætlað markaðsvirði: 11-13 milljarðar.
Eignarhlutur Guðjóns: 32,5%.
Áætlað virði: 3,6-4,3 milljarðar kr.
Erlent fé kom í
veg fyrir skipbrot
Guðjón Már Guðjónsson stofnaði fyrir-
tækið ásamt öðrum fyrir níu árum. 1991
varð til OZ hf. IBM féll fyrir hugmynda-
fræði þess og lagði því til hálfa milljón doll-
ara i reksturinn svo það gæti keypt nýjasta
tæknibúnað og tók í staðinn veð í tækjunum.
Þremur árum síðar tókst OZ að selja
Microsoft hugbúnað. Hugbúnaðarrisinn leit-
aði lausna hjá dvergfyrirtækinu OZ og er for-
rit þess enn í notkun úti um allan heim und-
ir nafni risans (þó ekki Word).
Internetið var að festa sig í sessi árin
‘94-’95 og OZ-arar hugsuðu með sér: Ef við
getum boðið betri hugbúnaðarlausnir en
Microsoft þá hlýtur að vera eitthvað meira en
lítið varið í okkur. Framtíðarsýnin var mótuð
og nú var að finna flármagn til að hrinda
henni i framkvæmd. Þeir gengu á milli stofn-
ana og fyrirtækja á íslandi en töluðu fyrir
daufum eyrum. Þá var haldið til Japans og
þar, og i Bandaríkjunum, fékkst aukið flár-
magn inn í reksturinn og mátti varla tæpara
standa. Fyrirtækið OZ.com var stofnað í
Bandaríkjunum með aðsetur í San Fransisco
(Silicon Valley). Ericsson kom auga á þá og
síðan hafa þeir átt mikið og ábatasamt sam-
starf við sænska risann.
Fyrirtækið hefur náð langt í þróun svokall-
aðs þrívíddartækni-viðmóts (3D animation)
en það er ekki lengur aðalviðfangsefnið.
Núna er verkefni OZ hvorki meira né minna
en þróun samskiptatækni næstu kynslóðar;
það að tengja saman þessa tvo helstu sam-
skiptamiðla unga fólksins, tölvuna (Intemet-
ið) og farsímana (GSM). Guðjón gegnir starfi
stjórnarformanns og er ennþá einn af stærstu
eigendunum OZ ásamt Skúla Mogensen for-
stjóra sem á litlu minni hlut.
Nafn frumkvöðuls: Holberg Másson.
Aldur: 45 ára.
Stjömumerki: Meyja.
Menntun: Kerfisfræðingur frá New Mex-
ico USA.
Fyrirtæki: Netverk.
Áætlað markaðsvirði: 2,7 milljarðar kr.
Eignarhlutur: 53%.
Áætlað virði: 1,4 milljarðar kr.
Tengdur við
Netið í 10 ár
Þótt Holberg Másson hafi byrjað sem ríkis-
starfsmaður var hann að mörgu leyti tíu áram
á undan okkur hinum í hugsun. Hann hefur til
dæmis sent tölvupóst í 17 ár!! Og fór fyrst á
Internetið 1988 og hefur verið fasttengdur við
það í tíu ár! Pappírssóun fór í taugarnar á Hol-
bergi og hann varð einn af frumkvöðlum raf-
rænna (pappirslausra) samskipta milli tölva
sem í dag eru jafnómissandi þáttur í lífi okkar
og tölvupóstur.
Eftir að hafa talað fyrir daufum eyrum í mörg
^ ár og skrifað tölvupistla í dagblöð fór Holberg að
tengja saman tölvur í net (eins og nú þekkist í
nánast hverju fyrirtæki og stofnun). Seinna
stofnaði hann fyrirtækið Netverk sem hefur á
undanfómum árum verið að gera tugmilljóna
samninga erlendis. Fyritækið framleiðir hug-
búnað fyrir gervihnattasamskipti undir vöru-
merkinu Marstar fyrir stofnanir og fyrirtæki og
Jpr að þróa útfærslu fyrir einstaklinga.
Vegna ört vaxandi viðskipta þurfti að stofna
móðurfélag í Bracknell, rétt vestan við London
(í breska Silicon Valley). Núna fer allt rann-
sóknar- og þróunarstarf fram á íslandi en
hugsanlegt að flytja þurfi það að einhverju
leyti út. Alls starfa 55 manns hjá Netverki en
reiknað er með að tala þeirra tvöfaldist fyrir
árslok. Megnið, eða 90% framleiðslunnar, fer
til útflutnings og farið verður með Netverk á
markað erlendis fyrir árslok 2000. Þá er aldei
að vita nema hann slái metið á loftbelg um-
hverfis jörðina en Holberg er einn helsti sér-
fræðingur íslendinga um þau loftför.
tæki eru væntanleg í haust. Starfsmannaflöld-
inn hefur tífaldast og farið úr fimm í 50
manns. Samt þýðir ekkert að sækja um vinnu
hjá Flögu. Ekki eru ráðnir neinir nema vinir
og vandamenn og vinir þeirra. Ekkert er
greitt fyrir yfirvinnu enda kannski ekki
ástæða til því allir starfsmennirnir eiga hlut
í fyrirtækinu og meirihluti Flögu er í eigu
starfsmanna. Erlendir flárfestar eiga svo 20%
og íslenskir flárfestar 25%. Flaga hlaut nýver-
ið nýsköpunarverðlaun Rannsóknaráðs og Út-
flutningsráðs.
Nafn frumkvöðuls: Helgi Kristbjarnar-
son.
Aldur: 48 ára.
Stjörnumerki: Krabbi.
Menntun: Læknir frá HÍ, doktor 1
taugalífeðlisfræði og sérfræðingur í
geðlækningum.
Fyrirtæki: Flaga.
Áætlað markaðsvirði: 1,5 milljarðar kr.
Eignarhlutur: 25%.
Áætlað virði: 375 milljónir kr.
Ræður bara
vini og
vandamenn
Helgi Kristbjarnarson stundaði svefn-
rannsóknir á geðdeild Landspítalans þar til
hann stofnaði Flögu 1992. Ástæðan fyrir stofn-
un fyrirtækisins var sú að Helgi hafði ekki
eingöngu skoðað sjúklingana heldur ekki síö-
ur tækjabúnaðinn. Varð honum ljóst að tæk-
in til rannsóknanna mætti betrumbæta og
minnka að umfangi. Árangurinn varð Embla,
tæki til svefnrannsókna, og hugbúnaðurinn
somnologica. Þessi búnaður var öflugri og
fyrirferðarminni en áður hafði þekkst og sló í
gegn á svefnrannsóknastofum.
Enn er Embla iðin við kolann og tvö ný